Morgunblaðið - 20.10.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.10.1962, Blaðsíða 8
6 MOBGTJfntl 4010 Laugardagur 20. október 1962. Frá Alþingi: Stefnir að bættu siðferði og léttir greiðslum af ríkissjóði A FUNDI neðri deildar Alþingis í gær, gerði Halldór E. Sigurðs- son grein fyrir frumvarpi um ríkisábyrgðir, er hann og Björn Fr. Björnsson eru flutningsmenn að. H gerði dómsmálaráðherra Bjarni Benediktsson grein fyrir frumvarpi um Norðurlandasamn ing um innheimtu meðlaga og loks gerði Einar Olgeirsson grein fyrir frumvarpi um útvegun lánsfjár til húsnæðismála. Halldór E. Sigurðsson (F) fylgdi frumvarpinu um ríkis- ábyrgðir úr hlaði. Þar vaeri lagt til, að það á- kvæði laganna um ríkisábyrgð- ir, er kveður á um, að ein- göngu skuli gef- in út einföld á- byrgð, nema öðru vísi sé ákveðið í heim- •ildarlögunum sjálfum, nái ekki til sveitarfé- laganna. Þau væru ekki eins vel sett og einstaklingar, þeg- ar um einfalda ábyrgð væri að ræða og kæmi hún þeim því ekki að notum. Þó væri sízt ástæða til að þau sætu við verra borð, og benti alþingismaður- inn í því sambandi m .a. á, að ríkið ætti auðveldar með að inn- heimta hjá sveitarfélögunum en einstaklingum, þar sem ríkis- sjóði er heimilt að taka hvers konar greiðslu til sveitarfélag- anna upp í vangoldnar ríkis- ábyrgðir, Háskalegt fyrir ríkissjóð og siðspillandi í fjármálum Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra sagði m. a., að sem kunnugt væri hefðu ríkisábyrgð ir verið veittar í mjög stórum stíl til margvíslegra fram- kvæmda. Svo hefði verið kom ið, að greiðslur féllu í vaxandi mæli á ríkissjóð og námuþærásl ári um 70 millj. ,r. Öllum þing- mönnum hefði verið ljóst, að hér þurfti að koma nýrri skipan á. Þess vegna var fyrir nokkrum árum samþykkt þingsályktunartillaga þess efnis að koma betra skipu- lagi á ríkisábyrgðir. Árangur- inn var svo sá, að ríkisstjórn- in flutti frumvarp um ríkis- ábyrgðir, sem varð að lögum á árinu 1961. Kvaðst ráðherrann ekki mundu fara nema út í eitt atriði þess, er varðaði þetta mál sér- staklega. Fram að gildistöku lag- anna, hefði aðalreglan verið sú, að veita ríkisábyrgðir sem sjálf- skuldaábyrgðir. Eða með öðrum orðum: Ef greiðsla fer ekki fram á réttum gjalddaga, er lánveitanda heimilt að innheimta greiðsluna hjá ábyrgðarmanni, í þessu til- felli ríkissjóði, án þess að ganga fyrst eftir henni hjá skuldara eða jafnvel án þess að tala við hann. En sé hins vegar veitt ein- föld ábyrgð, verður lánveitandi fyrst að ganga úr skugga um og sanna, að skuldari eigi ekki fyr- ir greiðslunni, áður en hann snýr sér til ábyrgðarmanns. Eitt af meginatriðunum í hinni nýju lagasetningu var að breyta hér um, svo að nú er eingöngu veitt einföld ríkisábyrgð, nema sér- stök, skýlaus lagaheimild komi til. Og árangurinn af þessu er undraverður. Áður hafði reglan í framkvæmdinni verið sú, að lánveitendur leituðu beint til ríkissjóðs, án þess einu sinni að tala við skuldarann í sumum til- fellum. Var það í senn bæði háskalegt fyrir ríkissjóð og sið- spillandi í fjármálum. En síðan hin nýja skipan kom á hefur ekki ein einasta greiðsla fallið á ríkissjóð. Þegar vanskil hafa orðið, hefur lánveitandi snúið sér beint til skuldara, eins og vera ber. Enda gerir það hvort tveggja í senn, stefnir að bættu siðferði í fjármálum og léttir greiðslum af ríkissjóði. Veitir jafn mikla tryggingu í framhaldi af þessu benti ráð herrann á, að hin einfalda á- byrgð gefur jafn mikla trygg- ingu fyrir greiðslu lánsins og sjálfskuldarábyrgðin. Það bakar lánveitanda aðeins meiri fyr-ir- höfn að verða að snúa sér fyrst til skuldara, þar sem greiðslan fellur ekki á ríkissjóð, nema það sannist, að skuldari eigi ekki fyr ir henni. Með frumvarpi því, sem um ræðir, er lagt til að breyta i verulegu atriði ákvæð- unum um ríkisábyrgð og þann- ig höggva alvarlegt skarð í þenn an varnarmúr, sem lögin um ríkisábyrgðir veittu. Og ráðherr ann kvaðst verða að segja það, að sér þætti það koma ókunnug- lega fyrir sjónir, enda vissi hann engin dæmi þess, að sveitarfé- lagi hafi verið neitað um lán hjá lánastofnun vegna einfaldrar á- byrgðar en ekki sjálfskuldar- ábyrgðar. Enda kvaðst hann ætla, að lánastofnanirnar hefðu skilið nauðsyn þess að setja þessa lagasetningu og beygt sig fyrir því. Sga. Wy Matseðill kvöldsins ★ Sveppasúpa ★ Toast Boyal Viking ★ Kálfasteik m/grænmet eða Aligrísakóteletta m/paprica sósu I * ís með ávöxtum öðru um að kenna Þá kvaðst ráðherrann skilja vel, hvað fyrir flutningsmönnum frumvarpsins vakti og kæmi þar einnig annað til. Svo væri mál með vexti, að á sl. ári hefðu ver- sett ný lög um sveitarstjórnar- lög. En m. a. væri í 82. gr. þeirra ákvæði um, að eigi megi fram- kvæma aðför að þeim eignum sveitarfélaganna, sem eigi er heimilt að selja eða veðsetja, nema því aðeins að lánið hafi verið tekið til þeirra. Sér kæmi ekki á óvart, að þetta atriðið mundi rýra lánsmöguleika sveit- arfélaganna, en það hefði ekki verið í lögum áður. Kvaðst ráð- herra því vilja varpa því fram, hvort ekki væri ástæða til að endurskoða þessi ákvæði sveitar stjórnarlaganna ,um leið og hann beindi því til nefndarinnar að kanna einnig þessa hlið málsins. Halldór E. Sigurðsson (F) kvaðst í fyrsta lagi vilja undir- strika, að það væri fjarri sér að vilja stefna að því, að vanskil eigi sér stað. Hins vegar hefði hann rekið sig á, að þetta atriði hefði orðið sveitarfélögunum erfitt, þar sem ekki er eins auð- velt að ganga að sveitarfélögun- um og einstaklingum. Til 2. umræðu og fjárhags- nefndar. Norðurlandasamningur um innheimtu meðlaga Bjarni Benediktsson dóms- málaráðherra gerði grein fyrir frumvarpi ríkisstjórnarinnar til staðfestingar á samningi um inn heimtu meðlaga, er undirritaður var í Osló 23. marz 1962. En á undanförnum árum hefði farið fram á vegum dómsmálaráðu- neyta Norðurlandanna endur- skoðun á samningi þeirra í milli um innheimtu meðlaga frá 10. febr. 1931 eins og honum hefði verið breytt með samkomulagi frá 1. apríl 1953. Hér væri ein- göngu um tæknileg atriði að ræða og ræddi ráðherrann þau ekki frekar. Frumvarpinu var vísað til 2. umræðu og heil- brigðismálanefndar. Lánsfé til húsnæðismála Einar Olgeirsson (K) gerði grein fyrir frumvarpi um útveg- un lánsfjár til húsnæðismála, er hann ásamt Hannibal Valdimars syni, Geir Gunnarssyni og Gunn ari Jóhannssyni er flutningsmað- ur að. Ástæðurn ar fyrir því, að frumvarp þetta væri fram kom- ið kvað hann þær, áð þeim í- búðum hefði far ið fækkandi, sem bafizt hefði verið handa um að byggja og eins hinum, er lokið hefði ver- ið við. Með stefnu ríkis§£jórn- arinnar væri verið að lama þrek þegnanna til að koma þaki yfir höfuðið á sér og væri banka- valdinu beitt í því skyni með því að lama byggingarfram- kvæmdir með okurvöxtum og lánsfjártregðu. En með því væri verið að berja fram fjármála- stefnu, sem skapaði alræði pen- ingavaldsins. Þess vegna yrði að veita meiri aðstoð öllum þeim, er nú berj- SKVNIHIIAPPnRÆTTI sjausiæbisilukksins Aldrei íyrr... ; iÐNÚ 99 -k OKTOBER- -K H ATIÐIIM 66 U I KVÖLD ★ • Kjörin verður: OKTOBERDROTTNINGIN og verður hún krýnd með blómum og dýrðlegheitum á miðnætti. Leikin verða nokkur nýjustu lögin með J. J. og Rúnari kl. 1 e. m. ★ HVERGI í REYKJAVÍK VERÐUR JAFNMIKIÐ AF UNGU FÓLKI SAMANKOMIÐ OG í IÐNÓ í KVÖLD. I KVOLD ast erfiðri baráttu við að full- gera íbúðir sínar, en einnig örva menn til að hefja íbúðarbygg- ingar að nýju. En það yrði ekki gert nema með því að lækka vextina og veita þeim pening- um, sem til væru, til íbúðarlána. Félagslíf Handknattleiksdeild Ármamns Æfingatafla. Hálogaland: Mánudaga kl. 9.20. Meistara- Og 2. fl. kvenna. Fimmtudaga kl. 8.30. Meistara- og 2. fl. kvenna. íþróttahús Jóns Þorsteinssonar: Föstudaga kl. 8—9 stúlkur 13 ára og yngri. Kl. 9—10 meistara- og 2. fl. kvenna Athygli skal vakin á breyttum æfingatíma á fimmtudag. Þjálfarar. Álftavatn Þeir, sem hafa óskað eftir að fá keyptar lóðir undir sumar- bústaði í skóglendi Norður- kots í Grímsnesi, með aðgangi að Alftavatni, ættu að tala við mig, sem fyrst, svo þeir missi ekki þetta einstæða tækifæri að eignast óvenju fagurt land með hagkvæmum kjörum. Ólafur Jóhannesson Grundarstíg 2. — Sími 18692. Fasteignasalan og verðbréfaviðskiptin, Óðinsgötu 4. Sími 1 56 05 Heimasímar 16120 og 36160. Til sölu íbúðir af flestum stærðum, einbýlishús og raðhús o. m. fl. Stúlka óskast í frágangsvinnu. Toledo Fishersundi. Bíla & búvélasalan Consul 315, ’62. Hagstætt ve ð. Bíllinn sem nýr. Bíla & búvélasalan við Miklatorg. Sími 2-31-36. KENNSLA Lærið ensku á mettíma Fámennum bekksögnum kennt af útlærðum kennurum frá Oxford. Beztu rafeindatæki, sem til eru í Evrópu. Engin aldurstaikmörk. Námskostniaði stiiit í hóf. Þægileg herbergi. Gott viðurværi. The Regency, Ramsgate, England (Dover 20 km. London 100 km) Trygging yðar: Stofnun vor er viðurkennd af Menn,tamálaráðuneytin.u I. O. G. X. Barniastúkan Unnur nr. 38, Fundur í fyrramálið kl. 10.30 í GT-húsinu. Félagar fjölmennið á fyrsta fundinn og takið með ykkur nýja félaga. Gæzlumaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.