Morgunblaðið - 20.10.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.10.1962, Blaðsíða 10
10 M OK r.jns BL 4ÐIÐ 1 Tniieardagur 20. október 1962. Orsök marbfettanna á síldinni fundin Síldin merst dauð ■ skipinu af þunganum Á SIGLUFIRÐI er mrkið talað um síld. Síldin er margbreytileg og er mikið vandaverk að meta, hvaða, síld hæf er til söltunar. Síldarsaltandinn og allt fólkið, sem við söltunina vinnur, verð- ur að taka þátt í gæðaröguninni, því að oftast er eitthvað og oft mdkið af óhæfri síld með góðu söltunarsíldinni í hverjum báts- farmi, sem tekinn er til söltunar. Sumar síldar eru ekiki alveg nógu feitar, sumar heldur smáar, sum ar of kviðveikiar, sumar eru blæljótar og svona má lengi telja. Eitt af veigaminni atriðunum, sem gefinn er gaumur við gæða- rögun söltunarsíldarinnar, er það að á sumum síldum eru mar- blettir. Ástæðan til þess, að mikið hef- ir verið talað um marða sild í haust er sú, að í %umar barst að landi óvenjumikið af fyrsta flokks síld, svokallaðri-demants síld. Síld þessi var svo til galla- laus og þess vegna urðu mar- blettimir meira áberandi og meira að umtalsefni en fyrr, þó þeir væru hvorki alvarlegri né algengari á síldinni í sumar en undanfarin ár. Reyndar hafa mar blettirnir verið eftirlætis um- ræðuefni á Siglufirði og öðrum síldarbæjum bæði austan lands og sunnan undanfariii ár vegna þess, að menn hafa haft marg- víslegar og mismunandi skoðan- ir á orsökum þeirra. í sumar höfðu samvinnu um að athuga ors’akir marblettanna með ýmsum tilraunum þeir Einar Haukur Ásgrímsson, vélaverk- fræðingur, Þórður Guðjónsson, ákipstjóri á önnu og Eggert Gíslason, skipstjóri á Víði II. og verður hér gerð grein fyrir ár- angri þeirra. Voru þessar athug- ajiir og tilraunir gerðar fyrir áeggjan formanns Síldarútvegs- nefndar, Erlendar Þorsteinsson- ar og bar Síldarútvegsnefnd kostnað af þeim. Fyrst var athugað, hvort nótin merði síldina, enda hefir sú skoð un verið algengust. Ekki var fráleitt, að ætla, að nótin merði síldána. Mun það oft koma fyrir, að næturnar séu þurrkaðar það mikið, að síldin lyftist talsvert upp úr sjó, þó sérstaklega í ó- kyrrum sjó. Og þó átak nótar- innar á hverja síld, sem vdð hana liggur, sé ekki mikið, þá eru bnútarnir harðir og garnið grannt. Var fylgzt með því, hvort það hefði áhrif á marblettina, að nota nótina og kraftblökkina á mismunandi vegu. Stundium var nótin dregin svo variega með kraftblökíkinni, að nótin þrengdi aldrei að síldinni, heldur hafði síldin gott svigrúm til að synda um í nótinni, meðan háfað var. Og stundum var nótin hert mun meira að síldinni en eðlilegt er, jafnvel svo að yfirborð síldar- innar í nótinni varð mun hærra en yfirborð sjávarins. En allt kom fyrir ekki, síldin var í báðúm tilfellum álfka mikið marin, þegar að landi kom. Næst var önnur algeng sikoðun athuguð, sú að síldin merðist við það að vera dregin hratt upp af miMu dýpi. Síldin þolir mikið betur örar þrýstingsbreytingar en þorskurinn og flestir aðrir nytjafiskar. Er það vegna þess, að sundmaginn í síldinni er op- inn um mjóa pípu, sem liggur fram í kokið, en sundmaginn í þorskinum og flestum öðrum nytjafiskum er lokaður. Þegar þorskurinn er dreginn upp af miklu dýpi, þenst sundmaginn út af loftinu, sem í honum er, og þetta gerist hraðar en svo, að líffæri fisksins hafi undan að flytja loftið burt úr sundmag- ainum, en við að þenjast út verð- ur fiskurinn eðlisléttari en sjór- inn og flýtur upp. Fullyrt er, að þorskurinn þenjist stundum það mikið að hann merjist. Þegar nótin knýr síldartorf- una til að grynnka á sér, streyma Loftbólurnar upp á yfirborðið, því í stað þess, að loftþrýstingurinn í sundmaiganum þenji hann út eftir því sem ofar dregur og þrýstingurinn í sjónum minnkar, þá sleppir síldin lofti út, svo sundmaginn haldi sinni eðlilegu stærð, sem er sú stærð, sem léttir síldina mátulega mikið svo hún hafi sömu eðlisþyngd og sjórina. Athuguð var síld úr torfu, sem var 30 metra undir yfirborði, þegar kastað var á hana, og síld úr vaðandi torfu, en engdnn mun Ur reyndist vera á þessu tvennu. Bkki var heldiur áberandi mun ur á horaðri síld og feitri og ekki heldur teljandi munur á síld með magann fullan af rauðátu og síld með tórnan maga, hvað mar- blettina snerti. Vafalítið hafa flest þessi ofan- greindu atriði einhver áhrif á, hversu mikið síldin merst, sem mætti meta með nógu umfangs- miklum og nákvæmum mœling- um, en Ijóst er, að þessi atriði hafa engin afgerandi áhrif. Nú bárust böndin að háfnum. Flestir, sem efazt höfðu um, að síldin merðist í snjónum, töldu háfinn vera sökudólginn. Háf- Birgðarstjóri óskast nú þegar. Þarf að hafa einhverja þekkingu á rafmagnsvörum. — Laun samkvæmt samkomu- lagi. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir mánudags- kvöld, merkt: „Birgðastjóri — 3675“. Iltboö Tilboð óskast í að steypa upp húsið Hallveigarstaði við Garðarstræti hér í borg. Uppdrátta og skilmála má vitja á teiknistofu undirritaðs að Rauðalæk 33 gegn 1000 kr. skilatryggingu. Sigvaldi Thordarson, arkitekt. HANN er augnlæknir og Ind- verjar kalla hann: „Bróðir okkar, sem gefur okkur sjón- ina“. Fullu nafni heitir hann Murugappa Chennaveefappa Modi. Hann lauk námi í lækn isfræði, með augnlækningar sem sérgrein, 1943 frá sjúkra- húsi í Bombay. Hann vissi hve margir Indverjar voru blindir og hve mikið var hægt að gera fyrir þá, en Indverjar eru líka fátækir og margir urðu að fórna heimanmundi dætra sinna eða búpeningi sín um til að komast í sjúkrahús. ★ Modi ákvað að gerast far- andlæknir og ferðast um með tæki sín. Frá því að hann byrj Modi læknir lýtur eftir sjúklingum sínum. sem sjónina u i aði að starfa hefur hann veitt 2 milljónum manna læknis- hjálp og skorið upp meira en 100 þús. menn. Þar sem hann kemur, fær hann lánað skóla- hús, eða aðra hentuga bygg- ingu og breytir henni í sjúkra hús. Hann dvelst venjulega 15 daga á hverjum stao. Fyrsta daginn skoðar hann sjúkling- ana og bindur trefla um háls þeim, en treflarnir gefa tíl kynna hvers sjúklingurinn þarfnast. Hvort hann þarfr.ast «%*■ augndropa, gleraugna eða upp skurðar. Síðan hefst hann handa um að skera upp þá, sem þess þarfnast. Hann hefur nokkra aðstoðarmenn við upp skurðina og sSmdum tekur hver aðgerð ekki nema 50 sek úndur. Komið hefur fyrir að Modi hafi framkvæmt aðgerð- ir á 785 sjúklingu. da^Jega. Þegar uppskurðinum er lok- ið, lítur Modi eftir sjúklingun um og veitir þeim læknis- hjálp. Modi tekur ekkert fyrir lækningar sínar og þar sem hann setw upp sjúkrahús fær hann húsin lánuð án endur- gjalds og yfirvöld staðarins ásamt efnuðum gefa mat handa sjúklingunum. Þrjá mánuði ársins, þegar monsoonvindarnir geisa, ferð- ast Modi til útlanda til að kynna sér nýjungar í augn- lækningum. Er hann viður- kenr.dur einn af fremstu augn læknum heims. arnir, sem notaðir voru, eru svip aði-r þeim, sem algengastir eru taka um 10 tunnur og eru um 2 metrar í þvermál. Reynt var að nota háfinn mjög varlega. Var háifnum smeygt liðlega og svo grunnt niður í torfuna, að ek'ki voru háfaðar nema svo sem 5 tunnur í senn. Háfurinn var losaður þannig, að honum vax slakað niður á grindina innan við borð- stokkinn, áður en hann var opnaður. Síldin, sem svona var háfuð, reyndist engu minna mar in, þegar að landi kom, en sú sem háfuð var á venjulegan hátt. Einnig voru tekin sýnishorn af síld í 20 cm djúpa alúminíum kassa og geyrnd í þeim, þar til að landi kom. Síldin, sem neðst var í fullum háfnum, var látin detta úr 3 metra hæð niður í kassa, sem stóðu á dekkinu. Þá var tekin í kassa síld, sem hrunið hafði úr háfnum í tveggja metra hæð niður í grindina og síðan spriklað um á henni nokkra stund. Síldin í kössunum var alveg ómarin 12 tímum síðar, þegar að landi kom, þó að farrn urinn að öðru leyti væri álíka marinn og venjulega. Þar sem gengið hafði verið út frá því, að síldin hlyti að merj- ast, áður en hún dræpist og hjartað hætti að dæla blóðinu, var nú gerð sú tilraun, að síld- inni var dreift í þunnt lag úr háfnum og henni gefin tími bil að drepast áður en næsta lag var sett ofan á. En þetta bar ekki áranigur, síldin var ekkert mdnna marin en elta. Var nú orðið augljóst, að mar- blettirnir kæmu á sílddna dauða í skipinu. Nýháfuð síld var sett í tunnur og þær látnar standa upp á endann mismunandi marga klu'kikutíma, þar til síldin í þeim yar skoðuð. Kom þá í ljós, að strax að 2 tímum liðnum, frá því síldin var háfuð, var ekki nema efsta 65 cm þykka lagið af síld- inni frítt við marblettina. Eftir 4 tíma voru efstu 55^ cm. ómarðir. Eftir 6 tíma 45 cm. Eftir 9 tíma 25 cm og eftir 16 tíma voru ekiki nemia efstu 10 cm af síldinni frí- ir við marblettina. Þessi tilraun sýndi svo ekkd verður um villzt, að síldin merst dauð í skipinu af þunganum, sem ofan á henni liggur, og verður viðkvæmari fyrir, eftir því sem lengra líður frá því hún kemur í skipið. Marblettirnir voru skoðaðir með því að fletta roðinu af síld- inni og rista í marða holdið. Marblettirnir eru blóði litað hold undir roðinu, eru yfirleitt rétt í yzba lagi holdsins og ná ekkí nema um millimeter inn í hold síldarinnar. Stundum nær marið lengra allt að 5 millimetra inn í holdið en mjög sjaldan dýpra. Marið kemur ebki á síldina, þar sem þrýstingur mœðir á henni, heldur á brúnum þess svæðds, sem þrýsingur mæðir á. Þegar til dæmis ein síld liggur þversum ofan á annarri og farg þrýstir þeim saman, þá pressast blóðið úr æðunum, sem eru í holdinu á svæðinu, þar sem síld- arnar snertast. Við það eykst þrýstingurinn í æðunum í hold- inu umhverfis snertisvæðið og blóðdð leitar útrásar úr æðunum úit í holdið. Æðarveggirnir missa smám saman styrk, eftir því sem lengra liður frá dauða síldar- innar. Yzt undir roðinu eru hár æðarnar grennstar og æðavegg- irnir þynnstir og veikastir. Á brúnum snertisvæðisins er roðið og holdið næsta undir roðinu því teygt og þar verða háræðarnar enn veikastar og einmitt þar þrýstist blóðið út úr æðunum og í holdið. Marið verður auðvitað dýpra og ljótara, ef háræðarnar á umræddum stað hafa skaddazt af hnjaski, þegar síldin hrurídi úr háfnum. Að lokum var gerð sams konar tilraun með ísaða síld. Var ný- háfuð síld ísuð í eins meters djúpa stíu, og sett um 20 kg. a£ skelís í hver 100 kg. af síld. Brá svo við, að ísaða síldin marðist ekki. Var ísaða síldin, sem lá undir eins meters fargi, enn ó- marin eftir 22 tíma og fullkom- lega söltunarhæf. Að vísu var þetta mjög mikil ísun og þar, sem síldin lá í ríf- legum skelís, fór um hana eins og konu á mjúkum púða. En þar sem ís vantaði í síldina, en kælingar naut, var síldin einnig ómarin. Bendir það til þess, að mun minni ísun muni nægja. Ekki storknaði blóðið í aðalæð- um ísuðu síldarinnar, en blóið þykknaði það mikið, að það hætti að seytla út úr háræðunum. Nauðsynlegt er að athuga nónar, hve lítinn Ls hægt er að komast af með. Af framangreindiu eru orsök og eðli marblettanna ljós orðin. Þegar farið verður að ísa sölt- unarsíldina, til þess að halda henni ferskri á leiðinni í land, munu marblettirnir hætta að spilla síldinni. Einar Haukur Áscrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.