Morgunblaðið - 20.10.1962, Page 17
l.au gardagur 20. október 1962.
MOHCr'wnL 4Ð1Ð
17
Árni Thorsteinson tón-
skáld —
En sál var sól
í sjónar-myrkri,
mannvit máni,
min.i stjörnur.
Var hans hugar-haf
sem hallar salur
ljósum lýstur
um lágnætti.
Matth. Jochumsson.
Á HLÝJU skammdegiskvöldi
Októbersdags gekk Árni Thor-
steinson tónskáld á vit feðra
sinna. Þar lauk langri ævi; dag-
inn áður, 15. október, varð hann
92 ára. Hann var niðji langlífr-
ar ættar. Ein áa hans var Bjarni
sýslumaður Nikulásson í Skafta-
fellssýslu eystra. Hartnær 300
ár eru frá fæðingu Bjarna sýslu
manns til dánardægurs Árna tón
skálds, en þó eru ættliðirnir að-
eins fimm, að báðum meðtöldum.
Það hljómaði og með ólíkindum
að heyra Árna segja frá afa sín-
um, blinda amtmanninum á
Stapa, sem fæddur var árið 1781;
en um hann átti Árni glöggar
Ibernskuminningar.
15. október árið 1870 fæddist
sonur í landfógetahúsinu við
Austurstræti. þar sem nú er
Hressingarskálinn. Þá var Reykja
vík aðeins lítið sjávarþorp á
malarkambinum milli Kollafjarð-
ar og Skerjafjarðar, sem hýsti
tæplega tvö þúsund íbúa. For-
eldrarnir voru Árni Thorsteins-
son, síðasti landfógetinn, Og kona
hans, Soffía Hannesdóttir John-
sen. Var Steingrímur biskup Jóns
son afi hennar, og lágu ættir
þeirra hjóna, Árna landfógeta og
Soffíu konu hans, saman, því að
foáðar verða raktar til Jóns prests
Steingrímssonar. Og tvinnast þær
ættir þó með öðrum og
óvenjulegri hætti. — Árni land-
fógeti var nefnilega sonur Bjarna
Þorsteinssonar amtmans og Þór-
unnar Hannesdóttur, Finnssonar
biskups. sem kvæntur var Val-
gerði Jónsdóttur, en hún giftist
síðar að Hannesi biskup látnum,
skipar hún ásamt annarri konu
Steingrími biskupi Jónssyni, og
þann óvenjulega sess í íslands-
sögu, að hafa verið gift tveim
foiskupum. — Valgerður biskups-
ekkja, því sjá varð hún á bak
báðum þeim afbragðsmönnum,
var því amma þeirra beggja land
fógetahjónanna.
Að líkum veit ég fátt eitt um
bernsku og uppvaxtarár Árna
frænda míns, en eitt sinn blaðaði
ég í snjáðum, en snyrtilegum dag
foókum Hannesar tíróður hans, og
fannst mér sú lesning varpa
nokkru ljósi á æskuumhverfi
þeirra bræðra. — Þar er fátt get-
ið stórvægilegra atburða eða svo-
kallaðra merkra tíðinda. Það.
sem þar verður að dagbókarefni,
er koma farfuglanna á vorin og
gleði gamla landfógetans yfir að
sjá fyrstu krókusana gæjast með
blákollana sína upp úr gróður-
moldinni boðandi komu nýs sum-
ars. Úr slíkum jarðvegi var Árni
Thorsteinsson tónskáld sprottinn.
og þangað sótti hann um langa
eevi sína ljúfu yrkisefni.
Svo komu námsárin heima og
í Höfn. Um þau átti hann marg-
ar góðar minningar, sem hann
Ihafði ánægju af að rifja upp á
hljóðum stundum: — Þegar þeir
félagar gcngu undir söngprófið í
Kaupmannahöfn, og Geir, sem
síðar varð biskup heillaði for-
framaða óperusöngvarana með
sinni silfurtæru rödd; og svo var
það vináttan við Niels Finnsen
frænda hans, sem síðar átti eftir
eð láta svo margt gott af sér
leiða í læknavísindunum. Þeir
frændur, Hannes, Árni og Niels,
munu hafa verið mjög samrýmd-
ir á þeim árunum. enda skapgerð
in trúlega ekki ósvipuð. — En
inámið gekk nú svona og svona,
eins og verða vill hjá þeim, sem
éskapað er hrifnæmt listamanns-
eðli: Háskólanám í heimspeki
©g fleiru endaði í því að verða
„fotograf".
Árni fór heim frá Höfn. Hann
hefur oftar en einu sinni sagt
mér frá þeirri heimsiglingu, því
minning
sú minning var honum kær. Það
var á árunum 1895 eða 96, að mig
minnir. Þeir voru samskipa heim
frá námi á Botníu gömlu Knút-
ur Zimsen og Árni. Siglt var
austarlega undir landið, því að
þoka var við ströndina, en svo
rofaði til, og úr hafi reis Vatna-
jökull í alri sinni dýrð með sól-
baðaðan öræfajökul og Hvanna-
dalshnúk við bláan himin, en
niðri við ströndina lagði gráan
móreykinn upp af torfbæjunum
í stafalogninu. Það var haldið
með ströndinni. og ekki greitt. —
Undir kvöld var komið að Port-
landi. Þetta var síðsumars, og
kvöldhiminn gerðist rauður, og
. roðanum sló eins og töfrablysi í
gegnum gatklettinn á Dyrhólaey.
„Menn komust í stemmningu og
kapteinninn gaf toddí“, sagði
frændi minn og brosti ánægju-
Aldamótaárið 1900 kvæntist
Árni Helgu Einarsdóttur, Guð-
mundssonar dannebrogsmanns
frá Hraunum Fljótum í Skaga-
firði. Stóð brúðkaup þeirra í
Hafnarfirði á heimili Páls Ein-
arssonar sýslumanns mágs hans
og Sigríðar systur hans. Það mun
Árni hafa talið mestan hamingju
dag í sinu lffi, því að þá hófst
sextíu ára ástríkt. hjónaband
þeirra Helgu og Árna, sem varð
honum í raun og veru eitt og allt
í lífinu. — Árin liðu, og þau
eignuðust börn, Soffíu, Jóhönnu,
Sigríði og Árna. Fjölskyldan var
óvenju samrýmd, þeim mun sár-
ara var, þegar hoggið var skarð í
hana. Árna son sinn, mikinn efn-
ismann, missti hann að nýloknu
háskólanámi, og síðar tengdason
sinn, Jóhann Sæmundsson lækni,
sem hafði gengið honum í sonar
stað. — En Árni og Helga báru
sína harma saraeiginlega í hljóði.
Þeim var gefin „þolinmæði og
geð hógvært," og hann áttiathvarf
með sér innra. „Harpan min er
hugarbót", sagði gamla þjóðvís-
an. og Árni greip oft á þeim ár-
unum til slaghörpunnar, Árið
píanóið sitt, það fyrsta og eina,
1901 eignaðist Árni Thorsteinson
það samdi hann öll sín tónverk.
sem hann átti um ævina og á
Það á sína sögu, mun vera eitt
hið fyrsta, sem til landsins flutt-
ist. Hannes Johnsen, afi hans,
keypti það í Þýzkalandi árið 1873
og gaf það Símoni syni sínum,
sem síðar gaf það hinum mjög
músikalska Steingrimi Johnsen
söngkennara við Lærðaskólan í
Reykjavík. — Mér mun aldrei
líða úr minni, er ég sá Árna,
níræðan og olindan. leika á þetta
píanó, sjá grannar, hvítar hend-
ur hans fara svo undur mjúk-
lega um þetta gamla gulnaða og
slitna nótnabretti, sem-hafði skap
að á liðnum árum hið milda
tónaregn, sem músik Árna ein-
kennist af, og „birtir innri veröld
alla“, eins og Steingrímur frændi
hans orðaði það. — Þá sagði
hann sjálfur með sínu meðfædda
lítillæti: „Ég er enginn kompón-
isti, ég er bara dilletant, en mér
þykir vænt um músíkina þótti
það alveg frá því ég var smá
strákur. Þá lá ég tímunum sam-
an niðri á Batteríi til þess að
hlusta á hornamúsík um borð í
dönsku varðskipunum. Það hefur
alltaf verið svona mikil músík
í mér. — Eg get ekkert gert af
því.“ — Hann sagði mér þetta
sjálfur.
Ég tel það lán að hafa kynnst
Árna Thorsteinson, frænda mín-
um. Þegar ég var barn, hétu þau
hjónin „Onkel Árni og Tanta
Helga“ og voru þá þegar í mín-
um augum afgamalt fólk, en
ákaflega virðulegt. Svo liðu ár
og áratugir, og Árni og Helga
eltust ekkert, því að þau kunnu
listina að eldast, voru alltaf létt í
spori og glöð í viðmóti. Ég hitti
Árna endrum og eins, það var
oft á Þorláksmessu eða aðfanga-
dag, að ég leit inn hjá honum,
og mér fannst aldursmunurinn
alltaf vera að minnka. Svo var
það árið 1960, þá áttum við þrir
frændur stúdentsafmæli, hann 70
ára, Einar Pálsson verkfræðing-
ur 30 ára og ég 25 ára. Við vor-
um allir prúðbúnir með stúdents-
húfur og rósir í barmi, drukkum
kaffi saman og elzti stúdent Is-
lands steig í pontuna í salnum í
Menntaskólanum og sagði nokk-
ur óundirbúin orð af innileik og
meiningu. — Þá vorum við yngri
jubilantarnir í ættinni stoltir og
fannst hann hreint ekkert eldri
en við og gera þó betur.
Segja má um suma menn,
að miníiingin sé sem lauffok að
hausti, en minning annarra gróp-
ar sig eins og rótfastur stofn 1
vitund manns. Slík er minning
Arna Thorsteinson ívitund minni.
Ekki vegna þess að hann hafi
verið sérlega sterkur persónu
leiki, sem sett hafi för sína á
allt umhverfi sitt Heldur miklu
fremur sökum þess, hver sér-
k^nnilegur persónuleiki hans
var. Honum voru áskapaðir mikl
ir eðliskostir, stilling, glaðværð
og góðsemi. Hann orkaði á mig
sem maður, er væri í sátt við
heiminn og það, sem sjaldgæfara
er, í sátt við sjálfan sig. Hann
krafðist einskis og fann fegurð
og gleði í smámununum. Árum
saman var hans upplyfting frá
önn dagsins að ganga eftir Grand
anum út í Eyju, Örfisey, standa á
ströndinni, horfa á ígulker og
bláskel og hlusta á öldufallið.
Þeir mildu morgnar og hvítu
vængir vorfuglanna áttu siðan
eftir að endurhljóma á hörpu
minninga hans. — í minni vit-
unda er með Árna tónskáldi
Thorsteinson ekki aðeins horf-
inn elskulegur ömmubróðir, held
ur mega malbikaðar götur stór-
borgarinnar okkar nú sakna fóta-
taks síðasta aðalsmannsins frá
öldinni sem leið.
Árni Thorsteinsson náði óvenju
háum aldri og átti góða elli, ekki
sízt fyrir að þakka einstakri um-
hyggju Jóhönnu dóttur hans.
að ævin væri senn öll. Engu að
síður verður skilnaðurinn sár
sem oftar og þeim mun fremur,
þar sem bönd kærleika voru
fastar knýtt í þeirri fjölskyldu
en víða gerist. Dætrum hans og
nákomnum óska ég huggunar og
öll megum við minnast þess, að
það stafar líka björtum minning-
um af sól, sem gengin er til við-
ar.
Birgir Kjaran.
SíÐUSTU áratugir hafa verið
tímar 'mikilla umbrota í heimi
tónlistarinnar, eigi síður en á
öðrum sviðum. Stefnur hafa
mótazt og máðst, hreyfingar
risið og hjaðnað svo ótrúlega
ört, að enginn samanburður við
önnur tímabil sögunnar kemur
til greina. Orsakirnar geta verið
ýmislegar, og sumar eru vafa-
laust listræns eðlis, en hin aug-
ljósasta þeirra er af öðrum toga
spunnin: vaxandi tækni og bætt-
ar samgöngur. Beethoven samdi
verk sín í Vín, og ár gátu liðið,
áður en þau heyrðust í París eða
London. En tónverkin, sem
Stravinsky semur í Hollywood
í dag — ef hann er þá ekki
staddur í Hamborg eða Moskvu
— hljóma á morgun í útvarpi í
Róm, Tokyo og Reykjavík.
Þessa gerbyltingu höfum við
íslendingar lifað með öðrum
þjóðum, jafnframt því, sem við
höfum orðið að vinna upp
margra alda kyrrstöðu í tónlist-
arþróun okkar. Á slíkum tímum
er aðgátar þörf, að ekki slitni
tengslin við fortíðina.
Tveir menn hafa orðið á vegi
mínum um ævina, sem mér
finnst öðrum fremur hafa verið
einskonar sendiherrar horfinnar
aldar í erilssamri samtíð. Annar
var austurríski tónlistargagnrýn-
andinn Max Graf, sem lézt fyrir
fáum árum háaldraður. Hann
hafði verið kunnugur Brahms
og nemandi Bruekners. Hann
var svo sérkennilegur, að ég bar
kennsl á hann óséðan innan um
þúsundir manna á tónlistarhátíð
í Vín. Hinn var íslenzka tón-
skáldið Árni Thorsteinson, sem
andaðist 16. þ. m., einum degi
betur en 92 ára gamall.
★
Árni Thorsteinson hafði lifað
alla sögu íslenzkrar tónlistar,
frá því að hún vaknaði af þyrni-
rósarsvefninum á síðari helm-
ingi 19. aldar, og fylgdist af al-
hug með þróun hennar til ævi-
loka. Hann var um árabil tón-
listargagnrýnandi Morgunblaðs-
ins, og í minningum hans, sem
Ingólfur Kristjánsson rithöfund-
ur færði í letur (Rvík, 1955), er
að finna einu drög að sögu ís-
lenzkrar tónlistar á þessu tíma-
bili, sem til eru prentuð. Sjálfur
átti hann veigamikinn þátt í
þeirri vakningu, sem varð und-
irstaða allra framfara í íslenzku
tónlistarlífi síðUstu áratugina.
Það var ekki um auougan
garð að gresja í tónlistarlífinu
í Reykjavík í kring um 1870.
Samsöngvar töldust til stórvið-
burða, og hljóðfæri voru fágæt.
En Árni Thorsteinson átti því
láni að fagna, að bernskuheim-
ili hans var eins og vin í þessari
eyðimörk. Meðal annarra var
þar tíður gestur móðurbróðir
hans, Steingrímur Johnsen,
söngkennari við Lærða skólann
og einn helzti söngfrömuður
þjóðarinnar á sínum tíma. Og
þegar Árni kemur til Kaup-
mannahafnar, tvítugur að aldri,
gagntekur tónlistin huga hans.
Það munu ekki hafa verið
margar óperusýningar í Kon-
unglega leikhúsinu, sem fóru
fram hjá honum á næstu árum,
og tónleika sótti hann, þegar
hann gat því með nokkru móti
við komið. Hann stundaði söng-
nám um tíma og tók mikinn
þátt í sönglífi stúdenta, m. a. í
danska stúdentasöngfélaginu.
Sumar minningar hans þaðan
voru honum einkar kærar og
höfðu á hann djúp áhrif, svo
sem kynni bans af norska tón-
skáldinu Edvard Grieg. Árni var
ágætur söngmaður á yngri árum,
hafði fagra bariton-rödd og kom
oft fram sem einsöngvari á tón-
leikum hér eftir heimkomuna
frá Kaupmannahöfn, auk þess
sem hann starfaði með kórum.
Lengst mun hans minnzt fyr-
ir sönglögin, sem hann gaf þjóð
sinni, alls um 100 að tölu. Með-
al þeirra eru margar skærustu
perlurnar í íslenzkri sönglaga-
gerð, yfirlætislaus lög, en gædd
þeirri hlýju og einlægni, að þau
hafa umsvifalaust „sungið sig
inn í hjarta þjóðarinnar", —
næstum orðið að þjóðlögum. Má
þar nefna lögin við Dalvísur .
(Jónas Hallgrímsson), Áfram og
Þess bera menn sár (Hannes
Hafstein), Kirkjuhvol og Rós-
ina (Guðm. Guðmundsson) og
Nótt (Magnús Gíslason). Þetta
eru sex af tólf lögum, sem birt-
ust í fyrsta sönglagahefti Árna
(1907). Svo mætti enn lengi
telja: Friður á jörðu (Guðm.
Guðmundss.), Öll él birtir uppum
síðir (Bjarni Jónsson frá Vogi),
Þar sem háir hólar (Hannes
Hafstein) og ísland, vort land
(við frumortan texta). Er þar
skemmst frá að segja, að við
hlið Sveinbjörns Sveinbjörnsson
ar og Sigfúsar Einarssonar er
Árni Thorsteinson merkasta tón-
skáld sinnar kynslóðar hér á
landi, og var þó allt starf hans
að tónlistarmálum unnið í tóm-
stundum frá önn dagsins.
Sameiginlegt einkenni á lög-
um Árna Thorsteinson er það,
að þau eru ákaflega sönghæf og
fara einkar vel við textaúa, sem
þau eru ort við, frágangur þeirra
allur er mjög vandaður og
smekkvísin bregst ekki. Þau eru
gerð af innri þörf og þeirri hjart
ans kunnáttu, að þess gsetlr
sjaldan að höfundurinn var ekki
— í ströngum skilningi — lærð-
ur tónfræðingur og tónsmiður.
Með Árna Thorsteinson er
horfinn hinn síðasti af kynslóð
elztu tónskáldanna íslenzku —
og glæsilegur fulltrúi liðinnar
aldar í þjóðarsögunni. Hann
gegndi ekki eins háum embætt-
um í þjóðfélaginu og ættmenn
hans margir höfðu gert, en þó
mun hans minnzt, ekki síður en
þeirra, er stundir líða. Hann bar
það með sér öðrum mönnum
fremur, að hann átti til góðra
að telja og hafði alizt upp með
höfðingjum. Hógvær tigin-
mennska hans, fölskvalaus góð-
vild og sannur aðalsbragur í
allri framkomu hlutu að vekja
athygli, hvar sem hann fór, og
verða jafnan minnisstæð. Hann
er einn þeirra manna, sem mér
hefir þótt vænzt um að kynnast
persónulega og mega telja meðal
vina minna.
____________Jón Þórarinsson.
F élagslíf
Víkingar, knattspyrnudeild
4. og 5. fl. eru beðnir að mæta
tilskráningar í félagsheimilinu
fyrir innanhússæfingar í vetur.
Laugardag kl. 5—6 og
Sunnudag kl. 11—12 f. h.
Þjálfari.
Skíðadeild Ármanns
Sjálfboðavinna í Jósefsdal um
helgina. Stúlkur —— Mjög vand-
aðir málningapenslar til að mála
með andlit. Piltar — Farið úr
hinum lúnu vinnubuxum í ein-
hverjar þokkalegar vasalausar
buxur, því við höfum nóg annað
að gera við hendurnar. —
Farið verður laugardag kl. 5 frá
B.S.R.
I.B.R.
Valshúsið.
Barnatími kl. 3.30—4.20.
Meistaraflokkur kl. 4.20—6.50.
Ármenningar
Sjálfboðavinna í Jósefsdal um
helgina. Nú þarf á fjölmenni að
halda, unnið verður bæði úti og
inni. Farið verður frá B.S.R. kl.
3 á laugardag. Mætið öll.
Skiðadeiíd Ármanns.