Morgunblaðið - 06.11.1962, Side 10

Morgunblaðið - 06.11.1962, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ t>riðjudagur 6. nóvember 198Í UOIil Wl STRINDI HULID SNJÓ OG SVELLuM VEÐ vorum á Ieið niður aÆ Skálafelli á sunnudaginn og vorum komin á móts við Skíða skála K.R., þegar Guðmundur Jónasson benti allt í einu aust- ur á öxlina og sagði, „Þarna eru kindur“. „Kindur ,h.vað segirðu“. „Sjáið þið þær ekki, tvær hvítar og eina svarta. Sko, nú hreyfir sú svarta sig.“ Við skimuðum austur yfir snjóbreiðuna og einhver sagði, „Ég sé ekkert nema snjó og grjót“. „Ég sé bara svart grjót“ sagði ungur drengur sem var með í förinni. En svo kipptist hann við Og sagði“, „En nú hreyfir grjótið sig“. Guðmundur brosti og svaraði, „Það er svört kind, góði minn. ÞegSr við ókum upp á fjallið, hélt ég að þetta væru hestar, en nú sé ég að það eru kind- ur. Ég held þær séu sex.“ „Eru þær fenntar?“ spurði einlhver. „Ætli sé ekki bezt að ganga úr skugga um það“, sagði Guðmundur og snaraði sér út úr bílnum, óð út í skafl- ana og gekk í stefnu á þessa dökku díla, sem hreyfðu sig úti í hvítum snjónum. Og við á eftir. Það var illfært yfir fjalls- öxlina og erfiður gangur. Hefði maður bara verið á þrúgum". sagði einhver um leið og hann sökk upp fyrir hné í þéttum skafli. En Guð- mundur gekk svo léttilega yf- ir skaflana að við borð lá, að við hinir sæjum engin för eftir hann. Gengum samt i humátt á eftir eins og hver hafði krafta og leikni til, en jafnt og þétt dró sundur með okkur og Guðmundi, svo við hægðum ferðina. „Hann hlýt- ur að vera gamall smali“, hugs aði ég með mér og gaf rop á bátinn alla samkeppni við smalamennsku Guðmundar, — virti heldur fyrir mér þetta hvíta teppi sem lá austur eftir öxlinni niður að Stíflisdals- vatni og bæimir eins og sker í hvítu brimi og kipruðu sig saman í nóvemberfönninni. „Komið þið strákar", kall- aði Guðmundur nú á okkur, en við það styggðust kind- urnar og tóku að rása niður öxlina. Þeim gekk ferðin seint, en mjökuðust þó áfram. „Nú þær eru þá ekki fenntar“, sagði ég við næsta mann. „Nei, en illa gengur þeim“. „Þær verða fljótt þreyttar", kallaði Guðmundur, „eins og færðin er“. Þær voru ekki langt undan og Guðmundur var að komast í veg fyrir þær og við aáum að þær voru brynjaðar og þungar og siluð- ust hægt yfir hjarn og fannir. Við hinir vorum komnir að þeim stað, þar sem þær höfðu búið um sig í snjónum. Þær : • höfðu kroppað eitthvað í lyng, en þo ekki svo að ástæða væri til að ætla að þær hefðu lengi' þolað frost og jarð- bönn á þessum slóðum. Tófu- för á víð og dreif og virtist okkur melrakkaslóðin nokbur vísbending um, að þarna hefði sá verið á ferli, sem beið fær- is og ætlaði sér snjó og kulda að hentugum bandamanni. Guðmundur var nú kominn í veg fyrir kindurnar og þær runnu vestur öxlina, en voru augsýnilega orðnar lúnar, ekki sízt tvílemba sem síðust fór ásamt afkvæmi sínu. Þó þess- ar kindur væru svo brynjaðar sem raun bar vitni, mátti kalla að þær hefðu sloppið sæmi- lega við íshrönglsmerki Vetr- ar konungs, verra hefði það getað verið. Og ég minntist þess að hafa heyrt frá því sagt að kindur hafi verið svo brynjaðar að þser hafi vart getað hreyft sig í sköflum og orðið dýrbít að bráð. „Komið þið strákar otg hjálp ið þið mér að ýta þeim út á veginn“, kallaði Guðmundur. Við hlupum niður brekkurn- ar, en gátum ekki að okkur gert að stanza við rjúpnaspark og virða fyrir okkur vegsum- merkin eftir kalda stríðið á íslenzkum öræfum. „Hvít með loðnar tær“, sagði Jónas. En Guðmundur sagði, „Hvaða hangs er þetta á ykkur, dreng ir?“. Við tókum til fótanna og enn kallaði hann „Nei, ekki í veg fyrir þær. Á eftir þeim og út á veg“. Fremst fór Svarthyrna, á eftir henni rann svartur dilk- ur, síðan hvít ær, þá sú svarta, sem drengirnir héldu að væri steinn. f slóð hennar önnur hvít og loks tvílemban með sín lömb. „Ég hélt þær væru sex“. kallaði Guðmundur, ,,en þær eru átta. Upp á veginn með þær. Já, ágætt og hlaupið þið nú fyrir þær, svo þær fari ekki yfir veginn, en renni nið- ur eftir.“ Við fórum auðvitað að fyrirmæ.lum foringja okk- ar, sem minnti einna helzt á Skarphéðin á Markarfljóti eða Gunnar hástökkvara og blés ekki úr nös. Síðasta spöl- inn ýtti hann á skepnurnar og með einhverju móti drógust þær upp á veginn og hlupu niður eftir. Guðmundur hvíldi sig stund arkorn, lagði síðan af stað uppeftir að bílnum, og við á eftir. „Naumast þú ert móð- ur“, sagði hann við mig. „Ég er hræddur um að það sé víð- ar mæðiveiki en í Dölum“. Svo glotti hann og greikkaði sporið upp eftir.“ Hvaðan held urðu þessar kindur séu?“ spurði ég. „Veit það ekki“, svaraði hann.“ „En markið á v t t/ * , + . —tttttt t f • Flugbjörgunarsveitarmenn koma kindunum til hjálpar. einni þeirra var sneitt framan hægra“. Ég þurfti ekki frekari stað- festingar á því, að við værum í fylgd með gömlum og gegn- um smala. II. Þegar við komum að bíl Guðmundar, studdist hann við vélarhlífina og horfði á eftir fénu niður veginn. „Nú er því óhætt", sagði hann sigri hrósandi, „það finnur leiðina heim“. „Við erum búnir að vera klukkutíma“, sagði ég. „Það er gott fyrir þig“ sagði Guðmundur. ,,Þú hefur kann- ske kynnzt landinu“. Svo tók hann talstöðina og kallaði upp Flugbjörgunar- sveitina. „Er ’hún hér einhvers staðar á næstu grösum" spurði ég. „Já, þeir eru á heiðinni að leita að fé“. „Ég er að hugsa um að segja þeim frá þessum kindum1, bætti hann við „Og spurðu þá hvað an þær séu“, sagði ég. „Halló, Flugbjörgunarsveitin, halló, Flugbjörgunarsveitin", kallaði Guðmundur og sagði til sín. Sigurður Þorsteinsson, varð- stjóri svaraði kallinu, og síð- an áttum við samtöl við Flugbjörgunarsveitarmenn, — eitthvað á þessa leið. Guðmunduri • Við höfum bjargað átta kindum úr sköfl- um hér á Skálafelli. Viljið þið gjöra svo vel að láta hann Einar í Heiðarbæ vita af þeim. j Sigurður: Já, það skulum við gera. Guðmundur: Hvaðan ætli þær séu, ég sá ekki nema sneitt framan hægra. Sigurður: Jónas heldur að þær séu frá Fellsenda. Guðmundur: Þær ættu þá að rata heim. Sigurður: Ætli það ekki. Guðmundur: Hvar hafið þið verið? Og nú tók við Jónas Jónas- son, Amtmannsstíg 5, Og lýsti xerðum sínum og Flugbjörg- unarsveitarinnar. Jónas: Ég held ekki að fé hafi fennt á Mosfellsheiði. Við fundum 7 kindur úr Reykjavík og af Kjalarnesi á lágheiðinni. Þær voru á mel- Barði og í algjöru svelti, höfðu áreiðanlega ekkert feng ið í viku eða meira, en ekki fenntar þ’ú snjór er jafn fallinn á þessum slóðum. Sigurður: En það hefur skafið og er þykkara undir börðunum? Jónas: Já, að vísu. Þessar kindur voru vestan við Sköfl- ung sunnan við gömlu Sogs- línuna. SÍcöflungur er í sjón- hendingu frá Vörðuskeggja á Hengli norður í Mosfellsheiði, séð norður frá Vörðuskeggja. Tófuför sáum við nokkur, en þó voru ekki mikil brögð að þeim. Það voru að vísu all- mikil för kringum eina kind sem var króuð af í svo köll- uðum Folaldadölum, vestur af Hátind og Jórutind, eða norð- an við Dyrfjöll. Sigurður (grípur fram í): Þið getið heyrt að hann þekk- ir sig á þessum slóðum. Svona getur hann haldið áfram í all- an dag að þylja upp ömefni. Jónas (heldur áfram): Fol- aldadalirnir eru þrír og fund- um við þessa kind í fremsta dalnum — hún var af Kjalar- nesi. Blaðamaður: Ertu alinn upp á þessum slóðum Jónas? Jónas: Nei, en ég hef rekið bú í Nesjum um margra ára skeið, en Nesjar aru efsti bær í Grafningshreppi. Sigurður: Þegar við kom- um í miðdalinn, fundum við sex kindur, allar frá Nesja- völlum. Jónas: Þær voru í svelti. í dölunum var geysimikil fönn og ómögulegt að korna fénu áfram nema í slóð snjóbíls- '■'t.' .Ms/pi&t,: irus. Hann var ómetanleg hjálp. Blaðamaður: Hvernig stend-^ ur á því að þú ert í slagtogi með Flugbjörgunarsveitinni? Jónas: Ástæðan er sú að ég hringdi til Sigurðar og spurði, hvort þeir mundu fara út úr bænum um helgina. Hann svaraði því játandi. Þá spurði ég hvort honum væri ekki sama, þó þeir æfðu sig á þess- um slóðum hérna. Hann sagði að þeim væri sama um það. Ég er þeim mjög þakklátur. Ég hefði ekki getað verið heppnari, að hitta á þá ná- kvæmlega á sama tíma sem þeir voru að búa sig undir æfingu. Blaðamaður: Hvað eruð þið margir. Sigurður? Sigurður: Við erum átta, Jónas sá níundi. x Jónas: Og þeir gerðu það fyrir mín orð að fara þessa leið yfir heiðina. Mér líður alltaf betur, þegar ég er búinn að fara yfir þetta svæði. Ég má ekki til þess hugsa, að skepnurnar standi í svelti vegna jarðbanna. Mér finnst það engu betra en þó þær graf ist í fönn. Ég veit að margur bóndinn hefur átt erfitt með svefn eftir þetta áhlaup. Ég man ekki eftir svona hörðum vetri í október. Kjartan á Hraðastöðum, glöggur maður og minnugur, segist ekki muna svo mikinn snjó og lang varandi í októberlokin síðast- liðinn 50 ár. Blaðamaður: Haldið þið, að það sé margt fé eftir á þessum slóðum? Jónas: Nei, ekki nema það hafi fennt í Folaldadölunúm. Blaðamaður: Hvernig held- urðu að ástandið sé hér í nær liggjandi sveitum? Jónas: Það er óleitað fyrir norðan Ármannsfell og upp að Hvalvatni, en þeir telja ógjör legt að leita þar nema í snjó- bíl. Einar oddviti í Heiðarbæ hyggst fara inneftir á morg unn. Blaðamaður: Halda þeir að það sé margt fé á þessum slóð- um? Jónas: Þeir búast við ein- hverju fé. Blaðamaður: Hvernig hefur æfingin gengið hjá ykkur, Sigurður? Sigurður: Ágætlega. Við höfum ekki getað reynt snjó- bíllinn undanfarin ár vegna snjóleysis, svo þetta var kær komið tækifæri. Einhverjir gallar hafa komið fram í belt unum, svo við verðum að skipta um þau og fá ný belti. Einn þáttur í störfum Flug- björgunarsveitarinnar eru Framhald á bls. 15. tk- . i IIÍÍiísljiÁlwi::; líff " ttf/rttSftV*' <tt t 'tíöxse. t /t \tttttVtS S.V ttj.t*.tttttttt.t t Kindurnar á Skálafelli. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.