Morgunblaðið - 06.11.1962, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 06.11.1962, Qupperneq 15
Þriðjudagur 6. nóvember 1962 VORCl'lSBL AfílÐ 15 Sören Valentínusson Keflavík — minning SÖREN Valentínusson, gamall sjógarpur og seglasaumari hin síðari ár, er nú horfinn sjónum okkar og hverfur aftur til mold- arinnar í dag. Snögglega og á- kveðið í fullu fjöri leysti hann landfestar við þetta líf og lagði á önnur höf. Einmitt þannig held ég að Sören hefði sjálfur kosið að hverfa, ef valið hefði verið hans, verða ekki gamal- menni og verða engum til trafala — heldur að hætta og láta degi Ijúka og taka til annarra starfa að morgni hins nýja dags hinum megin við hafsbrúnina. Sören Valentínusson varð bráðkvaddur á götu úti í Kefla- vík 29. október sl. Hann var fæddur 1. júlí 1887 í Stykkis- hólmi og því liðlega 75 ára gam- all, er hann lézt. Foreldrar hans voru Gróa Davíðsdóttir og Val- entínus Oddsson og ólst hann upp í foreldrahúsum ásamt þrem systkinum sínum. Sjór og skip urðu snemma vettvangur hans. Níu ára gamall fór hann fyrst að stunda sjó með föður sínum og ".J ára gamall var Sören síðast skipstjóri á síld fyrir Norðurlandi. Á milli þessara marka liggur óvenju fjölþætt ög víðförullt sjómannsstarf. Flestar tegundir skipa mun Sören hafa kannað, bæði sem undir- og yfirmaður. Hann var á árabátum, skútum, kútterum, vélbátuYn og togurum. Um árabil var haiin í siglingum um heimshöfin með flutninga- skipum og þá einnig á seglskip- um, sem nú eru að týna tölunni, Víkingur veiðir við Grænland Akranesi 5 nóv. TOGARINN Víkingur stundar nú veiðar á miðunum fyrir Vest ur-Grænlandi og var í morgun, samkvæmt skeyti, búinn að fá 150 tonn. — Oddur. eins og skipshafnir þeirra. í>að voru ævintýraríkir dagar á hinum prúðu seglskipum og aldrei hafði Sören svo mikið að gera að hann legði ekki frá sér verk, þegar hann gat lifað upp aftur í frásögnum liðna daga á hinum tígulegu og erfiðu segl- skipum og ferðum þeirra um heimshöfin og dvölum í fram- andi höfnum — þá ljómaði skarp leitt andlitið, kvikar og snöggar hreyfingar áréttuðu ævintýrin, sem alltaf voru á bak við erfiði og þunga starfsins. Ég minnist þess ekki í langri og góðri viðkynningu að hafa séð Sören í slæmu skapi — hinn síungi, síglaði og kviki starfs- maður er sú mynd, er ég minn- ist bezt — alltaf jafn kátur og léttur, hvort sem aflinn var mik- ill eða lítill, hvort sem veðrið var gott eða Vont — hvort sem gengið var af gleðifundi eða stúkufundi, eða þegar örðug- leikar steðjuðu að, þá var Sören alltaf þess megnugur að breiða út glaðværð sína og græsku- leysi og mikla lífsþekkingu, svo það birti yfir hvar sem hann fór. Slíkir mannkostir eru því miður fágætir og verða því eftir- minnilegri okkur, sem kynntust þeim í umgengni við hinn horfna vin. Það er ekki á mínu færi að rekja margbreytilega og fjöl- þætta starfssögu Sören^ Valen- tínussonar, því þar er svo víða komið við. Ég hy 'g að þegar fregnin berst um að hérvistardögum Sörens sé lokið — ef til vill með þessum línum — þá muni marg- ur staldra við og rifja upp hjá sér minningar um samveru og samstarf, því Sören var lands- þekktur maður á sína vísu — ekki í auglýsingum, átökum stjórnmála, listum eða vísindum — heldur sem hinn trúi og trausti starfsmaður, hinn æðru- lausi vinur og félagi allra, sem áttu með honum samleið eða viðkynningu, mann, sem allra vanda vildi leysa og lótti svo margra byrði. Minningarnar um Sören Val- entínusson, þakklæti og fyrir- bænir, sem berast að dánarbeði, verða góð kjölfesta því fleyi, er hann nú siglir á Drottins fund. Það er mikill missir fyrir Keflavík að sjá á bak Sören Valentínussyni, en til Keflavíkur kom hann árið 1930 og átti þar sín starfsár ávallt síðan. Það þýðir ekki að sakast um þó þeir eldri falli og hverfi úr starfi, svo skal það vera og viljugur sérhver bera. Við sem eftir lifum, sendum Vigdísi Guðbrandsdóttur, ekkju Sörens, börnum hans og öllum ástvinum, innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þess að bjartar -minningar um horfin vin, leggi ilmsmyrsl á sárin, sem vakin eru við snögga og óvænta brottför. Duglegir unglingnr eðn krukkur óskast til að bera MORGUNBLAÐIÐ í þessi hverfi í borginni: Sörlaskjól Laugavegur efri — Strindi hulid . . . Framhald af bls. 10. þessar æfingar og við erum mjög ánægðir með að hafa gert Jónasi þennan greiða um leið. Blaðamaðuri*Hefur þú farið nýlega um þessar slóðir, Jón- as? Jónas: Fyrra laugardag fór ég hérna um á hesti og sá ' þá nokkrar kindur, en gat ekk ert aðhafzt vegna ófærðar. Það verður hver að sjá um sitt land sjálfur, enginn kemst undan því. Guðmundur: Hvað gerið þið við kindurnar? Jónas: Við komum öðrum hópnurn á snapir í Sköflungn- um, en hinum fram á Jóru- kleif fyrir ofan Tindarétt. Þangað sækir Jón á Nesjavöll um þær á mánudag. Blaðamaður: Og þér líður betur í dag en í gær, Jónas? Jónas: Það er ósköp gott að hafa lokið athugun á þessu svæði. Kindurnar fara í slóð snjóbílsins. Ljósm.: Jónas Jónasson. Við kvöddum þá Flug- björgunarsveitarmenn og héid um áfram förinni niður Skála fellið. Það var tekið að bregða birtu og þessi svarta slikja sem lagðist yfir landið var eins og þægileg hvíld frá ó- væntum atburðum dagsins. Bæirnir hurfu í dökkvann, en sendu frá sér svolitla ljós glætu eins og til að minna á sig, en á suðurhimninum var tunglið og varpaði þjóðsögu- legri birtu yfir strindi hulið snjó og svellum. —m. Leiðrétting Akranesi 5 nóv. NAFN Runólfs skipstjóra ú Skírni misritaðist í blaðinu á sunnudaginn. Hann ei Hallfreðs son. — Oddur. Frá Jfeklu Austurstræti 14 Sími 11687 Sendum hvert á land sem er Góðir greiðsluskilmálar Verzlun til sölu Sérverzlun með barnafatnað til sölu nú þegar. Verzl- unin er í fullum gangi. Útborgun lítil. Tilboð sendist Mbl. fyrir 11 nóv. merkt: „Sérverzlun — 7664“. Bílstjóri og lagermaður Byggingavöruv.erzlun óskar eftir* að ráða mann, sem getur tekið að sér að vera lagermaður og bílstjóri. Upplýsingar um fyrri störf og meðmæli ef til eru leggist inn á afgreiðslu blaðsins merkt: Byggingavöruverzlun — 3702“. Reglusamur dugiegur piltur 20—25 ára getur fengið atvinnu strax við útkeyrslu á vörum ásamt fleiru. Uppl. á skrifstofunni Austurgötu 2, ekki í síma. Austurver hf. Til sölu er nálægt Miðbænum verzlunarhúsnæði á eignarlóð ásamt öllum vélum og áhöldum til viðkomandi starfsemi. Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480. Erlenf sendiráð óskar að taka á leigu 2—3 herbergja íbúð (án hús- gagna), helzt í Miðbænum, eða grennd. Nánari upplýsmgar gefur: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON hæstaréttarlögmaður Austurstræti 10 A. Sími: 1-10-43. P'ákhunarstúlkur óskast strax. Hraðfrystihúsið Frost hf. Hafnarfirði. — Sími 50165.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.