Morgunblaðið - 06.11.1962, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.11.1962, Qupperneq 23
Þriðjudagur 6. nóvember 1962 MORGUNBLAÐIÐ 23 — Tófan , . . . Framhald af bls. 24. sækja fé út. á Lyngdalsheiði á vögnum, en jarðýta varð að ryðja þeim braut. Hálka er hér allmikil á vegum en ekki mikil ófærð. — Fréttaritari. ★ MYKJUNESI, 5. nóv. — Hér er snjólétt og gengur fé úti ennþá. Ekki er byrjað að taka fé á gjöf, enda kemur það sér yfirleitt vel, því heybirgðir eru almennt held- ur af skornum skammti. í morgun var farið í þriðju leit á Landmannaafrétt á þrem- ur bílum. Er þetta í fyrsta skipti, sem eingöngu er farið á bílum. Flogið var yfir afréttina í síð- ustu viku, og var að sjá, að þar væri nærri eins snjólétt og hér í byggðinni. — Magnús. ★ HOLTI á Síðu, 5. nóv. — Hér hefur eitthvað af fé fennt, en | ekki í stórum stíl. Athugun á þessu er þó ekki lokið enn, því ekki hefur verið leitað til þraut- ar. Tíðin síðustu daga hefur ver- ið góð og frostlaust í gær og í dag. Ekki hefur enn þurft að gefa hér á Síðunni, enda ekki mikill snjór og allir vegir eru færir. Slátrun er nú að mestu lokið á Klaustri, og hefur verið slátr- að 19:500 fjár og rúmlega 50 nautgripum. — Siggeir. 7 Leitarmenn með tal- stöðvarbíl ÞRÍR bílar með leitarmönn- um fóru á Landmannaafrétt í gær. Einn bílanma hafði tal- stöð. Um kl. 18 í gærkvöldi voru bílarnir komnir að Hellis kvísl, en þar festust þeir. Klukkan 18.15 var síðast haft sambanú við bílana frá Gufu- nesstöðinni og sögðust leitar- menn >á yfirgefa bílana og myndu þeir gista í leitar- mannaskálanum við Land- mannahelli í nótt. 1 FAGURHÓLSMÝRI, Öræfum, 5. nóv. — Hér í öræfum sluppum við furðu vel við veðrið. Það gekk fljótt yfir, og nú hefur allan snjó tekið upp. Á nokkrum stöðum varð þó haglaust, og vit- áð er um að nokkrar kindur hafa farizt í fönn. Ekki hefur hins vegar þótt ástæða til að leita fjár, enda hagar hér góðir. — Fréttaritari. ★ SELJAVÖLLUM, Hornafirði, 5. nóv. —. Fjárleitir hafa gengið hér nokkuð vel. Þó var ekki far- ið nema einu sinni í Staðfafells- fjöll, og vitað er að þar er eitt- hvað af fé eftir. 1 Reifsdal, sem er á afrétti Nesjamanna, var vitað um 11 kindur og voru leit- armenn væntanlegir með þær í dag. Talið er að eitthvað af fé sé eftir í inn-fjöllum, en þar eru hagar sæmilegir, svo ekki er 1 ástæða til að óttast kindur, sem þar kunna að vera. Jarðlaust er hins vegar í byggð að mestu, enda nær snæbreiðan nokkuð upp í fjöll. í veðrinu reif af fjöllum. Hlýtt hefur verið síð- ustu 3 daga, þótt veðrátta hafi verið austan- og norðaustanstæð, en það er óvenjulegt af þeirri átt. Eru hagar því að koma upp. Hætt er við að ein og ein kind hafi farið í fönn, þótt ekki hafi fundizt, en ekki er vitað að fé hafi hrakið í hættur. Fé er mest heima við og víða á gjöf. Hey eru þó takmörkuð, þótt vel hafi verkazt, en seint spratt. Bústofns aukning er mikil hér, um 25% á síðustu 6 árum, en ræktun hefur ekki fylgt að sama skapi. Verið er nú að rækta upp sand- ana og er vonast til að heyfeng- ur nái bústofnsaukningunni von bráðar. — Egill. ★ SKRIÐUKLAUSTRI, 5. nóv. — Héðan héldu 3 menn vestur í svonefndan Rana á Jökuldal að huga að Klaustursfénu, sem þar er alls um 500 talsins. Raninn er sunnan Jökulsár á Dal innan við Stuðlafoss. Ekki er vitað til að féð sé í hættu, það sem sézt hefur, enda er allsstaðar jörð upp til heiða. í Fljótsdal vantar nokkrar kindur á bæ og er ekki gott að segja um hvað veldur, þótt ekki sé óttast að það hafi farizt í fönn. Fé hefur lítið byrjnað í þessu áfelli og á því hægara um að hreyfa sig. Ætlað er að smala Klausturs- fénu út í Ra.ia og reka það síðan heim að Skriðuklaustri. — Fréttaritari. ★ SEYÐISFIRÐI, 5. nóv. — Allt er hér á kafi í fönn og ófærð um götur. Reynt er að fara Fjarðar- heiði á snjóbíl. Yfirtaka síldar fer nú fram hér á staðnum. — Sveinn. ★ FOSSVÖLLUM, Jökuldal, 5. nóv. —- Hér vantar nokkrar kindur á bæ, mest 20 talsins. Hér er mik- ill gaddur. Nokkrar kindur hafa fundizt lifandi í fönn. Tófa hefur lagzt á ósjálfbjarga fé og drepið t.d. 5 kindur á Hvannárheiðinni og einnig eru nokkur brögð að hinu sama aust- an megin dalsins, svo sem á Hnefilsdal. Verið er að ryðja hér vegi og er nú fært orðið ofan af dal frá því bílalestin að norðan kom í gærkvöldi til Egilsstaða. 1 henni voru 5 stórir bílar og 3 jeppar, auk trukks frá Vegagerðinni. Jarðýta ruddi bílunum leið og eru víða himinháir ruðningar með veginum. — Fréttaritari. ★ BORGARFIRÐI eystra, 5. nóv. — Þetta er eitt versta áfelli, sem hér hefur gert á þessum tíma árs. Hér vantar kindur nokkrar á bæ, þótt fé væri yfirleitt ekki langt undan er veðrið skall á. Erfitt reyndist að ná fé sem var í víkunum hér suður af Borgar- firði. Eitthvað hefur fennt af fé, þótt ekki sé vitað um það með UTAN NR HEIMI Kosiö til Lögþings Færeyja á mánudag Kosmngabaráttan óvenjulega hörð Einkaskeyti til Mibl. Færeyjum 4. nóvemlber. KOSI® verður til Lögþings í Færeyjum 8. nóvember. Á þinginu, sem nú íer frá, átti Jafnaðarmannaflokkurinn 8 fulltrúa, Sambandsflokkur- inn 7 og Sjálfstjóriiiarflokkur- inn 2 menn. Þessir fulltrúar átu sæti x landstjórn. Stjórnarandstöðuflokkarnir voru Þjóðveldisflokkurinm er átti 7 fulltrúa á Lögþingi, og Fólkaflokkurinn með 5. Þrit- ugasti þingfulltrúinn var óháð ur. Kosningabaráttan er mjög hörð og beitir Þjóðveldis- flokkurinn sér einikum fyrir því, að NATO fái ekki að hafa herlið við radarstöðina. Þá hafa herskyldulögin frá 1954 haft í för með sér nýja afstöðu til herskyldu. Hefur það mál orðið mjög umdeilt og hafa danskir ráðherrar rit- að lögmanni bréf, þar sem skýrt er, á hvern hátt lögin skuli skilin. Jafnaðarmannaflokkurinn og Sambandsflokkurinn hafa hald ið þvi fram í ræðu og riti, að Þjóðveldisflokkurinn sékomm úniiskur og reki eriudi Moskvu. Blaðaskrif hafa aldrei áður verið svo hörð, og ber mikið ’á persónulegum deilum. Út- varpið hefur 7 sinnum út- varpað kosningaræðum. Ekki er auðvelt að segja til um, á hvem hátt kosningarn- ar muni fara, en margir telja þó. að ekki verði um stórbreyt ingar að ræða. Sumir halda þó. að Jafnaðarmanmaflokkur- inn muni vinna eitt sæti, en hinir flokkarnir hljóti óbreytt fylgi. Arge. - íþróttir Framh. af bls. 22. spenntir og ætluðu að reyna eitt skot af löngu færi. Það var var- ið og boltinn sendur fram og sigurmarkið sikorað, 6 sek. fyrir leikslok. Framiliðið allt var vel samstillt og þjálfaranum Karli Benedikts- syni, sem einnig léík með, til mikils sóma En beztu menn voru Guðjón, Ingólfur og Karl Bene- diktsson. Og síðast en ekki sízt Sigurjón í markinu, sem kom mjög á óvart með góðri mark- vörzlu. Hann varði m.a. tvö víta köst. Fram hefur með þessum leik haslað sér völl meðal beztu Evrópuliða og gleðilegt er að þeir eiga það vel skilið. Skovbakken er margreynt lið og reynzlan kom þeim þarna að fullum notum, á móti óreyndu liði. En þessi leikur undirstrikar, að ásamt sigri Íslendinga yfir Dönum í körfuknattleik sama dag, þá verður meira að gera fyrir „innimennina" heima en gert hefur verið. Aðeins þar stöndum við Norðurlandabúum á sporði og það viU svo til, að á Norðurlöndum stendur t.d. handknattleikur hvað hæst í heiminum. — A.St. vissu. Eitt lamb hefur fundizt, | sem tófa hefur drepið ósjálf- bjarga I fönn. Borgfirðingar áttu milli 40 og 50 fjár í Loðmundarfirði og var farið þangað að sækja það og tók viku. Leitarmenn voru 2 daga að reka féð yfir fjallið hér á milli og urðu að skilja féð eftir í Kækjudal, komu því aðeins yfir Kækjuskörð, en sóttu það síðan daginn eftir í vondu veðri. Þeir urðu að lóga tveimur kind- um á leiðinni, sem gáfust upp á rekstrinum. Enn er hvergi kom- in jörð hér um slóðir, en frost- laust er í dag. ■— Ingvar. VOPNAFIRÐI, 5. nóv. — Hér hefur verið óvenjuslæm færð, miðað við árstíma. Bílar voru á leið frá Akureyri, þegar veðrið gerði, og urðu að snúa við og reyndu að fara Strandaleiðina. Þeir urðu þó að snúa við á Sand- víkurheiði, en þar var nokkur hundruð metra kafli ófær af snjó. Eitthvað vantar af fé, en ekki hefur neitt fundizt fennt. Lýsisskip var hérna og varð það að bíða fimm sólarhringa eftir afgreiðslu. — Sigurjón. ★ GRÍMSSTÖÐUM á Fjöllum, 5. nóv. — Við sluppum vel við hríðarnar hér og höfum náð öllu fé. Farið er að hýsa á nyrztu bæjum, en hér á Grímsstöðum hefur féð góða jörð í mellönd- unum enn sem komið er. Bílalestin, sem hér gisti, var 37 klst. á leiðinni milli bæja frá Möðrudal að Gilsá á Jökuldal. — Benedikt. ★ GRÍMSSTÖÐUM, Mývatnssveit, 5. nóv. — Hér heima í Mývatns sveit er fé á gjöf, en á Austur- Mývatnsfjöllum er fé í góðu standi, enda lítill snjór þar. — Jóhannes. Lögbergshúsin boð in til niðurrifs PÁLL Hannesson bæjarverkfræð ingur Kópavogs, tjáði Mbl. í gær að Kópavogskaupstaður hefði boðið út til niðurrifs hús in við Lögberg. Enginn býr nú að Lögbergi og sagði Páll að hús in grotnuðu þarna niður við alfaraleið og væru að verða til skammar. Hér er um að ræða íbúðarhús, hlaðið að nokkru leyti, með á- föstu fjósi og hlöðu, 4—5 bra • og löks gamalt hesbhús, sem tms um kann að þykja eftirsjá í, en það hefur lengi verið áningar- staður gangnamanna. Hinsveg- ar hefur hesbhúsið verið þyrnir í augurn Vegamálaskrifstofunn ar vegna þess að það stendur svj nærri veginum að a fþví skaflir yfir 'hann. Enska knattspyrnan 16. umferð ensku deUdarkeppnhm- ar fór fam í gær og urðu úrslit þessi: 1. deUd Aston Villa — Fulham ....... 1-2 Blaokburn — Arsenal .......... 5-5 Blackpool — W.B.A............. 0-2 Ipswich — Manchester U. .... 3-5 Liverpool — Burnley ........ 1-2 Manchester City — Everton .. 1-1 N. Forest — Leyton O........1-1 Sheffield U. — Birmingham .... 0-2 Tottenham — Leicester ......... 4-0 West Ham — Bolton .......... 1-2 Wolverhampton — Sheffield W.. 2-2 2. deild Bury — Cardiff .............. 1-0 Charlton — Preston ............ 2-1 Chelsea — Newcastle ........... 4-2 Leeds — Norwich ............. 3-0 Luton — Derby ................ 1-2 Rotherham — Portsmouth ........ 0-0 Southampton — Middlesbrough .... 6-0 Stoke — Plymouth ............ 2-2 Sunderland — Grimsby .......... 6^2 Swansea — Walsall ............ 3-0 1 Skotlandi urðu úrslit þessi m.a. Dundee — Airdrie „............' 2-1 Rangers — Dunfermline ....... 1-1 St. Mirren — Celtic .......... 2-?7 Staðan er nú þessi: 1. deild Tottenham .... 16 11-2-3 56:26 24 st. Everton .... 15 10-3-2 32:16 23 st. Burnley .... 16 9-5-2 34:24 23 st. Wolverhampton 16 8-4-4 37:27 20 st. Leicester .. 16 8-4-4 31:22 20 st Afli Akranesbáta Akranesi 5 nóv. VONIN var ein trillúbába á sjó á sunnudag og fiskaði rúm 2 bonn. Flestar trillur reru í morg un og var aflaihæst Björg með 3 tonn. Tvær trillur fóru til Reykja víkur og seldu þ_r. — Oddur. LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VORDOR Almennur félagsfundur í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20,30. Umræðuefni: Stjórnmálaviðhorfið. Frummælandi: Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra. Allt Sjálfstæðisfólk velkomið meðan húshúm leyfir. Landsmálafélagið Vörður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.