Morgunblaðið - 16.11.1962, Síða 4
4
Föstudagur 16. nóv. 1962
Forhitarar
Smíðum forhitara. Allar
stærðir.
Vélsmiðjan KYNDILI.
Simi 32778
Vantar 1—2 herbergi
og eldhús. Helzt í Keflavík
eða Reykjavík. Uppl. í
síma 3409Ö
Keflavík
fbúð óskast til leigu. Uppl.
í síma 2237.
Vélstjóri
1. vélstjóra vantar á bát
með 280 ha Mannheimvél.
Uppl. í síma 51119.
Vauxhal Velox
og Grundig segulband til
sölu, Stórholti 39, kjallara.
Sími 16208 eftir hádegi.
Keflavík
Kvenkjólar, ný sending.
Fons, Keflavík.
Keflavík
Glæsilegt úrval af
BARNAHÚFUM
Fons, Keflavík.
Notuð eldavék
til sölu. Uppl. í síma 14840
eftir kl. 6 e. h.
Morri 10 ’47
Til sölu Morris 10 ’47 í
ökufaeru standi. Söluverð
9 þús. Uppl. r síma 17636.
Keflavík
Sem nýr Pedegree barna-
vagn með kerru til sölu.
Uppl. í síma 1847.
3ja—4ra herb. íbúð
óskast til leigu. Fyrirfram-
greiðsla, ef óskað er. Uppl.
í síma 18394.
Regluamur maður
í fastri atvinnu óskar eftir
stóru herb. eða stofu til
leigu sem fyrst. Uppl. í
síma 37833 frá kl. 7—8.
Eldfastur steinn
Nokkur tonn af eldföstum
steini vel nothæfum, mega
menn fá án greiðslu. Uppl.
í síma 19195.
Söngfólk óskast
í Kirkjukór Kópavogssókn-
ar. Nokkur söngkunnátta
æskileg. Uppl. gefur Guðm.
Matthiasson. Sími 10480.
Stúlka vön afgreiðslu
óskast í kvenfataverzlun.
Tilboð sendist Mbl. fyrir
laugardagskvöld, merkt: —
„3348“.
MOKGLISBL AÐIÐ
Ég er þjónn þinn, veit mér skvn,
aS ég megi þekkja reglur þinar.
(Davíðssálm. 119).
í dag er föstudagur 16 nóvember.
320. dagur ársins.
Árdegisflæði er kl. 08.13.
Siðdegisflæði er kl. 20.38.
Næturvörður vikuna 10.-17.
nóv. er í Laugavegs Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði
vikuna 10.-17. nóvember er Jón
Jóhannesson simi 51466.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Sjúkrabifreið Hafnarfjarðar
sími: 51336.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
ORÐ lífsins svara í síma 24678.
FRÉTTASÍMAR MBL.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
RMR-16-11-20-HS-K-20, 30-VS-K.
I.O.O.F. 1. = 14411168 1/2 = 9. II.
Helgafell 596211167. VI. 2.
Bazar heldur Skógræktarfélag Mos-
fellshrepps í Hlégarði, sunnudaginn
9. desember næstk. Vinsamlegast kom
ið munum til stjórnarinnar.
Kvenfélag Kópavogs. Áríðandi fund
ur í félagsheimilinu í kvöld kl. 8.30.
Kvenfélagið Hringurinn. Munið
minningarspjöld Bamaspítalasjóðs
Hringsins. Fást á eftir töldum stöðum:
Verzlunin Refill, Aðalstræti 12, Vest-
urbæjarapótek, Melhaga 20, Þorsteins
búð, Snorrabraut 61, Holtsapótek,
Langholtsvegi 84, Fröken Sigríði Bach
mann, yfirhjúkrunarkonu Landsspít-
ans, Verzlunin Spegillinn, Laugavegi
48.
Hentugasta fóður fyrir skógarþresti
er mjúkt brauð, kjöttægjur og soðinn
fiskúrgangur.
DÝRAVERNDARFÉLÖGIN.
r æknar fiarveiandi
Ófeigur J. Ófeigsson er fjarverandi
nóvembermánuð. Staðg. er Jón Hann-
esson.
V*:ltýr Bjarnason er fjarverandi
frá 1—11. Staðgengill Stefán Bogason.
Flugf élag íslands: Millilandaf lug:
Millilandafugvélin Skýfaxi fer til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl. 07:45
í dag. Millilandaflugvélin Hrímfaxi fer
til Bergen, Oslo, Kaupmannahafnar
og Hamborgar kl. 10:00 1 fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Fag-
urhólsmýrar, Hornafjarðar, ísafjarðar
Sauðakróks og Vestmannaeyja. Á
morgun er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, ísa-
fjarðar, Húsavíkur og Vestmannaeyja.
Loftleiðir: Eiríkur rauði er væntan-
legur frá NY kl 08.00. Fer til Oslo,
Gautaborgar, Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 9.30. Leifur Eiríksson
er væntanlegur frá Amsterdam og
Glasgow kl 23.00. Fer til NY kl. 00.30.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss er á leið til Reykjavíkur, Detti-
foss er á leið til NY, Fjallfoss er á
leið til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar, Goðafoss fer frá NY í
dag til Reykjavíkur, Gullfoss er á leið
114 Reykjavikur, Lagarfoss er í Rvík,
Reykjafoss er á leið til Lysekil, Sel-
foss er á leið til Reykjavíkur, Trölla-
foss er í Reykjavík, Tungufoss er á
leið til Dalvíkur, Siglufjarðar og
Húsavíkur.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í
Honfleur, Arnarfell er í Abo. Jökul-
fell er á leið til Glouchester. Dís-
arfell er á leið til Austfjarða, Litla-
fell fer frá Ólafsfirði í dag til Eski-
fjarðar og Hamborgar, Helgafell er á
Raufarhöfn, Hamrafell er í Reykja-
vík, Stapafell losar á Eyjafjarðar-
höfnum, Polarhav lestar á norður-
landshöfnum.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á suðurleið, Esja er í
Reykjavík, Herjólfur er á leið til
Vestmannaeyja, Þyrill er á leið til
Manchester, Skjaldbreið er í Reykja-
vík, Herðubreið er á leið vestur ura
land í hringferð.
Hafskip: Laxá er á Akranesi. Rangá
fór frá Reykjavík 13. þ.m. til Bilbao.
Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla
er á leið til Leningrad, Askja er á
leið til .Adrossan.
HVERJIR fencu BRÉFIN?
HÁSKÓLI fslands og Háskóli
Alabam.afylkis í Bandaríkjun
um hafa starfað að rannsókn
á tannsjúkdómum hér á ís-
iandi nú í sumar. Rannsóknir
þessar eru framkvæmdar þann
ig að valin voru nöfn 4000
manna eftir sams konar að-
ferðum og notaðar eru í skoð
anakönnunum. Þessurn mönn
um voru síðan send bréf þar
sem þeir voru beðnir að mæta
til tannskoðunar á ákveðnu
, tímabili. Þessi tími er nú að
renna út, nánar tiltekið renn-
ur hann út 20. nóvemiber, otg
enn sem komið er vantar ör-
i lítið á að næg þátttaka hafi
fengizt. Þeir, sem muna eftir
, að hafa fengið edtt þessara
bréfa nú í sumar, en hafa
enn ekki anzað því, eru þess
vegna beðnir að hafa samband
við skrifstofu rannsðknanna.
1 Ef höfð er hliðsjón af því,
að öll vinnan við þessa rann-
sókn er unnin fyrir gíg, ef
ekki næst nægileg þátttaka,
og að þetta er umfangsmesta
rannsókn sinnar tegundar,
sem fram hefur farið í heim-
inum, er óhætt að höfða til
þegnskapar þeirra sem fengið
hafa þessi bréf en hafa ekki
enn orðið við því.
283 manns munu enn ekki
hafa mætt til þessarar rann-
sóknar, og er það allt fólk sem
skipt hefur um heimilsfang
án þess að hið nýja hafi
komizt á skrá. 125 þeirra voru
síðast búsettir í Reykjavík,
og 63 í Hafnarfirði og Kópa-
vogi. Niðurstöður munu fást
úr rannsókninni ef talsvert af
þessum hópi hefur samband
við skrifstofuna.
Rannsóknin er kostnaðar-
söm, mun áætlað að kostnað-
urinn losd eina milljón króna,
og enginn vafi leikur á að
niðurstöður rannsóknarinnar
koma sérstaklega að gagni
fyrir okkur íslendinga. Þeir, 1
sem að rannsókn þessari
standa, leggja svo mikið upp •
úr að geta haft samband við
þetta fólk, að þeir eru reiðu-
búnir til að koma á þess fund '
hvenær sem vera skal og
hvar. Fólkið, sem enn hefur ‘
ekki mætt, þarf þess vegna
aðeins að hafa samiband við
skrifstofuna sem er að Mel-
haga 5, sími 17869 við allra
fyrsta tækifæri og alla vega
fyrir 20. nóvember. Síðan
mun sjálf skoðunin geta far- ,
ið fram hvar sem vera skal
og hvenær.
Það skal að lokum tekið '
fram, að það er engu að síður
nauðsynlegt rannsóknarinnar 1
vegna, að fólk, sem ekki leng
ur hefur eigin tennur, held-
ur notar falskar mæti til skoð
unarinnar.
-X -K * GEISLI GEIMFARI
•X -K -X
í höfuðstöðvum öryggiseftirlitsins.
— Þetta er seinasta svarið. Allir
eru komnir - hi?rgi. Nú má geislunin
byrja.
— Við skulum þá byrja, Coffin. Þú
byrjaðir þessa eitrun, og þú skalt
leggja þitt af mörkum til að stöðva
hana. Þegar það er búið skaltu þurfa
að taka út þína refsingu.
Coffin teygir sig yfir mælaborðið
og ýtir á hnapp, en ekkert skeður.
JÚMBÓ og SPORI — X— —-K— —K— — -K— Teiknari: J. MORA
Jumbó áttaði sig á að hann hefði
verið sérlega heppinn. — Að Spori
skyldi koma í ijós virtist benda til
þess að maðurinn væri einhver ann-
ar. — Hvað ert þú að gera hérna?
spurði Spori. — Ég var sízt að skilja
hvað hefði orðið af þér.
— Þér verðið að afsaka þetta,
stamaði Júmbó niðurlútur. Ég hélt
að þér væruð.... ;nú skil ég að þér
eruð ekki.... Júlíus Atlas leit hvass-
eygur á þá, og þeim fannst ráð að
fara.
— Ég sat og beið og beið, og þá
hugsaði ég með mér að það væri
réttara að fara og gá að þér, sagði
Spori. — Bara þér hefði hugkvæmzt
það svolítið fyrr.