Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 13
r Föstudagur 16. nðv. 1962
ínoncvym 4ðið
13
skipa sér við hiið annarra launþega
eftir Sverrir
Verzlunarmenn fagna úr-
slitum í máli þeirra heilshug-
ar. Réttlætið í þessu máli
hefur unnið frægan sigur.
Eftir áralanga baráttu fyrir
sjálfsögðum rétti sínum telur
Landssamband ísl. verzlunar-
manna sig nú hafa náð þeim
árangri, sem bezt getur
tryggt hag félaga þess. Verzl-
unarmenn mæta nú til þings
Alþýðusambands íslands í
fyrsta sinni, ákveðnir í að
leggja þeim málum lið, sem
til hagsbóta horfa fyrir alla
launþega.
Þau furðulegu tíðindi
hafa gerzt að svo er að sjá
sem ýmsir af núverandi for-
ystumönnum ASÍ haldi á-
fram að berja höfðinu við
steininn og neiti þeirri stað-
reynd að LÍV er frá og með
mánudeginum 12. nóvember
sl., er dómur var uppkveðinn
í Félagsdómi, fullgildur fé-
lagi í ASÍ á borð við t.d.
Dagsbrún og Iðju. Það er með
öllu útilokað að einum né
neinum haldizt uppi að brjóta
lög og fara ekki að dómum.
Því mega núverandi stjórnar-
menn ASÍ treysta.
Þar seir innganga LfV í ASf
með dómi er mál málanna í
dag, þykir mér rétt að rekja
gang þess máls nokkuð.
Á þingi LÍV vorið 1959 var
samþykkt að sambandið skyldi
sækja um inngöngu í ASÍ. Sam-
kvæmt því var miðstjórn Al-
þýðusambandsins sent eftirfar-
andi bréf, dags. 14. júlí 1960:
„Miðstjórn Alþýðusambands
íslands, Reykjavík.
Landssamband íslenzkra verzl-
nnarmanna leyfir sér hér með,
að sækja um inngöngu í Alþýðu-
samband fslands, í samræmi við
samþykkt síðasta þings LÍV þar
um.
Hjálagt sendum vér tvö ein-
tök af lögum LÍV og meðlima-
skrár hinna einstöku félaga í
tvíriti. Félagsskrá frá Skrifstofu-
og verzlunarmannafélagi Akur-
eyrar hefur enn eigi borizt okk-
ur í hendur, en vér væntum þess
að það komi ekki að sök, þar
sem félagið er í samtökum yðar.
Vér munum væntanlega senda
félagaskrá frá Akureyri innan
fárra daga.
Ennfremur sendum vér ljós-
prentun af bréfi frá Nordisk
Samarbeijdskomité, sem skýrir
aðild okkar þar að.
Oss væri kært ef svar yðar við
umsókn vorri getur legið fyrir
dnnan mánaðar“.
Astæðumar fyrir samþykkt
þings LfV um inngöngu í ASÍ
eru augljósar:
1. Hin fornu sannindi um
nauðsyn á sameiningu launþeg-
anna í lífsbaráttunni.
2. Sá augljósi styrkur sem
hin voldugu allsherjarsamtök,
ASÍ, geta veiti hinum ungu
samtökum verzlunarfólks.
, 3. Hin margvíslegu réttindi
og áhrif, sem ASf hefur verið
veitt sem fyrirsvarsaðila allra
Hermannssoin, formann L.Í.V
launþega í landinu, sem ekki
verður séð að verzlunarfólk geti
notið eins og því ber nema með
beinni aðild að samtökunum.
Inntökubeiðni LÍV var form-
lega aldrei svarað, ekki einu
sinni eftir að þing • ASÍ hafði
hafnað henni. Tilboð þings ASÍ
um bindandi samning við LÍV
um stuðning í kjarabaráttunni
barst LÍV heldur aldrei form-
lega. Að vísu var undirritaður
viðstaddur afgreiðslu mála á
þingi ASÍ en allóvenjuleg máls-
meðferð hlýtur þetta að teljast
af hálfu ASÍ.
arra núverandi forráðamanna
ASÍ, að félagsskrá LÍV væri
með þeim hætti, að engan vegin
samrýmdist reglum ASÍ þar um.
Ennfremur að lögum LÍV þyrfti
að breyta til samræmis við regl-
ur ASÍ, enda þótt þeir hafi ekki
getað bent á eitt einasta atriði í
lögum T ÍV sem breyta þyrfti og
ekki einu sinni eftir að Félags-
dómur hafði úrskurðað að ASÍ
tjáði sig um það atriði.
Nú er það rétt, að á félags-
skrám LÍV 1960 fundust eftir ít-
arlega rannsókn nokkrir menn
sem ekki áttu þar að vera. Að
Lögfræðingur LIV, Áki Jaköbsson, afhendir Sverri Her
mannssyni, formanni LÍV, dóm Félagsdóms.
Nokkrum dögum fyrir þing
ASÍ, 1960 var inntökubeiðni LÍV
loks tekin fyrir í miðstjórn Al-
þýðusambandsins.
Var þar samþykkt með 5 atkv.
gegn 4 að synja inntökubeiðni
Landssambandsins „um sinn“,
eins og það var orðað „meðan
skipulagsmál Alþýðusambands-
ins væru í deiglunni“.
Þessa samþykkt miðstjórnar
staðfesti 27. þing ASÍ síðar með
193 atkvæðum gegn 129.
Málefnarök forráðamanna ASÍ
gegn inntökubeiðni LÍV voru
þau, sem fram kemur í samþykkt
þeirra, að meðan skipulagsmál
ASÍ séu í deiglunm, þá skuli
LÍV ekk-i fá inngöngu. Nú væri
gaman að fá upplýst, hvenær sú
stund kynni að renna upp, að
þessi mál ASÍ hætti að vera í
deiglunni. Sannleikurinn er sá,
að í raun og veru hætta skipu-
lagsmál slíkra félagasamtaka
sem ASÍ aldrei að vera í deigl-
unni. Stöðugt hlýtur þróun þess-
ara mála að eiga sér stað svo
lengi sem samtökin starfa og því
alls engin vandi að færa til sanns
vegar að þau séu í deiglunni.
Enda eru þessi svokölluðu rök
þeirra hrein falsrök og yfirskin
fyrir pólitísku ofbeldi, sem alls-
herjarsamtök ísienzkrar alþýðu
beita gegn jafn réttháum félög-
um sínum í verkalýðshreyfing-
unni.
1 umræðum á Alþýðusam-
bandsþingi var aðalinnihaldið í
málflutningi forseta ASÍ og ann-
sjálfsögðu hefði LÍV fjarlægt þá
þegar í stað ef sambandinu
hefði verið gert viðvart um það.
En svo var ekki gert og var í
því efni brotin á LÍV venja sem
alltaf hefir verið farið eftir inn-
an ASÍ. Má í því sambandi nefna
dæmi frá síðasta þingi ASf. Um
sama leyti og LÍV sótti um inn-
göngu í ASÍ, sótti Félag bygg-
ingariðnaðarmanna í Árnessýslu
um inngöngu. Nokkru eftir að
inntökubeiðni þess hafði borizt
ASÍ, sendi ASÍ hana til baka
með þeirri athugasemd, að í fé-
lagatalinu væru ákveðnir menn,
sem ekki gætu talizt launþegar
og gæti félagið af þeim sökum
ekki náð inngöngu í Alþýðusam-
bandið. Félag byggingariðnaðar-
manna í Árnessýslu fjarlægði
þegar þessa menn af félagsskrá
sinni og sendi síðan inntöku-
beiðnina á nýjan leik og var sú
umsókn síðan samþykkt bæði af
miðstjórn og þingi ASÍ.
Nú vaknar spurningin: Hvers
vegna var LÍV ekki gefinn kost-
ur að að leiðrétta félagsskrár
sínar? Svarið liggur í augum
uppi: Hannibal og félagar hans
töldu sig þurfa á að halda að
gea bent á galla á umsókn LÍV
á ASÍ þingi. Þess vegna var LÍV
ekki gefinn kostur á leiðrétt-
ingu, enda þótt farið væri með
því aftan að siðunum. Þetta var
ógeðfelldur vesaldómur af hálfu
íorráðamanna ASf. En LÍV hef-
ur fengið uppreist að þessu
leyti. Félagsdómur hvað upp eft-
irfarandi úrskurð 21. júní sL:
„Áður en dómur verður lagður
á mál þetta þykir rétt samkvæmt
56. gr. laga nr. 80/1938, að lögð
verði fram 1 málinu eftirtalin
gögn.
1. Af hálfu stefnanda, sam-
þykktir allra þeirra, verzl-
unarmanna sem eru í
Landssambandi íslenzkra
verzlunarmanna.
2. Félagsskrár sömu félaga
miðað við núverandi félaga
tal og í því formi, sem 8.
gr. laga Alþýðusambands
íslands mælir fyrir.
3. Rétt er að stefndi tjái sig
því næst um hverja sam-
þykkt fyrir . sig og lýsi
þeim atriðum, sem hann
telur, að eigi samræmist
lögum Alþýðusambandsins.
2. Rétt er einnig, að stefndi
tjái sig um félagatal hvers
einstaks félags innan
Landssambands ísl. verzl-
unarmanna og geri grein
fyrir því, ef hann telur
einhverja af þeim, sem þar
greinir, ekki eiga heima í
stéttarfélagi verzlunar-
manna- og skrifstofufólks.
5. Gerð sé grein fyrir því,
hvort þau þrjú félög í
Landssambandi ísl. verzl-
unarmanna, sem þegar
njóta félagsréttinda í Al-
þýðusambandi íslands, séu
einnig fullgildir félagar í
hinu fyrrnefnda.
Gagnaöflum þessi fari fram
svo fljótt sem föng eru á og
sé jafnframt aflað annara þeirra
gagna, er tilefni gefst til.
Afla skal framangreindra
agna svo iljótt sem unnt er.“
LÍV skilaði sínum félaga-
skrám og lögum sínum og sam-
þykktum allra sinna félaga. —
Greip nú ekki stjórn ASÍ kær-
komið tækifæri til að benda hin-
um virðulega dómi á gallana í
lögum og félagaskrám LÍV? —
Lýsti stjórn ASÍ því ekki ræki-
lega fyrir dómnum að hvaða
leyti lög LÍV samrýmdust ekki
lögum ASÍ? Hvoru tveggja höfðu
þeir stöðugt haldið fram í ræðu
og riti. En hvað skeður? — ASÍ
gat ekki bent á eitt einasta atriði
í þessu sambandi og mun þessi
þáttur málsins verða þeim til
ævarandi skammar. Lögfræðing-
ur ASÍ, Egill Sigurgeirsson, lét
sér að vísu sæma að veitast í
málflutningi fyrir Félagsdómi að
tveimur félögum LÍV og ekki af
verri endanum eins og Þjóðvilj-
inn orðar það; Sverri Hermanns-
syni, formanni LÍV og Guðm. H.
Garðarssyni, formanni VR. Lög-
fræðingurinn sagði að Sverrir
væri hluthafi í hlutafélögunum
Eldborgu, ögra og Hrímni, Hafn
arfirði og ennfremur í söltunar-
stöðinni Ými á Siglufirði. Það er
rétt að Sverrir á lítinn hlut í öll-
um þessum fyrirtækjum og hvar
stendur að menn megi ekki eiga
hlut í hlutafélagi? Hingað til
hefir það t. d. ekki þótt glæpur
að eiga bréf í Eimskipafélagi ís-
lands h.f.
En lögfræðingurinn sagði
fleira. Hann sagði að Sverrir
væri framkvæmdastjóri fyrir
hlutafélögin Ögra, Hrímni og
Ými. Þetta eru ósannindi.
Að álíta formanh V.R. vafa-
saman í röðum launþega vegna
þess að hann ritstýrir fagblaði
er fjarstæða út í hött.
Þega- fyrir lá synjun síðasta
ASÍ-þings á inntökubeiðni LÍV
þá ákvað LÍV að stefna málinu
fyrir Félagsdóm. Ástæðan fyrir
þessari málssókn var að sjálf-
sögðu sú, að LÍV bar höfuðnauð-
syn til þess að fá úr því skorið
hvaða laga og réttar það nýtur
í þessu þjóðfélagi. LÍV taldi sig
órétti beitt og þá var að kanna
hvort ekki fyrirfinndust lög til
að verja LÍV fyrir þessum ó-
rétti. Að hver og einn leiti rétt-
ar síns er ekki nema eðlilegt og
sjálfsagt, enda þótt réttarvitund
og lýðræðishugarfar forráða-
manna ASÍ sé með þeim hætti
að þeir hafa frá upphafi talið
málsókn LÍV árás á félagafrelsið
í landinu.
LÍV gerði þá kröfu, að ASf
yrði með dómi skyldað til að
veita LÍV inngöngu í samband-
ið. —
ASf krafðist þess hins vegar
að málinu yrði vísað frá Félags-
dómi, en að öðrum kosti að ASÍ
yrði sýknað í málinu. Þann 22.
febrúar sl. kvað Félagsdómur
upp dóm í málinu þar sem fall-
izt var á kröfu ASÍ um frávís-
un. Þeim niðurstöðum vildi LÍV
ekki hlíta og vísaði málinu til
Hæstaréttar og krdfðist þess að
dómi Félagsdóms yrði hrundið
og honum gert að kveða upp efn-
isdóm í málinu. Með dómi 4.
apríl féllst Hæstiréttur á þá
kröfu LÍV.
#
Þann 12. þ.m. var svo uppkveð
inn í Félagsdómi endanlegur dóm
ur í málinu svo sem öllum er
kunnugt um. Þar með er Lands-
samband íslenzkra verzlunar-
manna orðið fullgildur aðili að
Alþýðusambandi íslands með öll-
um réttindum og skyldum sem
því fylgja. Er það mikill sigur
fyrir félagafrelsið í landinu.
Þess mó getn,
sem gert er
ÞAÐ er mikið rætt og ritað um
það sem gjöra skal, og gjöra þarf
og svo þegar framikvæmdir eru
orðnar, alltof oft hljóð um ár-
angurinn. í þessu tilfelli sem hér
um ræðir er það orlof húsmæðra,
sem nú er komið til framkvæmda
og íslenzkar húsmæður eru farn
ar að njóta góðs af.
Síðastliðið sumar, var ég sem
þessar línur rita ein af þeirn.
Var þá búin að vera kölluð hús-
móðir í 55 ár — og ef satt skal
segja oft á þessu tímabili haft
meiri þörf á 10 daga hvíld en nú
en ánægjunnar af dvölinni naut
ég í ríkum mæli, enda búið að
konunum sem bezt á allan hátt.
Eg er sannfærð um, að samhug-
ur þeirra, sem njóta þessarar
hvíldar og ánægjulegrar samveru
stunda, framkallar það bezta, sem
í sál okkar býr, og þroskar í
starfi daglegra anna. Kona, sem
er með umfangsmikið heiimili,
og kannske mörg börn, þarf að
fá aðstöðu ti'l að geta notið þess-
ara hvíldardaga. Af reynslu get
ég sagt það, að þreyttum hús-
mœðrum hefur orðið það hvíld
og uppörvun i daglegum önnum,
að dveljast, þó ekki væri nema
eina kvöldstund á rólegum stað,
án umstangs og fyrirhafnar.
Konunni frá orlofsnefnd, frú
Sólveigu Jóhannsdóttur, sem for
ustuna hafði fyrir þessum hóp,
sem ég var þátttakandi í, færi
ég kærar þakkir, hún var sérstak
lega umhyggjusömn og ástúðleg
við okkur og gjörði allt til þess
að dvölin á Laugarvatni yrði
okkur til hvíldar og ánægju.
Ég óska að sem flestum konum
gefist kostur á að njóta þessara
orlofsdaga. Ég þakka orlofsnefnd
fyrir frábæran dugnað í fram-
kvæmd þessara roála.
Viktoría Bjarnadóttir.