Morgunblaðið - 16.11.1962, Side 23

Morgunblaðið - 16.11.1962, Side 23
Föstudagur 16. nðv. 1962 UORC,T’W”r'ir>1Ð 23 — Eltingaríeikur Fraimhald af bls. 24. togaramenn við borðstokkinn og höfðu barefli á lofti. í sömu mund var sett á fulla ferð og enn hald- ið til hafs. RUSSEL, SKERST í LEIKINN Varðskipið hélt þegar á eftir honum, og hófst nú eltingaleikur, sem stóð alla nóttina út af Djúpi. Brezka eftirlitsskipið Russel hafði legið inni á ísafirði, en hélt þaðan út kl. 23 um kvöldð, til þess að reyna að hafa áhrif á skipstjóra togarans. Kom Russel að togaranum kl. 3 aðfaranótt fimmtudags, og var skipstjóran- um ráðlagt að fara eftir skipun- um varðskipsmanna. Hins vegar gat Russel ekki gefið honum skip un þess efnis, þar sem yfirmenn eftirlitsskipsins mega aðeins gefa leiðbeiningar í slíkum málum. Kl. tæplega 10 í gærmorgun gafst skipstjórinn loks upp og samþykkti að halda inn til ísa- fjarðar. Vöru skipin þá stödd 20 sjómílur norður af Horni. VAR ÁHÖFNIN DRUKKIN? Á leiðinni til ísafjarðar setti Albert menn 4im borð í Lord Middleton. Skipin lögðust að um kl. 16. Ekki var flugveður vestur í gær, svo að flugmennirnir á gæzluflugvélinni komust ekki þangað, en þeir þurfa að mæta við væntanleg réttarhöld. Mun þá hafa staðið til að sigla togaran- um suður til Reykjavíkur, enda ekki víst, að flugveður yrði í dag, en sagt er, að togaramenn hafi ekki treyst sér til þess. Kemur það saman við það álit xnanna vestra, að áhöfnin, og ekki sízt skipstjórinn, hafi verið drukkin allan tímann. í gærkvöldi hafði verið ákveð- ið að bíða flugveðurs og láta rétt- arhöldin fara fram fyrir vestan, en sigla togaranum ekki suður til Reykjavíkur. Lord Middleton er gamall tog- ari, smíðaður árið 1936. Skipstjór- inn heitir Mecklenburgh. Mbl. er ekki kunnugt, hvort það er sá sami Mecklenburgh skipstjóri, sem var dæmdur í 260 þús. kr. sekt á Seyðisfirði 13. sept. sl. fyrir landhelgisbrot út af Glett- inganesi á togaranum Margaret Wicks frá Fleetwood. t ,--------------------- — Krusjeff Framhald af bls. 1 Stjórnin segir í yfirlýsingu sinni að „fylgjendur hinnar nýju endurskoðunarstefnu" — en orða tiltæki þetta notar hún oft um Titó Júgóslavíuforseta og Krús- jeff — vilji fá þjóðirnar til að „trúa fullyrðingum, loforðum, röksemdum og góðvilja heims- valdasinna eins og Kennedy." — 1 orðsendingu sinni til Kénnedy um brottflutning eldflauga frá Kúbu, sagði Krúsjeff að hann treysti góðvilja forsetans og full- yrðingum um að ekki yrði gerð innrás á Kúbu. ★ J>að er athyglisvert við þessa yfirlýsingu kínversku stjórnar- innar að hún er birt rétt áður en flokksþing kommúnista hefst í Moskvu. Ekki mun þar vera um tilviljun að ræða. - LISTON Framhald af bls. 22. verður heimsmeistaratitillinn i veði. Lítið sem ekkert hefur spurzt til Pattersons upp á síðkastið. Hann yfirgaf ásamit fjölskyldu sinni hú sitt og hvarf hreinlega. Sagt er að hann vilji lifa í friði og án álhyggja unz hann mæt- ir Liston á ný, en til þess á hann umsaminn rétt, ef hann kærir eig um að nota hann. Sonny List jn • er nauðsyn á eð fá kappleik, sagði Nilon fram- kvæmdaistsjóri Listons. (það er óhæft að hann sé aðgerðarlaus toeðar Patterson undirbýr sig af kappi fyrir Jcari leikinn um heimsmeistaratitilinn, Fullfrúar sjémarana höfrs- uðu Akraneskjörunum Á H I N U M árangurslausa sáttafundi, sem sáttasemjari hélt með aðilum síldveiðideil unnar í fyrrinótt, höfnuðu fulltrúar sjómönnum sömu kjörum og þegar hefur ver- ið samið um á Akranesi og Hellissandi. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Landssambandi ísl. út- vegsmanna: Útvegsmenn bjóða lokatilboð til lausnar síldveiðideilunni Á fundi, sem sáttasemjarar ríkisins héldu með deiluaðilum í síldveiðideilunni, aðfaranótt fimmtudags s.l., buðu útvegs- menn upp á samninga um sömu skiptakjör og þau, sem samið hefir verið um á Akranesi og Hellissandi, en þau eru á bátum, sem búnir eru sjálfvirku síldar- leitartæki og kraftblökk eitir- farandi: Til hvers háseta á bátum 40 — 60 rúml. . _ G0 — 70 — - — 70 — 100 — - — 100 — 120 — Bátar yfir 1200 rúmlestir stund uðu ekki veiðar með hringnót, þegar eldri samningar voru gerð- ir, en þeir stunduðu þá veiðar mcð herpinót og hafði þá hver skipverji í sinn hlut 2,1%, en er boðið nú á veiðum með hringnót 3% í sinn hlut. Auk þess að hver háseti fær samkv. tilboði útvegsmanna, lík- an hlut úr aflanum og áður og í mörgum tilfellum mun meira, þá eru skipverjar nú líftryggðir fyrir kr. 200.000,00, samið hefir verið um ábyrgðartryggingu með hámarkstjóni allt að kr. 500.000.00, 1% grciðslu í styrktar- og sjúkrasjóði, matsveini er boð ið 20% umfram laun háseta og kauptrygging hækkuð í kr. 6.610.00 á mánuði, sem svarar til 10 stunda vinnu verkamanna. Með tilliti til framanritaðs má a) Á bátum undir 60 rúml. b) — — 60 að 120 — c) — — 120 — 240 — d) — — 240 — 300 — 38,5% í 10 staði 37,0% - 11 — 36,0% - 12 — 36,0% - 13 — Þó skal ekki skipt í fleiri staði en menn eru á skipi. Samninganefnd sjómanna hafn aði þessu tilboði. Því hefir verið haldið fram af fulltrúum sjómanna, að fyrr- greind skiptakjör feli í sér minni hlut til háseta, en þeir fengu samkvæmt eldri samningum., Svo er ekki nema í fáum til- vikum, eins og fram kemur í eftir farandi yfirliti, en um verulega hækkun er að ræða á mörgum skipastærðum. Tvímenniiigs- keppni lokið HAFNARFIRÐI — Tvímennings keppni bridgefélagsins er lokið og urðu þessif efstir: Árni og Eysteinn 380 stig, Guðmundur og Reynir 360, Kjartan og Viggó 346, Elís og Jón H. 344, Stígur og Sigurður Þ. 343, Sævar og Hörður Þ. 336. Samkv. eldri Skv. tilboði samnmgum 3,73% 3,73% 3,42% 3,33% útvegsmanna 3,85% 3.36% 3,36% 3,36% öllum ljóst vera, að hér er ekki deila um kaup og kjör sjó- manna, heldur deila um, hvort nokkur bátur skuli leggja úr höfn til síldveiða. (Fréttatilkynning frá L.Í.Ú). Guomundur H. Guðmundsson 60 ár á sjó Minningar Guðmundar H. Gubmundssonar Jónas Guðmundsson í DAG kemur út bókin ,,Sex- tiu ár á sjó“ eftir Jónas M. Guð- mundsson, stýrimann. Undirtitill bókarinnar er: Þættir úr ævi- minninguir, Guðmundar Halldórs Guðmundssonar, togurasjómanns í Reykjavík. Útgefandi er Bóka- útgáfan Hildur. Guðmundur H. Guðmundsson er þekktur Vesturbæingur, sem stundað hefur sjóinn í 60 ár. Þar af hefur hann verið á togur- um í hálfa öld og er enn, þótt hann sé orðinn 75 ára gamall. í bókinni er margan fróðleik að á daga hans hefur drifið. háska- legum sjóferðum, björgunum úr sjá /arháska og kjörum sjómanna fyrr og nú. Frásögn Guðmund- ar er hispurslaus og fjörleg, og í bókinn er margan froðleik að finna um sjómennsku. Höfundur bókarinnar er einn- ig sjómaður, Jónas Guðmunds- son stýrimaður í Lc.ndhelgisgæzl- unni, sem kunnur er fyrir rit- 6 millj. kr. til sundlaugar i Laugardal á næsta ári Verkinu lýkur 1964 — 10,5 millj. kr. fyarf til oð Ijúka þvi oð fullu Á NÆSTA ári mun væntan- lega verða varið u.þ.b. 6 millj. kr. til framkvæmda við hina myndarlegu sundlaug á íþróttasvæðinu í Laugardal, sem framkvæmdir eru þegar hafnar við. Er áætlað, að kostnaður við að ljúka fram- kvæmdunum að fullu sé u.þ.b. 10.5 millj. kr., og lýsti Geir Hallgrímsson borgarstjóri því yfir á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær, að áherzla yrði lögð á, að gerð sundlaug arinnar lyki á árinu 1964. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir yfir- standandi ár, var veitt til bygg- ingarframkvæmda við íþrótta- svæðið og sundlaugina í Laugar- dal alls 2.5 millj. kr., þar af kr. 300.000.— til girðingar og hliðs við íþróttasvæðið. Hinn 31. okt. sl. hafði borgarsjóður greitt á þessu ári vegna íþróttasvæðisins, þ. á. m. girðingar og hlið kr. 343.000.00, en vegna sundlaugar- innar höfðu þá • verið greiddar um kr. 250.000.00. Skýrði borgar- stjóri frá því á borgarstjórnar- fundinum i gær, að samkvæmt tillögu borgarverkfræðings hefði þótt rétt að athuguðu máli að taka fyrir stærri áfanga af bygg- ingu sundlaugarinnar en nam fjárveitingu þessa árs, þ. e. þær 2 millj. kr., sem enn er óráðstaf- að af fjárveitingu þessa árs, svo að þú verði unnt að taka fyrir mun stærri áfanga í einu til þess að framkvæmd verks- ins verði sem hagkvæmust. — Kvaðst borgarstjóri gera ráð fyr- ir, að á fjárhagsáætlun borgar- innar fyrir árið 1963, sem nú er í undirbúningi, verði veitt um 4 millj. kr. til sundlaugargerðár- •innar, svo að á næsta ári verð- ur unnt að taka fyrir áfanga fyr- ir u.þ.b. 6 millj. kr. Samkvæmt áætlun húsameistara borgarinn- ar mun nú þurfa um 10.5 millj. kr. til að Ijúka verkinu, eða um 4.5 millj. kr. til viðbótar því fé, sem á næsta ári verður til þess varið. Upplýsti borgarstjóri í gær, að á það yrði lögð áherzla, að framkvæmdum við sundlaug- ina lyki á árinu 1964, eins og stefnt hefur verið að. Nú er verið að vinna að tækni legum undirbúningi framkvæmd anna á næsta sumri og verksins í heild, og er ákveðið, að verkið skuli boðið út eða urinið sám- kvæmt éiningarverði, en ekki unnið í tímavinnu, eins og verið hefur hingað til. Guðmundur Vigfússon borgar- fulltrúi kommúnista kvaddi sér hljóðs á fundinum að lokinni ræðu borgarstjóra. Lýsti hann yfir óánægju sinni með gang þessara framkvæmda á yfirstand andi ári. Mikla athygli vakti sú yfirlýsing hans, að hann taldi ó- eðlilegt, að bjóða út byggingu sundlaugarinnar. Bar GV í lok ræðu sinni fram tillögu, sem fól í sér vítur í garð þeirra, sem stjórnað hafa framkvæmdunum fyrir vanrækslu á að hraða þeim. Gísli Halldórsson (S) svaraði ásökunum síðasta ræðumanns. Kvað hann það tvímælalaust heppilegra fyrir framkvæmdirn- ar í heild, að hluti fjárveitingar þessa árs yrði geymdur til næsta árs, svo að þá yrði unnt að taka fyrir stærri áfanga verksins. — Taldi hann ástæðulaust að óttast, að það gæti orðið til þess að seinka framkvæmd verksins. — Einnig benti hann á, að skortur á vinnuafli hefði háð mjög öll- um framkvæmdum á sl. sumri — að viðbættum verkföllum. Ennfremur tóku til máls þeir Sigurður Magnússon (S), Kristj- án Benediktsson (F>, og loks að i nýju þeir Guðm. Vigfússon (K) og Geir Hallgrímsson borgar- stjóri. Lagði borgarstjóri til, að tillögu GV yrði visað frá með I tilvísan til þess, se'm fram hefur komið í frásögninni af ræðu borgarstjóra hér að framan. Var störf í blöðum og tímaritum og útvarpsþætti. Bókin er vönduo að öllum ytra frágangi og mynd- skreytt af höfundi. Kaldbakur tók niðri AKUREYRI, 14. nóv. Þegar bv. Kaldbakur var að leggja að togarabryggjunni í dag tók hann niðri á malarkamibi sunnan bryggjunnar, en þar hef ur fjöldi skipa tekið niðri á sl. ári. Togarinn fór svo sjálfur út á flóðinu, eins og önnur skip hafa gert. — St. E. Sig. Togarasala Á fimmtudag seldu tveir tog- arar í Grimsiby, Freyr 152 tonn fyrir 12,780 sterlingspund og Haukur 115 tonn fyrir 9,488 sterl- ingspund. tillaga hans, sem var samþykkt, á þessa leið; „Borgarstjórn telur eðlilega þá ráðstöfun að fresta að nokkru byggingarframkvæmdum við sundlaugina í Laugardal og leggja til hliðar fjárveitingu yf- irstandandi árs sem því svarar til næsta árs, svo að taka megi fyrir mun stærri byggingar- áfanga í einu, enda er sú ráð- stöfun í senn gerð til þess að framkvæmdir verði hagkvæmari Og þeim lokið á árinu 1964. Með tilvísun til þessa er til- lögu borgarfulltrúa Guðmundár Vigfússonar vísað frá“,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.