Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 24
FRÉTTASIMAR MBL. — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 I Kaupmarmahöfn Með hverri Faxa-flugferð til K.- hafnar kemur MBL. samdægurs í Aviskiosken, i Hovedbanegárden 257. tbl. — Föstudagur 16. nóvember 1962 19 tlma eitinga- ieikur við togara — Barefli við borðstokkinn BREZKUR togari var staðinn að ætluðum ólöglegum veiðum und- an Vestfjörðum í fyrradag, og náðist hann ekki fyrr en í gær- morgun eftir 19 tíma eltingaleik gæzluflugvélar og varðskips. Áhöfn togarans varnaði mönnum Landhelgisgæzlunnar að komast um borð, með því að hafa barefli uppi við og sigla undan, þegar 150C tnnnur of sild til Akroness Akranesi, 15. nóv. í DAG bárust 1500 tunnur af síld hingað af fjórum bátum. Afla- hæstur var Höfrungur H. með 850 tunnur (400 tunnur af því var smásíld austan af Selvogs- banka). Haraldur fékk 450, Ver 100 og Náttfari 75 tunnur. Aust- anstormur var kominn á mið- unum vestur frá, og kl. 17.30 var ekki orðið veiðiveður. Síldin á miðunum norðan við Kolluál er góð og fer öll í vinnslu. varðskipsmenn komu að togar- anum. Um kl. 15 í fyrradag kom gæzlu flugvélin Rán að brezka togar- anum Lord Middleton frá Fleet- wood, þar sem hann var að ætl- uðum ólöglegum veiðum rúma sjómílu innan fiskveiðitakmark- anna undan Dýrafirði. SVARAÐI EKKI Togaranum var gefið stöðvun- armerki, og reynt að hafa sam- j band við hann. Því var engu ; anzað, en veiðarfæri dregin inn ! og haldið til hafs. Flugvélin, fylgdi honum eftir. Skipherra á henni var Garðar Pálsson. Varðskipið Albert var ekki langt undan, og hélt það þegar í áttina til togarans. Kom það að honum um kl. 20 í fyrrakvöld. Skipherra á Albert, Lárus Þor- steinsson, sendi skilaboð, þar sem þess var farið á leit, að togar- inn færi til næstu hafnar til rann- sóknar á málinu. Togarinn nam staðar, og var bátur sendur frá varðskipinu til hans. Þegar bát- urinn kom að togaranum, stóðu Framh. á bls. 23. Hóta lögbrotum og ofbeldi til oð hindra aðild LÍV oð ASÍ DÓMUR Félagsdóms í máli Landssamfoands íslenzkra verzlunarmanna hefur greini- lega sett kommúnistana í ASÍ og hjá „Þjóðviljanum" úr jafnvægi. í risafyrirsögn hróp ar blaðið í gær og hefur það eftir Hannibal Valdimarssyni, að nú verði að „standa fast á grundvelli stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir þennan dóm.“ Eftir þessu að dæma hafa vondir menn í Félagsdómi brotið stjórnarskrá landsins, en Hannifoal og félagar hans ætla að halda stjórnarskrána í heiðri með því að hafa dóm- inn að engu. Samkvæmt frásögn komm- únistafolaðsins hafa „þremenn- ingarnir í Félagsdómi", eins og þeir kalla meiri hluta dómsins, brotið stjórnarskrána með því að hrifsa til sín vald, sem enginn annar. en Al.þ. ðu- sambandið getur farið með og virðist þetta vera kjarninn í hinni ofsafengnu árás blaðsins á Félagsdóm. Kommúnistum hefur hins vegar láðst að geta þess, að spumingunni um það, hvort Félagsdómur hefði þeta vald eða ekki, var alveg sérstaklega skotið til Hæstaréttar. Niðurstaða Hæstaréttar, og um hana voru allir 5 dómendur rétt arinis sammála, var á þá leið, að Félagsdómi væri ekki einungis rétt heldur og skylt, að kveða upp efuisdóm um það, hvort LÍV ætti að fara inn í ASÍ eða ekki. Það er því samkvæmt fyrir mælum Hæstaréttar, sem Fé- lagsdómur starfar, er hann dæmir í máli LÍV og ef ein- hverjir hafa brotið stjórnar- skrána, þá ættu það að vera hæstaréttardómararnir fimm með hinum samhljóða úr- skurði sínum, en skiljanlegt er, hvers vegna kommúnistar reyna ekki að telja almenn- ingi trú um slíka fjarstæðu. í sambandi við mál þetta hafa kommúnistar en/n einu sinni gert sig bera að fjand- skap við lög og rétt, en furðu- legt má heita, ef þeir reyna að halda til streitu ofbeldis- aðgerðum sínum í blóra við æðstu dómstóla landsins. Fari svo, mun á það reyna, hvort má sin meira lög og réttur eða ofbeldishneigð nokkurra öfgamanna. Um afstöðu Hannibals Valdi marssonar er nánar rætt í rit- stjórnargreinum í dag. Og Sverrir Hermannsson formað- ur LÍV ræðir Hagsmunamál verzlunarmanna og dóm félags dóms á miðsíðu blaðsins í dag. Hallveig Fróðadótt- ir í reynsluferd Fékk undanþágu til tilraunasíldveiða TOGARINN Hallveig Fróðadóttir hélt úr höfn á Rvík á þriðjudags- kvöld til síldveiða fyrir Suður- íg SV-landi en Bæjarútgerð Rvík ur hefur fengið leyfi hjá sjó- mannafélögunum til þess að senda togarann á 'tilraunasíldveið xr í þrjár vikur. Svo sem kunnugt er voru til- raunir gerðar með togarann á síld veiðum fyrir norðan í sumar sem leið, en veiðarnar gengu ekki sem skyldi. Hinsvegar hefur út- búnaði skipsins nú verið breytt með tilliti til þeirrar reynslu, sem þá fékkst og gera menn sér nú vonir um betri árangur. Helztu breytingarnar eru í því fólgnar að rennan, sem nótinni er kastað um, hefur nú verið færð aftast á skipið. Áður vildi nótin fara í stýri skipsins er kastað var en með þessum breyt- ingum á það að vera útilokað. Þá er kraftblökkin nú hreyfan- leg fram og aftur og á það að auðvelda drátt nótarinnar. Þá hafa ýmsar aðrar breytingar verið gerðar. Er breytingum var lokið var það áríðandi að skipið kæmist í reynsluferð sem fyrst Voru alú: \ Jkomandi aðilar mjög vinsam- Lgir í þessu sambandi, og ..am- þykktu sjomannafélögin að áhöfi i.. færi í 3 vikna reynsluveiði upp á lágmarkskauptryggingu. Þegar samið verður síðar verður þetta tímabil tekið með í reikn ■ inginn. GEKK VEL A» KAST/. Mbl. átti í gær tal við Guð- björn Þorsteimsson fiskiskip- stjóra á bv Hallveigu Fróðadótt- ur. Var togarinn þá staddur 50 sjómílur VNV af Jökli. Stormur var á miðunum aðfaranót' mið- vikudags, en á miðvikudagskvöld var kastað. Kastið gekk ágætlega og alveg eftir áætlun, en engin síld fékkst, enda sterdur hún djúpt. Guðbjörn kvað ekki mikið um sild og mun minna en í fyrra. * Myndin er tekin frá vitahausn ] um á Battariisgarði sl. þriðju- dag, þegar bv Hallveig Fróða- dóttir var að stilla áttavitann, áður en lagt var út á tilrauna- síldveiðar. Til hægri er einn af síldveiðibátum Haralds Böðvarssonar & Co. á Akra- mesi, sem einnig fór á veiðar um kvöldið í baksýn Engeyj artaglið og Esjan. (Ljósm. Sv. Þ.). I gær var bræla og ekkert veiðí- veður. Togarinn verður senni- lega áfram á þessum slóðum. Vatnsveita í Vestmannaeyjum GUÐLAUGUR Gíslason hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis, að ríkis- stjórnin taki allt að 12 millj. kr. lán, sem endurlánað verði Vest- mannaeyjum til vatnsveitufram- kvæmda, Lánið nemi þó eigi hærri upphæð en 60%. En á und- anförnum árum hafa þar farið fram ítarlegar athuganir á mögu- leikum til vatnsveitu. Þykir nú helzt koma til greina annaðhvort að vinna neyzluvatn úr sjó eða leggja vatnsleiðslu frá megin- landinu. Sjö holur í beina línu yfir Heimaey í greinargerð tillögunnar er nokkuð skýrt frá þeim athugun- um, sem fram hafa farið: „Sumarið 1955 voru gerðar til- raunir með jarðboranir í Eyjum á vegum jarðhitadeildar raforku- málaskrifstofunnar. Var verkið framkvæmt í samráði við jarð- fræðinga, sem töldu möguleika á, að við sjávarmálsdýpi undir Heimaey væri svonefnt grunn- vatn, ef jarðlög væru svipuð og annars staðar, þar sem tekizt hefði að ná slíku vatni upp. Bor- aðar voru sjö holur í beina línu þvert yfir Heimaey, 40—120 m á dýpt. En því miður báru þessar boranir ekki tilætlaðan árangur. Virðist svo, að undir Heimaey, sem kaupstaðurinn stendur á, sé alls staðar um samfellt bruna- hraun að ræða, þegar komið er niður á sjávarmálsdýpi, og að sjór gangi inn í jarðlögin, þar sem nokkurn veginn hreinn sjór reyndist í öllum holunum nema tveimur, en í þeim varð vatnið salt, þegar farið var að dæla úr þeim til lengdar, og því saltara, því lengur sem úr þeim var dælt. Frekari tilraunir með jarðboranir verða því að byggjast á djúp- borun, ef til vill allt niður í 1000 m eða dýpra, og freista þesa þannig að hitta á vatnsæð frá meginlandinu. Eru möguleikar á þessu í athugun, og hefur álits Framhald á bls. 8. Smyglið var 100 fiús. kr. virði HAFNARFIRÐI — Dæmt hefir verið í smyglmáli sex skipverja á mjs. Reykjafossi, en í skipinu fannst allmikið magn af smygl- varningi síðast þegar hann kom hingað 30. október. Reyndist það meðal annars vera 170 flösk ur af áfengi, 20 lengjur af síga- rettum og ýmiss annar varning- ur, svo sem karlmanna- og kven sokkar, peysur, leikföng og fleira. Við rannsókn kom í Ijós, að sex vélamenn á Reykjafossi áttu vínið og tóbakið og hlutu þeix 57.200 króna sekt, auk þess sem smyiglvarningurinn var gerður upptækur. —- Hinn varningur- inn hafa tveir hásetar viður. kennt, en að snnygli þessu stend- ur líka maður í landi, sem eikkj er enn vitað hrver er. — Er talið að smyglvarningur- inn í heild, sem fannst í Reyikja- fossi, sé að verðmæti hátt í 100 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.