Morgunblaðið - 02.12.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.12.1962, Blaðsíða 5
Sunnudagur 2. desember 1962. MORL'UDIBLAÐIÐ 5 Norsk blöð vinveitt Loftleiðum * „Spor i ósæmilega átt," segir Dagen um tilfæki SAS FLEST norsku blöðin hafa und- anfarið iátið r ljós álit sitt á þvt uppátæki S.A.S. að ætla að þröngva ríkisstjórnum Dana, Norðmanna og Svía til þess, að hóta Loftleiðum lendingabanni ef félagið verði ekki auðsveipt í santningum, eða að öðrum kosti fá leyfi stjórnanna til þess að fljúga skrúfuflugvélum (D.C. 7) fyrir lægra verð en IATA ákveð- ur, til þess að klekkja á „Loft- leiðurn" og reyna að útrýma þeim úr samkeppninni. Yfirleitt finnst blöðunum þessi nýja sókn S.A.S. lítið drengileg, og það er auð- heyrt, að Loftleiðir eiga marga yini í Noregi. Blaðið „Dagen“ í Bergen segir svo í ritstjórnargrein: „Þessi stefna (S.A.S.) er að vorri skoðun skref í ósæmilega (,,uverdig“) átt, og þessvegna vonum vér að SAS geti fundið aðrar leiðir útúr ógöngum sínum. Væri ekki möguleiki á sam- Vinnu milli þessara flugfyrir- tækja? . . .“ „Stavanger Aftenblad" tekur til athugunar þá frétt, að SAS óski að skandinavisku löndin segi upp flugferðasamningum við ísland til þess að þvinga Loft- leiðir til samninga um fargjöldin. Síðan segir blaðið: „Alveg nýlega var haldinn norrænn fundur þingmanna og ráðherra 1 Osló. Þetta var fyrir frumkvæði Norðurlandaráðsins. SAS óskar að láta telja sig skandinaviskt UNO. Félagið er með réttu hreykið af hinni góðu sambúð nágrannanna þriggja. En við erum fleiri á Norðurlöndum. Þegar þess er minnzt sem sagt var um norræna samvinnu á Oslóar-fundinum nýlega, mundi það vekja furðu ef hinir sömu forsætisráðherrar gerðust með- mælendur þeirrar leiðar, sem SAS nú hefur valið, þ. e. að spyrna Loftleiðum úr í myrkrið. Það þýðir ekki aðeins að við missum það góða flugsamband sem Loftleiðir hafa séð okkur fyrir, heldur væri það líka alv- arlegt tilræði gegn samheldni Norðurlanda. ísland mundi þá verða að leita fyrir sér um mögu- leika í öðrum áttum. Ef samkeppni Loftleiða meiðir SAS svo mjög, er það úrræði til, að hverfa aftur að skrúfuflug vélum á ákveðnum dögum og setja um leið verðið niður. Þá lendir þetta að minnsta kosti ekki á farþegunum“. Meðal annara blaða, sem ræða málið í ritstjórnargreinum má nefna „Verdens Gang“, sem hefur birt mjög harðorða grein um S.A.S. Fréttir þær, sem í fyrstu voru haðfar eftir talsmönnum SAS, að félagið tapaði 30 milljónum sænskra króna á samkeppni Loft- leiða hafa nú verið bornar svo rækilega til baka, að ekki er ymprað á þeirri tölu lengur. >á lítur svo út, sem þessir talsmenn SAS hafi haldið, að Loftleiðir flyttu nær eingöngu fólk milli Norðurlanda og Ameríku, þó að slíkt sé fjarri öllum sanni. Sam- keppni Loftleiða bitnar því ekki síður á flugfélögunum sunnar í álfunni en á SAS. Karl Nilsson aðalforstjóri í Stokkhólmi hefur upplýst í viðtali við „Tidning- emas Telegrambyrán“, að SAS I hafi mánuðina apr.—sept. haft 56% sæta skipað að meðaltali, en önnur IATA-félög (Lufthansa, Air France etc.) ekki nema 53%. Samt finnur SAS sig knúð til að veitast að Loftleiðum, og er það skringilegur vottur „norræns hug arþels". Nilsson forstjóri lætur í sama viðtali í ljós, að best væri að að félögin tvö gætu komizt að samkomulagi um flugferðir yfir Norður-Atlantshaf. En af hálfu hans eða annara SAS-manna hefur ekki annað komið fram til þessa, en að Loftleiðir eigi að hækka verð sitt og fækka ferðum. Eða til vara, að SAS fái að fljúga skrúfuvélum fyrir lækkað verð og á þann hátt keppa við sjálft sig — eða m. ö. orðum auka sam- keppnina, sem það kveinar undan nú. ESSKÁ. Reykjavík Murland TIL AKCREYRAR: þriðjud., föstud. og sunnudaga. FRÁ AKUREYRI: miðvikud., laugard. og mánudaga. NORÐURLEDÖ HF. u Q £ 0 Ui Q & 0 IL TZ-JTl-l TAUNIS TRADER SENDIBIFREIÐIR fáir þér að burðarmagni 850, 1000 eða 1250 kg. Hentugar til hinna margvíslegustu vöruflutn- inga eða með litlum breytingum til mann- flutninga. Verð frá kr. 142 þúsund með miðstöð, aftur- og hliðardyrum. ERl' FnUGGJM UMBOÐIÐ KR. HRISIJÁNSSDN H.F. SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00 KJÓLASÝNING Bergljót Ólafsdóttir heldur kjólasýningu í Sjálfstæðishúsinu í dag sunnudag kl. 4 síðd. Kynnir Rúrik Haraldsson. Húsið opnað kl. 3,30. Aðgangur ókeypis. NÝ BÚÐ í NÝJUM BÚNINCI S K 0 V A L Austurstræti 18 Eymundssonarhúsi. OPIMAR í FYRRAMÁLIÐ MED IMYJU FYRIRKOMIiLAGI —Enskir og hollenzkir kvenskór úr leðri. ^< Enskir og hollenzkir karlmannaskór úr leðri. -K Inniskór fyrir kvenfólk, karlmenn, unglinga og börn Kuldaskór fyrir kvenfólk, karlmenn og börn. -k G/ör/ð svo vel að líta inn Svartir drengjaskór stærðir 24—39 o.m.fl. o.m.fl. SKÚVAL Austurstræti 18 Eymundssonarhúsi. ■ 1:4 ■IFORP ■ fORPÖJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.