Morgunblaðið - 14.12.1962, Page 12
12
MORCVNBLÁÐIÐ
Fostudagur 14. des. 1962
wðtntMfoMfe
Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og atgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
ÁRANGURINN í
ÍBÚÐAB YGGINGAR-
MÁLUM
TTvarvetna blasir nú árang-
ur viðreisnarinnar við.
i— Geysimiklar framkvæmdir
eru um allt land, gjaldeyris-
sjóðum er safnað erlendis,
sparifjáraukningin vex, vöru-
framboð er mikið, kjörin fara
batnandi, og síðast en ekki
sízt stóraukast nú byggingar-
framkvæmdir, þar sem grund
völlur hefur verið lagður að
auknum lánveitingum til
íbúðabygginga.
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær hafa á vegum
byggingarsjóðs verkamanna
og húsnæðismálastjómar ver-
ið lánaðar yfir 130 milljónir
króna á þessu ári, sem er
miklu hærri upphæð en
nokkm sinni áður hefur ver-
ið lánuð.
Síðasta lánveitingin, sem
gengið var frá í fyrradag, að
upphæð 42 milljónir króna,
var til verkamannabústaða.
Vom þá lán út á hverja íbúð
hækkuð úr 140—160 þús. kr.
í 300 þús. kr., þannig að vem-
legur hluti byggingarkostn-
aðar fæst nú að láni til langs
tíma með hagkvæmustu kjör-
um.
Þrátt fyrir þessar miklu
iánveitingar í ár þarf enn að
stórauka lán til íbúðabygg-
inga og að því er einmitt
stefnt. — Þegar Viðreisnar-
stjómin tók við, voru allir
lánasjóðir þurrausnir, og lán-
veitingar til íbúðabygginga
höfðu minnkað um meira en
helming á tímum vinstri
stjórnarinnar. Ljóst var því,
að nokkur dráttur hlyti að
verða á þvi að hægt yrði að
lána til íbúðabygginga eins
mikið og æskilegt væri.
Árangur viðreisnarinnar
hefur hinsvegar orðið meiri
og betri en menn þorðu að
vona. Þess vegna er nú þegar
hægt að stórauka lánveiting-
ar til íbúðabygginga, og útlit
er fyrir, að það mark nálgist
brátt, að unnt verði að lána
sérhverjum þeim, sem bygg-
ir, vemlegan hluta bygging-
arkostnaðar til langs tíma.
Líklega er það hvergi eins
almennt og hér á landi, að
fjölkyldur eigi sínar eigin
íbúðir, enda hefur lengi verið
að því keppt að sem allra
flestir gætu byggt eða keypt
íbúðarhúsnæði.
Samt sem áður er alllangt
í land að allir, sem þess óska,
geti eignazt íbúðarhúsnæði,,
og líklega er bilið nú lengraj
en það var í upphafi vinstri
stjómartimans. Stafar það að
sjálfsögðu af því, að þegar
leið á stjórnarferil þeirrar ó-
lánsstjórnar dró stöðugt úr í-
búðabyggingum og nokkum
tíma hlaut óhjákvæmilega að
taka að reisa fjárhaginn við
að nýju.
MIKLAR
FRAMKVÆMDIR
Tj^ftir því sem lánveitingar
aukast til íbúðabygg-
inga verða þær að sjálfsögðu
auðveldari. Hinsvegar hljóta
þær auðvitað að takmarkast
af því, hve mikið vinnuafl er
fyrir hendi.
Eins og Morgunblaðið
skýrði frá í gær er nú skortur
á iðnaðarmönnum í öllum
helztu iðngreinum í bygg-
ingariðnaðinum. Af þvi leið-
ir að sjálfsögðu; að takmörk
em fyrir því, hve mikið er
hægt að auka íbúðabygging-
ar. —
Þótt hér sé yfirleitt byggð
betri og vandaðri hús en víð-
ast annars staðar verður hinu
ekki á móti mælt, að þau em
tiltölulega dýr og ekki hafa
verið fundnar leiðir til að
hagnýta betur stórvirk tæki
°g byggja í fjöldaframleiðslu.
Þegar skortur er á vinnu-
afli, en jafnframt er brýn
nauðsyn að auka byggingar-
framkvæmdir, þá verður að
leita að leiðum til að auka af-
köstin, og vonandi verður ör
þróun á því sviði eins og öðr-
um.
DEILUR MOSKVU
OG PEKING
|'|eilurnar milli kommúnista-
** leiðtoga í Rússlandi og
Kína ágerast stöðugt og engu
er líkara en til fullra vinslita
ætli að draga.
Á því leikur ekki vafi, að
Rússum er orðið um og ó,
vegna þess hve harðsnúna
yfirgangsstefnu kínverskir
kommúnistar reka. Rússar
eru næstu nágrannar þeirra
og þeir virðast ekki hafa mik-
inn áhuga á því að Kína
verði sterkt heimsveldi, því
að þeir geta eins gert ráð fyr-
ir að verða fyrstir fyrir barð-
inu á þeim.
, Jafnframt er rússneskum
| ráðamönnum það ljóst, að
Nýjar afvopnunartillögur í Genf
Arthur H. Dean, aðalfulltrúi Bandaríkjanna á afvopnunarráS-
stefnunni í Genf (í miSju) ræSir viS Tsarapkin fulltrúa Sovét-
ríkjanna (tii vinstri).
Genf, 12. des. — (NTB) —
Á FUNDI 17 ríkja Afvopnun-
arráðstefnunnar í Genf í
dag, lagði Arthur Dean, aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna, fram
frumvarp í sex liðiun, sem
miðar að því að draga úr
styrjaldarhættunni í heimin-
um. Leggur Dean m. a. til að
komið verði á beinu síma-
sambandi milli Moskvu,
Washington og aðalstöðva SÞ
í New York, svo leiðtogar
stórveldanna tveggja og SÞ
geti fyrirvaralaust ræðst við
ef heimsfriðnum er ógnað.
Bandarísku tillögurnar verða
fyrst lagðar fyrir formenn ráð-
stefnunar, en þeir eru Arthiu-
Dean og Semyon Tsarapkin, að-
alfulltrúi Sovétríkjanna. Þegar
þeir hafa rætt tillögurnar, verða
þær ræddar í nefndum. Leggur
Dean til að umræður um þær
hefjist ekki fyrr en að loknu
jólaleyfi. Segir Dean að sam-
þykkja megi frumvarpið í heild,
eða hvern lið fyrir sig, og ætti
það að skapa vaxandi möguleika
á samningum um afvopnun.
Tillögur Bandaríkjanna eru í
aðalatriðum þessar:
1. Gagnkvæmar fyrirframtil-
kynningar um meiriháttar
herflutninga.
2. Komið verði á eftirlitsstöðv-
um við helztu flutningamið-
stöðvar, járnbrautarstöðvar,
hafnir og flugvelli.
3. Skipzt verði á hernaðarsendi-
nefndum.
4. Náið samband milli aðilanna
í öllum hernaðarmálum. í
þessum lið felst m. a. beint
símasamband milli Moskvu,
Washington og Sf>.
5. Rannsóknir á áhrifum nýj-
ustu vopnatækni á raunveru-
lega styrjaldarhættu, og við-
ræður milli aðilanna um þró-
un í vopnasmíði, sem breytt
gæti valdajafnvæginu.
6. Rannsóknir á aðgerðum ein-
stakra landa til að draga úr
styr j aldarhættunni.
— Alþingi
Framhald af bls. 1.
innar sé traust-
ari en hann hef-
ur verið um
langt skeið, enda
njótum við nú
trausts bæði
hér.heima og er-
lendis. Almenn-
ingur leggur fé
sitt á vöxtu,
svo að spari-
fjáreignin er hærri og vex hrað-
ar en áður. Erlendis getum við
fengið lán á frjálsum lánamark-
aði. Og að lokum getum við það,
seih þeir, sem til þekktu á þvi
sviði áður, eiga nærri bágt með
að trúa: Við getum farið í banka
erlendis og skipt xslenzkum pen-
ingum á réttu gengi gegn smá-
vægilegum ómakslaunum. Þessa
mjög með vaxandi stórhugs og
bjartsýni um allar framkvæmd-
ir. Hitt er svo ekki að undra
í landi, þar sem margt er ó-
gert og á frumstigi, þótt ekki
verði allt gert í einu“. Jafnframt
kvað aiþingismaðurinn athugun
á frumvarpinu sýna, að enn er
hemaðarstyrkur vestursins,
ekki sízt á sviði eldflauga og
kjarnorkuvopna, er nú orð-
inn miklu meiri en Ráðstjórn-
arríkjanna, þannig að óhugs-
andi er að kommúnisminn
verði útbreiddur með stór-
styrjöld, heldur hlyti hann að
líða imdir lok, ef til slíkra
ógnar átaka kæmi.
Þess vegna standa vonir til
þess, að Rússar reyni að
draga úr átökunum við Vest-
urveldin og verði viðmælan-
legri á alþjóðavettvangi.
gætt fyllsta sparnaðar í rekstri
ríkisins og stofnana þess og þeir
áfangar, sem þegar hafa néðst
ó því sviði, hafa reynzt vel. Það
sýnir, að sú stefna að breyta
ekki til, fyrr en að lokinni vand-
legri athugun, er rétt og gefur
vonir um beztan árangur til fram
búðar.
Um tillögur nefndarinnar í
heild gat þingmaðurinn þess, að
hækkanir tekjuliða eru gerðar
í samráði við forstöðumann Efna-
hagsstofnunar ríkisins með hlið-
sjón af reynslu ársins 1 ár. Sam-
tals eru tekjuliðir hækkaðir um
tæpar 72 millj. kr. Er það hokk-
uð meira en lagt er til,.að gjalda
liðir hæfcki, en vitað er um
nokkra gjaldaliði, sem bíða 3.
umr. að venju, svo sem endur-
skoðun 18. gr., styrki til flóa-
báta og vöruflutninga o.fl.
• Aukið fé til verklegra fram-
kvæmda og atvinnumáJa
50 millj.
Gjaldaliðir frumvarpsins er
hækkuðu í tillögum nefndarinn-
ar um tæpar 65 millj. Þar eru
jþessir liðir stærstir:
Til verklegra framkvæmda:
a) til vega, 4 millj. til sam-
göngubóta á landi;
b) til brúa, 1 millj. til smá-
brúa;
c) til hafna, 7,4 millj, þar
af til hafnarbótasjóðs 3,3 millj.
(af því 2 millj. vegna skemmda
í óveðri) og nýr liður, til greið-
slu á eftirstöðvum lögboðins
framlags ríkissjóðs 4 millj.; .
d) til stkóla um 12 millj., þar
af framlag til bygginga barna-
skóla og íbúða fyrir skólastjóra
8,615 þús., framlag til bygging-
ar gagnfræiða- og héraðsskóla
,244 þús. o.fl. Eða samtals nema
þessir fjórir liðir 30 millj. kr.
Auk þessa eru framlög til verk-
legra framikvæmda á nokkrum
öðrum liðum hækkuð verulega
og til aflatryggingarsjóðs vegna
aflabrests togara er lagt til að
verði veittar 15 millj. kr. Auk-
ið fé til verklegra framkvæmda
og atvinnumála mun því vera
nálægt 50 millj. kr.
Ekiki er rúm til að rekja breyt-
ingartillögur fjárveitinganefndar
nákvæmlega, svo að hér verð-
ur einungis notkkurra getið. Má
þar m.a. nefna, að framlagið til
Jþróttasjóðs er lagt til að hækki
um 750 þús. og önnur framlög
til Jþróttamanna um 220 þús. Til
bókakaupa Landsbókasafns 100
þús., til skólda, rithöfifhda og
listamanna 300 þús., vegna nor-
rænnar listsýningar í París 800
þús., til Búnaðarfélagsins 400
þús., fyrirhleðslur um 355 þús.,
sjóvarnargarðar 50 þús., sand-
græðsla 250 þús., til húsmæðra-
skóla samtals 687 þús., til Fiski-
félagsins 260 þús., til fiskirann-
sókna 500 þús. vegna þátttöku
í allþjóðarannsókn á hrygninga-
stöðvum þorsks og karfa milli
íslands og Grænlands og auik
þess 2 millj. til fiskileitar, síld-
arnannsókna og veiðitilrauna,
kornræktartilraunir 200 þús., til
skáta samtals 125 þús., til bygg-
ingar stjórnarráðshúss 1 millj.,
til bygginga og endurbóta á
Kristnesi 400 þús., til bygginga
á Hvanneyri 800 þús., til bústaða
héraðsdómara 500 þús., til ríkis-
fangelsis 1 millj., til rafstöðva-
bygginga, þar sem Rafveitur rík-
isins ná ekki til, 500 þús., til
embættisbústaða dýralækna 100
þús., til landakaupa í kauptún-
um 2 millj. Auk þess nýir lið-
ir til kaupa á asdictækjum til
landihelgisgæzlunnar 150 þús. og
til kaupa á lækningatækjum í
fámennum læknislhéruðum 200
þús. o.fl. Enn fremur að gefa
Slysava'-nafélaginu eftir 600 þús.
kr. lán.