Morgunblaðið - 15.12.1962, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.12.1962, Qupperneq 15
Laugardagur 15. des. 1962 MORCVNBLAÐIÐ 15 Giv hende en ny kogebog . . . |p J .- mstm $w • ELLEN HOLME: Björn Helgason skipstjóri — minning 1. 15./5. 1874 d. 9./12. 1963 ÞEGAR ég frétti lát Björns Helga sonar skipstjóra, þá ruddust fram í huga minn ótal minning- ar fiá æsku minni, þegar ég divaldi í foreldraihúsum að Merk urgötu 9. heim er nú farið að fækka gömlu íbúum þessarar litlu götu hér í bænum — Merk- urgötunnar. Og nú er aðeins einn eftir sem þar hefur dvalið frá æskudögum en það er Jón Andrésson vélstjóri. — Og nú hefir Björn Helgason skipstjóri lagt upp í langferðina þreyttur ©g háaldraður eftir langan og gifturíkan starfsdag. Hann and- aðist að Sólvangi í Hafnarfirði sl. sunnudagsmorgun þ. 9 þ.m. og hafði þá dvalið þar rúimliggj- andi 16 síðustu mánuði æfi sinn ar. Björn Helgason var fæddur að Glammastöðum í Svínadal í Borgarfjarðarsýslu 15. dag maí- imánaðar árið 1874 og því 88% árs er hann lézt. Poreldrar hans voru hjónin Eygerður Björnsdótt ig og Helgi Hansson er þar bjuggu. Systkini Björns voru 6. Tvö þeirra dóu í æsku, en 4 komust til fullorðins ára og náðu háum aldri. Þau vor uauk Björns, Rósa, Anna og Helgi trésmíðameistari sem einn lifir nú þeirra syst- kina búsettur í Reykjavík, há- aldraður. Einn hálfbróðir áttu þau systkini Jón Helgason er búsettur var á Akranesi. — Mikil óáran, erfiðleikar og fá- tækt steðjuðu að íslenzku þjóð- inni síðustu áratugi 19. aldarinn ar og áttu þá mörg heimili við bág kjör að búa. Það var því mikið áfall fyrir heimilið að Glammastöðum þegar fyrirvinn an féll frá, meðan börn voru öll innan við fermingaraldur. Móð- irin átti því engan kost annan, en að hætta búskap, leysa upp heimilið og koma börnunum fyr »r í fóstur. Sjálf fór hún með yngstu syn- ina í húsmensku og bjargaðist þannig frá sveit. Varð Björn því snemma að fara að vinna fyrir sér og vinna hörðum höndum þegar í æsku, og naut hann því engrar skóla- göngu eða heimanáms af þess- um orsökum, þó að hugur hans eins og margra fátækra og greindra unglinga á þeim árum hefði óskað að geta notið mennt- unar. — Um fermingaraldur tók hann sig upp og flutti úr heimasveit sinni til sjóróðra á Suðurnesjum. Réðist hann í skipsrúm hjá hinum alþekkta afla og dugnaðar manni Guðmundi í Nesi á Sel- itj arnarnesi. Péll honum sjó- menskan vel, og gerði hann hana að æfistarfi sínu í nærri hálfa öld. Pyrir áeggjan og stuðning Guð mundar í Nesi er séð hefir fljótt bvað í hinum unga sveini bjó, settist Björn í Sjómannaskóla ís lands og lauk þaðan burtfarar- prófi árið 1900. — Að því loknu gerðist hann ekipstjóri hjá Guðmundi í Nesi, þar til að hann fluttist til Hafnar fjarðar og réðist sem skipstjóri hjá Ágúst Flygenring útgerðar- manni. — Var hann lengi skipstjóri á seglskipinu Morgunstjörnunni og minnist ég frá æsku minni hversu skipstjórn Björns var rómuð og hversu vel honum tókst að fá góða menn í skiprúm hjá sér. — Þegar togararnir komu til sögunnar var hann lengi á þeim og oft skipstjóri. Þá hafði hann og verið um tíma á erlendum flutningaskip- um og einnig á erlendum togur- um. Björn var viðurkenndur á- gætur sjómaður og mjög farsæll skipstjóri. Hann kunni vel til allra verka, á sjó og vandvirkur var hann við öll sín störf. Hann átti vinsældir skipshafna sinna og þótti hverjum happ að kom- ast í skiprúm til hans og hlíta hans forsjá. — Hann var forkur duglegur þó ekki væri hann hár í lofti, ávallt glaðlegur og gat gert að gamni sínu í hópi félaga sinna, en þétt- ur þótti hann fyrir ef því var að skipta og dulur og fáskiptinn um annara hagi. Alvörugefinn var hann yfirleitt og trúmaður. — Þegar Björn hætti sjómensku eftir um hálfrar aldair skeið, vann hann við margháttuð og skyld störf í landi. Hann var mjög lengi skipa- skoðunarmaður í Hafnarfirði, sat í sjó og verzlunardómi kaupstað arins og vann að fiskimati þar til að hann varð að hætta fyrir ald- ur sakir. Hann hafði eftirlit með hleðslu fiskiskipa sem sigldu til Eng- lands með fisk á stríðsárunum síðari. Þá hafði hann og eftirlit með öryggisútbúnaði flutninga- skipa er fermdu og affermdu í Hafnarfirði. Hann átti um allmörg ár sæti í stjórn skipstjóra og stýrimanan fél. „Kári“ í Hafnarfirði og var sæmdur heiðursmerki Sjómanna dagsins árið 1958. Marga unga sjómenn undirbjó Björn til náms í Sjómannaskól- ann. — Og þó að mörg séu þessi störf hans í þágu íslenzku þjóðarinn- ar á hans löngu ævi, þá er einn þátturinn ótalinn, en það er hversu mikill og góður heimil- isfaðir hann var, enda átti hann indælt heimili. Heimilið var hon um alt þegar hann var í landi — Það var mér kunnugt um. — Bjöm kvæntist Ragnhildi Egils- dóttir frá Arabæ í Reykjavík 14. okt. 1904. Byrjuðu þau búskap 1 Hafnarfirði og áttu þar farsæl- an búskaparferil í nærfelt 56 ár, en Ragnheiður andaðist 16. júlí 1960. Þau eignuðust sex börn og ólu upp systurdóttur Björns. Af börnum þeirra hjóna eru 5 á lífi. Sólveig gift Ásgeiri Stefánssyni forstjóra, Dagbjört gift Tryggva Stefánssyni bygg- ingameistara, Gyða ekkja Ólafs heitins Elíassonar, forstjóra, Ey- gerður gift Páli Sæmundssyni forstjóra og Adólf bankafulltrúi. Einn son Finn Viggó misstu þau af slysförum 1957. Var hann krvæntur Maríu konu af þýzkum ættum og lifir hún mann sinn. Ekkert mun Birni hafa verið hjartfólgnara á sinni löngu ævi- braut en hið indæla heimili er kona hans Ragnheiður bjó hon- um og börnum þeirra. Honum var heimilið hugljúft afhvarf er hann kom heim af sjónum oft eftir útivem svo vikum og jafn- vel mánuðum skiíti. Heimili þeirra var annálað og til fyrir- myndar. Dugnaður húsmóður- innar sem í fjarveru fyrirvinn- unnar sá um bústjórn alla, ól upp börnin og fóstunbarn, hafði oft fjölda Flensborgarskólanemend- ur í fæði að vetrinum og veitti gestum og gangandi af rausn og myndarskap, og samihent voru þau bæði um að svo mætti verða. Og nú eru þessi bæði heiðurs- hjón horfin af Merkurgötunni — hafin yfir landamærin miklu til nýrra starfa í æðra heimi. — En minningin lifir um góða samferðamenn. — Mikil vinatta var milli foreldra minna og þess ara hjóna og marga ánægjustund áttu þessi hjón saman allt þar til yfir lauk. Eg vil þakka Birni og Ragnhildi órofa tryggð og vin- áttu við foreldra mína og allar þær mörgu ánægjustundir sem iþau veittu þeim er kvölda tók á ævi þeirra. Blessuð sé minning Björns og Ragnheiðar. Börnum og barnabörnum þeirra votta ég samúð við frá- fall föður og afa. Gísli Sigurgeirsson Gjafavörur Króm, stál, plast og keramik gjafavörur í miklu úrvaii. ÞORSTEINN BERGMANN Gjafavörubúðin Laufásvegi 14, sími 17-7-71. Speglar — Speglar Höfum fengið aftur hina eftirspurðu og GLÆSI- LEGU SPEGLA með TEKK baki. Einnig höfum við ávallt mjög fjölbreytt úrval af allskonar BAÐ- HERBERGISSPEGLUM og FORSTOFUSPEGLUM y SPEGILL frá OKKUR er hentug og falleg jólagjöf. SPEGLA og SNYRTIVÖRUDEILD Gleriðjunnar, Skólavörðustíg 22 — Sími 11386. Matráðskona oskast á komandi vetrarvertíð á góðum stað suður með sjó. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „3134“ fyrir 20. þ.m. H'ALS HIWÍSlli W imikiiis'j OG w HRINGAR IJR GULLI OG SILFRI TRULOFUIMARHRIIVÍGAR JÓHANNES JÓHANNESSON, gullsmiður. Bergstaðastræti 4, (gengið inn frá Skólavörðust.). BEZT AÐ AUGLYSA f MORGUNBLAÐINU MODERNE MAD POLITIKEN skrev: r »Ny kogebog af de store, men til meget ri- melig pris... indeholder mere end tusinde opskrifter... Det hele er meda. v____________- ---------------------------------- v Mange af de lœkre retter er i farveplancher. D.Kr. 39.50 Ýv'v"'**,"*?• ***>%*?&****”*• • •• s ” •/■•■••••

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.