Morgunblaðið - 15.12.1962, Síða 17

Morgunblaðið - 15.12.1962, Síða 17
Laugardagur 15. des. 1962 MORCVNBLAÐIb 17 Elín Pálmadóttir: FRÁ NÍGERÍU ERIFIÐLEIKAR hinna ný- stofnuðu Afríkuríkuríkja, þeg ar þau allt í einu fá fulla stjórn sinna mála, hafa undan- farin ár stöðugt verið í frétt- unum, enda ekki óeðlilegt, ef litið er á aðstæður. Nigería, fjölmennasta rikið í flokki frjálsra Afríkuríkja, hefur af flestum verið talið það þess- ara ríkja, sem líklegast er til að stíga skrefið frá nýlendu yfir í frjálsa og fullvalda þjóð án áberandi stjórnmálaerfið- leika, þó að flestum sé ljóst að til að halda þessu ríki sam- an í einni heild þurfi lagni og varkárni. En nú síðustu mánuðina, þegar þaðan fóru að berast fregnir af neyðar- ástandi í hluta landsins, af- setningu ráðherra, og réttar- rannsóknum, hafa vafalaust margir hugsað: — Nú, þá byrj ar það þar líka. Ekki veit ég hve miklar fréttir af stjórn- málaástandinu hér í Nigeríu hafa borizt íslenzkum blöð- um gegnum erlendar frétta- stofur. Ég ætla því að reyna að skýra í stórum dráttum frá gangi mála, eins og þau lita út í mínum augum, eftir að ég hefi dvalið hér i nokkr- ar vikur og fylgst með frá- sögnum blaðanna, en í þeim skyggja að sjálfsögðu þessar fréttir á allt annað, og eftir að hafa haft tækifæri til að hitta stjórnmálamenn, eink- um í nýafstöðnu vikuferða- lagi um megnið af suðurhluta landsins í fylgd með þing- mönnum í pólitískum erind- um. I»að verður að hafa í huga, að Nigería, sem er 356.669 Chief Awolowo fermílur að stærð og myndi því rúma í einu nokkur af stærri Evrópulöndunum inn- an sinna takmarka, er skipt í þrjá hluta, sem hver um sig hefur sína heimastjórn og þing, en sambandsstjórnin í Lagos fer með sameiginleg mál og öll málefni út á við, og þar situr sambandsþingið líka. Norðurfíkið er stærst, en suðurhlutinn skiptist í Austurríkið og Vesturríkið. Þessi ríki byggja ólikir kyn- flokkar, Hauarnir og. Fulan- arnir fjölmennastir í norðri, Yorubarnir í vestri og Ibo- arnir í austri. Stærsti stjórnmálaflokkur- inn í landinu er NCNC (Nig- eria Cameroon National Cong- ress), sem stofnaður var 1945 og situr að völdum í sam- bandsstjórninni undir forustu Norðurríkjamannsins Sir Abu bakar Baleva, með stuðningi NPC (Northern Peoples Party). NCNC er öflugasti stjórnmálaflokkurinn í Aust- urríkinu og Norðurríkinu, en í Vesturríkinu er flokkur, er stofnaður var 1950 úr öðr- um minni flokkum og nefnist Actino Group. Sá flokkur hef ur einnig verið sterkur í Aust- urrikinu og myndað stjórnar- andstöðuna í þinginu með til- heyrandi „skuggastjórn", eins og í brezka þinginu. • Neyffarástandi lýst yfir. Action Group hefur undan- farin ár farið með völdin í Vesturríkinu, síðast undir for sæti Chief Akintola. En erfið- leikarnir, sem að lokum urðu til þess að neyðarástandi var lýst yfir í ríkinu, stjórninni vikið frá og málaferli hófust, spruttu af árekstrum milli Akintola forsætisráðherra og Awalowa, sem er formaður flokksins og hafði áður ver- ið forsætisráðherra sjálfur. Ohief Awalowo, eins og hann er kallaður hér, virðist sterk- ur persónuleiki, en ákaflega metorðagjarn og einráður. Hann taldi sig sem formaður flokksins hafa rétt til að segja Vesturstjórninni fyrir verk- um. Meðan hann var sjálfur forsætisráðherra hafði hann látið af hendi úr ríkissjóði 6 millj. punda í formi láns til byggingarfyrirtækis, sem hann átti sjálfur ásamt fjór- um öðrum. Af fénu gengu 4,2 millj. punda beint í flokks- sjóð Action Group, en 1,8 millj. voru notaðar til að byggja stórhýsi, 8 hæða ný- tízku skrifstofubyggingu í miðri Lagos, tvö stór hótel, Bristol og Ikeje hótel, 20 hæða skýjakljúf í miðborginni o.fl. Eftir að Akintola var orð- inn forsætisráðherra vildi Awalowo halda áfram að ráð- stafa á sama hátt fé Vestur- rikis að eigin vild, en þegar Akintola neitaði, hótaði hann að láta flokkinn víkja honum frá og setja annan forsætis- ráðherra 1 hans stað. Af þessu varð svo í maí- mánuði sl. vor. Acion Group hætti stuðningi við stjóm Vesturríkisins. Akintola neit- aði að víkja, og þar með var stríðið komið fram í dags- ljósið. Þegar sambandsþingið svo kom saman 25. maí sl. voru þar mættir tveir forsætisráð- herrar frá Vesturríkinu, hvor um sig með stuðningsmenn úr flokki þingmanna síns flokks, en þingmenn NCNC studdu aUk þess Akintola. Varð af þessu mikið hark á þingi og að lokum börðust þingmenn með stólum. Seinna sama dag var aftur reynt að halda þingfund, en hann leyst- ist einnig upp. Þá var það að sambandsstjórnin tilkynnti að lög og réttur í landinu væri ekki lengur í heiðri haft og lýsti yfir neyðarástandi í Chief Akintola Vesturríkinu. Stjórninni þar var vikið frá um stundarsak- ir og dr. Nadjehudunnik skip- aður ríkisstjóri til ársloka, þegar neyðarástandinu skyldi aflétt. Akintola og fleiri af ráðherrum Vesturstjórnarinn- ar hafa takmarkað ferðaleyfi, en Awolowo hefur verið kall- aður fyrir rétt og nýlega fang- elsaður af öðrum ástæðum, sem ég mun rekja síðar. • Nýr flokkur í stjórnina. Á meðan hefur verið látin fram fara rannsókn á nokkr- um fyrirtækjum, sem rekin voru af fyrrverandi stjórn Vesturríkisins. Coker dómara var falin þessi rannsókn og er hún kennd við hann. Blöðin hér hafa daglega rakið gang mála, þar sem m.a. hefur ver- ið taiað um hlunnindi er stjórnin veitti eiginkonu og dóttir Awalowos og gos- drykkjafyrirtækjum, um ó- heiðarlega meðferð fjár i sam bandi við útvarp og sjónvarp o.fl. þessháttar, sem erfitt er að henda reiður á. Coker dóm ari hefur nú lokið rannsókn- * inni og boðar skýrslu um hana mjög fljótlega. Nú fer að nálgast sá tími, er neyðarástandinu skuh af- létt og hafa stjórnmálamenn verið önnum kafnir síðustu vikur, enda á þing að koma saman 5. desember. Stór hóp- ur hefur klofið sig út úr Act- ion Group og myndað nýjan flokk, sem nefnist UPP (Uni- ted Peoples Group) undir for- ustu Akintola. Munu allir sambandsþingmenn Norður- ríkisins fylgja hpnum, um helmingur af 15 þingmönn- um Action Group frá Vestur- ríkinu og 10 af 18 þingmönn- um flokksins frá Austurrík- inu. Mun ákveðið að NCNC og hinn nýi flokkur UPP myndi nýja stjórn í Vestur- ríkinu í desembermánuði með Akintola sem forsætisráð- herra, og jafnvel talað um að neyðarástandinu verði af- lýst 15. desember. Seinna í vetur muni svo UPP koma inn í sambandsstjórnina. Á flokksþingi NCNC, sem hald- ið ver í Enugu, höfuðborg Austurríkisins, í fyrri viku, var formanni flokksins, dr. M. I. Okpara, forsætisráð- herra Austurríkisins, veitt heimild til að ráða málum til lykta, sem mun tákna sam- vinnu við UPP, þó ekki bafi það verið gert opinbert enn. • Ákærffur fyrir drottins- svik. En hvað um Awalowo? Hann hefur nú verið ákærður og leiddur fyrir rétt ásamt 25 öðrum vegna máls, sem virðist þessu óháð. Lögreglan komst á þessu ári yfir tals- vert magn af vopnum, sem verið var að smygla inn í landið frá Ghana og telur sig hafa sannanir skv. skjölum, sem einnig fundust, að þetta séu vopn, sem Awalowo gerði fyrir alllöngu ráðstafanir til að fá frá Nkrumah í Ghana. Eru sakborningar ákærðir um drottinssvik eða fyrir að hafa á árunum 1959—1960 haft í hyggju og gert ráðstafanir til að kollvarpa síðar meir löglegum stjórnarvöldum með byltingu. Situr Awalowo i varðhaldi ásamt öðrum ákærð um og hafa blöðin hér dag- lega flutt nákvæmar frásagn- ir af réttarhöldunum. Nú ný- lega voru leidd vitni úr röð- um náinna samstarfsmanna Awalowos. T.d. játaði dr. Maja, sonur eins af mestu áhrifamönnum í Action Group og sem kvæntur er konu frá Ghana, að hann hefði tekið við 7000 punda greiðslu frá Nkrumah og flutt til Nigeríu, en peningana átti að nota til að pjálfa æskulýðsfylkingu, sem stofnsett var af Daily Ex- press, málgagni Action Group. Erfitt er að átta sig á hvern- ig málum er háttað, enda rétt arhöldum hvergi nærri lokið. Eitt er það þó í sambandi við þau, sem mjög skiptar skoð- anir eru um. Það er bannið, sem stjórnarvöldin settu á landvistarleyfi fyrir brezka lögfræðinginn E. F. N. Grati- en, sem ætlaði að taka að sér vörn í máli Awalowos. Skaut stjórnin sér þar bak við beiðni frá lögfræðingasamtökum Nigeríu um að þeir lögfræð- ingar einir, sem vilja búsetja sig í landinu eða flytja þar reglulega mál, skuli ekki hafa a Sir Abubaker Baleva rétt til málflutnings, nema sérstakar undanþágur frá stjórnarvöldum komi til hverju sinni. Lögfræðinga- samtökin hafa nú látið í ljós óánægju með að þessu skyldi fyrst beitt í þessu tilviki. Tveimur dögum áður en Awalowo fór fram á að hæsti- réttur ógilti þetta bann, til- kynnti stjórnin að hún mundi bera fram frumvarp á þingi, strax og það kemur saman 5. desember, um að útlend- ingar skuli þurfa sérstakt leyfi til að vinna í landinu og þar komi undir störf lög- fræðinga. Ekki vil ég reyna að leggja dóm á þessi réttarhöld. Þau fara fram fyrir algerlega opn- um dyrum og að því er virð- ist skv. venjulegum lagaregl- um. Hér eru skiptar skoðanir um hvort sakir sannist á Awalowo. Ef ihann reynist hafa gert það sem hann er á- kærður fyrir, getur hann feng- ið þungan dóm. Hvað varðar neyðarástand- ið og þær ráðstafanir sem voru gerðar í sambandi við það, hafa það e.t.v. verið skjót og nauðsynleg viðbrögð til að koma í veg fyrir að svipað ástand gæti orðið hér og er í Ghana nú, með því að kveða snarlega niður . einræðislegar tilihneigingar um leið og á þeim fer að bera. Ég er ekki nægilega kunnug málum til að geta nokkuð um það sagt. Lagos, 29. nóv. 1962. E. Pá. RAUÐI KROSS ÍSLANDS Með því að kaupa JÓLAKORT RAUÐA KROSSIIMS styðjið þér ALSÍRSÖFNUNINA. Kortin eru gerð eftir myndum frú Barböru Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.