Morgunblaðið - 15.12.1962, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.12.1962, Qupperneq 18
13 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 15. des. 1962 Sigurmundur Sigurðsson héraðsl., Bolungarvík HINN 14. nóv. andaðist Sigur- mundur Sigurðsson, fyrrv. héraðs læknir í Hó Isl æícjnighiéra ði, 85 ára að aldri. Hann fluttist til Bolungarvík- ur 1934 og tók þá við embætti sínu. Hér starfaði hann í 15 ár, en lét þá fyrir aldurs sakir af læknisstörfum eftir 42 ára starfs- feril, í fullu fjöri, 72 ára. Sigurmundur læfknir varð vin- ur minn, konu minnar og barna strax frá fyrsta degi hans í Bol- ungarviik, enda sótti ég hann á skipsfjöl og tók hann inn á heim ili mitt, meðan hann var að koma sér fyrir. Þar var hann l'íka jafnan kærkominn gestur. Þegar hann kom hingað hafði hann nýlega misst konu sína, Önnu Eggertsdóttur Jodhums- sonar, frá sex bömum, en María mágkona hans stóð fyrir búi fyrstu árin. Síðar tók hann ráðs- konu, Jónu I. Jónsdóttur, sem eftir það annaðist heimili hans hér í Bolungarvík, og reyndist honum og börnum hans, þeim sem heima voru, umhyggjusöm og nærgætin búsmóðir. Sigurmundur var vinur vina sinna. Hann var fburða léttur í lund og hafði góð áhrif á alla menn sem hann kynntist. Hins vegar var hann skapmikill mað- ur og skemmtilega bráðlyndur. Hann var bókhneigður og hafði mikla ánægju af spilum í góðum félagssikap. Hann var mannkosta maður. f starfi sínu var hann skyldu- rækinn. Hann helgaði sig starf- inu, var læknir af lífi og sál, og lagði sig fram við að fylgjast vel með í læknisfræðinni og sótti nokkrum sinnum suður á spítalana í Reykjavík til þess að fylgjast með þróuninni. Hann var sérlega fær um að greina sjúkdóma, og man ég ekki að það mistækist hjá honum, þótt tækin væru ekki fullkomin. Hann taldi það sérstaka skyldu sína að senda sjúklinga strax til sjúkra- hiússvistar, ef hann taldi þess þörf, enda mun hann með þessu hafa bjargað mörgu mannslífi. Ég tel að hann hafi verið sérstakur gæfumaður í starfi. Þótt það yrði hlutskipti Sigur- mundar að starfa hér hjá okkur, var hann náttúrubarn sveitanna. Þangað sótti hann jafnan í or- lofum sínum. Hann hafði yndi af hestum, fór hér ávallt á hest- bak á hverju sumri, enda hafði hann átt góða gæðinga meðan hann var sveitalæknir. Áður en Sigurmundur kom til Bolungarvíkur hafði hann verið læknir í tveimur erfiðustu og vetrarþyngstu héruðum landsins, Reykdælahéraði í Þingeyjarsýslu og Grímsneshéraði í upp-Árnes- sýslu. Samgöngur voru þá litlar og varð hann að fara öll ferða- lög á hestum, skáðum eða gang- andi. Þessar ferðir voru oft erfið- ar og næsta ótiúlegt fyrir nú- tíðarmann að gera sér grein fyr- ir slíkum ferðalögum, sem hann sagði mér oft frá. Þó að Sigurmundur legði fram krafta sína við læknisstarfið bar hann í brjósti mikinn metnað og umhyggju fyrir börnum sín- um, og þá eins þeim tveim son- um, sem hann hafði eignast fyr- ir hjónaband. Ég vildi með þessum linum flytja Sigurmundi kveðjur frá fjölskyldu minni, vinum og sam- ferðarmönnum í Bolungarvík, með þökk fyrir störfin. Einar Guðfinnsson Sogo úr fiskiþorpi n Vestfjörðnm eftir séra Stanley Melax BLAÐINU hafa borizt tvær nýj- ar bækur frá bókaforlagi Odds ’Björnssonar á Akureyri. Önnur hókin nefnist „Gunnar helming- ur“ eftir séra Stanley Melax. Á kápusíðu segir svo um stíl höf- undar: „Stuttur í spuna og snjallorður úir og grúir af frum- legum og óvæntum samlíkingum úr lífi og umhverfi fólksins, sem sagan fjallar um, neyðarlegum, en þó undir niðri hlýjum. En höfundur veit hvað hann vill — á hverju hann hefur trú og á Ihverju skörnm. Hann hefur m.a. tfulltrúa í sögunni, sem er prest- ur eins og hann sjálfur, ógleym- anleg persóna og eínhver skemmtilegasti presturinn í ís- lenzkum bókmenntum". Saga þessi gerist í litlu fiski- (þorpi á Vestfjörðum á fyrsta ára- rtugi þessarar aldar. Hin bókin, sem bókaforlag Odds Björnssonar sendir frá sér að þessu sinni, er unglingabók og nefnist „Skíðakappinn“. Er hún eftir norskan unglingahötf- und Sverre D. Husebye. Höfund- ur þessi er þekktur fyrir unglingabækur í Noregi og hefur skrifað yfir 20 strákabækur. Bók- ina hefur Stefán Jónsson, nóms- stjóri, þýtt. „Skíðakappinn" er saga um drengi og ílþróttir fjall- ar um veiklulegasta strákinn, sem kallaður var auminginn, en með viljaþreki sínu hafði aann sig áfram og vann hvern íþrótta- sigurinn á fætur öðrum. For- málsorð höfundar eru svohljóð- andi: „Þessi bók kom áður út fyrir 2i7 árum. Hér kemur hún út í nýrri útgáfu, lítið eitt breytt. Ég vona að hún verði til ánægju öllum drengjum og stúlkum, sem unna ilþróttum og vilja kom- ai hærra upp og lengra fram“. Báðar eru bækur þessar prent- aðar í prentverki Odds Björns- sonar hf. Sœnskar frystikistur FLORIDA BABY 5 cub.ft. FLORIDA MINI 8 cub.ft. FLORIA SNABBFRYS 14 cub.ft. Frystið matinn sjálf. — Geymið matinn heima. LEVIN FRYSTIKISTAN er heimilisprýði. Söluumboð kaupfélögin og Dráttarvélar h.f. Véladeild. W SONUR MINN OG ÍG ,,Hún á sama brýna erindi frænda átti fyrir hundrað verfiug heimsfrægðar." Victor Svanberg í Stockholms Tidningen „Stórbrotin vegna hins auðuga raunsanna efn- is, sinnar einkáiegu innri glóðar.** Erik Hj. Linder í Göteborgs Posten ,,Hver getur ritdæmt hróp á hjálp, bæn, reiði óp og örvæntingarákall. Maður getur aðeins mælzt til að svo margir sem auðið er hlusti á hana.“ Thore Zetterholm 1 tímaritinu Idiun. ,,Af fyrri ritverkum Söru Lidman var ljóst, að hún var góður rithöfundur. Með skáldsögunni „Sonur minn og ég“ hefst hún í hóp ritsnill- inga. Hin óvæga mannlýsing með kyofcátta- vandamál Suður-Amerík u að sögusviði, verður ógleymanleg.“ Sigríður Thorlacius. Rolaiítgáfan fRÓDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.