Morgunblaðið - 15.12.1962, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐ1Ð
Laugardagur 15. des. 1962
Verðlagsmál og
rafmagnsmál
rædd í Bændafélagi Fljótdalshéraðs
BÆNDAFÉLAG Fljótsdalshéraðs
hélt aðalfund sinn 3. f. m. —
Fundurinn var vel sóttur, enda
ágaett umferðar um Héraðið.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin en hana skipa Sveinn
Jónsson, bóndi á Egilsstöðum,
formaður; Björn Kristjárnsson,
bóndi, Grófarseli, og Páll Sig-
björnsson, ráðunautur, Egils-
staðakauptúni.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa tók fundurinn til umræðu
ýmis hagsmunamál bænda á fé-
lagssvæðinu. Nokkrar ályktanir
voru samþykktar á fundinum.
Helztar þeirra voru þær tvær,
sem fara hér á eftir:
I. Um verðlagsmál
Fundur Bændafélags Fljóts-
dalshéraðs, haldinn að Egils-
stöðum 3. des. 1962, gerir eftir-
farandi ályktanir um verðlags-
mál:
1. Fundurinn fagnar aðgerð-
um búnaðarsambanda landsins í
þá átt að fá Framleiðsluráðslög-
unum breytt. Þakkar hann stjórn
um búnaðarsambanda í S-Þing.
og á Austurlandi forgöngu í
þeirri baráttu.
Skorar fundurinn á nefnd þá,
sem starfar á vegum Búnaðar-
þings og Stéttarsambands bænda,
að þessum málum, að vinna að
þeim í sama anda, og beita sér
eindregið að fá numið úr lögun-
um gerðardómsákvæðið og hlut-
deild neytenda í sexmannanefnd-
inni, ásamt fleiri lagfæringum.
En fulltrúar neytendasamtak-
anna hafa sýnt og sannað, að
þeir telja hlutverk sitt það eitt,
að þvinga niður verð á landbún-
aðarvörum, án tillits til þarfa
landbúnaðarins.
2. Fundurinn átelur afstöðu
fulltrúa Stéttarsambands bænda
og Framleiðsluráðs í sexmanna-
nefnd á sl. hausti, við samninga
um verðlagsgrundvöll fyrir land-
búnaðarvörur, sem í tveimur
meginatriðum braut gjörsamlega
í bága við samþykktir síðasta
aðalfundar Stéttarsambands
bænda.
a. Aðalfundur stéttarsam-
bandsins fól stjórn sinni afdrátt-
arlaust að semja ekki um afslátt
á þeim verðlagsgrundvelli, sem
fulltrúar neytenda settu upp
haustið 1961 og töldu þá vel rök-
studdan. Enginn hefur heldur
reynt að vefengja hann með rök-
um. Þrátt fyrir það semja þeir
nú um nálægt 12% óhagstæðari
verðlagsgrundvöll fyrir bændur,
án þess að færa nokkuð fram
þeirri breyttu afstöðu sinni til
stuðnings.
b. Minnsta kosti þrír síðustu
aðalfundir stéttarsambandsins
hafa samþykkt að fela Fram-
leiðsluráði að hækka verðlag á
sauðfjárafurðum til samræmis
við aðrar búvörur. En almennt
er nú viðurkennt, að mjög hafi
verið hallað á sauðfjárbændur í
verðlagsgrundvelli búvara. Þrátt
fyrir einróma samþykki stéttar-
sambandsfulltrúa á þessari á-
lyktun, hefur Framleiðsluráð
þverskallazt enn við þéssum
fyrirmælum.
Fundurinn telur þessi vinnu-
brögð ólýðræðisleg, og þau feli í
sér lítilsvirðingu á samþykktum
aðalfunda stéttarsambandsins,
sem á þó að fara með æðsta vald
í þessum málum.
II. Um rafmagnsmál
Fundur Bændafélags Fljóts-
dalshéraðs, haldinn 3. des. 1962,
gerir svofellda ályktun um raf-
magnsmál:
1. Fundurinn harmar þá kyrr
stöðu og þær vanefndir í raf-
orkumálum Austurlands, miðað
við fyrirheit í 10 ára áætluninni,
sem nú er senn úti. En nálægt
helmingur háspennulína og
tengilínan frá Laxá — hvort
tveggja í 10 ára áætluninni —
er enn óframkvæmt. Þó kaup-
túnin á Austurlandi hafi nú
fengið rafmagn, þá er það að
hinum þeim óheppilegu leiðum,
með byggingu margra diesel-
stöðva. Hins vegar hafa sveit-
irnar að mestum hluta verið
hafðar út undan. Af 25 sveitum
í Múlasýslum hafa þrjár verið
rafvæddar, hinar hafa ekki raf-
magn að frátöldum nokkrum
einkastöðvum. Láta mun nærri
að 450—500 bæir í Múlasýslum
séu rafmagnslausir. Svipað mun
þetta vera í N-Þingeyjarsýslu og
A-Skaftafellssýslu og víðar. Mis-
ræmið og aðstöðumunur fólks-
ins til atvinnurekstrar og lífs-
þæginda, sem við þessa þróun
raforkumálanna hefur skapazt
milli sveitafólks annars vegar og
kaupstaðarfólks hins vegar,
styður hröðum skrefum að því,
að sveitabyggðirnar eyðast.
Fundurinn gerir enn á ný
þær kröfur, að haldið verði á-
fram dreifingu raforku um
byggðir Austurlands frá þeim
orkuverum, sem þegar eru til.
Ennfremur ítrekar fundurinn
kröfu sína um að hraða beri
lokaáætlun um rafvæðingu
landsins og leggur á það á-
herzlu, að þar verði kveðið á um,
hvort og hvenær hvert býli fær
rafmagn frá samveitum. Það er
hin brýnasta nauðsyn að í ljós
komi, hver þau býli eru, sem
ekki koma til greina, svo að
bændur geti þar leitað annarra
úræða í tíma.
Fundurinn beinir því til sýslu-
og bæjarfélaga á Austurlandi, að
taka til athugunar, hvort sam-
eiginleg nefnd frá þeim gæti
ekki unnið þessu máli meira lið
en hver einstakur getur.
Frá jarðarför Vilhelmínj fyrrv.
Hollandsdrottningar
EINS og áður hefur verið
skýrt frá í blaðinu var Vil-
helmína fyrrverandi Hollands
drottning jarðsett í Delft 8.
desember síðastliðinn. Hún
lézt í svefni hinn 28. nóvem-
ber, 82 ára að aldri, í höll
sdnni Het Loo.
Átta hestar, hjúpaðir hvítu,
drógu kistu Vilihelmínu drottn
ingar um götur Haag (efri
mynd), daginn sem hún var
jarð,sett, áður en haldið var
til kirkjunnar í Delft. Eini
kransinn á líkvagninum var
frá hollenzku andspyrrau-
hreyfingunni. önnur blóm og
kransar voru fluttir á sérstök
um vagnL
Á neðri myndinni sjást með
limir hollenzku konungsfjöl-
skyldiunnar standa vdð kiistu
drottningar. Yzt til vinstri er
Irene prinsessa, þá Beatrix
prinsessa, Júlíana, Hollands-
drottning, Bernhard prins,
Margrét prinsessa og Marike
prinsessa. Bernhard prins ber
einkennisbúning hershöfð-
ingja, kona hans og dætur
eru hvítklæddar, en Vilhel-
rnína drottning hafði óskað
eftir að enginn bæri sorgar-
klæði við jarðarförina og
kirkjan yrði skreytt hvítum
blómum.
2. Fundurinn þakkar þing-
mönnum Norðlendinga og Aust-
firðinga undirtektir þeirra við
tilmælum Bændafélags Fljóts-
dalshéraðs á sl. vetri, að ræða
um rafmagnsmál þessara lands-
hluta og þó einkum virkjun
Jökulsár á Fjöllum, á sérstökum
fundi með fulltrúum hlutaðeig-
andi sýslu- og bæjarfélaga.
Bændafélagið villl enn á ný
skora á alla þingmenn þessara
landshluta að standa fast á kröf-
unni um,» að næsta stórvirkjun
verði reist við Jökulsá á Fjöll-
um. Það er einstakt tækifæri
fyrir þing og stjórn að sýna í
verki, að þeim sé alvara með að
halda jafnvægi í byggðum lands-
ins. Því að engin framkvæmd
ríkisins myndi fremur draga úr
fólksflutningum frá þessum
landsfjórðungum.
Sölubörn!
Sölubörn!
Nú er tækifærið að vinna sér inn peninga til jólagjafa.
Körfuknattleikssamband íslands stendur fyrir happdrætti og
dregið verður á Þorláksmessu 23. þ.m.
Þið fáið 20 krónur fyrir hvern miða sem þið seljið.
Miðar verða afhentir í dag (laugardag) kl. 1—6 og á morg-
un ( sunnudag) kl. 10—12 og 2—5 á eftirtöldum stöðum:
ÍR-húsið við Túngötu, KR-húsið við Kaplaskjólsveg, Skáta-
heimilinu, íþróttahúsinu að Hálogalandi, Langholtsveg 110,
Félagsheimili Víkings.
K.S.Í.