Morgunblaðið - 10.02.1963, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.02.1963, Qupperneq 24
(p TVÖFALT 4/ _ EIMANGRUNARCLER 20ára revnsla hérlendis 34. tbl. — Sunnudagur 10. febrúar 1963 Vandlátir velja Tollvörubirgðum erlends skips stolið Innsígíi roríb, 78 flöskum af vini oj 740 pökkum af sigarettum stolid Miklu magni aí áfengi var stol ið úr geymslu danska skipsins Erik Sif, aðfaranótt laugardags, þar sem skipið lá við Faxagarð í Reykjavík. Rufu þjófarnir toll- innsigli á tollvörugeymslu skips- ins og brutu upp læsinguna. Kindur / Látra- bjargi Látrum, 6. febrúar. RÉTT fyrir jólin varð vart við tvær kindur 70 faðma niðri í Látrabjargi. Er það hvít með son sinn, gráan hrút. Þau hafa nóg gras, og geta farið allmikið um. Er þetta í svokallaðri Geitaskor, en þar er bjargið um 180 faðma hátt. Kindur hafa áður farið þarna niður og orðið hefur að síga eftir þeim að sumrinu, en ekki var átt við það að þessu sinni, þar sem kominn var snjór og klaki, lítið orðið um sigmenn, en fjóra þarf niður til að hand sama kindurnar. Mun það því látið bíða til sumarsins, en líklegt er að þá verði þær orðnar fjórar, því sennilega á ærin lömb um sumarmálin, eða kannske á einmánuði. Fari svo að geri jarðbönn hjá þeim verða þau skotin með riffli, en litlar líkur eru til þess, að svo verði úr þessu, þar sem sólar fer nú verulega að gæta. En óhöpp geta hent þau, snjór fallið úr brúnum, eða þau farið út á kl^ka, en það tekur fljótt af sem skot. — Þórður. Erik Sif kom til Reykjavíkur að morgni 7. febr. sl., og voru þá innsiglaðar vín- og tóbaksbirgðir skipsins. Fór skipið samdægurs til Reykjavíkur, en kom aftur til Reykjavíkur á föstudagskvöld. f gærmorgun varð þess vart að brotizt hafði verið inn í toll- vörugeymsluna í stafni skipsins og stolið að heita öllu, sem þar var. Þjófarnir höfðu á brott með sef 23 flöskur.af sterkum vínum, Gordon gini, Black and White viský, Baccardi rommi og líkjör um. Þá var stolið 55 flöskum af léttum vinum, þar á meðal kampavíni, sherry, 3 gallonbrús- um af rauðvíni í körfum. Þá var stolið 50 pökkum af sígarettum. All erfitt var að komast að dyrum geymslunnar, og þurftu þjófarnir að klöngrast yfir ullar- balla á dekkinu. í bramboltinu skelltu þeir um málningardós með hvítri málningu, og mun eitt hvað af henni hafa lent á skóm þeirra. Eru þeir, sem einhverjur upplýsingar eða ábendingar gætu gefið um mál þetta, vinsemlegast beðnir að gera rannsóknarlög- reglunni aðvart, ekki sízt ef sézt til hvítskæddra manna. Aldrei meiri útflutningur á frystum fiski en 1962 Heildarframleiðslan 82.000 tonn UM 90 hraðfrystihús voru starfrækt hér á landi árið 1962 og var heildarfram- leiðsla þe.irra um 82 þúsund tonn, en var 77.619 tonn árið 1961. Aukning á framleíðslunni er fyrst og fremst vegna meiri síldar frystingar suð-vestanlands, en síldiarfrysting hefur aukizt úr 3,733 tonnum árið 1960 í um 25.50 tonn árið 1962. Útflutningur ó hraðfrystum sjávarafurðum fer mestmegnis í gegnum Söhupaiðstöð hraðfrysti húsanna og sjávarafurðardeild SÍS ,en á sl. ári bættist þriðji að ilinn við, Atlantor h.f. Framleiðendur stórbættu við frystiútbúnað sinn á liðnu , . i an. bættu við sig tækjum og frysti orka sitóraukin. Heildarframleiðsla bolfisk- flaka árið 1962 var um 45.500 tonn, 43 þúsund tonn hjá húsum innan S.H. og SÍS, en um 2500 hjá öðrurn húsum. Bolfiskframleislan árið 1962 akiptist þannig eftir tegunduf, S.H. og SÍS, innan sviga samsvar andi tölur 1961: Þorskflök 23.912 (25.275), ýsuflök 10.002 (9.598), steinbítsflök 3.049 (2.815), karfa flök 3.752 (6.248), ufsaflök 1.431 (1.263), lönguflök 798 (164). Sam tals: 42.944 tonn (45.363). Miðað við árin 1959 og 1960 er um mikinn samdrátt að ræða í framleiðsl'U botfiskflaka, eink- um þorsks- og karfaflaka. Árið 1962 var karfaflakaframleiðslan aðeins um % hluti þess, sem hún var 1960. Þetta stafar m.a. Varðarfundur um tœkni menntun annað kwöld Asgeir Pétursson sýslumaBur er frummælandi LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður, heldur almennan félagsfund í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 20.30. Dagskrárefni fundar- ins er „Tæknimenntun og at- vinnulífið“ og verður málshefj- andi Ásgeir Pétursson, sýslu- maður. Ásgeir er formaður stjórn- skipaðrar nefndar sem starfar að því að semja nýtt lagafrum- varp um Tækniskóla ríkisins. Er ekki að efa að margir vilji hlýða á þetta efni og um það fjalla, ekki sízt vegna þess hve þróun þjóðfélagsins hvílir nú á tæknimenntun og hve mikil þörf er á umbótum varðandi tæknimenntun hér. Forsendur fyrir þróun þjóðfé- lagsins í tækniátt, er sú að kost- ur sé nægilega inargra tæknilega menntaðra manna fyrir atvinnu- vegi þjóðarinnar. Það er grund- f*f W Ásgeir Pétursson völlur þess að þjóðfélagið dafni og starfi eðlilega. Efnahagslífið og atvinnulífið er nú meira en nokkru sinni fyrr, háð framför- um í tæknilegum efnum. Þegar á það er litið hve þátt- ur tækninnar í atvinnulífinu er orðinn_ mikill og fer stöðugt vax- andi, er augljóst að ekki er til lengdar stætt á því að veita ekki æskumönnum þjóðarinnar færi á þvj að afla -sér tæknimennt- unar í landinu sjáifu. Það er með öllu óviðunandi að sjálft skólakerfið skuli vera með þeim hætti að það sem slíkt hindri unga menn í því að leggja út í tækninám. Tækninám er kostnaðarsamt, en stofnun tækniskóla mun létta st þensiunni í 'öðrum skólum, svo sem menntaskólunum, því hann mun keppa við þá um nemendur, og þannig verður kostnaðurinn ekki allur nýr, heldur flytzt milli skólastiga. Meginstefna okkar ætti að vera sú menntun æskunnar fari fram í landinu sjálfu, að svo miklu leyti sem unnt er og mið- ist við íslenzkar aðstæður, þjóð- félagshætti og atvinnuvegi. vegna minnkandi karfaveiði tog ananna og venkföllum á þeim tíma, sem þeir landa helzt hér heima. Heildarútflutningur á frystum sjávarafuirðum var um 81 þúsund tonn, sá mesti til þessa. Sam- kvæmt bráðabirgðatölum frá S.H. og SÍS skiptist útflutning- urinn þannig eftir löndum, inna sviga samsvatrandi tölur 1961: Bandaríkin 21.424 tonn (20.539), Sovétríkin 22.985 (7.485), Bretlanid 7.254 (9.813), Tékkóslóvakía 5.060 (6.959), Holiand 1.189 (1.520), Frakkland 1.494 (1.275), Vestur-Þýzkaland 4.600 (5.532), Pólland 2.036 (3.334), Rúmenía 1.949 og Austur Þýzkaland 4,692 tonn. Útflutt magn af dýrafóðri og söl'tuðum þunnindum er ekki tal ið með í ofangreindum tölum. Eins og framangreindar tölur sýna, keyptu Sovétrikin mun meira af frystum fiski og síld árið 1962 en árið áður. Stafar það m.a. af því, að verðið á bol- fiski fór hækkandi á ^eim mark- aði. Áframhaldandi aukning var á framleiðslu og sölu fiskstanga- verksmiðja Íslendinga í Banda- ríkjunum. Sem dæmi má nefna, að sölumagn afurða verksmiðju S.H. í Nanticoke var um 20 millj. punda (lbs), árið 1962, en var 17,2 milljónir punda árið 1961 og 13 milljónir punda árið 1960. Um sl. mánaðamót fórn 22 lands í heimsókn til Varnarliðs1 nemendur VerzlunarskóXa ís- ins á Keflavíkurflugvelli. — Skoðuðu nemendurnir flugvél ar og margt annað á flugvell- inum, svo sem hvernig fall- hlífum er pakkað, veðurstof- una o. fl. Myndin sýnir nem endur skoða stjórnklefa í einni af Delta Dagger orrustuþotum Vamarliðsins. Afli Akranesbáta Akranesi 9. febrúar. — Afli línubáta héðan í gær var alls 50 tonn af 12 bátum. Aflahæst var Sigrún með 7,5 tonn. 15 bát- ar eru á sjó héðan í dag. Færeyskur línuveiðari tók hér í gær beitusíld hjá Haraldi Böðv- arssyni & Co í eina veiðiför. Mánoíoss tefst * vegno ísa Hið nýja skip Eimskipafé- lagsins, Mánafoss, átti að láta úr höfn í Kaupmannahöfn á hádegi í gær. En fresta varð för skipsins vegna ísa. Heldur Mánafoss heimleiðis þegar færi gefst. Blaðafulltrúi Eimskip, Sig- urlaugur Þorkelsson skýrði Mbl. svo frá í gær, að 35 skip væru föst í ís utan Kaup- mannaihafnar og væri fjöldi ísbrjó'ta að reyna áð koma þeim áfram.. ísflákinn nær út að Skovs- hoved, skammt utan Kaup- mannahafnar, en þar tekur við allgreið siglingaleið. Mánafoss er full'hlaðinn vörum, en engir farþegar eru með honum, enda hefur skip. ið ekki rúm fyrir farþega. Skipstjóri er Eiríkur Ólafsson. Sigurður Bjarnason StjónuRóIanúmskeið Heímdalki S'.tiiórnmálaniámskieið Heim- dallar stendur yfir um þessar mundir. Hófst það sl. _þriðjudag. Þá talaði Birgir Kjara'n alþingis maður um íslenzk stjórnmál 1918 — 1944. N.k. þriðjudag ki. 8.30 Sigurður Bjarnason ritstjóri unr. íslenzk stjórnmál 1944—1956. Aðrir ræðumenn á námskeiðinu verða Ólafur Björnsson próíess or, Gunnar Thoroddsen fjármála ráðherra, Jóhann Hafstein banka stjóri, Ingólfur Jónsson landbún aðarráðherra og Bjami Benedikts son formaður Sjalfstæðisflobíka ins. Ná.mskeiðið er haldið í Valhöll Allir Heimdellingar eru velkomn ir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.