Morgunblaðið - 15.02.1963, Qupperneq 1
24 siður
Eínahagsmálin draga athyglina
að ellefta fundi Norðurlandaráðs
sem hefst í Osló á laugardag
Frá írak
Mynd þe^si var tekin fyrir
framan varnarmálaráðuneyt-
ið í Bagdad á miðvikudag, 6
dögum eftir að bylting var
gerð í írak. Barizt hafði verið
á götunni framan við ráðuncyt
ið, og ber húsið þess merki.
Hermenn byltingarstjórnar-
innar sjást þarna við stærðar
andlitsmynd af Kassem, fyrr-
verandi forsætisráðh. Kassem
var handtekinn í varnarmála-
ráðuneytinu, þar sem hann
var dæmdur til dauða og tek-
inn af lífi. (Sjá frétt bls. 23).
Ósló, lJf. fébrúar — NTB
Á LAUGARDAG hefst í Ósló 11. fundur Norðurlandaráðs,
og sitja hann 35 ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum,
þeirra á meðal flestir forsætis- og utanríkisráðherrar land-
anna. Auk þess koma þar saman fastafulltrúar ráðsins, sem
eru 69 fulltrúar frá löggjafarþingum Norðurlandanna og
þeim til aðstoðar fjöldi sérfræðinga og opinberra starfs-
manna. — Má með sanni segja að Ósló verði, meðan fund-
urinn stendur yfir, nokkurskonar höfuðborg Norðurlanda.
Fundur þessi hefur vakið óvenju mikla athygli utan
Norðurlanda, fyrst og fremst vegna breyttrar aðstöðu í Ev-
rópu éftir að Frakkar neituðu Bretum um aðild að Efna-
hagsbandalagi Evrópu. Verður harna meira af fréttamönn-
um en nokkru sinni fyrr, hæði frá Norðurlöndum og öðrum
ríkjum. — Er ljóst að efnahagsmálin verða mikið rædd á
fundinum.
Afdrif
SYIMCOIU
OVISS
Canaveralhöfða, Bandaríkj-
unum, 14. febr. (NTB) —
Nýjum bandariskum fjarskipta-
hnetti, sem nefnist SYNCOM, var
í morgun skotið á loft frá Cana-
veralhöfða í Florida. Tæpum 11
klst. eftir að hnettinum var skot-
ið á loft, var burðarflauginni
eent merki frá jörðu, sem átti að
eetja af stað smærri eldflauga-
hreyfil til að skjóta hnettinum á
rétta braut umhverfis jörðu. —
Skömmu eftir að merki þetta var
sent rofnaði allt samband við
hnöttinn, svo ekki er vitað hvort
hann hefur komizt á rétta braut.
SYNCOM átti að fara umhverf-
is jörðu í 35.680 km. hæð, og með
sama hraða er væri samstilltur
hraða jarðar, þannig að hnött-
urinn væri ætíð yfir sama jarð-
svæði.
(Sjá nánari lýsingu á
SYNCOM á bls. 15).
Af öðrum málum, sem liggja
fyrir fundinum, má nefna frum-
varp um nánari samvinnu land-
anna á norðurhveli jarðar á
sviði fjármála, verzlunar og
samgangna, sameiginlega lög-
gjöf á Norðurlöndum varðandi
útvarp og sjónvarp o. fl. — Alls
liggja fyrir fundinum rúmlega
40 frumvörp og fjöldinn allur af
skýrslum.
Eitt mál á eftir að vekja mikl-
ar umræður, og það er bann við
hnefaleikum. Tvö frumvörp
liggja fyrir um málið, og er
öðru þeirra lagt til að atvinnu
hnefaleikar verði bannaðir i
Norðurlöndum, en hitt að allir
hnefaleikar, bæði atvinnu- og
leikmanna, verði bannaðir. — í
sambandi við þessar umræður
hafa andstæðingar hnefaleika
efnt til kvikmyndasýningar á
bandarískri mynd í einu af
kvikmyndahúsum borgarinnar.
Á föstudag hefjast fundir
stjórnar Norðurlandaráðs, og síð-
degis þann dag verða nefnda-
fundir. — Á laugardagsmorgun
klukkan ellefu verður svo fund-
ur Norðurlandaráðs settur, og á
þeim fundi verður finnska rit-
höfundinum Vainö Linna af-
hent bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs, sem eru 50 þúsund
danskar krónur. Fundir verða á
laugardag og sunnudag, en hlé
verður gert á mánudag og
þriðjudag, og eru þeir dagar ætl
aðir nefndum til starfa. Síðan
verður fundunum haldið áfram
á miðvikudag og fimmtudag, og
lýkur á föstudag.
(Sjá frétt annarsstaðar í blað-
inu um fulltrúa íslands á fundi
Norðurlandaráðs)
Harold Wilson
UaroEd Wilson formaður
Verkamannaflokksins
London, 14. febr. (AP-NTB)
Þingflokkur brezka Verkamanna
flokksins kaus í kvöld nýjan for-
mann til að taka við af Hugh
Gaitskell, sem lézt 18. janúar sl.
Tveir frambjóðendur voru í kjöri
að þessu sinni, Harold Wilson,
talsmaður flokksins í utanríkis-
málum, og George Brown, sem
verið hefur varaformaður flokks
ins. Harold Wilson var kjörinn
með 144 atkvæðum, en Brown
hlaut 103 atkvæði.
Wilson er aðeins 46 ára að
aldri, og yngsti maður, sem kos-
inn hefur verið formaður Verka-
mannaflokksins frá stofnun hans
fyrir 57 árum.
Verkamannaflokkurinn gekk
fyrst til atkvæða um formanns-
kjör fyrir viku, og voru þá þrir
frambjóðendur í kjöri, þeir Wil-
son, Brown og James Gallaghan,
talsmaður flokksins í fjármálum.
Hlaut þá enginn frambjóðenda
meirihluta atkvæða, og að kosn
ingum loknum dró Gallaghan sig
í hlé. *
Kosningar þessar eru mjög
þýðingarmiklar, því Wilson verð
ur nú forsætisráðherraefni Verka
mannaflokksins, en lögum sam-
kvæmt eiga þingkosningar að
fara fram í Bretlandi innan 18
mánaða. Ýmislegt bendir til þess
að kosningarnar verði fyrr, jafn
vel á þessu ári. Og samkvæmt
skoðanakönnunum í Bretlandi
fengi • Verkamannaflokkurinn
meirihluta ef kosningarnar færu
fram í dag.
Að kosningunum loknum i dag
átti Wilson fund með fréttamönn-
um. Sagði hann að það væri ætl
un sín að halda áfram sömu
stefnu í stjórnmálum og fyrirrenn
ari hans, Gaitskell, hafði mótað.
Fyrsta verkefnið sagði hann vera
að endurheimta þá samstöðu inn
an flokksins, sem ríkti meðan
Gaitskell fór með forustuna, „og
þetta verkefni ætti ekki að vera
Framhald á bls. 23.
Afríku stúdentar flýja
áróður kommúnista
Vin, 14. feb. (AP)
FJÖLDI stúdenta frá Afríku,
sem stundað hafa nám við hár-
skóla í Búlgaríu, eru á förum
úr landinu vegna ágreinings við
yfirvöldin. Hafa stúdentarnir
lengi kvartað yfir lélegum að-
búnaði, of iniklum áróðri og því
að fá ekki að mynda eigin sam-
tök til að berjast fyrir bættum
lífskjörum.
Ap-fréttastofan átti í dag sím
t>al við sendiherra Ghana í Sofia
sem sagði að 25 landar hans
færu heimleiðis í dag vegna
þessa ágreinings. „Landar mion-
ir og flestir aðrir afrískir s'túdent
ar, sem hér hafa búið, hafa á-
kveðið að fara úr landi“, sagði
sendiherrann.
Um 350 afrískir stúdentar hafa
undanfarið stundað nám í Búlg
aríu, og vax ákvörðunin um brott
förina tekin eftir að til átáka
kom milli 200 stúdenta og búlg-
askrar lögreglu sl. þriðjudag.
Sendiherrann sagði að þrátt
fyrir mótmæli búlgörsku stjórn-
arinnar hafi stúdentarnir mynd
að rneð sér samtök, og var for-
Framh. á bls. 23