Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 2
2 MORCVISBTAÐIÐ FSstudagur 15. febrúar 1963 ' ' ff/'f' ' " ' ' '&!?' '' ■»! .... Þorlákshafnarbátar leita vars á Eyrarbakka RF.YKJAVÍKURHÖFN tek- ur í notkun bráðlega nýja vigt, sem er skammt fyrir of- an togarabryggjuna Faxagarð. Vigtin tekur um 30 tonna þunga og sl. þriðjudag voru menn frá höfnjnni að hlaða hana stórgrýti og notuðu jafn framt fjöldan allan af 20 kg lóðum til að finna út ná- kvæmni vigtarinnar. Ljósm.: Sv. Þ.i Mýrasýsla AÐAI.FUNDUR Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu verður haldinn í kvöld kl. 21, í Ilótel Borgames. Að afloknum aðalfundi Sjálf- stæðisfélagsins verður aðalfund- ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Mýrasýslu. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnimar. Eyrarbakka, 14. fe'brúar. VÉLBÁTURINN Gubbjörg, sem rær frá Þorlákshöfn, kcnm hing- að í dag og varð að yfirgefa CÞcirliákshöfn sakir óthagstæðs veðurs. Nú liggiur bátUrÍTm í góðu vari hér á legunni. Eigendur Guð- 'bjargar gerðu áður út vólbátinn Faxa frá borlákshöfn, en missitu hann tvívegis upp í klappirnax þar. Guðbjörg er nýtt skip og þ*ví engin furða þótt eigendum sé í mun að verja hann áfölkum og grípi til þessa ráðs. Sjólag hér á legunni er nú sem á heiðatjörn miðað við rótið í Þorlákshafn. Að visu skortir hór stuttan garð fyrir framan til að lagan mætti heita tiltölulega örugg í flesbum veðrum, Hafaid an er brotin og kraftlítil af við stöðu sikerjanna er hún breiðir úr sér hér innan þeirra. Vélbáturinn Þarlákur frá Þor lákshöfn liggur hér einnig fyrir framan af fyrrgreindum ástæð- um. Báðir bátarnir eru á lánu veiðuim. — Fréttaritari. Refa- og rninka- veiðar við Djúp Þúfum, N-fs, 13. febrúar NÝLBGtA köm retfasky'tta í á Austfjörðum til veiða hér. Nóg er af refurn og minnkurinn gerir vart við sig til og frá. Er ætiunin við komu þessa manns að reyna nú fangbrögð við þessi villtu dýr. Fer hann uim 2 eða 3 hreppa í Djúpinu í þessu skyni og er von manna að nok k ur árangur verði af þessum veiðum. — P.P. Fiutningaskip frá Venezueia hertekið á rúmsjó Öeirðir í Caracas Caracas, Venezuela, 14. febr. — NTB-AP — STJÓRNIN í Venezuela til- kynnti í dag að stjórnarandstæð- ingar úr „Þjóðfrelsisfylking- unni“ svonefndu hefðu hertekið flutningaskipið „Anzoategui", þegar það var á leið til New Or- leans í Bandaríkjunum. Skip þetta er 3.127 tonn og á því er 36 manna áhöfn. í kvöld var tilkynnt að stjórn- inni hafi borizt símskeyti frá „sjóræningjunum“, þar sem þeir bjóðast til að láta áhöfnina lausa í skiptum fyrir pólitíska fanga úr fangelsum í Venezuela. Fyrstu fréttir um sjóránið bár- ust í símskeyti frá skipstjóranum á „Anzoateguie". Sagði hann að óþekkt herskip hafi stöðvað skip sitt og skipað vopnuðum skæru- liðum um borð í það. Seinna kom í ljós að níu menn voru settir um borð í skipið, og að annar stýrimaður á „Anzoategui" tók við yfirstjóm sjóræningj- anna. Innanríkisráðherra Venezuela skoraði á önnur ríki að aðstoða við að ná skipinu úr höndum IMýra úr látnum grætt í sjúkling Peter Lucas er nú með þrjú nýru, sín tvö, sem eru gagnslaus, og þriðja nýrað, sem flutt var úr líki miðaldra manns með leyfi ættingja hans. Það er þetta þriðja nýra, sem starfar. Fyrir upp- skurðinn var Lucas haldið á lífi með gervinýra. Við flutn- inginn á nýranu var það fyrst fryst og blóðið hreinsað úr því, en sérstakur vökvi settur í þess stað. Svo var nýrað grætt við æðar í kvið- arholi sjúklingsins. Eftir uppskurðinn var Luc- as fluttur í sérstakt herbergi með sótthreinsuðu lofti. — Læknar þeir og hjúkrunar- konur, sem stunduðu Lucas, Leeds, lJf. febr. — NTB BREZKIR skurðlæknar hafa nýlega grætt nýra úr látnum manni í nýrnasjúkling. — Er talið að þeíta sé í fyrsta skipti sem þesskonar upp- skurður hefur tekizt. Sjúkl- ingurinn, Peter Lucas, er á batavegi, og talið að hann fái fljótlega að fara heim til sín úr sjúkrahúsinu. Uppskurðurinn tók sex klukkustundir, og unnu við hann 14 læknar og hjúkrun- arkonur. Lucas, sem er 37 ára og starfar við mjólkurbú í Leeds, segist hafa það prýði- legt. Sérfræðingar í Leeds segja að uppskurður þessi klæddust einnig sótthreinsuð- geti leitt til þess að unnt fötum áður en Þau fóru i inn til sjuklingsins. — Prjar verði að f y ja ungu, 1 u hjúkrunarkonur skiptust á að og önnur líffæri ur latn- Sjfja yfir sjúklingnum fyrstu um mönnum í sjúklinga. sólarhringana. stjórnarandstæðinga, og beindi hann ósk sinni sérsiaklega til Bandaríkjanna og landanna í Mið-Evrópu. í fyrstu var sagt að sjóránið hafi gerzt síðastliðna nótt, en seinna kom í ljós að skipið var hertekið á þriðjudag, skömmu eftir að það lagði úr höfn í Venezuela. Engir farþeg- ar voru með skipinu. Blöð í Caracas hafa fengið mikið af nafnlausum tilkynning- um varðandi sjóránið, þar sem bent er á að taka skipsins sé mótmælx gegn stjórn Romulo Betancourts forseta, sem á mið- vikudag hafði verið fjögur ár við völd í lándinu. Undanfarið héfur verið mikið um óeirðir í Caracas, og jukust þær enn í dag. Var víða skipzt á skotum og varð fjöldi manns fluttur í. sjúkrahús vegna skotsára. Ekki er vitað um mannfall. „Þjóðfrelsisfylkingin" eða FALN eins og nafnið er skammstafað er að miklu leyti skipuð komm- únistum. Kveiktu þeir í dag m.a. í hjólbarðaverksmiðju, og í mörgum strætisvögnum og bif- reiðum. Einnig var flöskuni með benzini varpað að lögreglubif- reiðum og að útvarpsstöð í Cara- cas. BörnZn hlúa að vepjunni BÖRN í heimavistarskólanum í i Aratungu í Biskupstungum, náðu ^ á sunnudaginn var lifandi vepju á túninu við skólann. Þau höfðu séð til ferða hrafns er veittist að minni fugli á flugi og aLlt í einu var sem hrafninn hefði lostið minni fuglinn höggi, en hann féll til jarðar. Börnin hlupu strax út á tún- ið og fundu þar fuglinn sem lá hreyfingarlaus. Þau sáu strax að hér var um einhvern gest að ræða því ekki höfðu þau fyrr séð nokkurn mófiugl með fjöður aftur úr höfðinu. Kennarar skólans, en Óli MuLl er heitir skólastjórinn í Aratungu áttuðu sig fljótlega á því að hér var um vepju að ræða. Frétzt hafði um hóp af vepju við jarð- hitasvæðið við Laugarás. Börnin fóru með vepjuna upp á loft í rishæð mötuneytisins, sem er í húsi kippkorn frá skól anuim, og þar Xíður vepjunni vel í funheitu herberg.i og börnki reyna eftir föngum að f.inna mat sem hún vill borða og eru all vongóð um, ef vepjan er ekki særð innvortis, þá muni þeim jafnvel takast að halda í henni lífi fram á vorið. Um það hafa kennararnir í Aratungu ekki viljað slá neinu föstu um, en víst er að börnunum þykir mjög vsent um þennan óvenjuiega gest sinn. Asáuinnflú- enza í Banda- víkjunum New York, 14. febr. — Einkaskeyti frá AP: — Heilbrigðismálastjóm Banda- ríkjanna skýrði í gær frá því að mikill inflúenzufaraldur gengi nú yfir austurhluta landsins, og að dauðsfpll af hans völdum færi fjölgandi. Þúsundir skólabarna og verka manna eru rúmliggjandi vegna inflúenzunnar. Er hér um að ræða bæði svonefnda Asíu inflúenzu og svipuð af- brigði samfara lungnabólgu. 1 í borginni Richmond í Virg inia-riki hafa 38 mann látizt úr faraldri þessum undanfarn ar þrjár vikur, og vitað er um 12 dauðsföll í Suður Carolína- ríki. Fundizt hefur Asiu-inflú- enzu veira í sjúklingum í fjór um ríkjum: Maryland, Kans- as, Illinois og Norður-Carol- ina. Einnig leikur grunur á því að Asíu-inflúenza hafi brotizt úr í 6 ríkjum öðrum. í einu fylki í New York og öðru í Kentucky hefur öllum skólum verið lokað vegna veikinda kennara og nemenda. Víða annarsstaðar vantar um 20% nemenda í skólana-. Sums staðar hafa allar heimsóknir í sjúkrahús verið bannaðar af ótta við sýkingu. í FRÉTT um janúarafla Bíldu- dalsbáta varð sú villa, að róöra- fjöldi Péturs Thorsteinssonar var sagður annar en hann var. Róðr ar skipsins urðu 19 alls. £ NA /S hnúiar SV SÖ hnúiar & Snjókoma * 06 i 7 Skúrir ÉC Þrumur 'W.Z, KM,M Zw HifutUf H Hmí L Lm91 1 Fyrirlestur um norska stúdenta- sambandið HINGAÐ KOM í gærkvöldi frá Osló, öystein Opdahl, fyrrv. for- maður Norska Stúdentasam- bandsins (NSS). Er Opdahl hér í boði Stúdentaráðs Háskóla ís- lands og mun flytja tvo fyrir- lestra á vegum þess. Hinn fyrri verður haldinn í VI. kennslu- stofu háskólans kl. 5,30 í dag og mun hann fjalla um norska stúd entasambandið, sögu þess og starf. Er ekki að efa, að háskóla- stúdentar og aðrir muni fjöl- menna á þennan fyrirlestur. Á hádegi í gær var 5—7 st. frost norðan til á Vestfjörðum, enda vindur þar norðauststæð ur. Sunnan lands var mikiu hlýrra, eða í kringum 4 st. hiti. . Loftið þar var komið Suðaust an úr hafi. Víða norðan lands og vestan voru él, en rign- ing með suðurströndinni til Austfjarða. í New York var 3ja st. frost. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-mið: Austan hvassviðri eða stormur eða rigning. SV-land: Austan og NA- stinningskaldi, rigning öðru hverju. Faxaflói og miðin: Austan og NA stinningskaldi en all hvasst á miðunum, lítils hátt- ar rigning sunnan til en smá- él norðan til. Breiðafjörður og miðin: AU hvass NA, snjókoma öðru hverju. Vestfirðir: Allhvass NA, snjókoma norðan til. Vestfjarðamið: Hvass NA eða stormur, snjókoma. Norðurmið: NA stinnings- kaldi en allhvass vestan til, snjókoma. NA-land og miðin: Austan og SA kaldi .dálítil rigning eða slydda. Austfirðir og miðin: SA stinningskaldi, og rigning. SA-Iand og miðin: Allhvass eða hvass og SA, rigning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.