Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 22
22 MOK cr V V T 4fíl Ð Föstudagur 15. febrúar 1963 Ötbreiðsluför og þrekmæling /Jbróf/omenn á Akureyri þrekmældir i fyrsta sinn 18. janúar s.l. fóru þeir Bene- dikt Jakobsson og Höskuldur Goði íþróttakennara.r til Akux- eyrar á vegum F.R.Í. Var ferð þessi farin fyrst og Æreonst til þess að reyna að glseða álhuga, meðal skólaæ-skunnar í Ihöfuðstað norðurlands, á auk- inni líkamsmennt og hvetja Ihana til dáða við þær greinar ílþrótta ,sem taldar eru göfug- | astar, ekkd einungis vegna þess að þær eru elztar, heldur vegna þess, að þæ-r eru megin undir- staða annarra íþrótta — hinar frjálsu íþróttir — hlaup, stökk og köst. Með í för þessa var þoihjólið svokallaða tekið. Haldnir voru 4 fræðslufund- ir með skólanemendum fram- Ihaldsskólanna og íþróttamönn- um. Erindi voru flutt, filmræmur sýndar og skýrðar. Þá voru í- þróttamenn og þrekmældir. Um skipulag á þessari heimsókn sá hinn nýkjörni framkvæmda- stjóri íþróttaráðs Akureyrar, Her mann Sigtryggsscn. Skilningur forráðamanna fram haldsskólanna var lofsverður. Skólastjóri Gagnfræðhskólans gaf nemendum sínum frí til þess að sækja fund, sem haldinn var í Nýja bíói en þar komu sam- an vel flestir nemendur skólans og hlýddu á erindi um „Gildi íþrótta“ og nauðsyn einstaklings ins til þess að viðhalda likama sínum og líffærum með skyn- samlegri áreynslu. Auk þess var nemendum sýnt hvernig þolhjól- ið er notað við þrekmælingar og hvernig no-ta má ýmsar æfingar til mælingar á þreki og þoli. Skov- bakken móti Dinamo DREGIÐ hefur verið um það hvaða lið leiki saman í undan- úrslitum Evrópukeppninnar í handknattleik. Á danska liðið Skovbakken að mæta liðinu Dinamo í Búkarest. Dinamo er mjög sterkt lið og telja Danir að Skovbakken hafi lítið að gera í keppni við það, en Skovbakken er mjög hrósað fyrir að hafa komizt svona langt í keppninni sem raun er á orðið. Fjögur lið eru þar eftir. Danir fá að sjá Rúmenana tví- vegis áður en til leiksins kemur milli Dinamo og Skovbakken. Átta af liðsmönnum Dinamo eru í landsliði Rúmeníu, sem leikur landsleik við Dani nk. fimmtu- dag. Þá kallaði skólameistari Menntaskólans nemend-ur sína á sal og hélt Benedikt Jakobsson þar erindi um „fþróttalegt upp- eldi I menntaskólum frá lífeðlis- fræðilegu sjónarmiði“. Tveir fræðslufundir voru haldn ir með íþróttamönnum, þar sýndi og skýrði Benedikt Jakobsson filmræmur er sýndu m.a. stjörnur eins og Wilmu Rudolph og sovézka meistarann Brummel. Þá voru 40 fþróttamenn þrek- mældir og læknisskoðaðir. Ákveðið er að halda fleiri slíka fundi. Og mun sá næsti verða haldinn á Akranesi í sambandi við Sveinameistaramót íslands. Mótið sjálft hefst kl. 4 á sunnu- dag (en ekki á mánudag eins og áður hefur verið auglýst). Keppt verður í hástökki án atrennu, Xangstökki án atrennu, þrístökki án atrennu og hástökki með at- rennu. Auk þess verður keppt í hástofcki með atrennu sem auka grein, og hefur öllum beztu há- stökksmönnum okkar verið boð- ið að_ taka þátt í mótinu m.a. Jóni Ólafasyni. Um kvöldið held- ur Benedifct Jakobsson erindi fyrir íþróttamenn staðarins. Og á mánudagsmorgun mun hann einnig flytja erindi í Gagnfræða skólanum. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá Herði Pálssyni í síma 4 Afcranesi. Um aðra helgi verður Ungl- ingameistaramót íslands (innan- húss) haldið að Selfossi. Og er þá í ráði að Höskuldur Goði Karlsson flytji þar erindi um frjálsar iþróttir en frá því verður nánar skýrt seinna. FINNSKI heimsmethafinn í stangarstökki, Pennti Nikula, sem á dögunum fyrstur manna sigraði 5 metra mark- ið — með því reyndar að Hínverginn Yang ótjnar Þlikula stökkva 5.10 m — hefur eign- azt harðan keppinaut. Það kom öllum á óvart er For- mósumaðurinn Yang Chuan- kwang stökk 4.959 m á innan- hússmóti í Bandaríkjunum. Yang, sem verið hefur í fremstu röð tugþrautarmanna hefur náð fullkomnu valdi á trefj aglerstönginni. Áhorfendur að mótinu göptu af undrun þegar Yang stökk og undruðust allir vald hans á stönginni og leikni hans. Ljósmyndari á staðnum sýndi nánast jafn mikla full- komnun í sínu starfi er hann klifraði upp í rjáfur hússins og tók myndina sem hér fylg- ir. Engmn getur eftir að hafa athugað þessa mynd, verið í vafa um hversu geysilega hjálp trefjaglerstöngin veitir stökkmanninum. Eýr farraur í mikilli hæftu JAPANIR hafa boðið beztu skautamönnum allra þjóða til John Madsen og fjölskylda. heimsmeistaramótsins í Japan. Fóru allir skautamennirnir — utan Rússa sem fóru í sérflug- vél — í japanskri leiguflugvél frá Ósló til Tókíó. Vélin hafði viðkomu í Alaska og þar mun- aði litlu að iíla færi. í lending- unni sprungu 6 hjólbarðar vél- arinnar og hefði ekki til komið sérstakt snarræði flugmannsins, hefði vélin ekki haldist á braut- inni. Er talið sérstakt lán að svona vel skyldi til takast. Farmurinn var nokkuð dýr, þar sem voru allir beztu skautamenn Evrópu —. utan Rússa. Donir og Sómenoi ésáttír DÖNUM og Rúmenum gengur illa að semja um leiki sína í 1. umferð undankeppni knatt- spyrnu Tókíóleikanna, en þessi lönd voru nýlega dregin saman. Danir stungu upp á að fyrri leik- urinn yrði í Kaupmannahöfn 23. júní. Það var þegar í stað sam- þykkt. Síðari leikinn vildu Dan- ir fá á miðvikudegi í september eða október, en Rúmenar krefj- ast þess að sá leikur verði 3. nóvember. Það er mikill keppnis dagur í Danmörku í deildakeppn inni og verður að umskipuleggja hana til mikilla erfiðleika. Kveður landsliðið - verður heima DANIR telja það hafið yfir allan vafa, að John Madsen, miðvörður Esbjerg, sé einn þeirra beztu knattspyrnu- manna. Hann var einn aðalás landsliðs Dana á sl. ári og hann var sá sem Danir bundu hvað mestar vonir við í von- lítilli baráttu Dana til að komast i lokakeppni knatt- spyrnu á Ólympíuleikunum í Tókíó 1964. Það kom því eins og reið- arslag yfir danska knatt- spyrnu er John Madsen til- kynnti á dögunum að hann hætti öllum afskiptum og æf- ingum með landsliði, tæki ekki að sér að leika lands- leiki, eða aðra úrslitaleiki. Héðan í frá leik ég aðeiná með mínu félagi — annað ekki. Ég hef yfirvegað þetta mál mjög, segir Madsen í viðtali við B.T. Ég ætlaði reyndar að gera þetta fyrr og þetta er svo staðföst ætlun að um- skipti þar frá koma ekki til greina. Það er margt sem or- sakar þessa ákvörðun, m.a. það að taka tillit til fjöl- skyldunnar. John Madsen hefur alls ekki í huga að hætta knatt- spyrnuiðkun, en segir að leik- ir með félaginu séu alveg nóg fyrir sig. Hann hefur æft mjög vel undanfarið og stend- ur á hátindi frægðar og frama. „Það verður kannski erfitt fyrst að fylgjast með lands- liðinu úr fjarlægð — það kitl- ar kannski fæturna. En ég hef jafn mikla ánægju af knattspyrnu þó ég leiki með lakara liði en landsliðið — og fyrir félagið verð ég alveg eins og áður“. Liston er snnþá stóroraur ÞAÐ hefur verið endanlega S- kveðið og undirskrifað að síðari leikur Sonny Listons og Floyd Pattersons um heimsmeistara- tign í hnefaleikum verði 4. apríl og fari fram í Miami Beach. — Floyd hefur dregið sig í hlé og æfir fyrir luktum dyrum. Sonny Liston fer hins vegar ekki dult og er ennþá ófeiminn við stór orð og yfirlýsingar og gerir óspart grín að því að hann skyldi vinna heimsmeistaratitil- inn í tveggja mín. bardaga. — Ég er ennþá dálítið gramur yfir því, segir hann m.a., að ég skyldi misnota fyrstu höggin mín í fyrri leiknum og það skyldi taka 2 mín. að vinna leik- inn. En ég hugga mig við það að ég fæ að mæta Fatterson aftur 4. apríl. Firmekeppni á skíðum REYKVÍKINGAR munið að firmakeppni Skíðaráðs Reykja- víkur hefst í Jósefsdal kl. 2 á sunnudag. Veitingar á staðnum. Bílferðir eru frá BSR. Ef veður er gott verður hik- laust margt um manninn í Jósefa dal. Margir gamlir Ármenningar munu starfa við mótið. Mótsstjóri verður Ólafur Þorsteinsson, sem ennfremur afhendir verðlaun að móti loknu. Reykvíkingar hittumst í Jós- efsdal. Trúlofunarhringar Hjálmar Torfason gullsmiður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.