Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.02.1963, Blaðsíða 3
Fðstirdagur 15. febrúar 1963 MORCVISBT 4 ÐTÐ 3 I TILEFNI þess að stjórn Fjáreigendafélags Reykja- vikur boðaði blaðamenn á sinn fund sl. laugardag, brugðum við okkur inn í Breiðholt, þar sem fjár- eigendur höfuðborgarinn- ar hafa stofnað nýlendu og nefna Fjárborg. Við vorum svo heppnir að hitta fyrir varaformann fé- lagsins, Hjalta Benediktsson brunavörð þar sem hann var að moka taðhaug sínum upp á vörubíl og flytja brott. Við vorum viðstaddir þegar Hjalti hleypti inn ánum. ★ Ég minnist þess, er ég var strákur og fékk að fara með fullorðnum í ærhús var ég ýmist settur upp á síldar- bekkinn eða inn í hlöðu. Sami háttur var hafður á nú. Ég skauzt inn í hlöðuna meðan Hjalti hleypti inn fénu. Fyrst hleypti hann inn í eystri króna, stóð sjálfur við dyrn- ar og lét ærnar hlaupa fram hjá sér, s«m inn áttu að fara, Þær Mjöll og Arnhöfða gæða sér á ilmandi heyinu. I>etta eru friðar skepnur og sýnileg sæld í þeim. mig, ef ég hef ekki tima og kemst ekki í húsin. ★ — í>að er sæld í þessum kindum þínum. Eru þær af- urðagóðar eftir því sem þær eru fallegar útlits? — Já, þarna sérðu eina, hún var þrílembd í vor og það er 1 annað sinn. Og þarna er Eygló, sem konan min á raun- ar. Hún er 6 vetra og hefir átt 14 lömb. Undan henni lifa 8 ær og tvö lömb. — Eg sé þú hefir yndi af fjármennsku. — Já. en það er ekki aðeins ég og konan. Krakkarnir hafa gaman af þessu líka og þetta hefir uppeldisgildi fyrir þau. I>að er ekki einasta þeim til gamans. Þau læra af bessu. Gefiö á garöann Heimsókn í Fjárborg Og meðan Eygló gamla, Tulla, Mjöll og Arnhöfða nasla í sig tugguna hverfum við til blaðamannafundar með stjórn Fjáreigendafélags ins. Ingimundur Gestsson for- maður hefir orð fyrir stjórn- inni. í Fjáreigendafélagi Reykja- víkur eru 142 félagsmenn og eiga þeir alls 3700 fjár. Félag- ið er 40 ára. Margir hafa í seinni tíð haft andúð á fjár- eign Reykvíkinga og þá fyrst og fremst garðeigendur og skógræktarmenn. Nýlega var borin fram tillaga í borgar- stjórn um að sauðfjárhald skyldi bannað í Reykjavík. Framh. á bls. 14 Við skírðum hana Lykla- Petrínu þá svörtu, sem er að rjála við lyklana í skránni fyrir lambhúsinu. framan í Ljósm. Mbl. Sv. Þ. en hélt hinum úti. Það var auðséð að þetta var ekki í fyrsta sinn, sem hann hleypti kindunum í húsin og hann þekkti hverja þessara 53 kinda glöggt. Skyndilega lok- aði hann hurðinni og að vörmu spori opnaði hann vestri króna. ★ — Svona stelpur mlnar, sagði hann og gældi við þess- ar vinkonur sínar. eins og væru þær mennskar. —■ Kápa, komdu, og aftur- hyrnd ær, sem var dýrstygg við okkur, skokkaði til hús- bónda síns. Og nú fór Hjalti að gefa á garðann og ærnar hans teygðu sig eftir tuggunni en röðuðu sér svo undir garða- böndin og úðuðu í sig ilmandi heyinu. — Ég er fæddur Hafnfirð- ingur, segir Hjalti, þegar við förum að spyrja hann um ástæðuna til þess hann héldi fé. -— En ég ólst upp austur í Holtum og þar tók ég tryggð við blessaðar. — Og hver er ástæðan til þess að þú. maður í fastri stöðu, ert að halda allt þetta fé. — Ánægjan. Og svo veiztu að við höfum ekki það mikl- ar tekjur að okkur munar um það búsílag, sem fimmtíu kindur gefa. — En konan. Hvað segir hún? — Hún hefir mikinn áhuga á fjármennsku og ég get sagt þér það sem dæmi að hún fór ein og sótti allar kindurn ar upp í girðingu og kom með þær heim á eftir sér. Ég hef nefnilega þann hátt á að ég rek aldrei kind ef ég er á ferðinni með mitt eigið fé. Þær elta mig blessaðar. Og þær þekkja konuna ekki síður, enda gegnir hún fyrir STAKSTEIMAH Blaðamennska á lágu stigi Tíminn hefur nú í nokkrar vik ur þrástagazt á því, að Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri Morg- unblaðsins, hafi upplýst „að Bretar vilji ákafir fá island í EBE“, eins og blaðið kemst að orði. Eigi þetta að vera sérstakt sannindamerki þess, að Bretar hyggist fá aðstöðu ti) óhindraðra veiða í ísienzkri fiskveiðilögsögu o.s.frv. Morgunblaðið hefur ekki nennt að elta ólar við hinn bros- lega málflutning Tímamanna í þessu máli, enda væri íslenzk blaðamennska komin á lágt stig, þegar stöðugt væri karpað um útúrsnúninga og engin leið væri að ræða mikilvæg málefni, án þess að þau leiddu til endalausra deilna um hina fáránlegustu hluti. Enn ræðir Tíminn þetta mál í gær og „skorar á Mbl. að svara þeim undanbragðalaust“. Augljóst mál Það sem Eyjólfur Konráð Jóns son hefur sagt um þetta mál er tvennt, annars vegar eftirfar- andi: „Mér fannst eftirtektarvert, hversu Bretar eru ákafir í að fá Norðurlöndin, þar á meðal ís- land, inn í bandaiagið.“ Og hins vegar: „Þegar t.d. brezkur verka- mannaþingmaður ,sem studdi ís- lendinga af alefli í landhelgis- deilunni, lét það í ljós við höf- und Vettvangsins, að íslendingar ættu að hafa samleið með hinum Norðurlöndunum, þá byggist þáð sjónarmið að sjálfsögðu á því, að þessi ríki eiga svo margt sameig- inlegt, að þau mundu saman geta haft veruleg áhrif á stefnu banda lagsins.“ Þessi orð voru raunar rituð áð- ur en alkunna varð, að alvarleg tilraun mundi verða gerð til þess að hindra inngöngu Breta í Efna hagsbandalag Evrópu, einmitt vegna þess að talið yrði að þá mundi eðli bandalagsins breyt- ast, þar sem ríki eins og Noregur og Danmörk, mundu fylgja í kjölfarið og sjónarmið þeirra og Breta væru svipuð, og að ýmsu leyti ólík markmiðum þeirra, sem nú starfa saman í Efnahags- bandalagi Evrópu. Allir menn gera sér Ijóst, að það er kapps- mál Breta að fara ekki einir inn í Efnahagsbandalagið, heldur að Norðurlöndin komi með, því þá styrkist aðstaða þessara ríkja. Þetta er svo augljóst mál, að um það ætti ekki að þurfa að ræða, en er þó gert í þetta eina skipti vegna endalausra útúrsnú.iinga Tímamanna. Afstaða til utanríkismála Vissulega er það skelfing leið- inlegt, þegar blöðin stunda út- úrsnúninga, falsanir og hvers kyns barnaskap í umræðum um þjóðmál. Sök sér er þó þegar Tíminn stundar þessa iðju sína í umræðum um innanlandsmál. Hitt er miklu verra, þegar stöð- ugt er leitazt við að beita blekk- ingum í sambandi við umræður um utanríkismál og viila um fyr- ir mönnum. Breytingar þær, sem nú eiga sér stað í viðskiptamál- um Evrópu og raunar stöðugar byltingar í alþjóðamálum, skipta Íslendinga svo miklu máli, að nauðsynlegt er að þeir fylgist vel með og ræði málin frá öllum hliðum öfga- og hleypidóma- laust. Það telja Framsóknar- menn hins vegar hina mestu fá- sinnu og einmitt þess vegna dæma þeir sig úr leik. Það er ekki hægt að fela þeim mönnum forystu, sem þannig haga sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.