Morgunblaðið - 15.02.1963, Qupperneq 23
Föstudagur 15. febrúar 1963
MORGVNBLAÐIÐ
23
Búizt við langvar-
andi baráttu í írak
Kommúnistar leita stuðnings Kúrda
Bagdad, 14. f©br. AP-NTB.
NÝIA stjórnin í írak heldur
áfram baráttu sinni gegn
konunúnistum, og í nótt og
morgun mátti li_/ra skothríð
í höfuðborginni við bakka
Tigris-fljótsins. Hafa nokkr-
ir af leiðtogum kommúntsta
verið handteknir, og er búizt
við fleiri handtökum á næst-
nnni.
Áætlað er að alls hafi um
2.500 manns verið fangelsað-
ir frá því byltingin hófst fyrir
viku, en Abdel Salam Aref.
forseti byltingarstj órnarinnar,
neitaði í dag að gefa nokkr-
ar upplýsingar um fjölda
fanganna. Sagði hann á
fyrsta fundi sínum með frétta
mönnum að nauðsynlegt væri
að halda tölu fanganna
leyndri „með tilliti til ann-
arra Arabaríkja, sem enn eru
undir áhrifum heimsvalda-
sinna."
Við hlið Arefs á frétta-
mannafundinum sat Ahmed
Hassan al Bakr hershöfðingi,
sem er forsætisráðherra bylt-
ingarstjórnarinnar. Ræddust
þeir oft við áður en Aref
svaraði spurningum frétta-
manna, en Bakr svaraði sjálf
ur engum spurningum.
Kommúnistar
og Kúrdar.
Byltingarstjórnin hefur lýst
þvl yfir að öll mótstaða hafi
verið brotin niður. en allar
líkur benda til þess að enn
Skriðdreki á götu í Bagdad.
eigi stjórnin fyrir höndum
langvarandi baráttu gegn
kommúnistum. Hafa komm-
únistar komið sér upp leyni-
útvarpsstöðvum, og halda þar
uppi hörðum áróðri gegn
stjórninni. Hafa þeir m. a.
skorað á Kúrda, sem búa í
fjallahéruðunum í Norður
írak, að ganga í lið með
kommúnistum og berjast
gegn „afturhaldsstjórn“ Arefs.
„Kúrdar verða að berjast
hlið við hlið með arabiskum
bræðrum sínum og ráða nið-
urlögum hinnar blóðþyrstu
stjórnar Arefs . . . Isátið
ekki kommúnista berjast
eina.“ -sagði í einni útvarps-
sendingunni.
Kúrdar áttu mikinn þátt í
falli Kassems, og höfðu bar-
izt gegn honum í 18 mánuði
áður en byltingin var gerð.
Bifreiðir fluttar inn fyrir
190 milljónir króna 1962
SAMKVÆIWT bráðabirgffaupp-
gjöri Hagstofunnar voru á stff-
asta ári fluttar til landsins 2.761
hifreiff og nam innflutningsverff-
mæti þeirra um 190 milljónum
króna. Mestur varff innflutning-
nrinn frá Bretlandi, en þaðan
komu alls 1127 hifreiffir, þar af
686 landbúnaffarbifreiffir (Land-
Kover og Austin Gipsy). Vestur-
Pýzkaland var annað í röðinni
meff 993 bifreiffir, og Svíþjóff í
þriffja sæti meff 186 bifreiffir.
Ekki liggja fyrir upplýsingar
um hve Tnargar bifreiðir hafa
flutzt inn af hverri tegund, en
ekki fer á milli mála að lang-
efstar á lista eru Volkáwagen- og
Land-Rover-bifreiðir. Sundurlið-
un á innflutningnum er í aðal-
atriðum þessi:
1. Fólksbíiar:
V-Þýzkaland ........ 738
Bretland ......... 251
Frakkland ........... 95
Svíþjóð ............. 91
Hér er fylgzt
með innflu-
enzufaraldri
í ERLENDUM fréttaskeytum
til Mbl. er skýrt frá því, að
inflúenzufaraldur geisi um
þessar mundir á austurströnd
Bandarikjanna meff þeim af-
leiffingum, aff margir hafi lát-
izt og m.a. hafi skólum veriff
lokaff. 1
Blaðiff hefur snúiff sér tili
dr. Sigurffar Sigurffssonar,
landlæknis, og spurzt fyrir um
hvort nokkrar ráffstafanir hafi
veriff gerffar hér heima.
Landlæknir sagffi, aff fylgzti
væri meff málinu hér. Sjúk-
dómurinn virtist á byrjunar-
stigi og ekkert benti til þess aff
hann legffist þyngra á fólk en
hann gerir yfirleitt.
Hann sagffi, aff ekki væri
ástæða til ótta vegna þessa far1
ildurs í Bandaríkjunum og
endurtók, aff hér yrffi ná-
ivæmlega fylgzt meff þróun
hans. i
Tékkóslóvakía 89
Bandaríkin 60
Önnur lönd 37
Alls 1361
fyrir kr. 62,7 milljónir. 2. Stationbílar:
V-Þýzkaland 67
Tékkóslóvakía 48
Bretland 11
Bandaríkin 10
Önnur lönd 14
Alls 150
fyrir kr. 7,3 milljónir. 3. Landbúnaffarbifreiffir:
Bretland 686
Bandaríkin 63
V-Þýzkaland 5
Sovétríkin 4
Alls 758
fyrir kr. 62,1 milljón.
4. Sendi- og vörubifreiffir
undir 3 tonn:
V-Þýzkaland 106
'Bretland 51
Svíþjóð ‘ 28
Önnur lönd 14
Alls 199
fyrir kr. 10,8 milljónir.
5. Sendi- og vörubifreiffir
yfir 3 tonn:
Bretland 127
V-Þýzkaland 68
Svíþjóð 63
Bandaríkin 20
Önnur lönd 5
Alls 283
fyrir kr. 40.530 milljónir.
Leiðréttin"
í MINNINGARGREIN um Mekk
inó sál. Björnsson frá Hrísum,
sem birtist í Mbl. 12. þ.m. féll
óviljandi niður nafn albróður
hans, Amórs, búfræðings, síðast
bónda á Ufsum í Svarfaðardal,
en hann er látinn fyrir nokkrum
árum.
Einnig hefir orðið meinleg
prentvilla síðast í greininni. Þar
stendur: Kannski horfir hann
þangað o. s. firv. en á að vera:
hefir hann þangað o. s. frv.
Sn. S.
6. Almenningsbifreiffir,
slökkvi- og sjúkrabifreiðir
og kranabifreiðir:
V-Þýzkaland .......... 9
Bandaríkin ........... 3
Svíþjóð ......i...... 2
Bretland ............. 1
Frakkland ............ 1
Alls 16
fyrir kr. 5,6 milljónir.
Auk ofangreinds innflutnings
var talsvert flutt af bifreiðum
— Málning .
Framhald af bls. 24.
Óæskileg
efni skilin frá.
„Sjálfstæðar rannsóknir á
fiskolíum hófust á vegum rann-
sóknarstofunnar árið 1959 og
•hefur verið. haldið áfram síðan.
Hin sérstæða efnasamsetning
fiskolíanna hefir í för með sér,
að miklu erfiðara er að nýta
þær en flestar jurtaolíur. Hjá
rannsóknarstofunni hefir eink-
um verið unnið að því að fram-
leiða hjáefni í málningarolíur og
lökk. Hefur með efnafræðileg-
um aðferðum (directed interes-
terification) tekizt að skilja frá
fiskolíunum verulegan hluta
þeirra efna, sem teljast óæski-
leg í þurrkandi olíum. Beztur
árangur hefir náðst með ufsa-
lýsi’ og ýsulýsi enda hefir það
hæsta joðtölu af þeim fiskolíum,
sem reyndar hafa verið. Tilraun-
ir til framleiðslu á málningar-
olíum úr fiskolíum hafa þegar
borið þann árangur, að framleitt
hefir verið talsvert magn af
málningarolíu og hún prófuð hér
í stórum stíl og reynzt mjög vel.
Vonir standa til að hægt verði
að hefja framleiðslu á slikri
málningarolíu hjá hérlendu fyr-
irtæki áður en langt um líður.
Miklum tíma hefur verið var-
ið í að kanna ýmsar leiðir til
sundurgreiningar á fiskolíum.
Þá hafa einnig verið gerðar til-
raunir með framleiðslu á mono-
glyceridum úr ýmsu hráefni,
svo sem síldarlýsi, harðfeiti
(hertu þorskalýsi) og auk þess
þeim efnum, sem skilin hafa
verið frá fiskolíum með directed
interesterification. Þessum til-
raunum verður haldið áfram.“
til Bandaríkjamanna á Kefla-
víkurflugvelli, eða á þeirra veg-
um til Bandaríkjanna. — Ekki
hefur tekizt að fá heildartölur
um þennan innflutning frá um-
boðunuríi, en flestar voru bif-
reiðirnar frá Volkswagen, alls
155 á árinu.
Nauðatregt hjá
Akranessbátum
Akranesi, 14. febrúar
NAUT>ATREG er nú veiðin hjá
lín'uibátuinum, enda enginn á sjó
í dag og óvist að róið verði í
kvöld.
I gær bárust á land alls 45
torm af 12 bátuim. Aflahæstur
var Sæfari með 6.3 tonn og fór
aflinn stig hækkandi í tæpt tonn
á báit. — Oddur
— Afríku-sfúdentar
Framhalú af bls. 1.
maður samitakanna Tatah Tawia
frá G'hana. Tawia var handtek-
inn eftir árekstrana á þriðju-
dag, og í dag settur um borð í
flugvél, seim fór til London.
Samkvæmt þeim fréttum, er
borizt hafa, voru samtök stú-
dentanna mynduð í desember sl.
A mánudag hafði stjórn sam-
takanna fengið heimild til að
ræða við Todor Zhivkov forsæt
isráðherra um vandamál landa
sinna. Kdm stjómin á tilseittum
tíma í skrifstofu ráðherrans og
beið þar í fimm klukk<ustundir
án þess að Zhivkov léti sjá sig.
Sneru þá stúdentamir heim til
sín. En um kvöldið ruddist lög-
reglulið inn til stúdentanna og
handtók Tawia og stjórn sam-
takanna. Aikváföu stúdentarnisr
þá að fara í miótmælagön'gu
næsta dag.
Um 200 stúdentar tóku þátt í
gönguinni, og fóru þeir eftir
Leninbreiðgötunni. Áður en þeir
komust til miðborgarinnar, réðist
öflugt lögreglu- og herlið gegn
þeim og beitti kylfum. Meiddust
tugir stúdenta og fjöLmargir
handtekmir.
í frétt frá fsrael segir að marg
ir afrískir stúdentar hafi sótt um
leyfi tál að halda námi sínu á-
fram þar í landi. Fylgir það
fréttinni að þeim verði fúslega
veitt dvalarleyfi strax og form-
legar umsóknir hafa borizt.
ÁRNI GUÐJÓNSSQN
.. HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
s' CARr-ASTRÆT! .17
Chopin-
tónleikar
HALINA Czemy-Stefanska, sem
flutti Chopin-tónleika fyrir
styrktarfélag Tónlistarfélagsins í
Austurbæjarbíói í gærkveldi,
hefir um árabil verið víðfrægur
Chopin-túlkandi. Tækni hennsir
er glæsileg, áslátturinn blæ-
brigðaríkur og tök hennar á
viðfangsefnunum slík að marg-
kunnir húsgangar fá nýjan og
ferskan svip, hressilegri og mik-
ilúðlegri en oftast áður. Þegar
Chopin er leikinn á þennan hátt,
hlýtur áheyrandanum að renna
til rifja, hve mjög hitt er oft
undirstrikað, sem síður skyldi
— hið viðkvæmnislega og smáa
í verkum hans. — Hér er á ferð
tiginmannlegur fulltrúi pólskrar
menningar. sem mikill fengur er
að hafa fengið að kynnast.
Grotrian-Steinweg-flygillinn,
sem verið hefir í samkomuhúsi
Háskólans, er nú kominn í Aust-
urbæjarbíó. Hann sómir sér þar
vel, og ef til vill væri góð lausn
á hljóðfæravandræðum beggja
húsanna, að þessi flygill yrði
kyrr í Austurbæjarbíói en annar
kæmi í Háskólasalinn.
Loks verður að mælast til
þes t að næst þegar „stórbingo"
er á eftir tónleikum í Austur-
bæjarbíói. verði búið að flytja
á staðinn straubretti og annan
varning, sem bingóinu tilheyrir,
áður en tónleikarnir hefjast,
svo að umgangur um sviðsdym-
ar trufli ekki tónleikagesti og
dragsúgur á sviðinu baki heims-
frægu listafólki heilsutjón.
Jón Þór.irinsson.
— Wilson
Framh. af bls. 1
erfitt“, sagði hann. Næsta verk
efni verður að sigra í þingkosn-
ingunum, sagði Wilson. „Með sam
vinnu allra flokksmanna, bæði
utan þings og innan ætti einnig
að vera unnt að leysa það verk
efni“.
Wilson bar mikið lof á mót-
frambjóðanda sinn, George
Brown, og framlag hans til flokks
ins. Ekki er vitað hvort Brown
er fús til að taka að sér varafor
mennsku flokksins, eins og með-
an Gaitskell var formaður, en
væntanlega fæst það upplýst
fljótlega.
Wilson sagði að hann mundi á
föstudag gefa nákvæma skýrslu
um stefnu sína á fundi í heima
kjördæmi sínu, Huxton. Lýsti
hann að lokum fylgi sínu við þá
hugmynd að boðuð verði ráð-
stefna leiðtoga allra Jafnaðar-
mannaflokka Samveidisrikjanna.