Morgunblaðið - 06.03.1963, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.03.1963, Qupperneq 2
* MORGVlSBLAÐIb Miðvikudagur 6. marz 1963 Baldur Óskarsson „Daghlað", ný skáldsaga eftir r - Baldur Oskarsson KOMIN er út á vegum Bókaút- gáfuanar Fróða fyrsta skáldsaga Baildiurs Óskarssonar, blaða- raanns. Nefnist hún „Dagblað“ og fjallar, eins og nafnið bendir til, uim dagleg störf blaðamannia í höfuðstaðnum. Bókin skiptist í 11. kafla og er 125 bls., prenit- uð í Prentsmiðju Jóns Helgason- ar og er mjög smekleg að öll- um frágangi. Baldiur Óskarsson hefur áður gefið út eina bók, smásagnasafn- ið „Hitabylgja“, sem kom út árið 1960 og vaikti taisverða athygli. Afmælis- sýning At- vinnudeildai í TILEFNI af 25 ára afmæli At- vinnudeildar Háskólans hafa starfsmenn í hinum ýmsu deild- um komið upp sýningu á tækj- um .línuritum og öðru sem sýnir starfsemina í skrifstofum og vinnustofum. Hefur alþingis- mönnum og ýmsum öðrum starfs hópum verið boðið að skoða þetta og vegna fjölda áskorana verður almenningi gefinn kost- ur á að sjá einnig þessa sýningu kl. 2—7 í dag. Fiskideild Atvinnudeildarinn- ar er til húsa í nýja Fiskifélags- húsinu við Skúlagötu og er þar sýnd starfsemi deildarinnar. Á Lækjarteig 2 eru Byggingarefna deild og jarðfræðideild til húsa og hafa sýningu á verkefnum sínum og verkfærum. Og í gamla Atvinnudeildarhúsinu á Háskóla lóðinni hafa Iðnaðardeild og Búnaðardeild sýningar í húsa- kynnum sínum. Fengu 25 tonn í þorskanót Sumtal viö Þorleif, skip- stjóra, á Gullfaxa MORGUNBLAÐIÐ hafði í . gær fréttir af því, að vél- báturinn Gullfaxi frá Norð firði hefði fengið góðan afla í þorskanót út af Hornafirði. l»að er því víð- ar en við Reykjanesið, sem þorskanótin gefur góða raun, og í gær náðum við tali af Þorleifi Jónassyni, skipstjóra á Gullfaxa, austur á Hornafirði, þar sem báturinn lagði upp. — Hvað komuð þið inn með mikinn afla? — Við fengtím 25 tonn í þremur köstum hjá Hrollaugs eyjum. Við vórum að byrja með þorskanótina í g*r, en vorum áður á síld fyrir sunn an. — Voru fleiri bátar þama? — í>arna voru nokkrir neta bátar, en það var bræla svo færabátarnir komust ekki út. — Hvað eruð þið með stóra nót? inn af þvi að við höfðum ekki tunnur með okkur undir meiri gotu eða lifur. — ísið þið fiskinn? — Við ísuðum átján tonn, sem við fengum í tveimur köstum í fyrradag, en afgang inn, sem við köstuðum á í dag ísuðum við ekki, því það var fyrirsjáanlegt að við urð um að fara inn. — Hvað fenguð þið þetta- á miklu dýpi? — bað voru um fjörutíu faðmar þama, en loðnan er uppi um allan sjó og þorsk- urinn eltir hana. Við köstum bara á sílistórfurnar. — Ert þú einn með þórsk mót fyTiir austan? — Þráinn frá Neskaupstað er að fara af stað líka. beir fóru út í gær en urðu að fara inn aftur til að grynna nót ina, því hún var of djúp. ebir festu hana í botni. Við urðum. Varir við að hún snerti botn- inn hjá okkur líka, en það sak aði ekkert. — Er fiskurinn á stóru svæði? — Hún er 166 faðmar á lengd og 44 faðmar á dýpt. —Hver er möskvastærðin hjá ykkur? —- Það er ekki gott að segja Við týndum saman druslur í flýti og drifum okkur svo út. — Og þessi samtíningur hefur gefizt vel? — Já, en þarna er líka feikn armikill fiskur, og væri mjög gott ef veðrið væri skárra, en það hefur hamlað veiðum. — Var þetta ekki prýðis- góður fiskur, sem þið fenguð — Það held ég hljóti að vera, þvi það er ekki háfað meira en þeir hafa við að blóðga. Það er ekki einu sinni blóðgað svona ört á línunni. Þetta er mjög feitur fiskur og miki lifur í honum. Við sölt- uðum 16 tunnur af gotu úr aflanum í gser, enda mikill gotfiskur. Við urðum að fara — Já, hann er á stóru svæði. Færabátarnir brugðu sér út héðan frá Hornafirði í gær en voru ekki nema stutt. Þeir fengu upp í 7 skippund hérna beint fyrir utan. —- Hvernig hefur veiðin annars verið í vetur? — Aflinn hefur verið sæmi legur á línu, eiginlega tóm ýsa, en aftur á móti léleg í netin. Netaaflinn glæddist í dag og þeir fengu allt að 600 fiska í trossu. — Ætlarðu svo að drífa þig út strax? — Það þýðir lítið fyrr en með birtingu, því þorskurinn eltir ekki loðnuna nema í björtu. Annars er spáð hvass viðri á morgun. — Ertu ekki bjartsýnn á veiðarnar? — Mér lízt vel á þetta er tíðin verður góð. RÚGBRAUÐS- GERÐIN K/ERÐ BLAÐIÐ hafði af því spurnir í gær að rannsókn hefði farið fram í Rúgbrauðsgerðinni varðandi hreinlæti þar á staðnum. Blaðið sneri sér af þeim sök- um til formanns Neytendasam- takanna Sveins Árgeirssonar og spurði hann hvort samtökin hefðu haft afskipti af þessu máli. — Jú, svaraði hann. Neytenda- •amtökin fóru þess á leit við borgarlæknisembættið með bréfi dags. sl. föstudag að skyndirann- sókn yrði framkvæmd eins fljótt og unnt yrði á húsakynnum Rúg- brauðsgerðarinnar við Borgar- tún, en verulegur hluti brauðs þess, sem Reykvíkingar neyta daglega, er bakaður þar. Til þessa skrefs höfðu samtök- in vissulega fyllstu ástæðu, sagði Sveinn, enda reyndist grunur þeirra hafa við slík rök að styðj- ast að þegar að aflokinni hinni umbeðnu rannsókn, sem fram- kvæmd var f gær (mánudag) ákvað borgarlæknir að kæra málið til yfirsakadómara, sem hann mun hafa gert í dag. Blaðið spurði Svein á hverju þau hefðu byggt grun sinn, en hann kvaðst ekki sjá ástæðu til að skýra nánar frá því á þessu stigi málsins, á hvaða gögnum kæran hefði verið byggð, en þau hefðu reynzt fullnægjandi. Hins vegar var þetta ekki í fyrsta sinn, sem kvartanir hefðu verið bornar fram á hendur þessu fyr- irtæki til Neytendasamtakanna. Eins og málum var háttað hlutu samtökin að láta til skarar skríða og afgreiddi borgarlæknisembætt ið mál þetta af röggsemi, sagði Sveinn Ásgeirsson að lokum. Sylvia Stahlman og William Strickland virða fyrir sér út- sýnið frá 8. hæð á Hótel Sögu. Striikland bendir söngkon- unni á Keili. Bandarísk sungkona syngur mel Sinfóníuhijómsveitinni ANNAÐ kvöld syngur bandar- íska óperusöngkonan Sylvia Stahlman með Sinfóníuhljóm- sveit íslands í Háskólabiói. Syng ur söngkonan tvö lög úr Egmont- forleik Beethovens, sjö ljóðlög eft ir Allban Berg og tvær aríur eiftir Puccini. Auk þess flytur sin- fóníuihljómsveitin sinfóníu nr. 4 í a-dúr eftir Mendelsohn (ítölsku sinfóniuna). Stjórnandi er Will- iam Striokland. Blaðaimenn rseddu við Sylviu Stafhlman og William Striokland á Hótel Sögu í gser, en þau hafa f j óruim sinnum áður komið opin- berlega fram saman, m.'a. með RIAS-hljómsveitinni í Berlín. Stahlman hefur undanfarin fjög- ur ár unnið við óperuna í Franik- furt og er samningsbundin þar næstu tvö árin. Hún sagði, að margir bandariskir söngvarar d'veldust niú í Þýzkalandi, enda sönglíf þar með amiklum blóma og óperulhúsin mörg. Við óper- una í Frankfurt væru t.d. fjór- ir Bandaríkjamenn starfandi, og einnig fjölmargir frá öðrum þjóð uim, svo sem Júgóslavar, Austur- ríkismenn, írar, Englendingar og Norðmenn — að ógleymdum Þjóðverjunum sjálfum. Allar óperur væiru flluttar á þýzkri tungu. Sylivia Staihtonan er fædd 1 Tennesse-fyiki í Bandarikju.nuim en stundaði söngnám í New York. Að námi lokniu söng ihún um tvegigja ára skeið í Briissel, en fevarf til Bandaríkjanna aftur og söng þá í helztu óperum þar, bæði í San Fransisoo, Ohicago og New York City Opera. Húa hefur ferðast víða um Evrópu og sungið í mörgum borgum, svo sem Paris, Briissel, London, Berlín og Vín. Hún hefur einnig sungið inn á Decca-íhljómiplötur. Sylvia Staihlman syn.gur og 1 Ríkisútvarpið hér og flytur þac fimrn ný Ipg eftir bandaríska tónskáldið Rober.t Ward. Héðan fer hún n.k. laugardag tjl Þýzka lands og syngur í Wiesbaden á sunnudaginn kemuir. William Strickland er nýkom- inrí aftur til landisinis frá Florida. Hann stjómar hér tvennum tón- leikum, en fer síðan til Berlínar. Stokkhótons, Kaupmannahafnar og Gautaborgar til hljómsveitair- stjómar. Stricklanid er væntan- legur aftur 15. april og mun diveljast hór til 1. júli. Bók um Japan og ensk metsöluskáldsaga utkomnar mánaðabækur - AB TVÆR af mánaðarbókum Al- menna bókafélagsins, fyrir febrú- ar og marz, eru komnar út. — Febrúarbókin er ensk metsölu- skáldsaga eftir Constantine Fitz Gibbon og nefnist hún „Það ger- ist aldrei hér?“ í þýðingu Her- steins Pálssonar. Marzbókin er 5. bókin í bókaflokknum Lönd og þjóðir og er um Japan. Höf- undurinn, Edward Seidensticker, er ritstjóri tímaritsins Life, en þýðandi er Gísli Ólafsson. „Það gerist aldrei hér?“ „Það gerist aldrei hér?“ er spennandi og áhrifamikil skáld- saga um fagurmæli og fláræði, andvaralausan og skilningsvana almenning, sem voðinn vofir yf- ir og hremmir. Á frummálinu heitir bókin „When the Kissing had to Stop“, „Þegar kossarnir urðu að hætta“, og gefur það nafn allvel til kynna efnið. Þetta er ástarsaga, fléttuð inn í viðsjál veðrabrigði dagsins í dag, þegar hið skelfilegasta getur gerzt hve- nær sem er, án þess að almenn- ingur geri sér þess nokkra grein. Bókin kom fyrst út í apríl og varð strax metsðlusaga f ensku- mælandi löndum. Síðan hefur hún verið gefin út víða um lönd og hvarvetna ýtt óþægilega við lesendum sínum. Spurninginí „Þetta gerist aldrei hér — eða hvað?“ sækir stöðugt á við lest- urinn. En ef til vill gæti það gerzL Bókin nm Japan .... Bókin Japan er með sama sniðl og áður útkomnar bækur í bóka- flokkinum Lönd og þjóðir, ei» það eru Frakkland, Rússland, ítalía og Bretland. Hún er hin fegursta að öllum frágangi, hátt á annað hundrað mynda af hlut- aðeigandi landi og þjóð og textl sem mun svara til um 160 blað- síðna í venjulegu broti. Japan er einna fjarlægast þeirra landa, sem við íslending- ar höfum einhver viðskipti við. Þjóðina þekkjum við lítið, enda hefur okkur löngum gengið illa að skilja ýmislegt í fari hennar, Úr því skilningsleysi mun þessl bók vissulega að einhverju leyti bæta. Hún kynnir okkur meu Framhald á bls. 23,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.