Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 22
22 MORCVNBL4Ð1Ð / Miðvikudagur 6. marz 1963 Sundráð Rvíkur hefir alvar- lega hrotið sundreglurnar" Eftir Einar H. Hjartarson VEGNA aðdróttana þeirra, sem ég hefi orðið fyrir á íiþrótta- síðum Morgunblaðsins, Vísis og Alþýðublaðsins, um að ég hafi fellt rangan úrskurð varðandi niðurröðun keppenda á brautir á sundmóti KR, sem haldið var fimmtudaginn 28. febr. s.l. óska ég að taka fram eftirfarandi og sýna fram á með rökum að ég hafi á réttu að standa. Frá því fyrst að keppni hófst í Sundhöll Reykjavíkur hefir það verið venja að færa saman keppendur í riðlum, ef vanhöld hafa orðið það mikil að slíkt hafi verið hægt. Eins og allir, sem horft hafa á sundmót vita, er ekki hægt að bjóða uppá að láta einn eða tvo menn synda í riðli, ef hægt er að fylla riðilinn og í öðru lagi þá er aðstaða fyrir á- horfendur í sundhöllinni þannig að óverjandi er að gera sér leiik að því að halda þeim fáu áhorf- endum, sem ennþá sýna þann áhuga að horfa á sundmót, leng- ur en þörf krefur í þeim hita, sem þar er. í>á hefir einnig tíðk- ast, til hagræðis fyrir áhorfend- ur að láta efsta mann á skránni í viðkomandi sundi, synda á fyrstu braut, næst efsta á ann- ari' braut o.s.frv. með því geta áhorfendur fremur áttað sig á hver syndir á hverri braut. Að vísu er þetta ekki lögum sam- kvæmt, því skv. 22 gr. sund- reglna S.S.Í. er skylt að láta keppendur draga um brautir, þó mega sundstjórar félaganna ann- ast það hver fyrir sína keppend- ur. Á sundmóti K.R. var mót- mælt þssum hætti, sem hafður hefir verið á um skipan á brautir þegar riðlar eru sameinaðir. Á- kvað ég þá samstundis að ..láta keppendur draga um brautirn- ar, hvað þrír af þeim gerðu, en sá fjórði, okkar ágæti sundmað ur og sundráðsmaður úr Í.R. Guðmundur Gíslason neitaði, og krafðist að fá að synda á ann- arri braut; þar sem hann hefði beztan tíma keppenda, og ætti þar af leiðandi rétt á beztu braut inni. Þetta vildi ég ekki fallast á, énda hefi ég öll þau ár, sem ég hefi fylgzt með og starfað fyrir íþróttirnar talið að í keppni ættu allir' að standa jafnt að' vígi og er mér ekki grunlaust að flestir forystumenn íþróttanna hafi sömu skoðun. þegar Guð- xnundur fékk ekki vilja sínum, framgengt kvaðst hann ekki keppa 'í sundinu, en við því gat ég náttúrulega ekkert gert, ég 5 * Ódýrir kvenskór í bomsur kr. 150 Péturs Andréssonar Framnesvegi 2.___ vil geta þess hér að hann bar fyrir sig alþjóðareglur i ' sundi, sem samþykktar voru í Róm 1960 og gilda til ársins 1964. Fyrir okkur íslendinga gilda þær að- eins í alþjóðakeppni eða lands- keppni, þar sem þær hafa ekki verið gefnar út eða samþykktar af sundsambandi Xslands sem okkar reglur. Sú lagagrein, sem Guðmundur ætlaði að hanga í er no. 62 og segir þar að draga skuli um brautir í undanrásum svo og, ef ekki fari fram undan- rásir, þá skuli einnig draga um brautir í úrslitásundinu, sem sagt það er eins hægt að raða keppendum niður á brautir í úrslitasundi eftir tímum ef fram hafa farið áður undanrásir, þetta segja alþjóðareglurnar. Nú hefði mátt ætla að Guðmundur hefði tekið sarnan pjönkur sínar og horfið frá allri keppni á mótinu þar sem að hans áliti höfðu ver- ið freklega brotnar á honum leik reglur. Nei, svo var ekki, hann synti í þremur sundum, sem hann var skráður í og í öllum 'sundunum synti hann á annarri braut, en á þá braut setti hann sig sjálfur þegar raðað var nið- ur í keppninni, og kki nóg með það heldur sýnir hann K.R. þá lítilsvirðingu að vilja ekki taka á móti verðlaunum úr hendi for- manns K.R. Einars Sæmunds- sonar. Þess má og geta að þeir Sigurður Sigurðsson, (Akranesi), sem nú keppti fyrir Í.R. og Þor- steinn Ingólfsson sýndu sama skort á háttvísi en þeir kepptu í boðundsveitinni ásamt Guð- mundi. Eg vil skjóta því hér til stjórnar sundsambandsins, þar sem upplýst hefir verið að sund ráð Reykjavíkur hefir alvarlega brotið sundreglurnar með því að mismuna keppendum, hvort ekki væri rétt að sambandið ryndi að sveigja stefnu sundráðs ins inn á brautir réttu megin við lög og reglur. í sambandi við skrif þau, sem Atli Steinarsson hefir látið frá sér fara á Íþróttasíðu Morgun- blaðsins og befir farið þar rangt með staðreyndir, sem hann að vísu hefir verið að reyna að kingja aftur, vil ég segja þetta, að lesendur íþróttasíðunnar gætu freistast til að halda að þar gripi inní félagapólitíkin en báð ir eru ÍR-ingar. Til skýringar á þessu vil ég geta þess að Atli hefir starfað í mörg ár að sund- málum og þekkir gjörla reglur þær, sem gilda, þótt sunddóm- arapróf hans sé orðið gamalt. Um skrif Arnar Eiðssonar í Alþýðublaðinu og Jóns Birgis Péturssonar í Vísi ætla ég ekki að fjölyrða, en ég dreg í efa að þeir hafi nokkurntíma lesið sund reglurnar. Verð ég því að virða þeim til vorkunar skrif þeirra, því þeir vissu ekki betur, þótt þeir hefðu auðveldlega getað fengið þær upplýsingar, sem á vantaði svo þeir hefðu getað flutt rétt mál. Einar H. Hjartarson. leikstjóri. Flísin í auga leikstjórans ÞAÐ er kaldhæðnislegt, en dá- lítið táknrænt dæmi um ást og kunnáttu á reglum, að leikstjóri síðasta sundmóts skuli með orða flaumi á nær tveimur dálkum reyna að sanna „Eg hafði á réttu að standa“. En það finnst því miður í dómara og starfsmanha stétt ’íþróttamóta hér menn sem aðhyllast vigorðið. „Eg veit þetta allt manna bezt“. Þrátt fyrir dálkana tvo frá leikstjóranum er eftirfarandi staðreyndum ósvarað. . 1. Prentuðu sundreglunum, sem leikstj. grípur fálmandi til í villu sinni, hefur margoft verið breytt, þótt ekki hafi komið út aðrar prentaðar reklur í staðinn. Má til nefna breytingar á flug sundi, bann við kafsundi í bringu sundskeppni o.fl. Engin þessara breytinga er skráð í bókina sem leikstjórinn segist verða að fara eftir — en þó treystir hann sér að vera leikstjóri. 2. Meðal annara breytinga sem gerðar og tíðkaðar hafa ver ið á þessum reglum er niður- „röðun“ í riðla og á brautir. SRR og SSI hafa viðhaft niðurröðun ekki drátt — og engan annan hátt á í um eða yfir 2 ár, og áður var sterkustu mönnum (fljót- ustu) alltaf raðað á miðbrautir þó stundum væri dregið milli annara. 3. Leikstjórinn segir: „Það á að draga um brautir samkv. gild andi reglum“. En því lét hann Framhald á bls. 23. B-liðs menn úr Hfeflavík og Hafnarfirði eigast við um boltann. Skemmtilegir eikir i inn- Ennþá vantar þó aðstæður til að leika innanhúss INNANHÚSSMÓT VÍKINGA í knattspyrnu vegna 55 ára af- mælis félagsins hófst í fyrra- kvöld og komu öll liðin fram, 14 talsins og voru leikirnir 7. Þó innanhússknattspyrna verði hér aldrei nema svipur hjá sjón mið- Körfuknattleik- ur i kvöld f KVÖLD fara fram að Háloga landi þrír leikir í meistaramót- inu í körfuknattleik, allir í yngri flokkúnum. Leikirnir hefj ast kl. 8,15, og leika þá a-lið ÍR gegn KFR og a-lið Ármanns gegn ÍR í 2. flokki. Leikir þessir voru áætlaðir annað _ kvöld, og tilkynntir þannig að þeir verða leiknir í kvöld. ZSL ”q~ bilasalg Berg|)órugótu 3. Símar 19032, 20070 Seljum i dag International sendiferðabíl með stöðvarleyfi. Ford Zephyr Wiliys jeppi ’55 GUÐMUNDAR Bergþ6rugötu 3. Slmjtr 1M32, 20*70 að við erlendis vegna ófullnægj- andi vallarútbúnaðar, þá brá fyr ir skemmtilegum Ieikköflum, baráttu og góðum leik. Hörðustu leikirnir voru þar sem A- og B-lið KR mættust og A- og B-lið Þróttar. Báðir leik- irnir urðu mjög spennandi. A-liði Þróttar tókst að jafna fyrir leiks- lok og tryggja sér sigur og áfram hald í keppninni í framlengingu leiks. En B-lið KR, sem náði ör- uggri forystu í leiknum við A- liðið varðist harðri og oft tví- sýnni lokasókn A-liðsins og B- liðið heldur áfram í keppninni R O V A l köldu húðinqarni' eru hraqðgóðir og handhcegir en A-liðið er úr leik, eftir ósig- urinn 3 gegn 4 mörkum. Þá varð allhörð keppni milli Fram A og Víkings A. Náðu Vík- ingar góðri forystu í fyrri hálf- leik 3—1 en Framarar skoruðu öll mörk í síðari hálfleik og unnu 5—4. Voru skemmtilegir kaflar í þessum leik. Tilþrifaminni og stundum til- viljanakenndir voru aðrir leikir. Víkingur B vann Hauka A með 5—4. Keflavík A vann Val B- lið með 5—4 og Valur A vana Fram B örugglega með 5—2. — Keflavík B vann svo loks Hauka B með 7—6. Eftir í keppninni og úrslitum I gærkvöldi voru því Keflavík með A og B-lið, Fram A, Valur A, Þróttur A, KR B og Víkingur B-lið. Fermingarskór Stærðir 36—40. Verð kr. 334,-. Stærðir 37—41. Vérð frá kr. 285,- Skóhúsið Hverfisgata 82. Sími 11-7-88.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.