Morgunblaðið - 06.03.1963, Page 10

Morgunblaðið - 06.03.1963, Page 10
f 10 MORGVlSBLAÐltí Miðvikudagur 6. marz 1963 FJORÐA STULKAN FYLGDI HONUM - Ilk hennar fannst 80 dögum síðar LAUGARDAGINN 26. febrú- ar var þrítugur verzlunar- maður, Carl Jacob Schnitler, handtekinn í Bergen og hefur hann játað á sig að hafa nauðg að og síðan drepið 15 ára gamla stúlku, Ritu Elisabetu Hákonsen í lok nóvembermán aðar í haust, en lík hennar fannst ekki fyrr en um miðj- an febrúar sL Mikið var skrifað um málið í norskum blöðum þennan 2Vz mánuð, sem leið frá því Rita hvarf og þangað til hún fannst og óhugur hefur verið í fólki í nánd við Bergen, með- an vitað var að gerræðismað- ! urinn léký lausum hala. En grunur lék á hvað gerzt hefði, Carl Jacob Schnitler — öllum kom saman um að þetta væri kurteis og prúður ungur mað- ur. vegna framburðar þriggja telpna, sem maður hafði reynt að lokka upp í bílinn til sín þennan sama dag. Höfðu þær því allar séð manninn, sem þær kváðu vera 25—30 ára gamlan, ljóshærðan stutt- klipptan, nýrakaðan, og klædd an dökkum frakka og sögðu að hann kæmi kurteislega fram og virtist elskulegur. Hann æki í ljósum Volks- wagenbíl. Þegar hann hitti yngri telp- urnar tvær, Ritu Östgaard og Fjólu Ravn, sem eru 12 ára, stóðu þær fyrir utan matvöru- verzlun. Þegar þær vildu ann- að hvort vísa honum leið að ákveðinni búð, sem hann spurði um, báðar eða hvorug, ætlaði hann að láta þær báðar í aftursætið, en Rita settist í framsætið. Þó sá hún hann ekki vel, af því ekki var Ijós í bílnum. Þegar þær bentu honum á verzlunina, sem hann kvaðst vera að leita að, leit hann varla á hana, en sneri bílnum og ók þeim til baka þangað sem hann hafði tekið þær upp. Síðan reyndi hann að fá Hjördísi Ravn upp í bíl- inn, eins og skýrt er frá á öðrum stað, en án árangurs, Ætlaði til vinkonu sinnar Rita Elisabeth Hákonsen, sem var 15 ára gömul, bjó skammt frá þar sem Schnitler hitti Hjördísi. Um kl. 7 um kvöldið sagði hún foreldrum sínum að hún ætlaði að skreppa til vinkonu sinnar, eins og hún gerði pft, og tók með sér hljómplötu og viku- blað. Einnig fékk hún regn- hlíf að láni hjá föður sínum. Leið hennar lá upp brekku og við um 500 m. kafla veg- arins eru engin hús og gatan illa upplýst. Kl. 7.45 lagði vin kona Ritu af stað á móti henni, þar eð hún var ekki komin, en sá ekkert óvenjulegt á leið- inni. Þegar ekkert hafði til Ritu Elisabethar spurzt kl. 10 um kvöldið var hafin leit að henni, sem síðar varð geysi- lega umfángsmikil. Maðurinn í ljósa Fólksvagninum þótti strax tortryggilégur, 'en í leit- inni að þessum bíl var lög- reglan leidd nokkuð á villi- götur vegna þess að slíkum bíl hafði verið stolið úr bíla- leigu og ekið 30 km. þessa nótt. En seinna kom í ljós að þjófarnir voru ekki viðriðnir hvarfið á Ritu. Meðal nokkurra sem grun- ur beindist að varð fljótlega ungur maður, Carl Jacob Schnitler, einkum þar sem hann hafði árið 1961 verið dæmdur fyrir að slá stúlku í höfuðið með gúmmíkylfu og sat þá í fangelsi í 3 mánuði. Lék grunur á að hann hefði þá haft í hyggju kynferðisbrot, en það sannaðist ekki. Schnitl Rannsóknarlögreglan þýddi snjó og ís af yfir 100 fermetra svæði kringum. staðinn þar sem líkið fannst, í leit að upp lýsingum. Notuð voru tæki sem blása heitu lofti. Verkið tók 3 daga. mikla rannsókn á staðnum. Allt var þakið snjó, en unnið var að því í 3 daga að blása heitu lofti og eldi á snjóinn og ísinn og þíða allt svæðið. Þannig fundust bílförin eftir lítínn bíl, sem ekið hafði verið þannig að opinu á leiðslunum, að afturhurðin nam við hler- ann og því auðvelt með einu handtaki að lyfta líkinu yfir í' felustaðinn. En það hefur vafa laust verið hulið teppi, sem telpurnar er settust upp í bíi- inn, sáu í aftursætinu. Hanzkinn kom upp um morðingjann Nú var gerð húsrannsókn hjá hinum þrítuga verzlunar- manni, Carl Jacob Scnitler, og eftir að lögreglan hafði fundið hanzka Ritu heima hjá hon- um, játaði hann á sig verkn- aðinn, sem hann kvaðst hafa framið skammt frá Mathopen. Á líkinu sást að stúlkan hafði varið sig og fengið skrámur í viðureigninni, en verið að lok • ' ' ................................. ^.............. Rita Östgaard — fór með Fjólu í bil morðingjans. verið í æstu skapi er hann fór að heiman daginn sem hann barði stúlkuna í höfuðið árið 1961, og það hafði einnig verið þennan dag. í fyrra skiptið Rita Elisabeth Hákonsen — stújkan sem var myrt. er átti ljósan Fólksvagn um þetta leyti, og sannaðist að hann hefði þvegið hann mjög vandlega laugardaginn eftir að stúlkan hvarf. En sannan- ir vantaði og ekki var einu sinni hægt að sanna það að stúlkunni hefði verið mein gert, þar eð hún var bara horf iru Líkið í vatnsleiðslu En tveimur og hálfum mán- uði eftir hvarfið, fannst lík hennar fyrir hreina tilviljun. Aðalleiðslan frá vatnsvirkjun unum norðan við Bergen sprakk í hinum miklu kuldum við stað sem nefnist Jómfrúr- dammen. 'Skipt var um hluta af leiðslunni, en áður en hægt yrði að hleypa vatninu á, þurfti að losa loft úr leiðslun- um. Yenjulega hefði þetta ver- ið hægt með lítilli fyrirhöfn, en meðan vatnið flóði yfir hafði lofthani frosið fastur og þurfti því að ná upp loki, sem var 50x50 sm. að ummáli. Þeg ar hinu þunga loki var lyft af, sást að þar lá Rita. Það lék enginn vafi á því hver þetta var, þó pilsið væri dreg- ið upp yfir höfuðið, svo morð- inginn þyrfti ekki að sjá fram an í hana meðan hann kom henni var regnhlífin, hljóm- henni var regnhlífinn, hljóm- platan og vikublaðið, allt sem hún hafði haft með sér nema annar hanzkinn. Þarna hefði hún getað legið í mörg ár, án þess að nokkur vissi um h?ir.a, ef ekki hefði komið til röð af tilviljunum. Það þótti sýnt að morðing- inn væri kunnugur þarna, því erfitt var að koma þar við bíi nema þekkja staðhætti og strax komu fram vitni, sem höfðu séð bílljós þarna uppfrá umrætt kvöld. Hann hefur orð ið að aka bílnum í myrkri eftir mjóum vegi meðfram stífl- unni og alveg út á vegarenda • á brekkubrún, þar til hann stóð alveg við lokið. Lögreglan hóf nú umfangs- Kortið sýnir umhverfi Bergen. Morðinginn tók stúlkuna upp í bíllinn í Mathopen, framdi morðið skammt frá ,ók gegn- um borgina þvera og kom líkinu fyrir í Eidsvaag, þar sem merkt er með krossi > um kyrkt, sennilega með háls- klúti. Fjarverusöpnunin, sem Carl Jacob Schnitler hafði borið fyrir sig, hafði alltaf þótt grun samleg. Ha.nn kvaðst hafa ver ið á samkomu í ákveðinni kirkju, en hvorki presturinn né aðrir sem til náðist, könn- uðust við að hafa séð hann þar. Eins þótti það ætíð tor- tryggilegt að hann hafði borið það að hafa orðið reiður og sló hann ekki nógu fast, og stúikan komst undan. Lögreglan hefur ekki enn gefið nákvæmar upplýsingar um framburð hans, segir að það verði að bíða réttarhald- anna. En eitt er víst, að þenn- an dag hefur Carl Jacob Schnitler ekið um í leit að einhverri stúiku og þykja telpurnar þrjár, sem fyrr eru nefndar hafa átt gætni sinni lífið að launa. Drangafökull laskast á Elbu DRANGAJÖKULL varð fyrir þvi óhappi, er hann var á siglingu á Elbu frá Cuxhaven til Hamborg ar, að hann lenti í árekstri við 10 þús. tonna pólskt flutninga- skip, Tobruk að nafnL Hvorugt skipanna skemmdist mikið, en Drangjökull varð þó að fara til viðgerðar í Hamborg. Skipið verð ur aftur tilbúið til siglingar á föstudag. IMVit SKOLA- FLYGIEL AKRANESI 5. marz. FLYGILL, nýkominn til lands- ins, var vígður í Gagnfræða- skóla Akraness í morgun af Hauki Guðlaugssyni, skólastjóra Tónlistarskóla Akraness, ásamt kennara og nokkrum nemendum þeirra. Vígsluathöfnin fór fram I viðurvist allra nemenda gagn- fræðaskólans, fræðsluráðs, bæj* arstjóra og fleiri gesta. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.