Morgunblaðið - 06.03.1963, Síða 20

Morgunblaðið - 06.03.1963, Síða 20
20 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. marz 1963 ÞATRICIA WENTWORTH: MAUD SILVER KEMUR í HEIMSÓKN March sagði: — í»á hefði get- að legið beint við að gruna Carr Robertsson. Ungfrú Silver hristi höfuðið. — Já, fljótt á litið, en raun- verulega ekki. Við skulum at- huga hvað fram hefur komið um máiið: Hann hefur snögglega uppgötvað það, að það er James Lessiter, sem hefur dregið kon- una hans á tálar og yfirgefið síðan og hann þýtur þarna út úr húsinu. En hann fer ekki í Mellinghúsið, heldur fer gang- andi alla leið til Lenton og tef- ur lengi hjá Elísabetu Moore. Þau voru einu sinni trúlofuð, en skildu síðan og nú sættast þau aftur. f>að er vitanlega hugs anlegt, að maður, sem þannig er ástatt fyrir, fari að fremja morð, en ótrúlegt finnst mér það, og ég held ekki, að ef hann hefði framið morðið, þá hefði hann farið að koma heim með 56 blóðugu regnkápuna, og sýnt hana frænku sinni með þessum Orðum: „Hversvegna gerðirðu það?“ — Gerði han» það? — Já, Randal. l>að sannfærði ungfrú Cray um sakleysi hans, og það sannfærði mig líka. I>ó ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN VOLKSWAGEN ER mi >i?í _____x m Ví 'ttf. p mms 5vi-jx-tm KW p m r-r/ m>. fii ('X-f'*. 'V/t\Myírjri manno bíll! Hann er ódýr í rekstri og með loftkældri vél. Hann hefur sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli og lætur vel að stjórn við erfið skilyrði. Hann er með nýtt, endur- bætt hitunarkerfi. Volkswagen-útlitið er alltaf eins og því eru endursölu- möguleikar betri. — VERÐ FRÁ KR. 121.525.— PANTIÐ TlMANLEGA SVO AÐ VIÐ GETUM AFGREITT EINN TIL YÐAR FYRIR VORIÐ. HEiLDVERZLUNIN HEKLA HF Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275. aC ég hefði ekki 1%'nnzt honum mikið, hafði ég fengið allgóða hugmynd um innræti hans. í>að hefði verið hægt að æsa hann upp í ofbeldisverk, en aldrei í tvöfeldni eða þjófnað. Og ef hann hefði myrt manninn, er það alveg óhugsandi, að hann hefði reynt að koma sökinni á ungfrú Cray. — Það er ekki nema satt. Og hvað kom svo næst hjá þér? Hún hóstaði ofurlítið. — Mér fór að detta I hug Katrín Welby, en komst þar ekki að neinni niðurstöðu. Bæði af eigin viðkynnningu og af- spurn, hafði ég komizt að þeirri niðurstöðu, að hún væri köld og sérgóð. Og ég vissi, að hún var ósannsögul og mig grunaði, að hún væri ófróm. Hann lyfti augnabrúnunum. — í>að munar ekki um það! Allt þetta, en ekki morðinginn? Hún hristi höfuðið ásakandi. — 'Ég gat ekki hugsað mér hana berja mann í höfuðið með eldskörung. Er hún hefði ætlað að myrða einhvern, hefði hún að mínu áliti vafalaust notað eitur til þess. Kona, sem er svO fín með sig, hefði þurft að vera alveg viti sínu fjær af reiði, áð- ur en hún gæti drepið mann á svo hroðalegán hátt. Og að mínu áliti hefði frú Welby aldrei getað orðið viti sínu fjær af reiði. En þrátt fyrir þetta vissi ég, að hún bjó yfir einhverju, sem hún vildi halda leyndu, og vitanlega reyndist það rétt vera. March hallaði sér aftur í stólnum með glettnislegum að- dáunarsvip. — Og þá komum við að hr. Holderness. Þú skilur, að mig langar nú mest að vita, hvernig þér datt hann í hug. — Þáð gerðist nú á einfald- asta hátt, sem hugsanlegur er. Hún stóð upp til að mæla erm- ina og þegar hún fann, að hún var orðin nógu löng, tók hún að fella af. — Þetta snýst í raun- inni allt um þessar fjórar gull- styttur. Þeim var stolið, ekki af neinni tilviljun, heldur að yfir- lögðu ráði. Og ég tek tilganginn með því að hafa verið tvöfald- an. Verðmæti myndanna kom þar við sögu, og svo sá tilgang- ur að láta þetta lita út eins og innbrot. Ég varð að gera mér ljóst, hver hefði næga sérþekk- ingu á myndunum. Ég var þegar búin að strika út ungfrú Cray, Carr Robertsson og frú Welby. Sú síðastnefnda hefði vel getað stolið þeim, hvað snerti viljann til verksins, en hún lá þegar undir grun fyrir óráðvandlega meðferð annarra hluta, og ég taldi hana vera of varkára, til að fara að bæta þjófnaði ofan á það. — En duttu þér aidrei í hug — Ég veit það, kæra harn, að það er erfitt að vera ástfanginn, en það gengur fljótt yfir. Mayhew-hjónin? Það fer varla hjá því, að þau hafi vitað um verðmæti myndanna. — Ég held, að þau hafi tekið myndirnar eins og hvern annan sjálfsagðan hlut. Þegar einhver hlutur hefur verið á sínum stað svo lengi sem menn muna, tekur maður beinlínis ekki eftir hon- um lengur. Ég tók vitanlega eft- ir sálarástandi frú Mayhew, en það gat eins hafa verið út af áhyggjum um son he.nnár, því að undireins og sannleikurinn um hann kom í Ijós, snarbatn- aði henni. Hvað manninn henn- ar snerti, hafði ég orðið þess vö_’, að hann var almennt virt- ur í Melling. Ég held, að í þorpi eins og Melling, sé óhugsandi að hafa það mannorð, -sem hann hafði, án þess að verðskulda það. Einnig er það, að ef borinn er saman tíminn þegar hann kom með vagninum frá Menton og tíminn, þegar Carr Robertson kom þarna þá var óhugsanlegt, að hann hefði getað framið morðið. Hr. RobertsOn hlýtur að hafa komið í Mellinghúsið um hálfellefu. Þá var Hr. Lessiter dauður og regnkápan blóðug. Hr. Mayhew kemur frá Lenton með síðasta vagni, sem kemur ekki til Melling fyrr en klukkan ellefu. Þessvegna varð ég að finna út, hverjir fleiri gætu ver- ið sannfróðir um stytturnar og verðmæti þeirra. Og þá var það, að mér datt hr. Holderness í hug. SHUtvarpiö 8.00 12.00 13.00 14.40 15.00 17.40 18.00 18.20 18.30 18.50 19.30 20.00 Miðvikudagur 6. marz. Morgunútvarp. Hádegisútvarp. „Við vinnuna": Tónleikar. „Við sem heima sitjum“: Ann ar lestur sögunnar „Gestir" eftir Kristínu Sigfúsdóttur. Síðdegisútvarp. Framburðarkennsla í dönsku og ensku. Útvarpssaga barnanna: „Vista skipti" eftir Einar H. Kvaran; IV. (sögul.) (Helgi Hjörvar). Veðurfregnir. Þingfréttir. Tilkynningar , Fréttir. Varnaðarorð: Sæmundur Auð 20.05 20.20 21.00 21.45 22.00 22.10 22.20 22.40 23.25 unsson skipsrjóri talar um ör. yggi á sjó. Tónleikar: Lúðrasveit útvarps ins í Leipzig leikur; Otto Kayser stj órnar. Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Ólafs saga helga; XVIII. (Óskar HaU- dórsson cand mag.). b) Sigurður Jónsson frá Brún fer með frumort kvæði. Föstuguðsþjónusta í útvarps- sal. — Prestur: Séra Sigurður Pálsson á Selfossi. Organleik- ari: Jón G. Þórarinsson. Stúlk ur úr Barnamúsikskólanum syngja. íslenzkt mál (Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.). Fréttir og veðurfregnir. Passíusálmar (21). Kvöldsagan: „Svarta skýið'* eftir Fred Hoyle; V. (Örn- ólfur Thorlacius). Næturhljómleikar: Dr. Róbert Abraham Ottóson stjórnar tónleikum í Jerúsalem 15. nóv. s.l. Kol-ísrael sinfóniu- hljómsv. leikur. Einleikari á píanó: Varda Nishri. Dagskrárlok. Fimmtudagur 7. mari. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Á frívaktinni": sjómanna- þáttur (Sigríður Hagalín). 14.40 „Við, sem heima sitjum" (Dag rún Kristjánsdóttir). 15.00 Síðdegisútvarp. 17.40 Framburðarkennsla í frönskn og þýzku. 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Margrét Guðmundsdóttir og Valborg Böðvarsdóttir). '18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 19.00 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Um leiklist; síðara erindi (Har aldur Björnsson leikari). 20.20 Tónleikar: Waldemar Wolsinf leikur á óbó. 20.35 Erindi: Bindindisráð krlstinna safnaða (Pétur Sigurðssoa ritstjóri). 21.00 Tónleikar Sinfóniuhlj ómsveit- ar íslands í Háskólabiói; fyrri hluti. Stj.: William Strickland Einsöngv.: Sylvia Stahlman, Hörpul. Jude Mollenhauer. 21.45 Upplestur: Jón frá Pálmholt! les frumort Ijóð. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar (22). 22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið‘* eftir Fred Hoyle; VI. (Örn- ólfur Thorlacius). 22.40 Djassþáttur (Jón Múli Árna- son). KALLI KUREKI K — -X Teiknarú Fred Harman t — Ég finn reykjarlyktina, en sé ékki eldinn. Við hljótum að vera nærri. — Þeir hafa sennilega byrgt eldinn með öskiL — Það er eitthvað á seiði þarna. Ég heyri að hesturinn stappar niður löppunum. — Allt í lagi, en ekki meira um það. Ég ætla að læðast og komast á bak við þá Þú skalt skríða eins nálægt þeim og þú getur. Ég reyni að fá þá til að gefast upp, en ef það gengur ekki þá verður þú að sjá um Bvkkju-Bjarna. 16250 VINNINGARI Fjórði hver miði vinnur að meðaltalil Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur, Lægstu 1000 krónur. Dregið 5. hvers mánaðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.