Morgunblaðið - 10.03.1963, Side 1
24 siður og Lesbók
50. árgangur
58. tbi. — Sunnudagur 10. marz 1963
Prentsmiðja Mo»-gunbla8sins
Tugir
manna
farast
I FREGNUM frá NTB í dag
segir, að snemma morguns
(ísl. tími) hafi orðið miklar
sprengingar í verksmiðju-
byggingum, önnur í S-Afríku
en hin í V-Þýzkalandi. — Um
þaö bil 60—70 mpnns hafa far
izt í slysum þessum og um 80
manns særzt svo að flytja
varð í sjúkrahús.
★
JOHANNESBURG, 9. marz. —
Snemma í morgun varð mikil
Sprenging í stóri dynamitverk-
smiðju skammt utan við Jó-
hannesborg. Óstaðfestar fregnir
herma, að 35—45 verkamenn
háfi týnt lífi, en líklegt er talið,
að þeir séu enn fleiri. Nær þrjá-
tíu manns hafa verið fluttir 1
sjúkrahús, sumir í lífshættu.
Sprengingin heyrðist í 30 km
fjarlægð og rúður brotnuðu í
húsum, sem voru í allt að 8 km
fjarlægð frá staðnum.
★
ARNSBERG, V-Þýzkalandi. —
Að minnsta kosti fimmtán manns
týndu lífi í mikilli sprengingu,
Framhald á bls. 2.
Salah Bitar mynd-
ar stjórn í Sýrlandi
Var menntamala- og öryggismálaráðh.
Sýrlands, er það var tengt Egyptalandi
Kairo og Damaskus, 9. marz.
NTB-Reuter.
• Fáar nýjar fregnir hafa bor-
izt frá byltingarmönnum í Sýr-
landi í dag. Þó tilkynnti útvarpið
í Damaskus snemma í morgun,
að mynduð hefði verið ný stjórn
undir forsæti Salah Bitar, • en
hann var menntamála- og ör-
yggismálaráðherra landsins með-
an það var í sambandi við
Egyptaland.
• Útgöngubann var enn hert i
gærkvöldi og nótt en létt í
nokkrar klukkustundir í dag.
Allir hópfundir eru bannaðir og,
að því er fréttastofan Mið-
Austurlönd í Kairo hermir, hafa
byltingarmenn stöðvað útkomu
allra blaða nema þriggja morg-
unblaða. Fá þau að halda áfram
göngu sinni en verða ritskoðuð
jafnóðum.
Fregnum af byltingunni í Sýr-
VIÐTALIÐ VIÐ BIDAULT
EKKI SÝNT í HOLLANDI
Haag, Hollandi, 9. marz
— NTB — Reuter —
STJÓRN Hollands hefur
gripið í taumana til þess
að hindra að sjónvarpað
verði í Hollandi viðtali
fréttamanns BBC við Ge-
orge Bidault, fyrrum for-
sætisráðherra Frakklands.
Fyrirhugað var, að viðtalið
yrði sýnt í Hollandi í kvöld,
en í gærkvöldi skýrði tals-
maður stjórnarinnar svo frá,
að menntamálaráðherra lands
ins, Y. Scholteu, hefði símað
útvarps- og sjónvarpsstöð-
inni, er boðaði viðtalið, að
ríkisstjórn Hollands liti það
mjög alvarlegum augum, ef
samtalið birtist.
Þær ástæður, sem stjórnin
færir fyrir afstöðu sinni, eru,
að birting viðtalsins í Hol-
landi kunni að skaða tengsl
Hollendinga og Frakka,
stefna öryggi ríkisins í hættu,
svo og eðlilegri ró og reglu
innanlands.
De Gaulle, Frakklandsfor-
seti, mun vera væntanlegur í
opinbera heimsókn til Hol-
lands innan skamms, og telja
fréttaritarar það meginástæð-
una fyrir stefnu stjórnar Hol-
lands. Ennfremur benda þeir
á, að birting viðtalsins í
brezka sjónvarpinu mæltist
mjög illa fyrir í Frakklandi
og telja enn ekki ljóst hverjar
afleiðingar það kann að hafa.
landi er gert hátt undir höfði í
egypzkum dagblöðum. Segja þau
fleiri byltingar innan hins arab-
íska heims- muni fylgja í kjöl-
farið. Nasser, forseti Egypta-
lands hefur sent nýju stjórninni
orðsendingu, þar sem m. a. segir,
að íbúar arabíska sambandslýð-
veldisins hafi verið bitrir yfir
aðskilnaðinum við Sýrland og
þeir hafi beðið þess með óþreyju
að sýrlenzka þjóðin léti í Ijósi
vilja sinn og risi upp gegn óvel-
komnum valdhöfum. „Við þökk-
um guði, að sýrlenzka þjóðin hef
ur unnið bug á herstjórum og
yfirstigið allar hindranir“ segir
Nasser, forseti.
Nýja byltingarstjórnin hefur
þegar hlotið yfirlýstan stuðning
íraks, Jemen, Alsír og Jórdaníu,
auk Egptalands.
Nýr forsætisráðherra
Hinn nýi forsætisráðherra
Sýrlands, Salah Bitar, er 51 árs
að aldri, fæddur og uppalinn í
Damaskus. Hánn hlaut menntun
sína í París og hóf feril sinn
sem kennari heima í Sýrlandi.
Árið 1942 hóf hann fyrst afskipti
af stjórnmálum og stofnaði
sósíalistískan þjóðernissinna-
flokk. Tveim árum síðar hóf
hann útgáfu málgagns flokksins.
Árið 1953 varð hann að flýja til
Líbanon, hafði þá verið sakaður
um aðild að samsæri gegn stjórn
lands síns. Er heim kom stofnaði
hann Sýrlandsdeild Baath-flokks
ins og i fyrstu frjálsu kosning
unum í Sýrlandi var hann kjör-
inn á þingi. 1956 var Bitar utan-
ríkisráðherra.
Bitar er kunnur fyrir vísinda
leg ritverk sín um eðlisfræði,
stjörnufræði og stærðfr sði. —
Hann hefur jafnan verið boðberi
einingar Arabaríkjanna c held-
ur því fram, að Arabaríkin eigi
að vera hlutlaust svæði milli
Austurs og Vesturs.
Fagurt veður var í Reykja-’
vík í gærmorgun. Þessi litla
telpa var að gefa öndunum
niðri við tjörn í sólskininu.
Hún heitir Kristín og verður
2 ára í dag. Við óskum henni 1
til hamingju með daginn.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
• Brezks fréttaritara
leitað
London, 5. marz (NTB).
Yfirvöldin í Bretlandi hafa nú
ákveðið að hefja á ný leit að
fréttaritara brezku blaðanna
Observer og Economist, Har-
old Philby. Philby, sem var
starfsmaður utanrikisþjónustu
Breta áður en hann gerðist
fréttamaður, hvarf frá heimili
sínu í Beirut í Líbanon fyrir
rúmum mánuði. Leit að hon-
um hafði verið hætt, en fyrir
skömmu barst konu hans sím
skeyti frá honum og var það
-sent frá Kairó. Ákváðu brezk
yfirvöld því, að halda leitinni
áfram.
^RotðiialiUisíM
fylgir blaðinu í dag og er efni
hennar m.a.:
Bls.
1 Prestsetur í eyði: Sandfell
1 öræfum, eftir séra Gisla
Brynjólfsson.
2 Svipmynd:
W. A. Visser’t Hooft.
3 Sagan af dátanum, eftir
C. F. Ramuz. Seinni þáttur.
4 Bridge.
5 Staða og stefna í íslenzkum
bókmenntum, eftir Sigurð
A. Magnússon. Síðari hluti.
7 Lesbók Æskunnar.
8 Iáí á öðrum hnöttum.
9 Presturinn, sem varð hung
urmorða, eftir Oscar
Clausen.
10 Fjaðrafok.
11 Mjaltir og mjólkurflutning-
ar, annar þáttur Jónasar
Magnússonar, Stardal, um
búskap Eggerts Briem í
Viðey.
15 Krossgáta.
16 Frægar teikningar
(Pollaiuolo, Verrocchio).
• *