Morgunblaðið - 10.03.1963, Blaðsíða 23
Sunnudagur 10. marz 1963
MORCUNBLAÐ1Ð
23
* KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * ■
* KVIKMYNDIR * SKRIFAR UM: * KVIKMYNDIR *
Leikfé’ag
þjóðanna
MIÐVIKUDAGINN 27. þ.m.
heldur Alþjóða leikihúsmála-
stofnunin hátíðlegan „Leik-
húsdag „þjóðanna“. Dagls
þessa var fyrst minnst í fyrra
og var kjörorð hans „Farið í
leiklhús.“ ísland er aðili að
Alþjóða leikhúsmálastofnun-
inni, og voru í tilefni dags-
ins sérstakar leiksýningar í
Þj óðleikhúsinu og Iðnó, sér-
stök dagskrá í Ríkisútvarpinu
tileinkuð deginiun, og hans
minnst í dagblöðum. í fyrra
var flutt sérstakt ávarp dags-
ins, sem franski leikritahöf-
undirinn og leikarinn Jean
Cocteau samdi. í ár er það
bandaríski höfundurinn Artih-
ur Miller, sem semur ávarpið.
Verður dagurinn að sjálfsögðu
um hér, meðal annars mun
Þjóðleikhúsið stefna að því að
|) frumsýna þá leikritið „And-
1 orra“, eftir Max Frisch.
— Doktorsrífgerð
Framihald af bls. 10.
prófessorar við Svartaskóla. Hin-
ir tveir síðarnefndu eru með
fremstu þörungafræðingum í
heimi.
I upphafi varnarinnar flutti
Sigurður snjalla varnarræðu, en
siðan tóku andmælendur til
jnáls. Luku þeir Feldmann og
Ohadefaud miklu lofsorði á vertk-
ið, og kváðu það vera fyrirmynd
rannsókna á þessu sviði. Lögðu
þeir og áherzlu á það, að með
hinni frumlegu samaniburðarað-
ferð sinni hefði Sigurður lagt
nýjan grundvöll að þörungarann-
eóknium. — Prófessor Plantefol
lagði sérstaka áherziu á gildi
jþessara rannsókna fyrir þekkingu
é 'Sjávarlífinu í Norðuirhöfum,
einkanlega við Íslandsstrendur,
þar sem allt væri enn lítt kann-
að á þessu sviði.
Eftir að andmælendur hötfðu
þorið sig saman, tilkynnti próf-
essor Plantefol úrslitin: Sigurður
Jónsson var saemdur heiðurs-
naifnbótinni Docteur és Sciences
með æðstu viðurkenningu, sem
veitt er í Frakklandi: mention
trés honorable avec les félicita-
tions du jury.
HÁSKÓLABÍÓ:
Látalæti
(Breakfast at Tiffany’s)
SÖGUÞRÁÐURINN í þessari
amerísku mynd er ekki marg-
brotinn, og myndin ekki sérlega
efnismikil. Hún fjallar um unga
og fríða stúlku, Holly Golightly,
og er eftirnafnið vissulega rétt-
nefni, því stúlkan gengur létti-
lega og óvarlega „um gleðinnar
dyr“ í heimsborginni miklu, New
Yorfc. Hana dreymir um auðug-
an eiginmann, er geti veitt henni
dýr klæði og skartgripi, sem
hugur hennar girnist öðru frem-
ur, og það „hnoss“ hefði hún>
vafalaust getað öðlast ef ástin
hefði ekki komið til sögunnar og
búið henni önnur örlög. Holly
hefur ekki mikið fyrir stafni og
aðal tekjulind hennar eru 100
diollarar á viku, sem hún fær
fyrir það að heimsækja faniga í
Sing-Sing og flytja fyrir hann
veðurspá tiil lögfræðings hans í
New York, en veðurspár þessar
reynast síðar vera upplýsingar
um eiturlyf j asmygl og hafði það
nærri komið Holly í alvarlega
bölvun. í sama húsi og Holly býr
Paul Yarjak, ungur og gjörfuleg-
ur maður, og verða þau hrifin
hvort af öðru. En þrátt fyrir ást-
Athugasemd
í TILEFNI af umræðum á fundi
sameinaðs þings þann 8. þ.m. um
hagnýtingu sildar, sem frá hefir
verið skýrt í fréttum ríkisútvarps
ins og daglblaða í Reykjavík,
vill Síldarútvegsnefnd taka fram
eftirfarandi:
I) Sala á niðurlagðri, niðursoð
inni og reyktri síld, svo og sala á
hvers konar saltsíld í neytenda-
umbúðum er og hefir verið sölu
starfi Síldarútvegsnefndar algjör
lega óviðkomandi, enda hefir lög
gjafinn ætlað öðrum aðilum for
göngu í þeim málum, sbr. lög um
Fiskiðjuver ríkisins og Niðursuðu
verksmiðju ríkisins, en starfsemi
þessara stofnana hefir ætíð verið
Síldarútvegsnefnd algjörlega ó-
viðkomandi. Skal í því sambandi
bent á, að síðastu áratugina hafa
nokkrar niðursuðu- og niðurlagn
ingarverksmiðjur flutt út óveru-
legt magn af niðurlagðri og niður
soðinni síld og hefir sala og fram
leiðsla á þessum vörutegundum
verið öllum frjáls og eins og áður
er sagt algjörlega óháð starfsemi
Síldarútvegsnefndar.
II) Enda þótt framleiðsla og
sala á niðurlagðri síld í neytenda
umbúðum sé starfsemi Síldarút-
vegsnefndar óviðkomandi, hefir
Síldarútvegsnefnd þó veitt niður
lagningarverksmiðju Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði %
miiljón króna óafturkræfan styrk
eða 250 þúsund krónur á árinu
1961 og 250 þúsund krónur á ár-
inu 1862.
SYSTIR MARIA ELISABET
af reglu St. Franciskussystranna andaðist í Drottni styrkt
af náðarmeðulum kirkjunnar í Sjúkrahúsinu í Stykkis-
hólmi 9. marz 1963. Jarðarförin mun fara fram frá
kaþólsku kirkjunni í Stykkishólmi miðvikudaginn 13.
marz n.k. kl. 9 f.h. Drottinn veiti henni eilífa hvíld.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNOUR GUÐMUNDSSON
frá Hól, Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag-
inn 12. marz n.k. kl. 2 e.h.. — Fyrir hönd vandamanna.
Bjami Guðmundsson, Kristín Engiljónsdóttir,
Ester Guðniundsdóttir, Símon Sigurjónsson,
Elsa Lyons, Bob Lyons,
Grétar Guðmundsson og barnaböm.
ina vill Holly frekar ganga að
eiga milljónamæring frá Brasilíu,
sem hún hefur von um að geta
klófest, og svo dregur það mjög
úr áhuga hennar á Paul, að hún
kemst að því, að Paul lifir á ör-
læti miðaldra konu. Ástir þeirra
Holly og Paul eru þannig nokkuð
beiskju blandnar, enda kemur að
því að ekki er annað sýnna en að
vegir þeirra muni skilja ....
Mynd þessi er fremur lítilfjör-
leg og ekki sérlega skemmtileg,
þó að sum atriði hennar séu dá-
góð, en myndin er vel leikin, sér-
staklega aðalhlutverkin, Holly,
sem Audrey Hepburn leikur
skemmtilega og með sínum al-
kunna yndisþokka, og Paul, sem
George Peppard leikur einkar
vel. Þá fer og okkar gamli kunn-
ingi, Mickey Rooney, þarna með
hlutverk Japana, sem býr í sama
húsi og Holly. Er hann ekki sér-
lega frýnlegur og hefur allt á
hornum sér við Holly, sem með
veizlugestum sínum setur allt
húsið á annan endann.
þ/
— „Hin hvitu segl
Framhald á bls. 6
ar hafði hann á þessum stöðum
kynnzt mönnum og verið for-
maður og skipstjóri, og séð jafn-
an um útgerð sína með sóma.
Með atorku sinni og dugnaði dró
hann mikla björg í þjóðarbúið,
því hann var stjórnsamur og
heppinn formaður. Auk þessa
eignaðist hann tólf efnileg börn
og kom þeim upp án ann-
arra hjálpar en konu sinnar.
Hann var ávallt í hópi forystu
manna í sinni stétt. Atorkusamur
og framsælkinn, stakur reglu-
maður á vín og allt annað, er
hann hafði með höndum fyrir
útgerðina og fólk er hjá honum
vann. Hann var áreiðanlegur í
viðsklptum við aðra og orðheld-
inn maður, og þótt oft væri erf-
iður fjárhagur hans framan af
ævi, bæði vegna ómegðar og þess
að mörgum reyndist erfitt á fyrri
hluta þessarar aldar að vinna
sig upp frá allsleysi til mann
virðingar og efna. Þetta tókst
honum samt með fádæma dugn-
aði, ráðdeild og því að treysta
á sjálfan sig fyrst og fremst.
Hann var nýtur og góður son-
ur lands síns og trúr í starfi unz
yfir lauk.
Páll Hallbjörns
2 gerðir
3 gerðir
3 gerðii
2 gerðir
ALLT FRA
(SÍWÍMWI
Hafnarstræti 1. Sími 20455.
Vegna þeirra mörgu, sem hafa í huga kaup á landbúnaðarbílum
(fjórdrifsbílum) viljum við benda á nokkur atriði, er hinir 800
eigendur Land Rover bíla álitu að skiptu rniklu máli þegar þeir
völdu sér landbúnaðarbifreið.
1. Stór liður í viðhaldskostnatSi bifreiða eru ryðskemmdir á
yfirbyggingu og undirvagni. Yfirbygging og hjólhlífar á
Land Rover er úr aluminium blöndu. Grind er öll ryðvarin
að innan og utan.
2. Heppilegt er að bílar sem mikið eru notaðir í vatni og aur-
bleytu, og þurfa þar af leiðandi nokkra éftirtekt hvað smurn-
ingu viðvíkur, hafi sem fæsta smurstaði. Land Rover hefur
aðeins 6 smurkoppa og auðvelt er fyrir eigendur að smyrja
i þá sjálfir með þrýsti-smursprautunni sem fylgir hverjum
bíl.
3. Bændur, sem nota þurfa bíla sína við heyvinnu vita það vel,
hvað áríðandi það er, að sem fæstir óvarðir snúningsöxlar
séu í drifbúnaði bílsins, og að auðvelt sé að verja þá fyrir
heyi. Með Land Rover getið þið fengið ódýrar hlífar fyrir
hjöruliðina sem verja þá fyrir heyi, háu grasi eða þara-
bunkum.
4. Allir, sem eitdivað hafa ekið í torfærum og brattlendi, vita
hvað áríðandi er að handhemill sé traustur, endingargóður og
vel varinn fyrir öllu hnjaski. Handiiemilsbúnaður Land
Rover er vel varinn upp í grindinni og virkar á hemlaskál á
drifskafti Btilling er gerð með einni skrúfu og er það bæði
fljótlegt cg auðvelt.
5. Vönduð og nákværn handbók á íslenzku fylgir hverjum bíl.
•— Ennfremur geta allir þeir, sem vilja kynnast kostum Land-
Rover fengið ókeypis eintak.
Það er margt fleira, sem benda mætti á, t.d. mætti nefna að
Land Rover befur mjög rúmgóð framsæti og er skráður sem 7
manna bifreið. Einnig ættu menn að athuga að auðvelt er að
koma fyrir keðjum á Land Rover, bæði á fram- og afturhjól,
og að sporvídd hjólanna er sú sama.
Skrifið, hringið eða hafið tal af okkur og við munum leysa
úr spurningum yðar og veita yður allar nánari upplýsingar.
Heildverzlunin Heklahf
Laugavegi 170—172. — Reykjavík. — Sími 11275.
J