Morgunblaðið - 12.03.1963, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. marz 1963
ina og hlaut 2Vi vinniag en
Ingi iy2.
í gær afhenti stjórn Tafl-
félags Reykjavíkur Friðriki á
heimili hans bikar, sem keppt
var um og gefinn var af Trygg
ingamiðstöðinni h.f.
Á myndinn sézt einnig
„kóngur“, sem er eins konar
flaska og innihélt líkjör á sín
um tíma. Fiaskan er gjöf frá
tengdaföður Frðiriks.
Friðrik
sigraði
EINVÍGI þeirra Friðriks Ólafs
sonar og Inga R. Jóhannssonar
um Reykjavíkurmeistaratitil-
inn í skák lauk sL sunnudag
með sigri Friðriks.
Vann Friðrik síðustu skák-
Húsbruni á
Holtsgötu
Maður forðaði sér út um glugga
Landhelgissamning-
urinn mikil vernd
Hrakspárnar reyndust haldlausar
segir Davíð Ólafsson, fiskimdlastjóri
í GÆR voru liðin tvö ár
frá því að reglugerðin
um fiskveiðilögsöguna tók
gildi. Af því tilefni sneri
Morgunblaðið sér til
Davíðs Ólafssonar, fiski-
málastjóra, og spurði hann
um reynsluna, sem fengizt
hefði á þessum tveimur
árum. Davíð Ólafsson svar-
aði þannig:
„Reynslan af þesum samn-
ingi þau tvö ár, sem hann hef-
ir verið í gildi er í öllu eins
og við var búist. Allar hrak-
spár andstæðinga samningsins
hafa því reynzt haldlausar.
Með samningnum var
tryggð full og endanleg við-
urkenning á 12 mílna fisk-
veiðilandhelginni. Þá höfðu
grunnlínubreytingarnar mikla
og varanlega þýðingu, því að
þær gilda um alla framtíð og
eru allar á hinum þýðingar-
mestu stöðum. Þannig varð
líka verulegur hluti af „hóif-
unum“ utan 12 milna fisk-
veiðilandhelginnar frá 1958
og þýðingarmikii svæði unn-
ust þegar með samningsgerð-
inni, svo sem á Selvogsbanka
og sunnan Langaness. Loks
eru svo stór svæði milli 6 og
12 mílna, sem aldrei eru opin
samkvæmt samningnum, en
það eru netasvæðin á Breiða-
firði, Faxaflóa og við austan-
vert Suðurland og svo allt
svæðið fyrir Vestfjörðum,
Grímseyjarsund og Kolbeins-
eyjarsvæðið.
Samningurinn hefur reynzt
þýðingarmikil vernd fyrir
fiskveiðar bátaflotans við
landið, enda fara þær vax-
andi ár frá ári, bæði á þorsk-
og síldveiðum. Að því er veiði
á þorski og skyldum tegund-
um svo og hvað flatfisk snert-
ir, þá er vafalaust að koma í
ijós nú undaníarin ár sú
mikla þýðing, sem landhelgis-
reglugerðin frá 1952 hefir
haft, en með henni voru öll
helztu uppvaxtarsvæði þess-
ara fisktegunda við landið
friðuð.
Nú er aðeins eftir eitt ár
þar til sá dagur rennur upp,
að siðasta erlenda fiskiskipið
hverfur úr fiskveiðilandhelg-
inni og íslendingar hafa þar
full og óskert afnot allra
gæða“.
Atök verkfallsmanna og
lögreglu í Frakklandi
Aslandíð fer nú versnandí, og fleiri hota verkfalli
UM HÁDEGISBILIÐ á sunnudag
var slökkviliðið kvatt að húsinu
nr. 9 við Holtsgötu, sem var al-
elda. Hafði einn af íbúum húss-
ins þurft að bjarga sér út um
glugga og brákaðist við það á
fæti.
Húsið sem kviknað hafði í var
einnar hæðar steinhús, timbur-
klætt að innan. Þannig hagar til
að útgangur er um eldhúsið, en
eldurinn mun hafa komið upp í
herbergi þar við hliðina, sem leigt
er ungum manni. Var hann nýfar
inn út
í húsinu bjuggu ungversk hjón.
Er þau urðu eldsins vör, hljóp
konan út, en maðurinn komst
ekki út um eldhúsið sem fyrr
segir og stökk út um gluggann.
Slökkviliðinu gekk vel að ráða
niðurlögum eldsins, er það kom
á vettvang, en miklar skemmdir
Fyrsta mál-
verkaupp-
boð ársins
SIGUTtÐUR Benediktsson, heldur
fyrsta málverkauppboð ársins í
Þjóðleikhúskjallaranum á morg-
un kl. 5. Listaverkin eru sýnd frá
kfl. 2—6 í dag og kl. 10—12 á
morgun.
Hér er um að ræða 50 mál-
verk og vatnslitamyndir eftir vel
flesta þekktustu myndlistamenn
þjóðarinnar, t.d. 5 myndir eftir
Ásgrím Jónsson, 8 eftir Kjarval,
2 eftir Kristínu Jónsdóttur, teikn
ing eftir Einar Jónsson, mynd-
höggvara, og Við Þingvallavatn,
eítir Jón Stefánsson. Ennfremur
eru hér þrjú málverk frá íslandi,
eftir þekkta danska málara t.d.
Exner. Nokkrar myndir eru eftir
yngri málara, t.d. lítil kodteikning
íítir Sverri Haraldsson og önnur
•ftir Þorvald Skúlason,
i f GÆR kl. 11 var aitstlæg áitt
hér á landi en þó heldutr norð-
austanstæðari en undanfama
daga. Heldur hafði kólnað en
fnost var ekki á láglendi.
Á Norðuriöndum var enn-
þá kalt, en suður í Frakk-
landi var yfir 10 stiga hiti.
í New York var vægt frost
að skrifstofumennirnir færu 1
samúðarverkfall. Urðu þeir við
beiðninni og lögðu allir niður
vinnu.
Ástandið 1 verkfallsmálunum
fer nú versnandi. Um 1000 náma
menn við járnnámurnar í Lor-
raine hafa hótað að fara í verk-
fall. Hafa þeir kosið í sendi-
nefnd, er halda skal til fundar
við Maurice Bokanowski, iðnað-
armálaráðherra.
í París gætti mikils óróa í dag,
en á morgun hefst verkfall járn-
brautarstarfsmanna. Munu þeir
fella niður vinnu í tvo tíma,
hverju sinni, sem vaktaskipti
verða. Með þeim hætti hyggjast
starfsmenn járnbrautanna rugla
allar áætlanir, án þess þó, að til
algers samgöngurofs komi.
í málum kolanámumanna miðar-
ekkert í samkomulagsátt. eí>ir
krefjast 11% hækkunar. Stjórn
landsins hefir boðið 6% hækkun,
er komi til framkvæmda á einu
ári. Hafa námumenn hafnað því
tilboðL Stjórnin segist hins veg-
ar ekki taka upp frekari samn-
ingaviðræður, fyrr en verkfalls-
menn hafi snúið aftur til vlnntt,
Halda báðir aðilar þannig íast
við sitt.
í París var skýrt frá þvl I dag,
að mjög gengi nú á kolabirgðir
í rPakklandi. Þá hefur orðið að
grípa til skömmtunar á gasi, þar
eð 3000 starfsmenn við jarðgas-
námur í Lacq í S-Frakklandi,
hafa lagzt niður einnig, en þaðan
flá landsmenn um helming af þyi
gasi, sem notað er í landinu.
Kvöldvaka
HAFNARFIRÐI — Slysavarna-
deildin Hraunprýði hélt sína ár-
legu kvöldvöku í Bæjarbíói sL
sunnudag fyrir troðfullu húsi —
komust færri að en vildu — og
mjög góðar undirtektir. — Vegna
þess hversu margir urðu frá að
hverfa hefir nú verið ákveðið að
endurtaka kvöldvökuna á mið-
vikudagskvöldið kl. 8,30. _
Verða aðgöngumiðar seldir 1
Bæjarbíói þann dag frá kl. 4.
urðu á öllum herbergjum hússins
og húsgögnum.
Eldsupptök eru ókunn.
Hæstu viimmgar
Happdrættis H.I.
MÁNUDAGINN 11. marz var
dregið í 3. flokki Happdrættis Há
skóla íslands. Dregnir voru 1000
vinningar að fjárhæð 1.840.000 kr.
Hæsti vinningurinn, 200.000 kr.,
kom á heilmiða númer 30.483. —
Var hann seldur í umboði Guð-
rúnar Ólafsdóttur, Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar.
100.00 krónur komu á hálfmiða
númer 2.643, sem voru seldir í
umboði Frímanns Frímannssonar,
Hafnarhúsinu.
10.000 krónur:
4961 6451 8144 14712 14805
15622 15667 19667 20002 22231
23078 30154 32007 33304 34579
37104 39670 46324 51509
(Birt án ábyrgðar).
París, Merlébach, 11. marz.
— NTB —
£ D A G kom til átaka verk-
fallsmanna og lögreglu í
Merlebach, nærri kolanámun-
um í Lorraine í Frakklandi.
Er það í fyrsta skipti, þá 11
daga, sem verkfall kolanámu-
manna hefur staðið, að til
alvarlegm árekstra kemur.
Atburðurinn átti sér stað,
þegar skrifstofustarfsmenn
kolanámanna voru á leið til
vinnu í Merlebach. Komu þeir
í stórri bifreið, en verkfalls-
menn ruddust í veg fyrir þá.
Lögreglan skarst í leikinn og
upphófust handalögmáL Eng-
inn mun þó hafa særzt. —
Komst fljótlega á ró aftur.
Fyrr um daginn höfðu fjöl-
margir lögreglumenn verið send
ir að skrifstofubyggingunni í
Merlebaeh. Er fyrstu skrifstofu-
starfsmennirnir komu til vinnu,
gerðu kolanámumenn aðsúg að
byggingunni, og kröfðust þess,
Almennar prestkosn-
ingar leggist niður
MENNTAMÁLANEFND neðri
deildar hefur að ósk kirkju-
málaráðherra lagt fram á Al-
þingi frumvarp um veitingu
prestakalla, er gjörir ráð fyrir,
að almennar prestskosningar
séu lagðar niður, en í þess stað
greiði sérstakir kjörmenn,
sóknarnefndarmenn og safnað
arfulltrúar, atkvæði um um-
sækjendur og skuli veita um-
sækjanda embættið, hafi hann
hlotið % atkvæða fyrrnefndra
kjörmanna. Hljóti enginn um
sækjandi slíkan stuðning kjör-
manna, mælir biskup með
tveimur umsækjendum, ef um
fleiri en einn er að ræða, eftir
því sem hann telur eðlilegast, J
en kirkjumálaráðherra veitirj
öðrum hvorum embættið.
Þó er kjörmönnum heimiltl
að kalla prest án umsóknar, ef i
nægilega margir þeirra eru einí
huga um að kveðja tiltekinn;
mann til þjónustunnar.
Loks þykir eðlilegt, að for I
seti íslands veiti prestsembætt |
in að S'káLholti, Hólum og Þing j
völlum eftir tillögum biskups ,
og kirkjuráðs.
Frumvarp þetta var sam-1
þykkt á 3. kirkjuþingi þjóð-
kirkju íslands 1962, en þar var (
það fllutt af biákupi og kirkju-
réði.