Morgunblaðið - 12.03.1963, Side 5
r
Þriðjudagur 12. marz 1963
MORCl’lS B L 4 ÐIÐ
i
Fétur Sigurtison, gjaldkeri tJSAH, flytur sögu sambandsrns
Ljósm.: Þórður Jónsson, Skagstr.
Fimmtugt ungmennasamband
Blönduósi, 27. fébr. — Sl. sunnu-
<lag hélt Ungmennasamband A.-
Húnvetninga hátíðlegt 50 ára af-
inæli sitt með fjölmennu hófi í
Félagsiheimilinu á Blönduósi.
Sáitu það um 300 manns. Sam-
bandið bauð öllum starfandi
ungmennafélögum í A-Húna-
vatnssýslu ásamt heiðursfélögum
eamibandsins, eldri forustumönn-
un ungmennafélaganna í sýsl-
unni, fulltrúum frá UMSÍ og ÍSÍ
©g fleiri gestum.
Móbergi, keppt á vegum sam-
bandsins og hlotið verðlauna-
bikar frá USAH fyrir að setja 10
héraðsmet á einu ári. Hún er
nú íslandsimeistari í tveimur í-
þróttagreinum.
USAH hefur staðið fyrir
fræðslu og skemmtiviku Húnvetn
inga, Húnavökunni, og leitast við
að fylkja menningarfélögum hér
aðsins urn hana. Og eins og ræðu
maður kornst að orði, „að baki
dagskrár Húnvökunnar hverju
Cuðjón Ingimundarson afhendir Ingvari Jónssyni gjöf frá UMFI.
Formaður USAH, Ingvar Jóns-
eon hreppstjóri á Skagaströnd,
eetti hófið og stjórnaði því. Aðal
ræðuna flutti Pétur Sigurðsson,
gjaldkeri USAH. Rakti hann
helztu þætti í starfsemi sambands
ins. Það hefur haldið uppi öfl-
ugri íþróttastarfsemi og átt
marga góða íþróttamenn innan
einna vébanda. T.d. hefur ein af
beztu íþróttakonum landsins,
Guðlaug Stein.grímsdóttir, frá
sinni liggur saga, er aldrei verð
ur skráð, sagan af þrá fólksins til
að hefja hug sinn frá oki og
amstri hversdagslífsins og eignast
heiðra drauma vökunætur". Ýms
ar verklegar framikvæmdir hefur
sambandið stutt og styrkt, t.d.
sundlaug á Reykjum, héraðshæl-
ið á Blönduósi og félagsheimili
í Húnaveri. Nú er það stór eign-
araðili að félagsheimilinu á
Blönduósi.
9 stofnendur heiðraðir
Nokkrir stofnenda sambands-
ins eru enn á lifi. Hafa þeir allir
verið kjörnir heiðursfélagar og af
henti formaður þeim eða ætt-
ingjum þeirra heiðursskjöl. Að-
eins einn af 9 nýkjörnum heið-
ursfélögum, frú Guðrún Teits-
dóttir, fyrrv. ljósmóðir á Skaga-
strönd, ga,t komið því við að
sækja hófið. Tveimur íþrótta-
mönnum, sem lengi kepptu á
vegum samibandsins og náðu á-
gætum árangri, voru færðir verð-
launabikarár, sem sérstök viður-
kenning frá sambandinu. Voru
það þeir Pálmi Jónsson, á Akri,
og Sigurður Sigurðsson á Skaga-
strönd. Guðlaugu Steingríms-
dóttur voru þökkuð mikil og frá-
bær afrek.
Gisli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
flutti sambandinu kveðjufrá ÍSÍ,
og skýrði jafmfrámt frá því, að
fyrsti formaður USAH, Jón
Pálmason, alþingismaður frá
Akri, hefði verið sæmdur heið-
ursmerki ÍSÍ í tilefni af afmæl-
inu. Jón gat ekki setið hófið, en
var afhent heiðursmerkið daginn
áður.
Pétur H. Björnsson á Móbergi,
flutti sambandinu kvæði, og
Björn Bergman las upp kvæði,
sem Steingrímur Davíðsson,
fyrrv. skólastjóri á Blönduósi orti
til sambandsins. Þá tóku til máls
Jón ísberg, sýslumaður, Pétur
Pétursson á Höllustöðum, form.
Búnaðarsambands A-Húnvetn-
inga, Bjarni Jónasson, Blöndu-
dalshólum, Guðmundur Jónasson
Ási, sr. Pétur Ingjaldsson Hösk-
uldsstöðum, sr. Þorsteinn G. Gísla
son Steinnesi, sr. Jón Kr. ísfeld og
Halldór Jónsson, bóndi Leysingja
stöðum. Færðu þeir allir sam-
bandinu árnaðaróskir og þakk-
læti fyrir vel unnin störf. Stefán
A. Jónsson las upp heillas&eyti,
er sambandinu höfðu borizt,
Karlakórinn Vökumenn söng
undir stjórn Kristófers Kristj-
ánsonar 1 Köldukinn, og Jón
Tryggvason í Finnstungu stjórn-
aði almennum söng.
Saga USAH skrifuð
Verið er að rita sögu USAH og
verður hún prentuð í næsta
hefti Skinnfaxa. Hefur Stein-
grímur Davíðsson, fyrrv. skóla-
stjóri á Blönduósi tekið að sér
að semja hana, en hann er einn
af stofnendum og heiðursfélög-
um saimbandsins og var um langt
skeið meðal helztu forvígis-
manna Ungmennafélaganna í
sýslunni.
Að loknu hófinu var fjölmenn-
ur dansleikur í Félagsheimilinu.
— B.B.
Ingvar Jónsson afhendir Guðrúnu Teitsdóttur, ljósmóður, heiðurs
Skjaí, en hún var eini stofnandi sambandsins, sem sat hófið.
Permanent litanir
geislapermanent, — gufu
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastig 18 A - Sími 14i46
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Seijum æðardúns-
og gæsadúnssængur — og
kodda af ýmsum stærðum.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjuteigi 29. Sími 33301.
Heirjifrægt merki
— Hagkvæmt verð. ■
Biðjið verzlun yðar um
M A Z D A
Aðalumboð:
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Símar 17975 76 Reykjavik.
IJTBOÐ
Tilboð óskast í að smíða og setja upp innréttingar
í eina íbúð Upplýsingar í Álftamýri 2 efstu hæð til
vinstri kl. 9—12 í dag og næstu daga.
Tilboð óskast
í Pick-up-bifreið og nokkrar fólksbifreiðir er verða
sýndar í Rauðarárporti fimmtud. 14. þ. m. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Iðnaðarhúsnæði
600—800 ferm Iðnaðarhúsnæði óskast leigt.
Tilboð sendist í Box 1047.
Skrífstofustúlka
með starfsreynslu óskast nú þegar. Tilboð send-
ist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „6152“.
Vélrífunarstúlka
óslcast frá 1 apríl. Enskukunnátta áskilin. Umsóknir,
er greini aldur og menntun sendist oss sem fyrst.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16.
Tollvörugeymslan hf.
Aðalfundur 1963, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld og hefst með borðhaldi kl. 19.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Þátttakendur panti borð tímanlega hjá þjónum
Sjálfstæðishússins.
STJÓRNIN.
Járnsmiður, vélvirki
og rennismiður
óskast Strax.
Járn hf.
Síðumúla 15.