Morgunblaðið - 12.03.1963, Síða 12
12
MORCVTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. marz 1963
Útgeíandi: Hf. Arvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johapnessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakib.
KRAFIZT SKÝRS
SVARS
'lll'orgunblaðið hefur rifjað
það upp, að fyrir tveim
árnm lýstu Framsóknarmenn
því yfir, ásamt kommúnist-
um, að þeir teldu landhelgis-
samkomulagið við Breta
„nauðungarsamning“ og
sögðu, að einhliða bæri að
fella það úr gildi. Höfðu þeir
um þetta mörg og stór orð.
Framsóknarmenn bentu
réttilega á það, að valdahlut-
föll yrðu að breytast á Al-
þingi til þess að unnt væri að
gefa út yfirlýsingu um það,
að samkomulagið við Breta
hefði verið „nauðungarsamn-
ingur“ og þess vegna félli það
úr gildi. Þeir sögðu, að tæki-
færi mundi lcoma fyrir ís-
lenzku þjóðina til að leggja
dóm á þetta mál. Þeir sögðu
með öðrum orðum, að þeir
mundu kjósa um landhelgis-
málið. Og auðvitað voru
kommúnistar til í slíkar „þjóð
fylkingarkosningar“.
Nú eru þessar kosningar
framundan og Morgunblaðið
hefur þess vegna minnt Fram
sóknarmenn á stóru orðin.
Spurningin er sú: Ætla Fram-
sóknarmenn að standa við
þau? Lýsa þeir því enn yfir,
að þeir muni lýsa samninginn
við Breta ógildan, ef þeir fá
aðstöðu til þess á Alþingi með
samstarfi við kommúnista.
Landhelgissamkomulagið
hefur nú verið í gildi í tvö ár
og íslenzka þjóðin hefur
kynnzt því, hve miklum á-
rangri var náð. Þær smávægi-
legu undanþágur, sem Bret-
um voru veittar, falla úr gildi
af sjálfu sér eftir eitt ár. Þess
vegna á íslenzka þjóðin fulla
heimtingu á því að fá að vita,
hvort Framsóknarmenn hygg
ist stefna í voða þeim árangri,
sem náðst hefur og koma á ný
á algjörri óvissu í landhelgis-
málinu.
Þess vegna krefjast menn
þess að fá skýr og undan-
bragðalaus svör: Ætla Fram-
sóknarmenn sér að reyna að
ógilda samkomulagið við
Breta, ef þeir fá aðstöðu til
þess, eða eru öll stóru orðin
dauð og ómerk?
AÐ STOFNA
TIL ÓFRIÐAR
-----------------------
Sú iðja að ala á andúð í
garð annarra þjóða, er ekki
sæmandi lýðræðissinnum,
þótt hún hæfi ágætlega komm
únistum. Allir góðir menn
leggja sig nú fram um það
að laða þjóðirnar til samstarfs
og draga úr tortryggni og
þjóðrembingi. Þess vegna eru
skrif á borð við þau, sem ein-
kennt hafa Tímann í umræð-
um um utanríkismál, til mik-
illar vansæmdar.
En skrif Framsóknarmanna
eru ekki einungis ósæmileg,
heldur eru þau líka hættu-
leg. Þannig hefur blað þeirra
látið að því liggja, að hér á
landi væru þeir stjómmála-
leiðtogar, sem meirihluti þjóð
arinnar styður, tilbúnir til
þess að fallast á það, að Bret-
ar fengju á ný réttindi til
veiða innan 12 mílnanna, þeg
ar undanþágur þeirra falla úr
gildi eftir eitt ár.
Framsóknarmenn vita full-
vel, að fyrir þessu er ekki
flugufótur. Þeir gera sér líka
ljóst, að brezk stjórnarvöld
muni ekki einu sinni orða
þetta, bæði vegna þess að und
anþágumar skipta Breta sára
litlu máli og þó enn fremur
vegna hins, að þeir vilja láta
fyrnast yfir landhelgisdeil-
una og hafa góð samskipti við
íslendinga.
En Framsóknarmenn vita
meira. Þeir vita að í Bret-
landi em harðsnúnir hags-
munahópar, sem beita mundu
öllu áhrifavaldi sínu til þess
að fá slíka kröfu setta fram,
ef þeir gerðu sér minnstu von
ir um að gengið yrði að henni.
Þessir menn reyna að telja
sjálfum sér og öðmm trú um,
að einhver bilbugur sé á ís-
lendingum í þessu máli.
Það er við þessa menn,
Dennis Weleh og félaga hans,
sem Framsóknarmenn eru nú
í bandalagi. Þeir boða vísvit-
andi þau ósannindi, að á ís-
landi séu áhrifamenn, sem
vilji fallast á kröfur brezkra
hagsmunahópa og ýta þannig
undir að slík krafa verði gerð.
Þessi framkoma Framsókn-
armanna er sannarlega for-
dæmanleg, enda hefur verið
eftir henni tekið og mun
verða á hana minnt.
Að undanförnu hefur mál-
gagn Framsóknarflokks-
ins margsinnis ráðizt að Bret-
um með dylgjum og aðdrótt-
unum. Ekki þótti þeim þó
nóg að verið og bættu því við,
að Danir væru fláttskapar-
menn og fiandsamlegir íslend
ingum.
NIÐURLÆGING
BÚNAÐARÞINGS
rpil skamms tíma hefur það
-*• verið nokkuð almenn
skoðun, að bændur væru yfir-
leitt ábyrgari í kröfum sínum
og sýndu stillingu og rökfestu i
Adenauer og Erhard sættast eftir
mánaðar ösamkomulag
FYRIR nokkrum dögum hittust
þeir Adenauer kanzlari Vestur-
Þýzkalands og I.udwig Erhard
efnahagsmálaráSherra og tókust
í hendur eftir að hafa verið ó-
sáttir í mánuð.
Á fundinum lofuðu Adenauer
og Erhard, sem ir.argir telja lík-
legasta eftirmann kanzlarans, að
vinna saman ©g reyna að forðast
sundrung, þar sem hún gæti orð-
ið flokki þeirra, kristilega dem-
okrataflokknum, hættuleg.
Fundinn, þar sem kanzlarinn
og efnaihagsmálaráðiherrann sæ.tt
ust, sátu 42 fulltrúar fram-
kvæmdanáðs Kristiilega demó-
krataflokksins. Að* fundinum
loknuim hélt formaður þingflokks
Kristilegra demókirata, Heinrieh
ven Brentano, fund með frétta-
mönnuim og sagði, að deilumiál
þeirra Adenauers og Erbjairds
væru útkljáð. Von Brentano
sagði, að í lok fundarins hefði
Adenauer gengið til Erhards og
tekið innilega í hönd hans.
Deilur Adienauers og Erhards
hófusit með þvi að Adenauer
sakaði Erhard í bréfi um, að
skipta sér af utanirikismá/luim,
sem ekki væru í hans verka-
hring, sagði Adenauer, að Er-
hard hefði snúizt á sveif með
Breturn varðandi aðild þeirra að
Efnahagsbandalagi Evróipu, en
látið hjá líða að lýsa stuðningi
við samvinnusáttimiála Vestur-
Þjóðverja og Frakika, sem de
Gaulle og Adenauer gerðu með
sér í París. Erhard neitaði í brétfi
þessum ásökunum kanzlarans, en
þá skrifaði Adenauer hionuim
annað bréf þar sem hann gagn-
rýndi stefnu hans í efnahags-
miáium. Eftir það miætti Erhard
ekki á ráðuneytisfundum.
Adenauer
Nánir stuðningsmenn Erharda
sökuðu Adenauer um, að tilgang-
urinn með gagnrýninni á efna-
hagsmáílaráðherrann væri að
skerða möguleika hans á þvií að
verða kanzlari.
En eftir fundinn þar sem etfna-
hagsmálaráðherrann og kanzlar-
inn sættust sagði Von Brentano
fréttamiönnum, að Erhard væri
eftir sem áður líklegastur eftir-
maður Adenauers. Eins o.g kunn-
ugt er mun kanzlarinn segja af
sér í haust
Liston sló vindhögg
og meiddist á hné
10. APRÍE. n.k. munu þeir mæt-
ast öðru sinni til þess að keppa
um heimsmeistaratitilinn í þunga
vigt, Sonny Liston núverandi
heimsmeistari og Floyd Patter-
son fyrrv. heimsmeistari. Eins
og menn muna sló Liston Patter-
son niður í fyrstu lotu síðast er
þeir kepptu.
Liston og.- Patterson áttu að
roætast 4. apríl, en- keppninni
var frestað vegna þess að Listan
meiddist á hné.
Þjálfari Listons, Jack Nilton,
skýrði þjálfara Pattersons svo
frá, að Liston hefði farið út á
golfvöll einn á baðströndinni í
Miami, gripið golfkylfu, búið sig
undir að slá, og slegið, en það
varð vindlhögig. Liston hafði bor-
ið sig mjög klautfaleiga að þessu
og er hann sveiflaði kyltfunni
meiddist hann smiávægilega á
hné.
Þj áifari Pattersons, Dan Florio,
sagði ,að hann seldi söguna um
meiðslin á hrué Listons ekiki dýr-
ari en hann keypti hana. „All-
ir eru að segja mér hive Liston
.sé mikið ofurmenni“, sagði Fiorio
„en hvert barn, sem er nógu
gamait til þess að lesa mynda-
blöð veit að ofurmenni meiðast
ekki á hné þó þau sveifli golf-
kylfum“.
Fleiri en Florio hafa látið í
Ijós tortryggni í saimbandi við
meiðsli Listons, en þjáifari hans
segir: „Hver sem ekki trúir þvi
að Sonny sé meiddur getur feng-
ið að sjá röntgenmynd atf hné
bans“.
Liston á golfvellinum skömmq
áður en hann sló vindhöggið.
í málafylgju sinni. Þess vegna
var yfirleitt tekið eftir störf-
um búnaðarþings og það naut
verðskuldaðrar virðingar.
Nú hefur hins vegar verið
haldið þannig á málum á
búnaðarþingi, að til hreinn-
ar vansæmdar er fyrir bænda
stéttina. Öfgar og öfugmæli
vaða þar uppi, svo ýmist vek-
ur aðhlátur eða vorkunnsemi.
Byggist þetta á takmarka-
lausri heift þeirra Framsókn-
armanna, sem í meirihluta
eru á þinginu.
Sérstaka athygli vakti það,
þegar sömu mermirnir, sem
gengust fyrir því að lagt var
gjald á bændur til að byggja
hótel í Reykjavík, lýstu því
yfir, að sams konar gjald til |
að styrkja lánasjóði búnaðar-
ins jaðraði við stjórnarskrár-
brot.
Nú leynir það sér ekki, að
fremur væri um stjórnar-
skrárbrot að ræða, þegar fé er
tekið af bændum til þess að
byggja höll, sem aldrei getur
orðið þeim annað en byrði,
heldur en er, þegar beinlínis
er verið að styrkja þeirra eig-
in atvinnugrein, auk þess sem
mörg fordæmi eru fyrir því,
að slík gjöld séu tekin af at-
vinnuvegunum til þess að
styrkja þá sjálfa.
Þannig hafa forystumenn
Framsóknar í raun réttri lýst
því yfir, að þeir telji sjálfa ]
| sig hafa staðið að stjómar-
skrárbroti, en ætla síðan að
kenna öðrum um slíkan verkn
að, þótt sú ásökun sé auðvit-
að miklu fjarstæðari.
Öánægðir með
samgöngur
HÚSAVÍK, 8. marz — Húsvík-
ingar eru heldur óánægðir með
skipulag samgangna við Húsa-
vík. Hingað eru 5 áætlunarferð
ir í viku, tvær með flugvéluna
og 3 með áætlunarbílum frá Ak-
ureyri og falla bæði flugferð og
bílferð á miðvikudaga og laug-
ardaga, en engar ferðir eru 4
daga vikunnar og fæst þá ekkl
póstur. Er viðkomandi aðilun*
I bent á þetta til athugunar fyr*
| ir skipulag niæista vet.-ar. —