Morgunblaðið - 14.03.1963, Qupperneq 1
24 siður
V
50. árgangur
61. tbl. — Fimmtudagur 14. marz 1963
Prentsmiðja Morgunblaðslns
Krúsjeff boöið til Peking
Kínverskir kommúnistar vii|a reyna sættir í
skoðanaágreiningi kommúnistaflokkanna
Peking, 13. marz — NTB
KÍNVERSKI kommúnistaflokkurinn hefur boðið Krúsjeff,
forsætisráðherra, eða einhverjum öðrum af fremstu leiðtog-
um Sovétríkjanna, að koma til Peking til viðræðna um hugs-
anlega lausn á skoðanaágreiningi kommúnistaflokkanna í
Kína og Sovétríkjunum. Skýrði fréttastofan „Nýja-Kína“
frá þessu boði í dag og einnig frá orðsendingum um þetta
mál milli Peking og Moskvu.
í Moskvu skýrði Tass-fréttastofan frá því að kínverska
stjórnin hefði lagt til að Krúsjeff kæmi við í Peking þegar
hann fer í væntanlega heimsókn sína til Kambodia, en ekki
birti fréttastofan neinar skýrgreiningar á orðsendingunum
milli stjórnanna.
Pekingstjórnin segir í orðsend-
ingu sinni að ef ekki sé unnt að
eenda sendinefnd frá Sovétríkj-
unum til Peking, geti kínversk
nefnd heimsótt Moskvu. Leggur
Pekingstjórnin til að á þessum
væntanlegu fundum verði öll
deilumál ríkjanna rædd lið fyrir
lið. Seinna beri einnig að boða
til fundar fulltrúa frá öllum
kommúnistaflokkum heims, þar
sem þessi mál verði rædd.
„Frelsun undirokaðra“
Helztu málin, sem ræða ber,
segir Pekingstjórnin að séu þessi:
framkvæmd byltingarinnar í
dag, baráttan gegn heimsvalda-
steínunni og verndun heimsfrið-
arins, frelsun undirokaðra ríkja
og þjóða, efling valda og sam-
heldni kommúnistaríkjanna, efl-
ing alþjóðakommúnismans o. fl.
Öll þessi atriði verður að ræða
nMMMMMWMi
á félagslegan hátt, lið fyrir lið,
fyllilega og nákvæmlega, segja
Kínverjar. Verða viðræðurnar
að fara fram í samræmi við
grundvallar kennisetningar Marx
Leninisma, og byggjast á raun-
verulegu jafnrétti. Þau atriði,
sem báðir flokkarnir eru sam-
mála um, má strax afgreiða, hin,
sem ekki er unnt að leysa, má
Tokíó, 13. marz (NTB)
Norska útgerðarfélagið Sig-
vald Bergesens Rederi í Stav
anger hefur samið um smíði á
103 þúsund tonna oliuflutninga
skipi í Japan. Er þetta stærsta
skip, sem smíðað hefur verið
tii útfiutnings í Japan. í skip
inu verður 37.600 hestafla vél,
sem verður stærsta dísilvél,
sem smíðuð hefur verið.
leggja til hliðar þar til seinna.
Ef ekki er unnt að ljúka samn-
ingum í þessum fyrstu viðræð-
um, verður að taka þær upp að
nýju. •
Orðsending Kínverja var af-
hent sendiherra Sovétríkjanna í
Peking 9. þ. m., og er hún jafn-
framt svar við orðsendingu
Rússa frá 21. febrúar sl. í orð-
sendingu sinni höfðu Rússar lagt
til að leiðtogar flokkanna tveggja
kæmu saman til ráðstefnu.
Jafnrétti
Kínversku flokksleiðtogarnir
taka það fram að þeir meti mik-
ils orðsendingu Sovétríkjanna,
og ekki sízt þeirri afstöðu, sem
þar kemur fram: algjört jafn-
rétti bræðraflokkanna. Kínverj-
ar ítreka það að þeir séu ein-
dregið andvígir því að skoðana-
ágreiningurinn sé látinn uppi og
birtur eða ræddur fyrir opnum
tjöldum. Ennfremur eru þeir
andvígir því að deilurnar verði
gerðar enn flóknari með fjöl-
merinum ráðstefnum, yfirlýsing-
um og tilkynningum. í kínversku
orðsendingunni segir einnig að
fleiri og fleiri „bræðraflokkar"
Mao Tse Tung. — Hann vilJ
semja við Krúsjeff.
láti nú í ljós óskina um að deil-
um þessum verði hætt „og við
vonum innilega að það gerist
sem allra fyrst“.
Verkfallsmönnum fagnaú í París
Ekkert miðar að samkomulagi
París, 13. marz (NTB)
ÞÚSUNDIR Parísarbúa fögnuðu
í dag 2.000 verkfallsmönnum úr
málmnámunum í Lorraine er þeir
konvj tii höfuðborgarinnar til
að skýra frá kröfum sinum. Verk
fallsmennirnir komu með margs-
konar farartækjum að úthverfi
Parísar, en þar biðu þeirra 15
stórir almenningsvagnar, sem
fluttu þá inn í borgina. Hvar
sem vagnarnir námu staðar safn-
aðist mikill mannfjöldi að þeim
og lét óspart í ijós stuðning
sinn við námumennina. Víða var
■MHi
15.000 orð um:
Fráhvarf eða afturhvarf
Ræða Krúsjefís um frelsi Sovétborgar-
anna og Stalinstímann
RÆÐA KRÚSJEFFS, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
sem getið var í Mbl. í gær,
hefur vakið mikla athygli.
Öll helztu blöð í V-Evrópu
hafa skýrt frá henni í stórum
fréttum, og m.a. er hennar
getið á forsíðu Parísarútgáfu
bandarisku stórblaðanna
„New York Times“ og „New
York Herald Tribune-“
Krúsjeff flutti ræðuna sjálf
ur á lokuðum f.undi með
helztu ráðamönnum menning-
armála og lista. Henni var
síðan útvarpað, en á sunnu-
Krúsjeff
dag var ræðan birt í heild
sinni í Moskvublöðunum. Hún
er 15.000 orð á lengd, og kem-
ur víða við, eins og vænta má
af svo langri ræðu.
Athyglisverðast við yfirlýs-
ingar Krúsjeffs verður að
telja þá skýrgreiningu á
„eftir-Stalínismanum“, sem
í þeim felst. Þar kemur ljóst
fram, að þrátt fyrir alla þá
gagnrýni, sem leiðtogar Sov-
étríkjanna hafa haldið á lofti,
þá hefur engin sú stefnubreyt
ing orðið, sem leyfir nýtt
frelsi á sviði stjórnmála eða
lista.
Krúsjeff hélt því fram, að
Stefna kommúnistaflokks Sov
étríkjanna yrði ráðandi í skrif
um blaða, í bókmenntum,
hljómlist, leiklist og kvik-
myndum.
Vestrænir sendimenn o>g
fréttamenn í Moskvu eru á
einu máli um, að gagnrýnin á-
Stalinismann hafi vakið öldu
írelsis í hjörtum mennta-
manna. Þá öldu hafi valdhaf-
írrur hræðst, sérstaklega, er
ljóst varð, í lok síðasta árs,
hvert stefndi í bókmenntum.
Þá hefur sú spurning verið
ofarlega á baugi, hvort ekki
megi vera, að gagnrýni Kín-
Stalin á líkbörunum
verja á stefnu Sovétleiðtog-
anna, hafi ekki haft nokkur
áhrif í þá átt, að þeir sáu sér
það eitt fært að grípa í taum-
ana nú.
Kínverjar hafa gagnrýnt
Krúsjeff fyrir að hafa vikið
frá kerinisetningum Marx-
Leninisma, og látið undan
síga fyrir „borgaralegum á-
hrifum.“
Það er samróma álit þeirra,
sem urii þetta mál hafa ritað
undanfarna daga, að þótt ræðu
Krúsjeffs sé fyrst og fremst
beirit að listamönnum, þá
fari ekki hjá því, að stefnu
flokksins muni gæta á flestum
öðrum sviðum sovézks þjóð-
lifs. Fráhvarfið frá stalinism-
anum hijóti að taka á sig
nýja mynd, þannig, að hafi
Framhald á bls. 3.
þjóðsöngurinn sunginn og al-
þjóðasöngur verkalýðsins og
námumennirnir hrópuðu slagorð
eins og „meiri peninga Charles“
og „vinnu fyrir unglingana“.
Haft er eftir góðuim heimild-
um í Paris að rikisstjómin sé
reiðuibúin til að láta eitthvað
undan kröfuim verkamanna í
kalanámunum, en um 200 þús-
und kolanámumenn eru í verk-
fal'li. Fyririhugað var að halda
fund um málið í kvöld. En verk-
fallsimennirnir, sem kamu til
Parísar í dag eru fulltrúar um
20 þúsund starfsmanna við
málmnámurnar í Lorraine hér-
aði, ag em þessar námur í einka
eign. Mauriee Bakanowski iðn-
aðarmálaráðlherra tók á móti
sendinefnd frá námumönnunum
á In'valide-torginu í miðri P^irís-
arborg. Var þar fyrir fjölmennt
lö.greglulið ti'l að halda reglu
meðan námumennirnir gengu
fylktu liði inn á torgið. Margir
námumannanna voru klæddir
bláum vinufötum sínum og bám
hjálma og luiktir eins og þeir
nota við vinnu sína.
Ekki kam til neinna árekstra.
Mikill mannfjöldi var saman
kominn á torginu, og báru sum-
ir kröfuspjöld með áletruninni
„Niður í námurnar Charles“. —
Leiðtogar námum&nna þökkuðu
Parísarbúum innilega þann stuðn
ing við verkfallið, sem fram kom
hvarvetna, og skýrðu frá kröf-
um sínum. Að loknum viðræ4-
um .við fuilltrúa rikisstjórnarinn-
ar sagði einn af leiðtogum námiu-
mannanna að hann hafi skorað
á stjórnina að hætta að segja
námumönnum upp starfi, hefja
samningaviðræður um kaup og
kjör, lögfesta fjögurra vikna suim
arleyfi með fullum launum og
40 stunda vinnuviku.
Alvarleg
verkföll í
Finnlandi
Helsingfors, 13. marz (NTB)
Samtök opinberra starfsmanna í
Finnlandi, sem telur um 53 þús-
und félagsmenn, boðaði í dag
verkfall, sem hefst aðfararnótt
föstudag. Ef ekki tekst að ley.sa
kjaradeilur opinberra starfs-
manna fyrir þann tíma hefst eitt
fjölmennasta verkfall, sem gert
hefur verið í Finnlandi um langt
skeið. Frá 1. marz hafa önnur
samtök opinberra starfsmanna,
með um 20 þúsund félaga, verið
í verkfalli, þeirra á meðal starfs-
menn við járnbrautimar, póst og
toll.
Ef úr verkfallinu verður, stöðv
ast öll flugumferð, vinna verður
lögð niður við síma og ritsima og
kennslu hætt í öllum skólum.
Bandarísk herskip skjóta
á russneskan togara
að sögn Sovétstjórnar
Moskvu og Washington,
13. marz — NTB
STJÓRN Sovétríkjanna hef-
ur sent bandarísku stjórninni
harðorð mótmyrli vegna at-
burðar, sem hún segir að hafi
gerzt nýlega. Þrjú handarísk
herskip hafi þá skotið fjórum
lausum skotum, þ.e. óhlöðn-
um sprengikúlum, að rúss-
neskum togara, sem var að
veiðum um 70 sjómílum frá
Bandaríkjaströnd. Mótmæla-
orðsending þessi var birt í
Izvestia, málgagni Sovét-
stjórnarinnar, í dag, og einn-
ig lesin upp í Moskvuútvarp-
inu.
Talsmaður bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins staðfesti
í dag að mótmælaorðsending-
in væri komin í hendur handa
rísku stjórnarinnar, og sagði
að málið væri nú í athugun.
Sovétstjórnin segir í orðsend-
ingunni að atburður þessi hafi
gerzt hinn 8. þ.m. um 70 sjómíl-
um frá Norfolk, sem er aðalhöfn
bandaríska Atlantshafsflotans. —
Tvö bandarísk beitiskip af
Framh. á bls. 23