Morgunblaðið - 14.03.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 14. marz 1963
MORGVNBLAÐIÐ
23
Kvenfélag
Bústaðasóknar
10
ára
UM ÞESSAK mundir eða nánar
tiltekið þann 17. marz á Kvenfé-
lag Bústaðasóknar 10 ára afmæli,
og er ákveðið að minnast þess
með fagnaði í Félagsheimili
Kópavogs n.k. laugardag kl. 7,30
e.h. og verður þar margt til
skemmtunar. Nánari upplýsingar
um skemmtunina gefa félagskon-
ur.
Þótt 10 ár séu að vísu ekki lang
ur tími, þá hefir félagið látið
margt gott af sér leiða fyrir fé-
lagskonur og aðra íbúa Bústaða-
sóknar. Það hefir haldið mörg
námskeið ýmsra tegunda, glatt
gamalt fólk, skemmt miðaldra
Myndin er tekin í Reykjavíkurf lugvelli r gær, þegar Ómar var
fluttur úr þyrlunni í sjúkrabíl. Sá, sem krýpur fyrir framan
Ómar og snýr baki að ljósmynd aranum, er lt. Donald E. Price,
sem stýrði þyrlunni, en næstyzttil hægri sést á hlið lt. R. L.
Gray, sem stjómaði leiðsagnarf lugvélinni. (Ljósm.: Sv. Þ ).
Fluttur með þyrlu frá Skíðaskál-
anum í Hveradölum
1 GÆBDAG slasaðist skóla-
piltur á skemmtiferð í Skálafelli
á Hellisheiði og var fluttur með
þyrlu frá varnarUðinu til Reykja-
víkur.
Skólanemendur úr Gagnfræða
Bkóla verknáms voru þarna á
ferð ásamt skólastjóra sínum,
Magnúsi Jónssyni. Þegar verið
var að ganga niður af Skálafelli,
inilli kl. 1 og 2, vildi svo illa til
%%%%%%%%
Bridge
fólki með spilakvöldum, farið !
mörg sumarferðalög, haldið
marga góða bazara, þar sem fólk
hefir fengið mikið úrval muna
á hagsteeðu verði, enda hafa bazar
vörurnar ávalt selzt upp á 1—2
klst.
Snar þáttur i starfi félagsins
hefir frá upphafi verið mikill
áhugi á sSfnaðarstarfi. Árið 1954
var það meðal brautryðjanda í
notkun fermingarkirtla og gaf
Bústaðasókn fyrstu kirtlana, sem
notaðir voru.
Á sl. ári gaf félagið kr. 30.000,-
til orgelkaupa.
Eg læt þessar línur nægja að
sinni þótt margs annars mætti
minnast.
Beztu afmælisóskir og þakkir
fyrir ánægjulegt og gott samstarf.
Axel L. Sveins.
STJÓRN Bridgefélags Reykja-
víkur hefur ákveðið að taka þátt
f alheims tvimenningskeppni,
sem spiluð verður fimmtudaginn
28. marz á sama tíma alls staðar
í heiminum. Það eru Englend-
ingar, sem standa fyrir keppni
þessari og er hún haldin til
ágóða fyrir hungrað fólk í heim-
inum (Freedom from Hunger
Campaign). Þessi keppni er fast-
ur liður ár hvert og hafa mann-
úðarmálefni svo sem lömunar-
veiki- og krabbameinsrannsókn-
jr verið styrkL
Keppnin er spiluð sem venju-
leg tvímenningskeppni en hinir
frægu bridgeblaðamenn Kenneth
Konstam, Ewart Kempson, RiXi
Markus, G. C. H. Fox, Harold
Franklin, Harrison Gray, Victor
MoLlo, Tony Priday, Terenca
Réese, hafa valið 28 skemmtileg
Bpil í keppnina. Það skal skýrt
tekið fram, að spilin eru ekki
röðuð, heldur spil, sem komið
hafa fyrir i keppnum. Eftir
keppnina fær hver þátttakandi
bok með spilunum í, ásamt skýr-
ingum sérfræðinganna. Ritstjóri
Jtókarinnar er Albert Dormer.
í keppninni er spilað um bikar,
Charity Challenge Cup, og fær
sigurvegarinn að varðveita hann
í eitt ár. Einnig eru fjögur verð-
laun og sigurvegari á hverjum
gtað fær opinbera viðurkenningu.
Stjórn Bridgefélagsins sótti um
þátttöku fyrir tvo 14 para riðla
og hafa félagsmenn forgangsrétt
nokkura fyrstu dagana á þátt
töku. Sú regla verður viðhöfð,
að fyrstu 28 pörin, sem tilkynna
þátttöku koma*t að. Þátttöku
gjald er ákveðið 120.— krónur
fyrir parið. Þátttaka tilkynnist
aem fyrst tU Brands Brynjólfs-
•onar sími 17324 eða Stefáns
Guðjohnsen, sími 10811. Stjórn
Bridgefélagsins hefur einnig
ékveðið að veita ein verðlaun
í keppninni auk þeirra erlendu.
að 16 ára pitur, Ómar V- Frank-
línsson, hrasaði, svo að hann átti
erfitt með að stíga í annan fótinn.
Vildi hann samt freista þess að
ganga áfram, en hann var kom-
inn langleiðina ofan fjallið, er
hann meiddist.
Skólastjórinn vildi það ekfci,
þar sem ekki var vitað, hvers
eðlis meiðslin voru. Sendi hann
þegar niður í Skíðaskálann í
Hveradölum eftir úlpum til að
breiða yfir Ómar, svo að honum
kólnaði ekki, en bað um að sækja
börur og biðja um sjúkrabíl frá
Reykjavík. Af einhverjum ástæð-
um var það ekki gert, heldur
beðið um að þyrilvængja frá
varnarliðinu sækti piltinn. —
Börurnar voru komnar á slys-
staðinn um kl. 3, og rúmlega hálf
tíma síðar var búið að bera Ómar
niður í Skíðaskála.
Vamarliðið brá þegar við, þeg-
ar því barst beiðnin, og sendi
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 6.
niðurstöðu nefndariinnar hafa
verið þá, að rétt væri að gera
ráðstafanir til þess, að þeir ung-
lingar, sem þess óskuðu, fengju
atvinnu. Nú hefðu komið fram
gjörólík sjónarmið eða þau, að
unglingar ynnu allt of mikið.
Kvað ÞKÞ það nú einu sinni
svo, að þegar sérfræðingarnir
ksemu tii og segðu að um óheilsu
samlega Iifnaðarhætti væri að
ræða ,gengi ofit erfiðlega að
sannfæra leikmennina. Og vafa-
lauist þyrfti mikla baráttu til að
koma aknenningi í skilning um,
að um of mikla vinnu unglinga
væri að raeða. SjáLfiur kvaðst
hann hafa unnið í JKski 12 ára
og mokað kolum 15 ára og sér
hefði orðið það holl reynsla.
Hann minntist þess, að nokkuð
var til, sem hét atvinnuleysi og
sór fyndist það því bera keim
-af yfirstéttarsjónarmiði að halda
því fram, að unglingar mættu
ekki vinna.
Úlfar Þórðarson (S) kvaðst
einkum hafa staðið upp vegna
þeirrar klausu í tiHögum AG,
að vinnuskólinn skyldi rekinn
,4 því skyni að forða sem flest-
uim börnum frá vinnumarkaði
atvinnulifsins og þeim hættum
ofreynslu, slysa og óhollra áhrifa,
sem þar vofa stöðugt yfir þeim“.
Kvaðst ÚÞ vilja mótmæla
þessu, þar sem vanla væru til
hollari uppeldisáhrif en þau,
þegar unglingarnir fá tækifæri
til að vinna sem jafningjar þeirra
fuliorðnu. Enda mundi slíkt
bann vafaiaust hvergi mæta
meiri mótspyrnu en frá ungling
unum sjáLfiMn og jafnan væri
þroskandi að kynnast nýjum við-
horfuna og nýjum viðfangsefn-
uim.
þyrlu af stað. Henni til leið
sagnar var flugvél. Þegar þær
komu upp eftir, var komin hríð
armugga, svo að flugvélin varð
að hækka sig yfir fjöllin, en
þyrlan lenti á hlaðinu fyrir fram
an skálann. Gekk síðan greið
lega að flytja Ómar til Reykja
víkur og á Slysavarðstofuna. Þar
var tekin mynd af fætinum, og
þar sem hún verður ekki tilbúin
fyrr en í dag, var ekki vitað í
gær, hvort Ómar hafði fótbrotn
að, tognað eða marizt um öklann.
Ómar var fluttur heim til sín eft
ir myndtatökuna.
Sá, sem stjómaði þyrlunni, er
lt- Donald E. Price, en sá, sem
flaug aðstoðarflugvélinni, er lt.
R. L. Gray.
— Bandarísk...
Framh. af bls. 1.
„Boston“-gerð og tundurspillir
af „Franks“-gerð voru í nánd við
rússneska frystitogarann „OS
RTR 9007“, sem var við veiðar á
opnu hafi. Klukkan 12,15, þegar
herskipin voru í um átta kíló-
metra fjarlægð, skutu þau tveim-
ur lausum skotum, og lentu skot-
in í sjónum um 130 metrum frá
togaranum. Nokkru seinna, kl.
12,50, þegar herskipin voru i
tæplega kílómeters fjarlægð,
skutu þau enn tveimur lausum
skotum, og lentu þau 60 metrum
frá togaranum.
Segir Sovétstjórnin að með
þessum aðgerðum hafi herskipin
stofnað lífum skipsmanna á tog-
aranum I hættu. Kemst Sovét-
stjórnin ekki hjá því að líta á
þessa skotárás á rússneskt fiski-
skip sem freklegt brot á alþjóða-
lögum, brot á grundvallarregl-
unni um frjálsar siglingar á opnu
hafi, og sem augljóst viljaverk,
er geti haft hinar alvarlegustu
afleiðingar, segir í orðsending-
unni. Þá segir ennfremur að Sov-
étstjórnin mótmæli þessari ögr-
un herskipanna og vænti þess að
þeim verði hegnt, sem ábyrgðina
bera, auk þess sem séð verði um
að atvik sem þetta endurtaki sig
ekki.
Talsmaður bandaríska flotans
í New York sagði að bandarísk
herskip væru aldrei búin óhlöðn-
um fallbyssukúlum. Jafnvel við
æfingar væru ætið notaðar
sprengikúlur.
Athugasemd
AF gefnu tilefni viljum vér
upplýsa að gashylki það sem tal-
ið er hafa valdið sprengingu í
vélbátnum Sæbjörgu á Seyðis-
firði, var ekki Dalsö-gashylki. —
Það skal tekið fram, að í Dalsö-
gasi er mjög sterkt lyktarefni,
sem gefur strax til kynna, ef gas
streymir út án þess að kveikt sé
á viðkomandi tæki.
Yirðingarfyllst.
Dalsögas-umboðið,
Guðni Jónsson & Co.
tíirtnríí
GCRB RIKISINS
Esja
fer vestur um land í hring
ferð 18. þ.m. Yörumóttaka í
dag og árdegis á morgun til
Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyr
ar, Suðureyrar, ísafjarðar,
Siglufjarðar og Akureyrar.
Farseðlar seldir á laugard.
Skjaldbreið:
fer vestur um land til Akur
eyrar 19. þ.m. Vörumóttaka á
föstud. til áætlunarhafna við
Húnaflóa og Skagafjörð og
Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
Ferseðlar seldir á mánud.
í STUTTU IVIALI
Moskvu, 13. marz (NTB)
Moskvuútvarpið tilkynnti i
kvöld að Dimitri Fjodorovitsh
Ustinov hafi verið skipaður
fyrsti aðstoðarforsætisráð-
herra Sovétríkjanna og jafn-
framt formaðui æðsta fjár-
málaráðs landsins, sem er ný
stofnun.
Ustinov var áður aðstoðar-
forsætisráðherra, en tekur nú
sæti við hlið þeirra tveggja
fyrstu aðstoðarforsætisráð-
herra, sem fyrir eru, þ.e. An-
astas Mikoyans og Aleksex
Kosygins.
Havana, 13. marz (NTB).
Rúmlega 609 Kúbubúar hafa
verið handteknir í þorpinu
Jaguey Grande, norðarlega á
Kúbu, að því er skýrt var frá
í Havana í dag. Meðal hinna
handteknu eru háttsettir her-
foringjar, hermenn og menn
úr varaliðinu. Allir eru þeir
sakaðir um að hafa aðstoðað
andstæðinga Castrós.
Moskvu, 13. marz (NTB)
Moskvubiaðið Pravda skýrði
frá því í dag í fyrsta sinn að
verið væri að flytja rússneska
hermenn frá Kúbu. Hefur biað
ið það eftir fréttaritara sín-
um í Havana að 4 skip hafi
farið þaðan með rússneska her
menn og sérfræðinga. Ekki
fylgdi fréttinni hve margir
hermenn hafi verið fluttir
burt.
Orðsending frá fyrsti
húsinu Isbjorninn hf.
Starfsfólki okkar og verkafólki, sem ætlað að vinna
hjá okkur, er bent á, að eftirleiðis verður flutningi
starfsfólksins til og frá vinnu hagað þannig: —
Ekið verður frá ís,birninum kL 7,15 árdegis og beint
niður á Lækjartorg. — Síðan inn Hverfisgötu, Borg-
artún, Sundlaugaveg, Laugarásveg, Langholtsveg,
Suðurlandsbraut — inn í Blesugróf. Þá upp Soga-
veginn, Miklubraut, Lönguhlíð og niður að verzL
Egils Vilhjálmssonar, Laugavegi 118. — Síðan verð-
ur ekið eins og venjulega: vestur Snorrabraut og
Hringbraut, og þá stanzað á venjulegum viðkomu-
stöðum. — Starfsfólkinu verður svo ekið á sömu
viðkomustaði að vinnu lokinnL
★ Geymið auglýsingfuna.
Fermingargjafír
Nýkomnar vandaðar fermingargjafir úr gulli og
siIfrL — Gefið gjafir frá
G. B. SILFURBÚÐINNI
Laugavegi 13 — Laugavegi 55
Sími 11060.
Útför
METTU TEITSDÓTTUR
Sigluvogi 10,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. marz kl.
11. — Jarðað verður í Gamla kirkjugarðinum.
Helga Sveinsdóttir,
Kristinn Ág. Eiríksson,
Oddfríður - Sæmundsdóttir,
og systur hinnar látnu.