Morgunblaðið - 14.03.1963, Blaðsíða 22
22
/
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. marz 1963
ÞESSA mynd tók Sveinn Þor-
móðsson í leik ÍR og FH á
sunnudaginn. Myndin sýnir
Birgi Björnsson brjótast í
gegn um vörn ÍR, Matthías
I*RÍR ieikir 8 liða úrslita í
keppninni um Evrópubikarinn í
knattspyrnu fóru fram í gær-
kvöldi og tryggðu þeir portú-
galska liðinu Benefica, hollenzka
liðinu Feyenoord og Dundee,
Skotlandi, rétt til undanúrslita-
leikjanna.
Benefica náði sér í þetta dýr-
mæta stig í Prag gegn Dukla en
Feyenoord krækti sér í sitt dýr-
mæta stig á heimavelli í Rotter-
dam. Dundee vann á heimavelli.
1 PRAG
Benefica, sem tvívegis hefur
unnið bikarinn og hefur hann
nú, lék hreinan varnarleik móti
Dukla í Prag. Fyrir rúmri viku
unnu Portúgalir Tékkana í Lissa-
bon með 2—1 og reyndu þeir nú
að halda því forskoti og tókst
það. Leiknum í Prag lauk með
0—0 og Benefica hefur mögu-
leika á að vinna bikarinn þriðja
sinn í röð.
Tékkarnir „áttu“ mun meir í
leiknum, en tókst ekki að kljúfa
hina gallhörðu vörn Portúgal-
anna.
í ROTTERDAM
Feyenoord hafði unnið franska
liðið Rheims á heimavelli Frakk-
anna fyrir skömmu með 1—0.
Þeir voru því sigurstranglégri
nú er liðin mættust í Rotterdam.
Hollendingarnir tóku líka for-
ystu í leiknum, höfðu 1—0 í
hálfleik, en Frökkunum tókst að
jafna fyrir leikslok 1—1. Hol-
lendingar fara því í undanúrslit
með samanlagðan markafjölda
2—1.
f DUNDEE
Skozka liðið Dundee tryggði
sér í gærkvöld rétt til undanúr-
slitanna í keppni um Evrópubik-
aninn í knattspyrnu. Liðið mætti
á heimavelli sínum belgíska lið-
inu Anderlecht og vann 2—1.
Belgarnir höfðu forystu í hálf-
leik 1—0.
f fyrri leik liðanna sem fram
fór í Belgíu vann Dundee með
4—1 svo að samanlagður sigur
Dundee er 6—2.
Yfir 300 faka þátt
í Holmenkollenmóti
METÞÁTTTAKA verður í 66.
HolmenkollenskíSamótinu sem
hefst í dag. 300 skíðamenn og kon
ur hafa komizt í keppni mótsins
eftir undanrásir en einnig er mik
il þátttaka erlendra manna og
kemur skíðafólk frá Svíþjóð, ís-
landi, Finnlandi, Sovétríkjunum,
Tékkóslóvakíu, Póllandi, Sviss og
Austurríki. Frá þessum löndum
koma 170 menn og konur til
keppni, eða meira en helmingur
keppenda á mótinu.
Búizt er við mjög harðri og
skemmtilegri keppni í skíðagöng-
unum, og meðal keppenda í alpa
greinunum eru margir snjallir
skíðamenn m.a. frá Mið-Evrópu-
löndunum.
Hápunktur mótsins verður þó
nú sem fyrr stökkkeppnin í Holm
enkollenbrautinni, sem nú hefur
verið endurbyggð og moderniser-
uð. Breytingin skapar möguleika
á lengri og betri stökkum og er
Síðari umferð
köríumótsins
í kvöld
f KVÖLD hefst síðari umferð í
meistaramótinu í körfuknatt-
leik og verða þá leiknir tveir
leikir, ÍS leikur gegn KFR og
KR gegn Ármanni.
Leik ÍS gegn KFR í fyrri
umferðinni lauk með sigri
KFR, 63:35, en leik KR gegn
Ármanni, sem leikinn var sl.
laugardag laug með sigri Ár
menninga 61:41. Verður nú
fróðlegt að sjá hvort sama sag
an endurtekur sig, eða leik-
menn hafi einhverja reynslu
dregið af fyrri samskiptum við
andstæðinga sína.
ÍLeikirnir fara fram að Há-
logalandi og hefjast kl. 8:15.
Stiguhæstir
f FYRRI umferð körfuknattleiks
ins • skoruðu þessir einstakldngar
flest -stig:
Guttormur Ólafsson, KR .. 64
Guðm. Þorsteinsson, ÍR .... 62
Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR . 59
Einar Matthíasson, KFR .... 55
Ólafur Thorlacius, KFR .... 54
Davíð Helgason, Á ......... 53
Hörður Bergsteinsson, KFR . 50
Agnar Friðriksson, ÍS..... 49
Einar Bollason, KR ........ 48
Hörður Kristinsson, Á..... 42
★ Alþjóðaþing íshokkíleik-
manna ákvað í dag að næsta
heimsmeistaramót skyldi fram
fara í Finnlandi 1965. Er ráð-
gert að leikirnir fari fram í
Helsingfors og Tammerfors.
Finnar vonast til að fyrir
1965 hafi þeir fengið innan-
hússskautahöll, en slíkt er þó
ekki skilyrði fyrir heims-
meistaramótinu.
—★—
★ Úrvalslið józkra knatt-
spyrnumanna fer í keppnis-
ferð til Noregs í sumar, frá
28. júní til 4. júlí.
nú stökkbrautin aftur í röð beztu
stökkbrauta heims.
-- XXX ---
Fyrsta keppni mótsins er I dag,
15 km ganga, en jafnframt verð-
ur keppni í stórsvigi og stökki
norrænnar tvíkeppni.
Á föstudag verður svigkeppnin
í Rödkleiva. Á laugardag er
ganga kvenna, tvíkeppnisgangan
og 50 km ganga. Á sunnudag er
stökkkeppnin og búizt við yfir
90 m stökkum og verðlaunaúthlut
un við ráðhús Oslóar um kvöldið.
Asgeirsson fellur fyrir Birgi
en á horfa Gunnlaugur og
Stefán.
En sérstæðast við myndina
er að Sveinn tekur hana á
þeim þúsundasta parti úr
sekúndu sem „flash-ljós“ ann
ars ljósmyndara setur töfra-
birtu á leiksvæðið og menn-
ina. Slíkt er einstök hending
en gefur myndinni skemmti-
legan svip.
„Gamalmennahátíö"
Ármanns í Jósefsdal
XJM næstu helgi halda Ármenn-
ingar skiðahátíð í Jósepsdal. —
Haldið verður sérstætt skíðamót
í Bláfjöllum, og í skíðaskála Ár-
manns verður fjölbreytt skemmti
dagskrá á laugardagskvöldið og
þorramatur á boðstólum. Skiða-
færi er nú ágætt þar efra.
Hér er um að ræða hina ár-
legu „gamalmennahátíð", sem
skiðadeild Ármanns gengst fyrir.
Mætast þar bæði yngri félagar
og einnig eldri Ármenningar við
góða skemmtun og ánægjulegar
skíðaiðkanir.
Hátíðin hefst kl. 8 á laugar-
dagskvöldið með því að snæddur
verður þorramatur í skíðaskála
Ármanns. Síðan verður þar fjöl-
breytt skemmtidagskrá, söngur
og dans um kvöldið.
Ferðir frá Reykjavík verða frá
BSR kl. 2 og kl. 6 síðdegis á
laugardag. Ferðir verða frá
skíðaskálanum í Jósepsdal seint
á laugardagskvöld fyrir þá sem
vilja fara í bæinn að lokinni
kvöldskemmtun.
Skíðákeppni
Á sunnudagsmorgun verða
ferðir frá Reykjavík (BSR) kL
9 og kl. 10.
Á sunnudag verður svo haldið
innanfélagsmót Armanns í Blá«
fjöllum. Keppt verður í yngri og
eldri flokkum. M.a. verður sér-
stök „öldungakeppni" fyrir þá
sem eru 40 ára og eldri.
Skíðafæri er ágætt í Bláfjöll-
um. í skíðaskála Ármanns hafa
undanfarið dvalizt nemendur úr
framhaldsskólunum í Reykjavík
og hefur hver skóli haft viku til
umráða. Þarna eru skíðabrekkur
við allra hæfi, og tilvalið fyrir
borgarbúa að skreppa til fjalla
um helgina og njóta góðs skíða
færis og útilífs. Reynt verður að
koma fyrir skíðalyftu í Bláfjöll«
um um helgina.
Vegur er góður upp í Jóseps-
dal og fær flestum bílum alla
leið.
Ármenningar, eldri sem yngri.
eru hvattir til að hittast í Jóseps-
dal um helgina, og ekki er að
efa að borgarbúar nota tækifær-
ið til að komast í góðan snjó.
Mynd þessi var tekin í Bláfjöllum sl. þriðjudag af Árna Kjart-
anssyni, og sýnir hún vel hið ágæta skiðafæri.
-vlJl/tOW-
SKYRTUR
heimsfrœg gœðavara at
ýmsum tegundum og gerðum
• Ermalengd við allra hæfi.
• FulJkomið snið.
• Nákvæmt mál.
• Úrvals efni og vinna.
Umboð: ÞÓRDUR SVEINSSON & CO. H.F.
MTTAFRÍTIIR MORGUllARSIRS
Benefica eygir
bikarinn í 3. sinn