Morgunblaðið - 14.03.1963, Síða 6
6
MORCVWBL AÐ1Ð
Fimmtudagur 14. marz 1963
Flestir unglingar fái starf
við sitt hæfi í atvinnulífinu
Á FUNDI borgarstjórnar s.l.
fimmtudag var enn til umræðu
sumaratvinna unglinga í tilefni
af nefndaráliti því, er lagt hafði
verið fram og áður hefur verið
getið hér í blaðinu.
Adda Bára Sigfúsdóttir (K)
mælti fyrir tillögu sinni þess
efnis, að borgtarsfcjórn mæltist
til þess við barnaverndarnefnd,
að hún fæli Vinnuskóla Reykja-
víkur að hafa eftirlit með ungl-
ingavinnu hér i Reykjavikur-
borg, þar sem hann væri dóm-
bærastur á hvaða störf væri við
ung'lingahæfi.
Barnaþrælkun í Reykjavík.
Atfreð Gíslason (K) kvað
nefndarálit um sumaratvinnu
ungiinga bera það rheð sér, að
. 67 % barna ag unglinga á aldr-
inUm 12—16 ára teldu sig vinna
xneira en 8 kist. á sólarhring
yfir sumarmánuðina. I>ess bæri
þó að gæta, að um helmingur
þess væri í sveit um sumarið og
þvi hæpið, að um fullan vinnu-
dag væri að ræða. Kvað AG
þetta benda tíl þess, sem hann
hefði lengi haft grun um. „að
barnaþrælkun sé mikil í Reykja-
vík“. Veik hann síðan að því
jt , * að það væri ungl
J ingum óhollt,
eftir erfitt nám
yfir veturinn að
vinna stanzlaust
allt sumarið og
kvað nauðsyn-
legt að þeim
yrði tryggt 6
vikna sumar-
leyfí, svo að þau
mættu læra að hvílast og njóta
frístunöanna.
I>á taldi hann, að stefna ætti
að því, að Vinnuskólinn tæki
við öllum börnum og ungling-
um á aldrinum 12—16 ára, þar
sem hann taldi varhugavert, að
þau væru ráðin í borgarvinnu
öðru vísi en sem nemar vinnu-
skólans.
Borgarvinnan reyndist vel.
Birgir ísl. Gunnarsson (S)
vakti athygli á því, að í nefnd-
aráliti um sumaratvinnu ungl-
inga væri gert ráð fyrir veru-
Frumvarp
til loftferða-
laga
RÍKISSTJÓRNiN hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp til loft-
ferðalaga, en það er samið að
boði Ingólfs Jónssonar flugmála-
ráðherra og í samræmi við þings-
ályktun, sem samþykkt var 1956
samkvæmt tillögum Gunnars
Thoroddsen ráðherra.
Gizur Bergsteinsson gerði upp-
kast að frumvarpinu með skýr-
ingarrétti, sem þeir Hákon Guð-
mundsson hæstaréttarritari og
Jónas Rafnar alþingismaður hafa
síðan yfirfarið.
legri eflingu Vinnuskólans eftir
því sem þörf væri á. I>ví væri
allur tillöguflutninguir ,sem að
þessu miðaði óþarfur. Þá gerði
BÍG nokkuð að umtalsefni, þá
fillögu Alfreðs Gíslasonar, að
Vinnuskólinn færði út starfssvið
sitt og tæki 16 ára unglinga til
starfa.
Taldi BÍG það óraunhæfa til-
lögu. 16 ára aldurstakmarkið
hefði í for með sér tímamót
fyrir hvern ungling. í>á yrði ungl
ingurinn sjálfráða og talinn gjald
gengur á hinum almenna vinnu-
markaði, enda gerðu kjarasamn-
ingar verkalýðsfélaga ráð fyrir
því, að 16 ára
unglingar fengju
greidda fullia
kauptaxta. Það
væri því mikíð
vafamál, hvort
nokkur 16 ára
unglingur feng-
ist til að fara í
vinnuskólaim.
AG hafði m.a.
gert það að tillögu sinni, að ung-
lingax yrðu ekki settir til vinnu
í borgarvinnu öðruvísi en á veg-
um vinnus&ólans. 1 þvi samibandi
rifýaði BÍG upp tillögu, er flokks
bróðir Alferðs, Guðmundur J.
Guðmundsson flufcti i borgar-
stjórn á s.l. vori, en þar var
lagt til, að unglingar yrðu sett-
ir til starfa í hinni almennu
borgarvinnu. Svo var gert á s.l.
sumri, þ.e. 15 ára piltar fengu
vinnu í ýmsum flokkum borg-
arvinnunnar og reyndist það vel.
Taldi BÍQ eðlilegt að því yrði
áfram haldið.
BÍG mótmælti þeim órök-
studdu fullyrðingum AG um, að
í Reykjavík ætti sér stað mikil
„barnaþrælkun", eins og hann
orðaði það. í vinnuskólanum t.d.
væri starfið nokkurskonar leik-
ur og því væri sú tillaga AG
ekki raunhæf, að hafá 6 vikna
sumarleyfi í vinnuskólanum.
Hingað til hefði verið haft sum-
arleyfi í eina viku og jafnvel
það hefði valdið óánægju naeðal
foreldra ungiinganna.
Unglingarnir þurfa starf
viS sitt hæíi.
f>á kvaðst BÍG vera andvígur
þeirri skoðun AG, að vinnuskól-
inn ætti helzt að geta tekið á
móti öllum unglingum í borginni,
sem væru u.þ.b. 5500 að tölu á
aldrinum 12—15 ára. Væri alveg
vonlaust, að vinnuskólinn hefði
verkefni fyrir slíkan fjölda og
„gervivinna", sem taka yrði upp
þegar önnur verkefni þryti, væri
óholl frá uppeldislegu sjónar-
miði.
Taldi BÍG eðlilegast að sem
flestir unglingar fengju starf við
sitt hæfi í atvinnulifinu sjálfu
og vinnuskólinn tæki þá fyrst
við, er möguleikar atvinnulifs-
ins væru tæmdir.
Er ræðuimaður hafði svarað
ræðu og tillögu AG flutti hann
svohlj óðandi tillögu:
„Borgarstjórn er samþykk
þeim meginsjónarmiðum, er fram
koma í nefndaráliti um sumar-
atvinnu unglinga frá 5. febr. s.l,
enda varð nefndin sammála um
álit sitt. Tillögum Alfreðs *Gísla-
sonar er þvt vísað frá“.
Var tillaga þessi samþykkt
með atkvæðum allra borgarfull-
trúa, nema kommúnista.
I>á gerði BÍG nokkuð að uon-
talsefni tillögu og ræðu Öddu
Báru Sigfúsdóttur, en hún hafði
m.a. flutt tillögu um, að barna-
verndarnefnd fæli vinnuskólan-
um víðtækt eftirlitsvald utn
vinnu bama og ungliinga al-
mennt. Taldi BÍG eðlilegra, að
barnaverndarnefnd sjálf hefði
slíkt eftirlit, enda væri hún
lögum samkvæmt skyld til að
hafa það með höndum.
Kristján Benediktsson (F) kvað
viðhorf sitt til þessara mála fyrst
og fremst hafa verið það að
leysa þann vanda, að þeim ung-
lingum, sem fýsti að vinna yfir
sumarið, væri gert það kleift.
l>á lýsti hann sig á öndverðum
meið við AG, þar sem han.a
teldi það mikið happ fyrir ís-
lenak börn og unglinga að hafa
tækifæri til þess að komast i
snertingu við athafnalífið, og
kvaðst því mundi styðja að þvi,
að unghngarnir yrðu ekki iðju-
leysinu að bráð.
Þórir Kr. Þórðarson (S) kvað
Framh. á bls. 23.
Endurskoðun laga um
byggmgarsamvlnnufélög
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
svaraði Emil Jónsson sjávar-
útvegsmálaráðherra fyrirspurn
Jóns Skaftasonar um, hvað liði
framkvæmd þingsalyktunar frá
16. jan. 1961 um endurskoðun
laga um byggingarsamvinnufé-
lög.
Sagði ráðherrann, að er þings-
Frá Alþingi
A FUNDI sameinaðs þings í
gær gerði Pétur Sigrurðsson (S)
grein fyrir því áliti allsherjar-
nefndar að tillögur til þings-
ályktunartillaga um endurskoð-
un skiptilaga verði samþykkt
með þeirri breytingu, að endur-
skoðunin nái einnig til laga um
gjaldþrotaskipti; Gísli Jónsson
(S) mælti fyrir því, að tillögur
um hlutdeildar- og arðskipti-
fyrirkomulag í atvinnurekstri og
um launabætur af ágóða at-
vinnufyrirtækja verði vísað til
ríkisstjórnarinnar, en síðan
fjalli nefnd sú, er unnið hefur að
athugunum um styttingu vinnu-
tímans án þess að rýra afköstin,
um tillögurnar og brjóti þær til
mergjar.
ályktun þessi var samþykkt,
hefði nefnd verið starfandi við
endurskoðun laga um húsnæðis-
málastjórn, verkamannabústaði
o. fl. Henni hefði verið falin
endurskoðun laganna um bygg-
ingarsamvinnufélög hinn 1. febr.
1961. í»á hafði nefndin hafið all-
umfangsmikla gagnasöfnun varð
andi lögin um húsnæðismála-
stjórn og var ákveðið, að sú
endurskoðun skyldi sitja í fyrir-
rúmi. I maí 1961 skrifaði nefnd-
in síðan tii
stærstu bygging
arsamvinnufé-
laganna og ósk-
aði þess, að þau
létu í ljós skoð-
un sína á því,
hvað helzt væri
ábótavant í lög-
unum. S v a r
barst einungis
frá tveim þeirra. Kvað ráðherr-
ann rétt, að nokkur dráttur hefði
orðið á endurskoðuninni, en þess
væri að gæta, að nefndin hefur
haft ærin verkefni og einnig olli
það erfiðleikum, að ekki bárust
fleiri svör.
Jón Skaftason (F) þakkaði ráð
herra syörin um leið og hann lét
í ljós undrun sína á því, að ekki
skyldu hafa borizt svör nema frá
tveim byggingarsamvinnufélög-
um; loks lagði hann áherzlu á,
að endurskoðuninni yrði hraðað,
þar sem lögin væru úrelt orðin
og ranglát.
Magnús Jónsson (S) kvaðst
sem fyrri flutningsmaður þings-
ályktunartillögunnar um endur-
skoðun laganna um byggingar-
samvinnufélög vilja segja nokk-
ur orð. Tók hann undir efnisrök
JS um nauðsyn endurskoðunar-
innar m. a. vegna breyttra að-
stæðna hér á landi, sem yllu því,
að óeðlilegar kvaðir hvíla á
þeim, sem eru í byggingarsam-
vinnufélagi, miðað víð hlunn-
indi. I>á lýsti hann undrun sinni
yfir því, hve fá félög hefðu sent
svar, en sagði að það áhugaleysi
mætti ekki verða til þess, að
endurskoðunin færi ekki fram.
Eggert Þorsteinsson (A) upp-
lýsti, að Byggingarsamvinnufélög
lögreglumanna og Reykjavíkur
heíðu verið þau einu, sem senau
svör. Æskilegt hefði verið, að
fleiri álit lægju fyrir, enda hefði
það greitt fyrir endurskoðuninnL
• „West Side Story“
og Todd-A-O
„Bíógestur“ skrifar:
„Ég sá það í Mbl. fyrir nokkr-
um dögum, að í vor myndi Tóna
bíó í Reykjavík hefja sýningar
á hinni frægu kvikmynd „West
Side Story“, sem átt hefur mikl-
um vinsældum að fagna víða
um lönd undanfarin ár, einkum
vegna tónlistarinnar. Þessi fregii
kom mér nokkuð á óvart, þar
eð að því er ég veit bezt, er
kvikmynd þessi gerð með svo-
kallaðri Todd-A-O tækni, þ. e.
á breiðtjaldi og með stereófón-
iskum hljómburði, en músik-
myndir njóta sín sérstaklega
vel með slíkri tsekni eins og
Reykvíkingum er þegar kunn-
ugt af myndunum South Pacific,
Oklahoma og Can-can, sem
Laugarássbíó sýndi. Nú er Tóna
bíó ekki útbúið tækjum til sýn-
ingar á slikum myndum og yrði
því umraedd mynd sýnd þar í
Cinemascope með einföldum
hljómi og þarf ekki að lýsa því,
hvað það dregur úr gildi henn-
ar. Nú eru hér í borg tvö kvik-
myndahús, Laugarássbíó og Há-
skólabíó, sem hafa tæki til sýn-
ingar á þessari mynd eins og
hún er upphaflega gerð, og því
hlýtur sú spurning að vakna
með mönnum, hvers vegna
annað hvort þeirra geti ekki
fengið hana til sýningar. Það
hefur að vísu áður skeð eftir
uppkomu þessara tveggja kvik
myndahúsa, að mynd, sem upp-
haflega hefur verið gerð í Todd-
A-O, hefur verið sýnd hér með
ófullkomnari tækni, t. d. hin
fræga mynd Umhverfis jörðina
á 80 dögum, og segja þeir, sem
til þekkja, að hún hafi alger-
lega misst gildi sitt þannig sýnd.
Við vitum að vísu, að verðmun-
ur er hér nokkur, en ég hygg að
fáir muni horfa í hann fyrir að
fá að sjá hina fullkomnari gerð.
Ég tel það vera lágmarksskyldu
kvikmyndahúsanna fyrir borgar
búa, að þau haldi samkeppni
sinni a.m.k. svo í skefjum, að
hún leiði ekki til þess, að þeir
fái ekki möguleika tii að sjá
hinar tiltölulegu fáu myndir,
sem gerðar eru með umræddri
tækni, úr því að tvö kvikmynda
hús í borginni hafa lagt í þann
mikla kostnað að koma upp
tækjum til sýningar á þeim.
Verður að gera þá kröfu til kvik
myndahúsanna, að þau hafi með
sér samvinnu, er tryggi þetta.
Ég vona, að viðkomandi aðilar
taki þetta til vinsamlegrar at-
hugunar, og að við Reykvíking-
ar fáum að sjá myndina „West
Side Story“ eins og hún hefur
verið sýnd um öll lönd á undan-
förnum árum við geysivinsæld-
ir. Bíógestur".
AEG
BAFMÓTORAR
Sími Bræðurnir
11467 Ormsson