Morgunblaðið - 11.04.1963, Page 8

Morgunblaðið - 11.04.1963, Page 8
8 uoRCVNnr4ni» Fimmtudagur 11. apríl 1963 VOX.GUR sjórinn gjálfrar við hvíta fjörusteinana, og engu mun ar aö rjúki úr hnuilungunum þegar öldurnar sleikja þá, svo heitir eru geislar sólarinnar. Á baðströndinni, í lítilli vík milli tveggja kletta, er ekki margt um manninn, en þó má þar sjá fólk af ýmsum þjóðernum. Húsin upp af ströndinni halla sér værðar- lega að fjallshlíðinni milli fag- urra trjáa og litskrúðugra blóma. Þar sem þeim sleppir ber hvíta fjallshlíðina, prýdda grænni furu við heiðbláan hiirán. Þetta er staðurinn, sem mér er minnis- stæðastur þeirra, er ég hef heim- sótt. Smáþorpið Cap d’Ail á Blá- strönd Frakklands. Þegar við íglendingar hugsum um hina sólríku Bláströnd, koma okkur fyrst í hug nöfn eins og Nice, Cannes og Monte Carlo, nöfn staða, sem lengi hafa ver- ið miðstöðvar ferðamanna- straumsins, og eru þekktir fyrir fagrar byggingar, glæsilegar bað strendur, spilavíti og viðhafnar- gistihús. Ég varð því vonsvikin, þegar ég sá ferðaáætlunina, sem gerð hafði verið fyrir okkur skólasystkinin, er við ætluðum að heimsækja Bláströndina. Á henni var ekkert nafnanna þriggja, sem heiiluðu m-est. Stað- urinn á Bláströndinni, sem gert var ráð fyrir að við gistum, bar nafnið Cap d’Ail. Við ieituðum að honum á landakortum, en fundum ekki. Þetta gat ekki ver- ið skemmtiiegur staður. Þegar okkur bárust nánari skýringar frá ferðaskrifstofunni, kom í ljós mér til mikillar á- nægju, að Cap d’Ail er aðeins steinsnar fró ivionte Carlo, þess- ari fræg.u borg í furstadæminu Monaco, og stutt er þaðan til Nice og Cannes. Samt varð raun- in sú, að þegar til Cap d’Ail kom, dvínaði áhuginn á því að heim- sækja þessa nafntoguðu staði. Smábærinn Cap d’Ail stendur utan í fjallshlíð, og að austan er hann alveg samliggjandi Monaco, aðeins vegarskilti gefa til kynna hvenær farið er yfir landamæri Frakklands og furstadæmisins. Lítið er um steinsteypta vegi og breiðgötur í Cap d’Ail, en þeim mun fleiri eru skemmtilegu tröppustígarnir, sem hlykkjast milli húsanna niður að Miðjarð- arlíafinu. Við bjuggum í stúd- entagistihúsi, góðan spö.1 frá ströndinni, en hann hefði gjarn- an mátt vera lengri vegna þess hve margt skemmtilegt var að sjá. Gróðurinn var margbreyt:- legur, blómin fögur og litskrúð- ug og ólík því, sem við eigum að venjast, og húsin framandi með gluggahlerum, sem gerðu þau leyndardómsfull. Hús efn- aðra Norður-Evrópubúa og í- burðarminni hús þorpsbúa. Með- al þeirra Norður-Evrópubúa, sem hús eiga í Cap d‘Ail er hinn aldni stjórnmálamaður Sir Winston Churchill, en þeir þorpsbúar, sem við spurðum, hvar hús hans væri, þóttust ekki skilja okkur. f>eir voru augljóslega stoltir af því, að Sir Winston hafði reist hús í þorpi þeirra, skildu, að hann vildi vera í friði fyrir á- troðningi útlendinga, þegar hann dvaldist þar og voru staðráðn- ir í að vernda hann fyrir þeim. Cap d’Ail býður ekki upp á fornar rústir, tennisvelli eða eins glæsilegar baðstrendur og t.d. Nice og Antibes, en þar er ekki of margt um manninn eins og oft vill brenna við í hinum stærri og vinsælli ferðamannabæjum. Það er hægt að sitja þar á bað- strönd í sólinni óáreittur, án þess áð Þjóð verji með matar- körfu komi aðvífandi og segist hafa verið búinn að panta ein- mitt staðinn, þar sem maður situr, Bandaríkjamenn í skræp- óttum skyrtum með fjölda myndá véla dinglandi um hálsinn, traðki á tánum á manni eða spikieitir mambokarlar ira buo- ur-Ameríku, í gulbleikum gaber- dínfö.tum, ryðji sóiiuifumi um koll. Ég dvaldist viku í Cap d‘Ail. Alia aagana, að þeim sioasi.a und anskilaum, glampaði sólin í heiði, og dásamlegt var að liggja á baðströndinni, synda í sjon- um eða bregða sér út á víkina á vatnshjóli. Síðasta daginn bréyttist þetta snögglega. Drun- ur heyrðust í fjarska, það dró fyrir sólina og á skallsteypiregn. Allir baðstrandargestirnir þustu til búningsklefa sinna, en okkur fannst ótækt að híma í klefun- um og lögðum því á brattann heim að gistíhúsinu. Það rigndi ofboðslega. Þetta var regluleg hitabeltisrigning, ólíkt skemmti- legri en kalsarigning heima á Fróni. Við gegnblotnuðum nær strax, en það var bara skemmti- leg tilbreyting frá sólinni og þurrkinum. Óhugsandi er að dveljast í Cap d’Ail án þess að bregða sér til hins forna furstadæmis, Monaco, en gönguferð þangað tekur ekki nema tæpa klukkustund. í Mon- ar Rainiers fursta og Grace fursta frúar er opinn ferðamönnum, og þar er fagurt málverkasafn. Fjöl- breytt fiskasafn er í nágrenni hallarinnar, sem stendur á Jdetti við hafið, en uppi í hlíðinni er mjög fagur garður með fjöl- breyttum hitabeltisgróðri. Höfn- in í Monte Carlo er skemmti- lega staðsett og þar liggur fjöldi glæsilegra skemmtisnekkja en Christina, skemmtisnekkja gríska auðjöfursins Onassis, ber af þeim öllum. Það, sem mér fannst mest heillandi í Monte Carlö, var hið heimsfræga spilavíti, sem ráðið hefur örlögum fjölda manna. Ég get því ekki lýst vonbrigðurh mínum, þegar ég kom að miða- sölunm í forsal spilavítisins og var sagt, að ég fengi ekki að fara inn í spilasalina, því að ég væri ekki orðin 21 árs. Það var allt annað en skemmtilegt að vera komin inn í forsal þessa nafntogaða spilavítis, senni- lega í eina skiplið á æv- inni, og fá ekki að fara lengra. Ég settist á bekk í forsalnum. Það var nokkur sárabót að virða fyrir sér fólkið, sem gekk inn í spilasalina og út úr þeim. Skartklæddar konur, karlar í samkvætnisfötum, ferða- buxum og karlar í duggarapeys- um. Ósamræmið í klæðaburði fólksins í hinum glæsilega for- sal bar vitni þeirri staðreynd, að það eru ekki lengur aðeins þeir auðugustu, sem geta leyft sér að heimsækja Bláströndina. Það eru eingöngu ferðamenn, sem freista gæfunnar í spilavít- inu. Lög furstandæmisins banna íbúum þess að spila fjárhættu- spil. Þegar ég hafði horft nokkra stund á fólksstrauminn í for- salnum, gekk ég að dyrum. fremsta spilasalarins og gægðist inn. Vörðurinn, sem gætti dyr- anna var eitthvað annars hugar, ég ætlaði að reyna að laumast inn fyrir og var komin yfir þröskuldinn, þegar hönd var lögð á öxl mína og vörður, sem ég hafði ekki tekið eftir sagði: „Votre billet, madamoiselle?“ Þetta var tilgangslaust. Ég gekk út í garðinn fyrir utan spilavítið og horfði út á hafið. Það var myrkur og \hafið biksvurt, en á milli trjánna glitruðu eldflugurn ar. Ég horfði á hvíta veggi „Hotel de Paris“. Það er líkara höll en gistlhúsi og ég velti því fyrir mér hvort ekki væri tilvinnandi að púla alla ævi til þess að geta dvalizt þar í hálfan mánuð. Cap cl’Ail, þessi srnábær á Blá- ströndinni, er mér svo minnis- stæður vegna þess hve mjög hann kom mér á óvart. Ég hef heim- sótt nokkrar stórborgir, en ekki dvalizt lengur en viku 1 hverri og á svo stuttum tíma gefst ekki tækifæri til þess að kynnast öllu, sem þær hafa upp á að bjóða. Þær virðast hver annarri líkar og margar koma kunnuglega fyr ir sjónir úr kvikmyndum. Um Cap d’Ail gegnir allt öðru máli Þó að staðurinn sé við fyrstu sýn líkur öðrum smáþorpum á Bláströndinni er umhverfið og andrúmsloftið framandi íslend- ingi sem ekki hefur áður komið til suðlægra landa. Það er eins og komið sé í annan heim, heim, sem erfitt er að yfirgefa og heill- ar til æviloka. Sólrún Jensdóttir f Hópferbabllar Höfum hópferðabíla til leigu af ýmsum stærðum í lengri og skemmri ferðir. — Leitið upp- lýsiþga. FERÐASKRirSTDFAN gegnt Gamla Bíói Sími 17600 aco er margt að sjá. Hluti hall- mannahópar, konur klæddar síð- v

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.