Morgunblaðið - 11.04.1963, Side 18

Morgunblaðið - 11.04.1963, Side 18
18 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 11. apríl 1963 í SKÓGI vöxnum hlíðum Kulla- bergsins á Skáni í Svíþjóð liggja tvö lítil sjávarþorp, Arild og Mölle, bæði einkar falleg og Vinaieg. Fyrr á öldum lifðu íbú- ar þeirra nær eingöngu á fisk- veiðum, en í Svíaríki sem víðar hefur hraðvaxandi iðnaður laðað til sín vinnuafl úr sveitum og sjávarþorpum — sem þá aftur hafa orðið athvarf borgarbúa á sumrin. 1 Arild Og Mölle eru vinsælir baðstaðir — þar margfaldast i íbúatalan á sumarleyfatímabil- inu frá miðjum júní til ágúst- loka. Margir eiga þar sín sumar- hús, aðrir búa í gistiheimilum, sem yfirleitt eru afar skemmtileg og heimilisleg, — enn aðrir koma með tjöld eða jafnvel að- eins svefnpoka og sofa undir berum himni. Ég kynntist þessum stöðum í júníbyrjun, meðan umferð var enn næsta lítil og sumargestirn- ir ókomnir — en þá þegar var glampandi sólskin og 25 stiga hiti. Ástæðan til þess, að ég vel þessi litiu þorp og umhverfi þeirra til umtals hér framar öðr- um stöðum sögulesri. er fyrst og fremst sú, að óvíða hefur mér liðið iafn vel, — í sól, kyrrð, veðurblíðu og elskuiegu um- hverfi. Eftir nokkurra daga dvöl í Arild, hafði ég tekið sér- stöku ástfóstri við þetta litla þoro og umhvP'H’i bess. og ákvað að koma þangað sem fyrst aftur. I væri talsvert upp á gamla móð- inn og nánast lífshætta að stíga á það. Loks voru þarna eldri læknishjón, dönsk, búsett í út- jaðri Kaupmannahafnar. Þau höfðu haft sama sumarhúsið á leigu þarna í Arild í fimmtán ár, þar til það brann, — en síð- ustu tvö árin höfðu þau búið á gistiheimilum. Á myndunum á veggjum gisti- heimilisins og gestabókum hús- ráðanda mátti sjá, að allmargir málarar höfðu dvalizt þar og iðkað list sína í fögru umhverfi þorpsins. f>eir höfðu margir gef- ið henni myndir að skilnaði, jafn vel greitt ógoldna húsaleigu með þeim eða sent henni sem jóla- kveðju. Sumar fannst mér nú svolítið skrítnar, aðrar fallegar, í ýmsum stíltegundum — en um listagildi þeirra treysti ég mér ekki að dæma. Læknishjónin dönsku sögðu mér, að jafnan hefðu listamenn fjölmennt á gistihús frú Rastenis. Þar hefði því oft verið glatt á hjalla — sungið, spjallað og teigaðar gullnamveigar. Þá væri maturinn hjá Ingu Lill ekki ama- legur, enda hefði hún haft fransk an kokk í þjónustu sinni um ára- bil og hefði hann sett óafmáan- leg merki á matseld húsfreyju. Þessi ágætu hjón fræddu mig einnig á því, að aðalgistihús og stolt þorpsins væri þó Hotel Ar- ild. Þar væru eitthvað yfir fjöru- tíu gistiherbergi í fimm húsum og í einu þeirra — Bránnagárden, eins og það mun heita réttu nafni er 16 km langur fjalls- hryggur, sem rís upp af suðvest- urströnd Skálderviken — á nes- inu, sem skilur víkina frá Eyrar- sundi. Hryggurinn er 1—IVz km hreiður og víðast ósköp lágt á honum risið á okkar mælikvarða. Hæsti tindurinn Hákull nær vart 200 metrum, en setur þó myndar- legan svip á umhverfið, þvi fátt er um fjöll eða mishæðir í þess- um landshluta. Norðurhlíðin rís snarbrött úr hafi. Naktir klettar sums staðar allt að hundrað metra háir, skaga þar í sjó fram, og víða má sjá skemmtilega hella og dranga. Suðurhlíðin er aftur jafnari og gróðurmeiri, annars er Kullen að mestu skógi vaxinn, bæði lauf- og barrskógi og plöntulíf mjög fjölbreytt. Mölle er í suðurhlið fjallsins. Þar hafa nú fasta búsetu um fimm hundruð manns og fer íbúunum sífækkandi ár frá ári. Aðeins nokkur hluti þeirra lifir af fiskveiðum, en bátahöfn er þar ágæt. Margir sækja vinnu til bæjarins Höganás, en þangað er aðeins 11 km skotvegur. Þar er aðalatvmnuvegurinn kola- Og leirvinnsla, og bærinn víðkunn- ur fyrir keramikgerð. í verk- smiðju Andersson & Johannsson sá ég t. d. framleiðslu á ýmsum munum, búsáhöldum og skraut- munum, sem vakið höfðu mikla athygli á listiðnaðarsýningum í Kaupmannahöfn, Gautaborg og Stokkhólmi. í norðausturslakka Stúdentinn ungi frá Lundi tók að sér einn daginn að fara með okkur upp á fjallið, einstaklega skemmtilega leið, að því hann sagði: Þegar til kom reyndist þetta hin mesta vegaleysa, þótt því yrði ekki neitað að hún væri skemmtileg. — Við gengum út með ströndinni yfir kletta og klungur þar til sjórinn sagði hingað og ekki lengra, — og síðan upp fjallshlíðina, þar sem hún var bröttust, jarðvegurinn grýttastur og greniskóguTÍnn þéttastur. Máttum við þakka fyrir að stingast ekki á hausinn í mauraþúfu við annað hvort skref. Auðveldara hefur mér reynzt að ganga á meðalfjall ís- lenzkt en þessa tæpu 200 metra upp Hákullen. En þegar þang- að kom sá víst enginn eftir erf- iðinu, því þaðan sá langt norður yfir Hallandsásinn, suður yfir Höganas og allt yfir til Sjálands. Eftir nokkra hvíld og hressileg- ar sögur stúdentsins, sem ekki blés úr nös, höfðum við fyrir- gefið honum torfærurnar. Þó. var ekki laust við, að sumir yrðu nokkuð toginleitir, þegar í ljós kom að breiður tróðinn stígur lá’ niður af fjallinu til þorpsins. Eitt af því, sem þessi hrekkja- lómur sagði okkur, var að Har- aldur konungur blátönn hefði einhverju sinni neytt Pálnatóka hirðmann sinn og síðar bana- mann til þess að renna sér á skíðum niður Kullen. Við trúð- um þessari sögu hans varlega, — „Pálnatóki" byggt á frásögn Jómsvíkingasögu, en í sam- nefndu kvæði Oehlenschlágers munu sögurnar samtvinnaðar. Það var komið langt yfir mið- nætti og Ijósin í þorpinu löngu slokknuð. Jafnvel í Arild ganga Svíar snemma til náða. Við höfð um setið í garðinum og horft á umferðina dvína, séð tunglið spegla sig í víkinni og hlustað á vögguljóð trjánna í hlýrri kvöldgolunni. Fyrr um kvöldið 'höfðum við séð í sjónvarpinu danska kvikmynd frá íslandi — gráa kvikmynd, sem gaf þá hug- mynd, að þar væri fátt að finna annað en gráan sand og fiák. Læknirinn gamli var óánægður með kvikmyndina, hún kom alls ekki beim við lýsingar sonar hans af landinu en hann hafði oft komið til íslands. Ég hafði komið til Arild síðla dags, dauðuppgefin eftir nærri fjögurra ^vikna flakk um Sví- þjóð og ramb um hverja verk- smiðjubygginguna a fætur ann- arri — Og mér fannst ég hálf- vegis komin heim, þegar ég Opnaði dyrnar á Strand Hotel og stóð augliti til auglitis við litla svarthærða konu, sem var að negla áklæði á stól. Þetta var húsráðandi, frú Inga Lill Rast- enis, ennþá önnum kafin við að hressa upp á heimilið áður en mesti annatíminn hæfist. Af furðusvipnum á andliti hennar gat ég þess til, að hún efaðist mjög um að þessi nýi gestur væri með öllum mjalla, enda var útgangurinn þesslegur; rykugar og margþvældar síð- buxur, jakki, sem bar þess glögg merki að hafa verið notaður fyrir kodda síðustu klukku- stundirnar, hárið úfið eins og á galdranorn og án efa hefur hún heyrt, hvernig garnirnar gaul- uðu af hungri. Eftir gott bað, klukkustundar svefn og frábæran kvöldverð með Íslandssíld í ótal útgáfum var öll þreyta horfin. Gestir voru fáir; tvenn hjón, sem höfðu í mörg ár dvalizt saman í Arild eina helgi, áður en sumarleyfin hæfust; ungur viðskiptafræði- stúdent frá Lundi, sem hafði fengið þá fyrirskipun frá for- eldrum sínum að lifa lífi sínu af hagsýni og verða nýtur þjóð- félagsþegn, en langaði ósköp mikið til að háfa boð-þeirra að engu; leikfimikennari frá Stokk- hólmi. á að gizka sextug kona, komin á eftirlaun og var svo elskuleg að bjóða mér hjólið sitt til afnota nokkra tíma á dag. þar sem hún hjólaði aðeins fyrir hádegi. Var það boð vel þegið og kom sér ágætlega þótt hjólið RAGNAR JÓNS5QN hæstaréttarlögmaður Lögíræðistörí og eignaumsýsla sem væri frá 17 öld — hefðu margir meiri háttar gestir gist, þar á meðal prinsar og prins- essur. Næstu daga naut ég þess í rík- um mæli að ráfa um skóginn umhverfis Arild, busla í sjón- um í glampandi sólskininu, og sigla í smábát um Skalderviken og fyrir Kullen. Kullabergið — eða Kullen, Kullabergsins er Arild, liggur við Skálderviken og er miklu minna en Mölle. Að flatarmáli telst þorpið aðeins um hálfur ferkm. íbúarnir eru um tvö hundruð og lifir um helmingur þeirra af fisk veiðum. Arild er afskiptara að því er samgöngur varðar og að því leyti rólegra og skemmtilegra en Mölle. Þar hefur hinn upp- runalegi svipur fiskiþorpsins hald izt enn betur, — lítil litrík timb- urhús, en sum harla hrörleg, þeg ar betur er að gáð, brattir þröng- ir malarstígir milli trjánna og stöku bátanaust út með strönd- inni. Þorpið er umlukið skógi og hafi en handan víkurinnar sér yfir í Hallandsásinn. en það mun þó rétt vera, að Saxo segir frá þessu atviki. í fornnorrænum sögum er haft fyrir satt, að Pálnatóki hafi ver- ið banamaður Haralds blátannar Danakonungs. Sögum af þeim kappa ber engan veginn saman. Saxo segir, að hann hafi verið hirðmaður konungs, fyrir ýmissa hluta sakir fengið á honum mik- ið hatur og skotið ör sinni gegn- um hann við hentugt tækifæri. í Jómsvíkingasögu er Pálntóki hins vegar sagður stórhöfðingi af Fjóni og fóstri Sveins tjúgu- skeggs,. er Haraldur hafði átt með Saumæsu, vinnukonu á búi Pálnatóka. Að því er ég bezt veit er kvæði Gríms Thomsens I — Sonur minn segir, að fslani skorti ekkert nema skóga, sagði hann. — Ætli það sé nú ekki aðeins of djúpt í árinni tekið, svaraði ég — örlítið meiri sumarsól sak- aði til dæmis ekki. Það væri ekki amalegt að geta tekið með sér þessa hlýju golu til að verma björtu næturnar heima. Læknirinn brosti kíminn til konu sinnar við þessi ummæli og sagði: Mér virðist einsýnt, að þér eigið eftir að koma hingað oft aftur. Það gera flestir, sem á annað borð taka ástfóstri við Arild. Ef til vill sjáumst við aftur að ári. Margrét Bjarnason,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.