Morgunblaðið - 11.04.1963, Page 23

Morgunblaðið - 11.04.1963, Page 23
Fimmtudagur 11. apríl 1963 MORGVNBL AÐIB 23 Rólegir spilagestir á litlu casinói. Dinah Shore, Diana Dors, og frá París: Le Lido de Paris 1962 og 1962 Folies-Bergere. En hvernig stendur á því, að þetta kostar gestina svona Iítið? Því er fljótsvarað: fjárhættu- spilið er rekið með svo miklum ágóða. Nevada er eina ríki Bandaríkjanna, sem leyfir „gambling". Það var lögleitt árið 1931 og hefur fært ríkinu ofsa- gróða, t.d. koma til Las Vegas einnar um 10 milljónir ferða- manna á ári. Bíkið var þó auð- ugt fyrir, því að námur með hvers kyns góðmálmi eru þar viða. Fjárhættuspilaágóðinn sér um það, að engan tekjuskatt þarf að leggja á íbúana og vel- megun er þar mikil. Aðrir Bandaríkjamenn segja, að pen- ingar Nevadabúa séu illa fengn- ir, en þeir færa mörg og sterk rök fyrir sínu máli, sem ekki er tóm til að^drepa á hér. Varla er til svo ómerkilegur veitingastaður, að e. k. fjár- hættuspil tíðkist þar ekki með vélum, og hirðir ríkið vissan hlut af því, sem inn kemur. Um svipað leyti og ég dvald- ist þarna, kom gamli, góði Harry S. Truman þangað í heimsókn, en vitað er, að hann er svarinn andstæðingur fjárhættuspils. Hann var að koma þangað á demókrataþing, og reið nú mik- ið á að láta hann ekki tala illa um þessa tekjulind Nevadabúa, því að ella kynnu demókratar að gjalda þess illilega í næstu kosningum í ríkinu. Var því tek- brást hinn versti við, er hann heyrði um vanstillingu Tru- mans, neitaði að sitja við sama borð og hann í veizlu daginn eftir, svo að Truman reiddist aftur. Varð þetta demókrata- þing svo allt með hinum mestu ósköpum. Sýnir þetta litla atvik, hve Nevadabúum er mjög í mun að halda fast við upptekinn sið, enda vonlegt, þegar spilaágóð- inn einn stendur undir < flestum útgjöldum rikisins. í Nevada er aðeins krafizt 6 vikna búsetu, til þess að skiln- aður sé veittur. Kemur því mik- ið af fólki þangað, til þess að fá fljótan skilnað, og fer aðallega til Reno og Las Vegas. Var mér sagt, að hjón hættu oft við að skilja, eftir að hafa skemmt sér þar í sex vikur. Auðvelt er að hlaupa í hjónabandið í Las Vegas, enda eru ails staðar vxð „The Strip“ á milli skemmti- hallanna litlar og snotrar kirkj- ur. Við gangstéttina logar á neon ljósum t.d.: „Weddings 24 hrs“, „Weddings all night'* (eða ,,nite“), þ.e.: giftingar 24 klst. á sólarhring, gift alla nóttina o. s. frv. Aðrar auglýsingar segja: „Göngum frá skilnaði á met- tíma“. Þær eru frá lögfræðing- um eða hjálparmönnum þeirra. Niðri í „Downtown" eru mörg og stór „casinos", leikhús, kvik- myndahús, barar o. s. frv. Þar gengur mikið á allan sólarhring- inn, án þess að nokkurt lát verði á, og þar fannst mér oft gaman, man ég. Enginn sólarhringur éus- ins er „dauður“. Á einum stað er e.t.v. lokað, meðan gert er hreint, en þá eru nógir aðrir opnir á meðan, og þetta gildir bókstaflega um allt. Stærstu spilavítin þar eru ið- andi af lífi nótt sem dag. Um eitt þeirra, „Horseshoé Casino“, las ég í blaði, að það hefði ný- lega werið endurnýjað fyrir 2.500.000 dollara, og þar af hefði eitt neonljósaskiltið kostað tæp- an þriðjung, enda var það alí- stórkostlegt á að líta. Eins og ég tók fram í upphafi þessara sundurlausu þátta, er Las Vegas engri borg lík, svo að þar kemst enginn samjöfnuður til greina. Þó gildir hið sama um fólkið, sem ég kynntist þar, og það, sem ég kynntist annars staðar í Bandaríkjunum: Það er kurteist, hjálpfúst og leggur sig mjög fram um að gera allt fyrir ejlendan mann. Gestrisnin þar eins og annars staðar var frá- ið loforð af honum að minnast ekki einu orði á þessi mál. En blaðamenn eru ágengir og hrönnuðust þegar að honum á flugvellinum. Eitt af því fyrsta, sem þeir spurðu um, var hvern- ig honum litist á að vera kominn í þetta spilabæli. Hann svaraði, að hann væri hrifinn af að koma til þessarar reyklausu iðnaðar- borgar (þetta er rétt, svo langt, sem það nær; í Las Vegas er talsverður iðnaður rekinn), sem setti framsækna og duglega borg ara. Minnti hann á, að 1940 hefðu íbúarnir ekki verið nema 8.000, 1950 voru þeir 25.000 og 1960 voru þeir 65.000. Blaða- menn svöruðu því til, að jafh- mikil gróska hefði verið í flest- um bæjum vestursins; — en hafið þér e.t.v. breytt um álit á fjárhættuspili? Truman svaraði ekki, en gekk að bílnum. Blaða- menn eltú með áleitnar spurn- ingar á lofti, unz einn kallaði: Nú, svo að hann hefur þá breytt um álit! Þá stóðst gamli mað- urinn ekki mátið og hélt nú langan reiðilestur um syndir Bpilamennskunnar, meðarr skjálf- andi demókratarnir hófu há- vært skvaldur, til þess að blaða- mennirnir heyrðu -ekki til hans. En þetta var nóg: Blöð repú- blikana í ríkinu birtu stórum etöfum 1 kvöldútgáfunum, að Truman væri kominn til að gefa demókrötum nýja línu í þess- um efnum! Foringi demókrata SPAIMIM Glæsilegar hópferðir. 1. Costa Brava-ströndin og Mallorca. Dvöl á tveimur af vinsælustu baðströndum Spánar. 2. Svissnesku Alparnir. Úr baðstrandasólinni í háfjallasólina. Fegurð Alp- anna og hinna mörgu rómuðu fjallavatna ætti m. a. að gefa ferðinni enn frekara gildi. 3. París. — 4. London og Glasgow. — Allt í einni ferð. — Biðjið um sumar- áætlun okkar. Pantið tíman- lega. Costa de Sol — Baðströndin. > Aðalstræti 8. — Sími 20-800. bær og óuppgerð forvitni um land gestsins mikil. Ungum iðnaðarmanni kynnt- ist ég af tilviljun. Kynnti hann mig aftur fyrir bróður sínum, sem var umbrotsmaður við dag- blað, og sýndi sá mér öll húsa- kynni blaðsins og starfshætti. Kimni ég vel að meta þetia. Mér þótti iðnaðarmaðurinn furðu fróður um ísland og umli hann eftir því, hvernig á þvi stæði, en hann gaf lítið út á bað í fyrstu. Þegar við kvöddumst, sagðist hann hafa verið í her- þjónustu á íslandi í marga mán- uði. Áður en hann fór til íslands, las hann allt, sem hann náði til, um land og þjóð. Kvaðst hann hafa hlakkað til að koma tii ís- lands, en reyndin varð sú, að þetta urðu ömurlegustu mánuð- ir í lífi hans. „Okkur var haldið í búri, því að ríkisstjórn ykkar vildi ekki, að við hittum Islend- inga. Ég hef ekkert nennt að lesa um ísland síðan. Þú ert fyrsti íslendingurinn, sem ég kynnist. Ég kynntist engum í Keflavík, en einum í Las Vegas“. Sjálfsagt finnst einhverjum lífið í Las Vegas vera óheilbrigt. Það væri það fyrir þá, sem dveld ust langan tíma á skemmtistöð- unum. En allur þorrinn kemur þarna aðeins um stundarsakir og fer þurtu ánægður — og oft- ast mjög þreyttur. Ég var sann- ast sagna ekkert á móti því að fara frá þessari borg. Ekki er víst, að ég komi þarna nokkru sinni aftur, og því get ég tekið undir hin gömlu orð: „Aimez-ce que jamais on ne verra pas deux fois“, þ.e. látið ykkur þykja vænt um það, sem þið sjáið ekki í annað skipti. Magnús Þórðarson. - Nú er hún Snorrahúð stekkur Framihald af bls. 17 Ég minntist á berjatínsluna. Rétt fynir ofan veilksmiðju.ua var hvosin mín. Þangað fór ég með brúsa þegar mig langaði í bláber, og þótt eliki færi aEt d brúsann, fylltist hann fljótt. Annars var einna mest um ber inni í skógi, en þangað var erf- itt að komast nema með báti. Ég man það eitt sinn þegar við vorum að fara heim, að faðir minn bað Jónas Magnússon verk stjóra að atjhuga hvort ekki væri unnt að senda eitbhvað af berj- um suður með næstu ferð..Við heimkomuna til Reykjavíkur beið föður míns símskeyti frá Jónasi: Höfum tínt fjögur tonn, eigum við að halda áfram? Og ekki voru tínurnar í þá daga. ★ Ég veit ekki hvort ég verð fyrir vonbrigðum þegar ég kem til Hesteyrar. Ég held ekki. Fólik- ið er að vísu farið og bæirnir að hrynja. Sölvi fluttist síðastur manna frá Hesteyri og settist að á Bolungarvík að því ég frétti seinna. Fríða er komin til Reykjavíkur. Og Sigurður Ey- leifsson þeytir ekki lengur eim- flautuna á Arinbirni Hersi út af Sléttúnesi. En fegurð fjallanna speglast enn í sléttum sjónum, og hand- an við fjörðinn, rétt innan við Seleyri, er ég viss um að snjó- skaflinn, þar sem togararnir só'ttu sér ís í gamla daga, bíður í fjörunni. Björn Thors HVERT jr ferð/nn/ heitið? LEIÐIN LIGGUR TIL OKKAR. SUNNA SÉR UM FERÐALAGIÐ FYRIR HINA VANDLÁTU. Fei ðaþjónustan »11 á einum stað. FARSíÐLAR með flugvélum, skipum, járnbrautum og bíl- um. Hótelpantanir. Sumarleyfið skipulagt við sólskinsstrend ur Suðurlanda, í París, London, Hamborg eða Kaupmanna- höfn. Heisóknir á vörusýningar og ráðstefnur. Viðskipta- ferðir kaupsýslumanna, hvort sem leiðin liggur til Evrópu, Afríku, Amcríku eða Asíulanda. Viðskiptavinir okkar hafa á þessu ári ferðast með far- seðla frá okkur um allar heimsálfur, þó fiestir fari til Kaupmannahafnar, Hamborgar og London. Örugg ferðaþjónusta byggð á staðgóðri þekkingu er ferðamanninum mikils virði. Kaupið því farseðlana hjá okkur. Spyrjið þá mörgu, sem reynt hafa Kjörorðið er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar viðskiptavini. SÚNNA, — Bankastræti 7 — Sími 16400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.