Morgunblaðið - 09.05.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.05.1963, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 9. maí 1963 M O R C V 1S 7! L A Ð 1 Ð 15 IViinning: Guðmundur GuðmundsSo ÞANN 26. f.m. lézt að Landa- kotsspítala eftir fremur skamma legu Guðmundur Guð- mundsson, skipstjóri Seljavegi 17, Reykjavík en hann var jarð- settur 2. þ.m. frá Fossvogskirkju að viðstöddum vandamönnum og yinum. Guðmundur var fæddur að Tjörn Miðnesi 16. desember 1894. Fluttist hann mjög ungur að Nesj um í sama hreppi og dvaldist þar, þar til hann var 10 ára gamall, en þá missti hann móður 6Ína og fluttist þá með föður sín- um til Reykjavíkur og var heim- ilisfastur þar til dauðadags. Guðmundur gerði sjómennsk- una að sínu ævistarfi, kom snemma fram að hugur hans stóð til þeirra starfa, enda hafði hann alizt upp við sjó og sjómennsku, eins og æskustöðvar hans gefa til efni til. Hugur Guðmundar heit- jns stóð til mannaforráða í því starfi sem hann hafði helgað sér og þessvegna gekk hann í Sjó- mannaskólann og lauk þaðan pófi vorið 1919. Stýrimaður varð ihann k b/v Austra árið 1921 og skipstjóri á sama skipi þremur árum seinna. Árið 1926 varð hann skipstjóri á b/v Kára og var það fram til ársins 1932. Ári síðar hóf hann eigin útgerð ásamt öðrum manni. Keyptu þeir b/v Kóp og var Guðmundur skip 6tjóri á honum þar til þeirri út- gerð lauk árið 1936. Þessari útgerð lauk á annan veg en til var stofnað, en ekki verður fjölyrt um orsakir þess hér. Hinu verður e-kki neitað að viðbrögð stjórnavalda gagnvart vandamálum útgerðarmanna, manna, voru á annan veg á þeim érum heldur en nú hin síðari ár. Guðmundur heitinn lagði þó ekki árar í bát þótt á móti blési í efnalegu tilliti. Áfram sótti hann sjóinn af engu minna kappi en áður, og öll stríðsárin sigldi hann, ýmist sem stýrimaður eða skipstjóri. Á botnvörpungunum Gulltoppi og Belgaum. í gegn um svartnætti stríðsáranna reyndi á hugprýði og fórnfýsi íslenzkra sjómanna venju fremur og var Guðmundur vissulega gæddur þeim mannkostum, sem þurfti til þeirra starfa. Eftir stríðsárin var Guðmundur skipstjóri á mótor- skipum héðan frá Reykjavík, fyrst á ni.b. Braga og síðar m.b. Marz. Á árunum 1949 til 1953 var Guðmundur stýrimaður á leitar skipinu „Fanney“ en frá þeim tíma vann hann í landi, fyrst hjá Eimskipafélagi íslands og síðar hjá Ingvari Vilhjálmssyni út- gerðarmanni. Guðmundur heitinn var jafnan aflasæll skipstjóri og vel látinn í starfi af þeim mönnum, sem kunnu að meta dugnað hans sjálfs og stjórnsemi. Hann var hreinskilinn maður sagði sína meiningu um menn og málefni, virtist á stundum nokkuð hrjúfur og óvæginn en heilsteypt ur og sanngjarn þrátt fyrir ein arða málafylgju. Hin síðari ár lifði hann kyrr- látu lífi og reglusömu og beið þess að njóta elliáranna áhyggju laus, eftir að hafa brotizt til bjargálna með fádæma þraut- seigj u og hvíldarlausu striti. Hans sjónarmið beindist ætíð að því að þurfa ekki neitt til annarra að sækja til þess að sjá sér og sín- um farboða, enda varð sú raun- in á að til þess kom aldrei að því er ég bezt vissi. Guðmundur heitinn lætur eft ir sig eftirlifandi konu, Guðlaugu Grímsdóttur, sem alltaf stóð við hlið manns síns í blíðu og stríðu og skóp honum gott heimili. Þau eignuðust 5 syni, sem allir eru á lífi og eru dugnaðarmenn hver á sínu sviði, eins og þeir eiga kyn til. Að síðustu sendi ég eftirlifandi eiginkonu og öðrum vandamönh um samúðarkveðjur og þakka um leið þau tækifæri sem ég fékk til þess að kynnast Guðmundi heitnum og fjölskyldu hans. G. R. M. — Landið okkar Framlhald af bls. 10 reisa minnisvarða um Egil Skallagrímsson, sem ætti að vera í Egilsgarði. Sýslurnar lögðu fyrir fáum árum nokk- urt fé til minnisvarða og Borg firðingafélagið í Reykjavík hugðist koma málinu fram. Ekki veit ég hvers konar minnisvarði það yrði. Norski myndhöggvarinn Vigeland gerði höggmynd af Agli að reisa níðstöngina, en viðfangs efnið er ekki sem heppileg- ast, auk þess sem ekki er hægt að fá afsteypu af mynd- inni. Aftur á móti þyrfti að athuga með Sonatorrek Ás- mundar Sveinssonar. Þetta mál þarf að komast í fram- kvæmd. Og það er nú einu sinni svo, að alltaf er hægt ÍTALSKAR KVENTÖFLUR SKÓSALAN uwjosveoi i Husqvarna Handsláttuvélar með og án mótors. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200. að safna fé til góðra málefna á Íslandi. Eins hefði mér fundist heppi legt að koma fyrir hér á Borg byggðasafni Borgfirðinga inn an Skarðsheiðar, sem vísir er til að í geymslu hjá kaupfé- laginu í Borgarnesi. — Hvað er langt niður í Borgarnes? — Aðeins 3 km. Það var ekki ástæða til að flytja prestsetrið vegna fjarlægðar frá BorgarnesL BORGNESINGAR REISTU FALLEGA KIRKJU. — Hvað þjónið þér mörg- um kirkjum? — Fjórum, á Borg, í Borg- arnesi, Álftártungu á Mýrum og Álftanesi. Tvær þær síðast- nefndu eru í 29- J0 km. fjar- lægð héðan. Álftártungusókn er fámenn og þar er heldur léleg kirkja. Aftur á móti er ný og mjög falleg kirkja í Borgarnesi. Hún yar vígð á uppstigningardag 1959 og er fyrsta kirkjan í BorgarnesL Sóknirnar voru aðskildar árið 1939, en messað var í barna- skólanum eða samkomuhús- inu í Borgarnesi pangað til kirkjan komst upp. Það var mikið átak að reisa svo veg- lega kirkju, enda hugur fólks til málefna kirkjunnar ákaf- lega góður þar. — Og hvernig vr kirkju- sókn? — Það má segja uð hún sé góð í þessum sóknum. — Það er mjög mikilvægt að Borg sé fagur staður og w vel um genginn, sagði sr. Leo að lokum. Þjóðinni er skylt að halda hann vel, og það er myndarlegt átak að byggja hér vandað hús. Úr því við eigum aðeins minningarnar, þá verður að búa þannig að þeim að tengslin rofni ekki við fortíðina. — E. P. Husqvarna eldavélasettið hefur bökunarofninn í réttri vinnuhæð.... og aðrar eldavélar verða gamaldags! HUSQVARNA settið kostar lítið meira en venju- leg eldavél, en gefur ySur margfalt meira i auknum þœgindum. Betri nýting á rými • Útlit og allur útbúnaður eftir ströngustu kröfum nútimans • 3 eða 4 suðuplötur • Bökunarofninn með innbyggðu ljósL staðsettur i réttri vinnuhœð á þœgileg- asta stað £ eldhúsinu. „glugginn" gerir húsmóðurinni mögulegt að fylgjast með bakstrinum án þess að opna ofn- inn. Husqvama verða eUhusstörfu ánægjuleg GUNNAR ÁSGEIRSSON H. F. FRAMTIDARSTARF Afgreiðslumaður í kjöthúð Vér viljum ráða vana afgreiðslumann til starfa í kjötbúð. Nánari upplýsingar gefur Starfsmanna- hald S.I.S. Sambandshúsinu. STARFSMANNAHALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.