Morgunblaðið - 09.05.1963, Side 24
103. tbl. — Fimmtudagur 9. maí 1963
l /3
\&ete?e*ze
mm
Dennis Wdch:„H€re aré my meo/”
FRAMSÓKNARMENN hafa að undanförnu mjög hvatt hrezka togaraeigendur til
að setja fram kröfur um framlengingu landhelgissamningsins, er hann rennur út á
næsta ári. Þannig sagði Tíminn t.d. sl. sunnudag, að „ekkert væri líklegra en að
undanþágurnar verði framlengdar . . . “
Fundir Sjálfstæðismanna
AEMENNIR fundir Sjálfstæðismanna verða í Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu sem hér segir:
Ólafsvík, föstudaginn 10. maí kl. 21. Ræðumenn verða
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, og Sigurður
Ágústsson, alþingismaður.
Stykkishólmi, laugardaginn 11. maí kl. 21. Ræðumenn
verða Ólafur Thors, forsætisráðherra, og Jón Arnason,
alþing ismað ur.
Kolbeinsstöðum, Hnappadalssýslu, sunnudaginn 12.
maí kl. 16. Ræðumenn verða Ólafur Thors, forsætisráð-
herra, Ásgeir Pétursson, sýslumaður, og Þráinn Bjarnason,
hóndi.
Maður drukknar
í Eyjafirði
AKUREYRI, 8. maí. — Sjómaður
drukknaði af trillubát á innan-
verðum Eyjafirði sl. nótt. Hann
var einn á bátnum og hafði farið
í róður um kl. 6 í gærkvöldi.
Sást til hans síðar um kvöldið,
þar sem hann var að dra.ga lín-
una. Þá var stillt og bjart veður.
Um kl. 6 í morgun fannst trill-
an mannlaus á reki út af Sval-
barðseyri og í henni um 1700
pund af fiski. Síðar í morgun
fannst svo sá hluti línunnar, sem
ódreginn var.
Leitað hefur verið að líkinu í
dag, en sú leit hefur engan ár-
angur borið, og orsakir slyssins
því ókunnar.
Maðurinn hét Matthías Jóns-
son, búsettur á Akureyri, 47 ára,
kvæntur og átti þrjú börn með
konu sinni og eina kjördóttur. —
Matthías heitinn var hinn mesti
sæmdar- og dugnaðarmaður og
aflasæll fiskimaður. — Sv. P.
Erlendar skuldir lækka
um 950 millj. kr. á 2 árum
Jukust um 1243 millj. kr. á valda-
tíma vinstri stjórnarinnar
^ Um síðustu áramót höfðu
skuldir þjóðarinnar er-
lendis umfram innstæður
LÆKKAÐ um 948.7 millj. kr.
frá árslokum 1960. Sýnir
þetta gjörla hina hagstæðu
þróun í gjaldeyrismálum
þjóðarinnar síðan viðreisnar-
ráðstafana núverandi ríkis-
stjórnar tók verulega að
gæta.
Á valdatímebili vinstri
stjómarinnar 1956—1958
HÆKKUÐU hins vegar er-
lendar skuldir þjóðarinnar
Til kaupenda
Morgunbladsins
Um þessar mundir standa
yfir próf í öllum skólum bæj-
arins. Af þeim ástæðum má
búast við að dreifing blaðsins
verði ekki eins regluleg og
ákjósanlegt væri. Eru kaup-
endur Morgunblaðsins beðnir
að hafa það hugfast, þó blað
ið verði seinna á ferðinni en
venjulegt er.
umfram innstæður um 1.243.6
millj. kr. og um tæplega 1.000
millj. kr. til viðbótar á næstu
tveim árum meðan enn hafði
ekki tekizt að uppræta hin
óheillavænlegu áhrif vinstri
stefnunnar.
Þessi gífurlega skuldasöfnun
erlendis var ein meginástæða
hins efnahagslega hruns þjóðar-
búsins, sem að sögn forsætis-
ráðherra vinstri stjórnarinnar,
Hermanns Jónassonar, vofði yf-
ir, er stjórn hans hrökklaðist frá
völdum.
í ársbyrjun 1956 námu skuld-
ir Islendinga erlendis umfram
innstæður 751.1 millj. kr. miðað
við núverandi gengi. í árslok
1958 voru þær svo komnar upp
í 1.994.7 millj. kr. og höfðu
þannig aukizt um 1.243.6 millj.
kr.
Enda þótt vinstri stjórnin- léti
af völdum í árslok 1958 fór því
þó fjarri, að unnt væri að rétta
þrotabú hennar við þegar í stað.
Afleiðingarnar af hinu óheil-
brigða efnahagskerfi hennar,
bjargráðum, höftum og upp-
bótakerfi, hlaut því að gæta enn
um skeið.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokks
ins, sem fór með völd í tæpt ár,
var um megn að beita sér fyrir
hinum róttæku efnahagsráðstöf-
unum, sem nauðsynlegar voru,
enda þurfti langan tíma og mik-
ið átak til að komast til botns í
óreiðusukkinu og undirbúa jarð-
veginc fyrir hina gagngeru
breytingu, sem óhjákvæmileg
var. Af þeim sökum jukust
skuldir landsins erlendis enn á
árinu 1959 og nokkuð á árinu
1960, enda tók áhrifa viðreisnar-
r
Agæt sala bv
Júpíters
BV JÚPÍTER seldi á miðviku-
dagsmorgun í Hull 155 tonn (aðal
lega ýsu) fyrir 16.700 sterlings-
pund. Er þetta mjög gott sölu-
verð.
•innar ekki að gæta að ráði fyrr
en á miðju árinu 1960 og skipa-
innflutningur á því ári nam nær
600 millj. kr.
í lok ársins 1959 námu skuldir
þjóðarinnar erlendis umfram
innstæður 2.635.3 millj. kr. og í
árslok 1960 2.986.8 millj. kr.
Síðari hluta árs 1960 fóru á-
hrif viðreisnarráðstafananna svo
verulega að segja til sín, en al-
gjör straumhvörf urðu í þessum.
efnum á árunum 1961 og 1962.
í árslok 1962 var svo komið,
að skuldir íslendinga erlendis
umfram innstæður höfðu lækkað
niður í 2.038.1 millj. kr. Höfðu
þær þannig verið lækkaðar um
hvorki meira né minna en 948.7
millj. kr. frá árslokum 1960.
Innifalin í hinum erlendu skuld-
um eru nú hin stuttu vörukaupa
lán, sem nema 412.5 millj. kr.,
en mikil birgðaaukning hefur
Eldur í
verbúðum
Lust fyrir kl. 1 á hádegi í gær
var slökkviliðið kvatt að Verbúð
7 í Tryggvagötu, þar sem tals-
verður eldur var laus á lofti og
mikill reykur. Urðu þar talsverð
ar skemmdir, en lítili eldur mun
hafa komizt í netin. Slökkvi-
starfinu var lokið á röskum
klukkutíma.
Er slökkviliðið kom á vett-
vang lagði mikinn reyk upp um
reykháf, sem liggur frá oliu-
kynditæki í loftherbergi inn af
netageymslu.
Byrjaði slökkviliðið þegar að
dæla inn um þakgluggana og
varð að rjúfa nokkurn hluta
þaiksins til að komast að eldinum.
Mestur eldurinn var í lofther-
berginu, þar sem roskinn maður
hefur verið til heimilis, og brann
allt sem þar var inni, en líkur
benda til að kviknað hafi í frá
olíukyndingunni í herberginu.
Frá herberginu læsti eldurinn
sig eftir þakviðum yfir neta-
geymslunni, en mjög lítill eldur
mun hafa komizt í sjálf netin og
kaðlana, sem þar voru geymdir,
Talsverðar skemmdir urðu þarna
samt, en slökkvistarfið tók alls
röskan klukkutíma.
Fundur Sjálfstœðis-
manna á Hellu
Aðalfundur Sjálfstæðis- Ingólfur Jónsson, ráð-
félags Rangæinga verður herra, mætir á fundinum
haldinn að Hellu, laugar- og ræðir um stjórnmála-
daginn 11. maí kl. 13,30. viðhorfið.
Framhald á bls. 23.
Mikinn reyk lagði upp, þegar slökkviliðið rauf þakið, og erfitt var að komast að eldinum, sem
aðallega var í þakviðunum undir járninu. (Ljósm.: Sv. Þ.).