Morgunblaðið - 14.05.1963, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 14. maí 1963
MORCVNBLAÐIÐ
31
RTÍDARLOK
LOKADAGURINN var sl.
laugardag, 11. maí. Yfirleitt
var vertíðin góð. Hér eru
birtar fréttir úr nokkrum
verstöðvum um aflabrögð á
vertíðinni, en næstu daga
munu fréttir birtast frá öðr-
um.
38 þús. tonn til Eyja
VESTMANNAEYJUM, 13. maí.
— Lokadagurinn var síðastliðinn
laugardag, 11. maí, og eru nú
allir bátar hættir á vertíð. Hafði
þá borizt á land í þessari vetrar-
vertíð um 38 þúsund tonn hing-
að til Vestmannaeyja.
Vertíðin má teljast í heild
hafa verið yfirleitt góð. Mikill
fiskur gekk á miðin seinni hluta
vetrar, en páskahretið dró úr
aflabrögðum. Þetta var einhver
jafnasta vertíð, hvað aflabrögð
varðar, sem hér hefur verið um
mörg ár. Alls reru héðan 86 bát-
ar og 39 þeirra fengu yfir 500
tonna afla. Bátaflotinn skiptist
þannig eftir veiðarfærum:
55 með línu og net
15 með handfæri
10 með botnvörpu
3 með línu eingöngu
3 með snurpinót (ýmist á
þorsk eða sild).
Þessir sjö bátar öfluðu meira
en 800 tonn: Stígandi VE 1.004
tonn (skipstjóri Helgi Bergvins-
son, en hann var líka aflakóng-
ur á vetrarvertíðinni árið 1960),
Björg SU 954 tonn (skipstjóri
Hilmar Bjamason), Gullver NS
838 tonn (skipstjóri Jón Páls-
son), Eyjaberg VE 825 tonn
(skipstjóri Sigurður Gunnars-
son), Snæfugl SU 818 tonn, Rán
SU 803 tonn og Isleifur III VE
801 tonn.
— Björn,
10.600 tonn til Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI, 13. maí.
N Ú um lokin eða nánar til tek-
ið 7. maí hafði 21 bátur aflað
10,595,8 tonn í 1091 róðri.
Aflahæstu bátarnir eru þess
ir: Arnarnes 934 tonn í 73 róðr-
um, Hafnfirðingur 913,5 í 77,
Fákur 730,4 í 49, Héðinn 716,2 í
51, Fiskaklettur 703,1 í 72 og
Fagriklettur 668,1 tonn i 47
róðrum.
Vertíðin nú var mun betri en
í fyrra.
Nokkrir bátar héðan frá Jóni
Gíslasyni hafa lagt upp í Grinda
vík í vetur og aflað vel, og sömu
leiðis vb. Ársæll Sigurðsson,
sem er kominn með yfir 1000
tonn.
Sjö bátar eru nú hættir neta-
veiðum en hinir munir halda
eitthvað áfram. Síðustu daga
hefir verið tregur afli. Nú eru
bátar að búast á humarveiðar og
munu margir verða á þeim veið-
um í sumar.
— G. E.
1.000 tonnum af þorski meira
en í fyrra til Akraness
AKRANESI, 13. maí. — Á loka-
daginn, 11. maí, var heildar-
þorskafli bátanna hér á þessari
vetrarvertíð orðinn 10.000 tonn.
9 þús. tonn varð hann í fyrra,
og er þorskaflinn því 1.000 tonn-
um meiri í ár.
Fimm aflahæstu bátamir eru
nú Sæfari (skipstjóri Jóhannes
Guðjónsson með 913 tonn, Anna
(skipstjóri Þórður Guðjónsson)
með 893 tonn, Sigrún (skipstjóri
Helgi Ibsensson) með 860 tonn,
Sigurður (skipstjóri Einar Árna
son) með 846 tonn, Sigurður
(skipstjóri Einar Árnason) með
846 tonn og Keilir (skipstjóri
Þorvaldur Guðmundsson) með
655 tonn.
— Oddur.
4.500 tonn til Grundarfjarðar
GRUNDARFIRÐI, 13. maí. —
Héðan reru sjö bátar á vertíð-
inni, fóni alls 440 róðra fram
til dagsins í dag, og fiskuðu
u.þ.b. 4.500 tonn. Þetta er mun
betri útkoma en i fyrra, því að
þá fengu átta bátar 3.183 tonn í
456 róðrum.
Aflahæstir eru vb. Farsæll
(skipstjóri Sigurjón Halldórs-
son) og vb. Grundfirðingur H
(skipstjóri Elis Gíslason) með
ca 800 lestir h'vor. Þeir voru ein-
göngu á netum.
Aflakóngurinn reri frá
Patreksfirði
PATREKSFIRÐI, 13. maí. —
Vb. Helgi Helgason er aflahæst-
ur allra báta á þessari vetrar-
vertið. Hefur hann fengið 1451
tonn og 755 kg. í 72 róðrum. 29
Um helgina fékk Náttúrugripasafnið sent hræ af emi, sem
rekið hafði á Hvallátrum í Barðastrandasýslu. Var hræið gamalt
og hefur örninn drepist einhvern tíma í vetur, og ekki að svo
komnu máli hægt að segja neitt um hvað hefur orðiff hans bana
mein, að því e. dr. Finnur Guðmundsson tjáði Morgunblaðinu
róðra var hann á línu og fékk
314 tonn 945 kg.
Vb. Dofri hefur fengið 1206
tonn og 100 kg. í 71 róðri, þar
af 375 tonn 435 kg. á línu (37
róðrum). Vb. Sigurfari var á línu
allan tímann og er með 638 tonn
920 kg. í 78 róðrum. Vb. Sæborg
(líka á línu) fékk 548 tonn 265
kg. í 72 róðrum. Vb. Orri fékk
202 tonn 935 kg. í 37 róðrum.
Vb. Valur 79 tonn 615 kg. í 25
róðrum. Vb. Freyja 79 tonn 865
kg. í 19 róðrum.
Heildarafli Patreksfjarðarbáta
á vertíðinni er bvi 4.207 tonn og
455 kílógrömmum betur.
— Trausti.
1338 tonn til Bíldudals _
BÍLDUDAL, 13. maí. — Héðan
reru tvö skip í vetur: Andri og
Pétur Thorsteinsson. Sá fyrr-
nefndi hætti um síðustu mánaða
mót og hafði þá fengið 668.1
tonn í 72 sjóferðum. Pétur rær
enn og fer a.m.k. einn túr til við
bótar. 1. maí hafði hann aflað
669,8 tonn frá áramótum í 74
sjóferðum. .— Heildaraflinn var
því um 1338 tonn um mánaða-
mótin.
Léleg vertíð á Hólmavík
Vertíð er að ljúka á Hólma-
vik. Sjö þilfarsbátar, 9—37
tonna, voru gerðir út í upphafi
vertiðar, en einn hætti á henni
miðri vegna vélarbilunar. Hinir
voru á línu fram í marz, en
skiptu þá yfir á net.
Vertíðin varð mjög léleg. Um
seinustu mánaðamót voru 514
tonn komin á land (auk þess
lönduðu tveir Hólmavíkurbátar
samtals 90 tonnum á Skaga
strönd, Sauðárkróki og Ólafs
firði). Bezt voru aflabrögð i
janúar, enda gæftir þá góðar.
Janúaraflinn varð 334 tonn. í
febrúar öfluðust 106 tonn, í
marz ekki nema tæp 10 og í
apríl 64.
Eskifjarðarbátar
ESKIFIRÐI, 13. maí. — Vertið
er nú lokið á Eskifirði og allir
bátar komnir heim. Fjórir bát
ar voru gerðir út héðan frá Eski-
firði og þrír frá Vestmannaéyj-
um.
Frá Vestmannaeyjum reru
Björg, sem fékk 950 tonn, Ein-
ir með 750 og Birkir með 603
tonn óslægt.
Frá Eskifirði reru Vattarnes,
sem var með 724 tonn, Seley
með 648 tonn, Hólmanes með
594 tonn og Guðrún Þorkelsdótt-
ir með 487 tonn, og er þá mið-
að við slægðan fisk með haus.
— Þess má geta, að vb. Guðrún
Þorkelsdóttir var á síldveiðum
fram í febrúarmánuð. — Hrað-
frystihúsið hefur tekið á móti
2.500 tonnum af slægðum fiski
með haus. — G. W.
Utanríkisráð-
herra Hollands í
opinbera heimsólm
UTANRÍKISRAðHERRA Hol
lands, herra Jaseph Luns, ag
kona hans koma i opinbera heim
sókn til íslandis fimmtudags
kvöldið 16. þ.m. og dvelja hér
til mánudagsmorguns 20. maí
Þau búa í Ráðherrabústaðnutm.
í för með ráðlherra er sendi-
herra Holilands hér á landi, Adolp
Bentnick, barón, og kona hans,
ásamit sendiráðsrituruan og einka
ritara ráðherrans.
Á föstudag kemur utanríkis
ráðherrann í heimsókn í Stjórn
arráðið ag á viðtöl við íslenzka
ráðherra, og síðdegis sama dag
býður hann ti!l blaðamannafund
ar.
Á laugardag munu utanrikis
ráðherraihjó'nin og föruneyti
þeirra fara til Þingvalla í boði
ríkisstjórnarinnar, og síðan skoða
Sogsvirkjunina, og sitja hádegis
verðarboð borgarstjórans
Reykjavik.
Á sunnudag verður flogið til
Akureyrar ef veður leyfir.
ÞESSA mynd tók ljósmyndari
blaðsins í garði á Hringbraut
71. Þar hafa krakkamir leikið
trén illa, og brotið þau niður.
Húseigandinn segir að oft hafi
borið á þessu, en aldrei meira
en í vor. Og séu það aðallega
11—12 ára strákar, sem ryðj-
ast inn í garðana og fara
svona með trjágróðurinn. Er
von að fólki sé sárt um trén,
sem það er búið að hlúa að
árum saman og koma upp.
Mbl. átti tal um þetta við
Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra bæjarins. Hann sagði
að á hverju ári væri meira eða
minna brögð að þessu. Vor-
galsinn væri einmitt núna að
koma i krakkana. Þan stökkva
upp í greinarnar og klifra i
trjánum eða rifa af greinar til
að skylmast með. En þau gera
sér ekki grein fyrir því, að
þarna eru þau verri bölvald-
ur fyrir gróðurinn en slæmt
vorhret, eins og vij fengum
að kenna á um daginn. Krakk
arnir geta þannig rifið niður
á einni dagstund, það sem
feður þeirra hafa ræktað i
áratugL
Ættu foreldrar að reyna að
koma bömum sínum í skiln-
ing um að gróðurinn þarf að
umgangast með aðgát, til að
eyðileggja ekki verk þeirra
sem reyna að rækta.
Þyrlur og flugvélar
sækja 2 sjúklinga
Á LAUGARDAGINN voru farin
tvö mikilvæg sjúkraflug. Flug-
vél frá Þyti sótti konu 'í barns-
nauð að Króksstöðum í Miðfirði
og tvær þyrlur frá vamarliðinu
og Dakotavél sóttu sjúka konu
að Laugabóli í Arnarfirði. Gekk
flugið vel í bæði skiptin.
Veik kona i Arnarfirði
Á laugardagsmorguninn lögðu
þyrlumar tvær og Dakotavélin
frá varnarliðinu af stað af
Reykjavíkurflugvelli. En Slysa-
varnafélagið, sem hafði verið
beðið á föstudagskvöld um aðstoð
við að ná í mjög veikan sjúkl-
ing í Arnarfjörðinn, hafði snúið
sér til varnarliðsins með þessa
hjálparbeiðni. Sjúklingurinn Guð
rún Guðnadóttir á Laugabóli, var
of veik til að hægt væri að flytja
hana í bíl eða sjóleiðis, einkum
þar eð hún er sjóveik og bílveik.
Önnur þyrlan lenti svo á tún-
inu á Laugabóli, og siðan lentu
þær báðar á Skógarströndinni,
til að bæta eldsneyti úr hinni
þyrlunni á sjúkravélina. En
Dakotavél fylgdist með til ör-
yggis.
Gekk sjúkraflutningurinn vel
og lentu þyrlurnar á Reykjavíkur
flugvelli kl. 9. Hafa aðstandend-
ur Sjúklingsins beðið Mbl. að
færa Slysavarnafélaginu, sérstak
lega Henry Hálfdánarsyni, og
varnarliðinu þakkir fyrir hjálp-
ina.
Kona í barnsnauð
Um kl. 17.30 sl. laugardag var
Þytur h.f. beðinn um að sækja
konu í barnsnauð að Króksstöð-
um í Miðfirði. Með í ferðinni
voru læknir og hjúkrunarkona.
Á leiðinni suður varð að gefa
konunni súrefni, en þegar til
Reykjavíkur kom var konan
þegar flutt á Fæðingardeild
Landsspítalans. Síðar um kvöld-
ið fæddi hún sveinbam. Líður
móður og syni nú vel eftir at-
vikum.
Send var tveggja hreyfla vél
af gerðinni Piper Apache. Flug-
maður var Gunnar Guðjónsson.
Lent var á Króksstaðamelum,
sem er skammt frá bænum. Ferð
in tók um tæpa tvo tíma.
FLUGSLYS
Kaíró, 13. maí (NTB).
EGYPZK farþegaflugvél i
Dakota-gerð fórst á sunnuda
í Nílardalnum og með heni
35 manns, þeirra á meðal tve
starfsmenn Heilbrigðismáh
stofnunar SÞ (WHO). Sjónai
vottar segja að flugvélin ha
hrapað logandi til jarðar.
Vé/or & Víðtœki
Vantar 2ja—3ja herb. íbúð fyrir starfsmann.
Upplýsingar í síma 23524 og 17276.