Morgunblaðið - 17.05.1963, Blaðsíða 3
Töstudagur 17. maí 1963
MORCVISBL 4T>1 Ð
3
8TAK8TEIMAR
Furðufregnir
Tíminn birtir þá stórkostlegn
frétt á forsíðunni í gær, að Al-
þýðubandalagið boði kommún-
ismann. Þótti flestum þetta lítil
tíðindi, en gott er þó til þess
að vita, ef kommúnistaþjónkun
Framsóknarforingjanna hefur
byggzt á misskilningi og heim-
ildaskorti til þessa. Forsíður
Tímans gerast nú undarlegri
með degi hverjum. S.l. mið-
vikudag var þar boðuð stofn-
un meginflokks ásamt komm-
únistunr., sem óhjákvæmilega
hefði það í för með sér,
að Framsóknarflokkurinn sem
slíkur hætti störfum. í gær er svo
hinn mikli leyndardómur birtur
Iandsir.innum: Alþýðubandalagið
boðar kommúnismann!!
Málefnaskortur
Það sem mjög einkennir þessa
kosningabaráttu er málefnafá-
tækt stjórnarandstæðinganna.
Þjóðviljknn heldur daglega að
fólki ímynduðum kjarnorku kosn
ingabombum. Er það upplýst, að
kjamorkusprengjur séu hættu-
legar lifi og Iimum íslendinga.
eins og fólks af öðru þjóðerni.
Er vitnað til skýrslu, sem ís-
lenzkur embættismaður hefur
sent stjómvöldum og þannig
gegnt sjálfsagðri embættisskyldu
sinni. Reynir Þjóðviljinn á all-
an hátt að gera aðdraganda og
efni þessarar skýrzlu, sem tor-
tryggilegast. Hins vegar birta
þeir myndir af æviferli ýmissa
íslendinga og vélrituðum slúð-
ursögum um menn og málefni.
Ekki er um auðugrj garð að
gresja í Tímanum. Þar er reynt
að blása út viðkvæmustu utan-
ríkismál íslendinga og þeim beitt
hiklaust af dæmafáu ábyrgðar-
leysi. Er jafnvel gripið til þess
ráðs að segja eitt í dag og ann-
að á morgun ,í trausti þess, að
sumir lesi blaðið óreglulega. Síð-
ustu daga hafa furðufregnirnar
svo náð yfirhöndinni að þvi er
virðist. Stofna meginflokk með
kontmúnistum s.l. miðvikudag og
í gær er það upplýst, að komm-
únistar boði kommúnisma.
Gagnrýni þessara blaða á við-
reisnina og ríkistjórnina hefur
hinsvegar verið fádæma máttlaus
og órökstudd. Þá hafa þeir ekki
gert minnstu tilraun til þess að
skýra frá eigin úrræðum. Það
er frumkrafa kjósenda á hendur
stjórnmálaflokkum, að þeir skýri
frá stefnu sinni, sem þeir hyggj-
ast framkvæma, ef þeim verða
falin völdin. Þessari frumkröfu
hafa komirúnistar og Framsóknar
menn brugðizt með öllu. í stað
þess hafa málgögn þessara flokka
brugðið yfir sig hjúp furðufregna
en narta svo við og við í hæla
stjórnarflokkanna til málamynda
Hvernig verður sú stjórn, sem
þessir flokkar mynduðu á grund-
velli þessara málefna?
Fjárfesting?
Kjósendur hér í borg eru nú
í miklum metum hjá Framsókn-
arflokknum, a.m.k. í krónutölu.
Ef skrifstofa flokksins hetfur
spurnir af einhverjum aðila á
kosningaaldri, sem sé í fjá.rþröng
og hafi ekki ákveðnar stjórn-
n.álaskoðanir, þá eru honum sett-
, ir kostir, sem skrifstofusveinar
* Framsóknarflokksins telja nokk-
urt kostaboð. Viðkomandi geti
auðvitað fengið lán og mun bað-
- ið venjulega 80 þúsund krónur
á hagstæðum víxlum. Ekki þurfi
að hafa teljandi áhyggjur af á-
byrgðiarmönnum eða veðtrygg-
ingum, þótt siíkt komi að vísu
ekki að sök. Lántakandinn þarf
aðeins að rita nafn sitt á vix-
ilinn og svo einnig á smá papp-
írsmiða: Inntökubeiðni í Fram-
sóknarfélag Reykjavíkur.
í sambandi við væntanlega
utanför Þjóðdansafélagsins
má geta þess, að félagsmenn
hafa ráðizt í að koma sér upp
íslenzkum búningum, ná-
kvæmum eftirlíkingum af
karl- og kvenbúningum, og
hefur verið stuðst við safn-
gripi við gerð þeirra. Einnig
hafa fjölmargir sérfróðir
menn og konur verið kvaddir
til ráðuneytis. Búningar sem
þessir kosta of fjár, og hafði
félagið ekki fjárhagslegt bol-
magn til að koma þeim upp.
Því varð það að ráði, að hver
Sigriður Ingvarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir dansa
dansa.
tatara-
Um hundrað börn á öllum
aldri dönsuðu af hjartans lyst
í Háskólabíói sl. þriðjudag.
Þau voru að æfa ýmiss konar
dansa, létta söngdansa allt
upp í þó nokkuð flókna þjóð
dansa. Yngstu börnin döns-
uðu og sungu „Bangsi sefur“,
svo komu þau eldri með
hringdansa, keðjudansa og
margt fleira, og elztu krakk-
arnir dönsuðu af leikni mik-
illi tataradansa og aðra fjör-
uga þjóðdansa. Flest voru
þau í íslenzkum búningum
eða öðrum, sem hæfðu dans-
inum, og voru margir bún-
inganna hinir skartlegustu.
Krakkarnir voru að búa sig
DUNANDi DANS
Kristín Valdimarsdóttir og Eyjólfur Bjarni Gíslason dansa. Þau
eru bæði 8 ára gömul. (Ljósm. Mbl., Sv.Þ.)
Margrét Rögnvaldsdóttir.
Einnig heldur félagið nám-
skeið fyrir fullorðna og er það
ætíð vel sótt. Aðalkennari
Þjóðdansafélagsins er Sigríð-
ur Valgeirsdóttir, en hún er
sérfræðingur í íslenzkum
dönsum.
Oddný Hanna Eiriksdóttir og
Björn Ellertsson dansa litháen
dansfélagi, sem þátt tekur í
væntanlegri utanferð, vinnur
að sínum búningi, en félagið
leggur til efni. Ætlunin er að
félagið eigi síðan þessa bún-
inga, en hver félagi, sem vinn-
ur að þessu hafi forgangsrétt
að sínum búningi, meðan
hann er starfandi í félaginu.
Félagið hefur þegar keypt
efni í 12 kvenbúninga og 7
herrabúninga og er kostnað-
urinn við efniskaupin rúm-
lega 66 þúsund krónur.
Nokkra búningana er þegar
búið að sauma og verða not-
aðir við dansskemmtunina á
sunnudaginn
undir danssýningu, sem hald-
in verður í Háskólabíói n.k.
sunnudag. Er það Þjóðdansa-
félag Reykjavíkur, sem stend-
ur fyrir sýningunni, og sýn-
ingarflokkur félagsins kemur
þar fram og dansar þjóð-
dansa. Ágóði af sýningunni
rennur í utanfararsjóð félags-
ins, en áformað er að fara ut-
an á þjóðdansamót í Oslo 26.
júní n.k.
Þjóðdansafélag Reykjavík-
ur heldur uppi kennslu í
gömlum og nýjum dönsum
fyrir börn á aldrinum 5—15
ára, og héfur aðsókn aldrei
verið eins mikil og í vetur.
Danskennarar eru þær Matt-
hildur Guðmundsdóttir og
Nokkrir dansarar í ÞJóðdansafélagi Reykjavíkur í þjóðbúningum. Fremst á myndinni eru þæ
Unnur Eyfeils í nýja skautbúningnum og Jetta Jakobsdóttir í gamla upphlutnum.. Lengst t
vinstri er Steinunn Pálmadóttir í gamla skautbúningnum, þá Matthildur Guðmundsdóttir
spaðafaldi, Jón H. Þórarinsson og Svavar Guðmundsson í karlmannabúningum frá um það b
1850, Erna Júlíusdóttir í upphlut og Kristín Jónsdóttir í peysufötum.