Morgunblaðið - 23.05.1963, Page 8
8
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 23. maí 1963
imiflfttMðfrifr
Útgeíandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
Útbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðs.1stræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðálstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakib.
IÐJAN BAR EKKI
ÁRANGUR
rins og menn minnast^
hefur því margssinnis
verið lýst yfir, bæði af komm-
únistum og Framsóknar-
mönnum, að viðreisnarflokk-
arnir væru fúsir til að heim-
ila brezkum togurum veiðar
innan 12 mílna, eftir að und-
anþágur þeirra renna út á
næsta ári. Þessari ásökun hef-
ur að sjálfsögðu verið mót-
mælt, og hér á landi eru þeir
fáir, sem henni hafa trúað,
en engu að síður hefur þessu
verið haldið fram blákalt
mánuðum saman.
Ekki skiptir miklu máli, þó
kommúnistar héldu slíkum
firrum fram. Menn ætlast
ekki til þess að þeir reyni
að leita sannleikans. En um-
mæli aðalmálgagns annars
stærsta stjórnmálaflokks
landsins í þessu efni gátu
vissulega verið þjóðhættuleg.
Menn eiga því ekki að venj-
ast í þroskuðum lýðræðisríkj-
um, að staðlausum fullyrðing-
um sé haldið fram mánuðum
saman í málgögnum lýðræð-
issinna. Sérstaklega mundi
'“engu blaði líðast að birta
ósannindi, sem gætu valdið
því, að erlendir aðilar teldu
sér óhætt að gera kröfur á
hendur viðkomandi þjóð. Hin
vísvitandi ósannindi Tímans
gátu vissulega orkað því, að
þau öfl í Bretlandi, sem vilja
seilast til réttinda í íslenzkri
landhelgi, efldust og bentu
á íslenzkar heimildir fyrir
því, að íslenzkir stjórnmála-
leiðtogar væru síður en svo
andvígir því að veita Bret-
um slík réttindi.
Þessi iðja virðist líka hafa
borið nokkurn árangur er-
lendis, að minnsta kosti var
færeyskur stjórnmálamaður
tekinn að dylgja með það í
Færeyjum, að ekki væri ís-
lenzkum stjórnmálaleiðtog-
um vel treystandi í þessu
efni.
En það var ekki einungis að
Tímanum væri það jafn ljóst
og öðrum, að enginn maður
hér á landi (að kommúnist-
um auðvitað undanskildum)
mundi vilja fórna landsrétt-
indum, heldur var líka marg-
upplýst, að yfirlýsingar lægju
fyrir um það frá hendi
brezku stjórnarinnar, að hún
mundi ekki einu sinni orða
slíka framlengingu.
Þess vegna er þessi iðja
Framsóknarmanna einhver
hin óþjóðlegasta sem um get-
ur.
BERSKJALDAÐIR
Sem betur fer standa þeir
rógsiðjumenn, sem ekki
svifust þess að stofna íslenzk-
um hagsmunum í hættu í
þeim tilgangi að afla sjálf-
um sér fylgis, nú uppi ber-
skjaldaðir. Eiturvopnin, sem
Ólafur Thors, forsætisráð-
herra, sagði í viðtali við
Morgunblaðið, að Framsókn-
armenn mundu slíðra, hafa
snúizt í höndum þeirra, áður
en þeir höfðu vit á að slíðra
þau. Þau standa nú djúpt í
holdi Framsóknarflokksins
sjálfs.
Orðsending sú, sem brezki
sendiherrann, E. B. Boothby,
afhenti Guðmundi í. Guð-
mundssyni utanríkisráðherra,
og Morgunblaðið birti í gær,
segir að vísu ekkert, sem
menn vissu ekki fyrir, ef þeir
á annað borð vildu vita það,
en hún tekur þó af öll tví-
mæli um það, að Tíminn hef-
ur gert sig sekan um vísvit-
andi ósannindi, sem þar að
auki voru stórlega vítaverð
út frá því sjónarmiði að þau
gátu stofnað íslenzkum rétt-
indum í hættu.
Auðvitað var 12 mílna fisk-
veiðilandhelgin viðurkennd
með samkomulaginu, sem
gert var við Breta 1961, og
margupplýst var, að brezka
stjórnin hyggðist ekki einu
sinni orða ósk um framleng-
ingu undanþáganna, sem
renna út eftir nokkra mánuði.
Um þetta atriði segir í orð-
sendingu brezka sendiherr-
ans:
„Ég vil leyfa mér að end-
urtaka enn einu sinni þær
yfirlýsingar, sem ríkisstjórn
mín hefur áður gefið íslenzku
ríkisstjórninni, um að ríkis-
stjórn mín hefur ekki í
hyggju að fara fram á fram-
lengingu þriggja ára tímabils-
ins, sem lýkur 11. marz 1964.
Fullyrðing um það gagnstæða
verður að telja alvarlega
rangtúlkun á ótvíræðri og af-
dráttarlausri afstöðu ríkis-
stjórnar minnar í þessu efni.“
Frekar þarf ekki vitnanna
við. Þess vegna er þetta
„áróðursvígi“ Framsóknar-
flokksins einnig fallið, og er
Morgunblaðinu það ráðgáta,
hvaða ráða þeir Tímamenn
muni næst reyna að grípa til.
MÖÐGA
SENDIHERRANN
'C’n það er í samræmi við
hina „nýju“ sefnu, sem
Framsóknarmenn segjast ætla
að taka upp í utanríkismál-
um, ef þeir fá aðstöðu til
þess með kommúnistum, að
Kennedy leggur áherzlu á jafnrétti
alla borgara Bandaríkjanna
Síðastliðinn sunnudag heim-
sótti Kennedy Bandaríkjafor-
seti tvö Suðurríki Bandaríkj-
anna, Tennessee og Albama,
en eins og kunnugt er hafa
kynþáttaóeirðir geisað í borg
inni Birmingham í Alabama
að undanförnu.
Kennedy forseti hélt ræðu
við Vanderbilt háiskólann í
Nashville í Tennessee og lagði
m.a. áherzlu á jafnrétti allra
borgara í anda frelsisins, sem
ríkti í Bandaríkjunum. For-
setinn sagði, að sérstök byrði
væri lögð á herðar manna og
kvenna meðal þjóðarinnar.
Þau mættu ekki láta freist-
ast til þess að halda á lofti
hleypidómum og ofbeldis-
hneigð heldur leggja áherzlu
á gildi frelsisins og laganna,
sem þjóðfélagið byggði á.
300 þús. menn fögnuðu
Bandaríkjaforseta við komu
hans til Nashvilie, en 30 þús.
fengu tækifæri til þess að
hlusta á ræðu hans í Vander-
bilt háskóla. Þar skoraði for-
setinn á alla Bandaríkjamenn
að virða lög þjóðar sinnar og
benti á, að skyldur menntaðra
borgara væru m.a. að útbreiða
menntun, starfa að félagsmál-
um og varðveita lögin. Hann
minnti á umræður þær, sem
stæðu nú yfir meðal þjóðarinn
ar um réttindi hluta borgara
hennar. „Þessar umræður
munu halda áfram“, sagði for
setinn“, og réttindi aukast þar
til allir Bandaríkjamenn hafa
sömu tækifæri og sama frelsi
innan ramma laganna."
Er forsetinn ræddi skyldur
hins menntaða manns, beindi
hann orðum sínum, svo ekki
var um villzt, ti! embættis-
manna í Suðurríkjunum t.d.
Ross Barnetts fylkisstjóra í
Mississippi, en hann hefur ó-
hlýðnazt úrskurði sambands-
dómstólsins varðandi réttindi
blökkumanna.
„Hinn menntaði maður
veit“, sagði forsetinn, að fari
einn maður ekki að lögum,
sem honum eru á móti skapi,
getur það haft þær afleiðing-
ar, að aðrir óhlýðnist öðrum
lögum, sem þeim geðjast ekki
að. Með þessu er stefnt að
upplausn laga og réttar. Hann
(hinn menntaði maður) veit
einnig, að hvern einstakan
mann á að umgangast með
skilningi og meðhöndla virðu
lega. „Hver menntaður borg-
ari,“ hélt forsetinn áfram,“
sem leitast við að kollvarpa
lögunum, bæla niður frelsi og
undiroka aðra menn, sýnir
forfeðrum sínum smán og
bregst skyldu sinni.“
Forsetinn minnti að lokum
áheyrendur sína á að heim-
urinn hefði fylgzt með síð-
ustu atburðum í Bandaríkjun-
um með skelfingu.
Frá Nashville hélt Kennedy
til Muscle Shoals í Alabama
og við hátíðahöld þar hitti
hann George Wallace fylkis-
stjóra Alabama. Kennedy
nefndi ekki kynþáttavanda-
málin í ræðunni, sem hann
hélt í Muscle Shoals, en að
hátíðahöldunum loknum
ræddi hann við Wallace í hálfa
klukkustund. Ekki hefur ver-
ið skýrt frá efni viðræðn-
anna, en Pierre Salinger, blaða
fulltrúi forsetans sagði, að
þeim loknum, að þær hefðu
ekki verið óvinsamlegar.
t
!
I
i
!
i
í
f
1
i (
Engin ný filfelli
bólusóttar enn
Tíminn rangfærir í gær um-
mæli brezka sendiherrans og
móðgar hann vísvitandi.
Fréttafölsun er alltaf alvar-
legur hlutur, en það telst
hreint siðleysi að snúa út úr
orðum erlendra sendifulltrúa
og er skoðað sem móðgun við
þjóð hans. Það harma þeir
Tímamenn sjáifsagt ekki, því
það er yfirlýst stefna þeirra
að reyna að efna til árekstra
við Breta á ný.
Tíminn heldur því blákalt
fram, að brezki sendiherrann
hafi rangfært sín orð. Þetta
eru staðlausir stafir.
Svo algjörar hrakfarir hafa
Framsóknarmenn farið í öll-
um umræðum um utanríkis-
mál, að þess er að vænta að
þeir hætti þeim. En ef þeim
verður haldið áfram, ættu
þeir að minnsta kosti að sýna
þá siðsemi að láta sendifull-
trúa erlendra ríkja njóta
sannmælis.
Stokkhólmi, 21. maí — NTB
Sænsk heilbrigðisyfirvöld
lýstu því yfir í dag, að allar
líkur væru nú til þess, að
endi væri bundinn á út-
beiðslu bólusóttar þeirrar,
sem vart hefur orðið í Stokk-
hólmi. Alls hafa 12 manns
tekið veikina.
Þrátt fyrir, að engra nýrra
tilfella hafi orðið vart í
nokkra daga,var því lýst yfir
að ekki yrði dregið úr varúð-
arráðstöfunum fyrst um sinn.
Næsta vika sker úr um, hvort
tekizt hefu-r að hefta útbreiðslu
veikinnar. Komi engin ný til-
felli fyrir þann tíma, má teljast
öruggt, að veikin sé úr sögunni.
Verður þá ekki gripið til fjölda-
bólusetningar.
í dag var opnuð upplýsinga-
skrifstofa í Stokkhólmi, þar sem
almenningi eru veittar allar þær
upplýsingar um veikina, sem
það kann að óska eftir. 20 síma-
stúlkur og hópur lækna svara
fyrirspurnum. Þar er skýrt frá
því, hvar fólk geti leitað eftir
bólusetningu, hvaða fólk eigi
ekki, af heilsufarsástæðum, að
láta bólusetja sig, o.s.frv.
Mjög hefur dregið úr ferða.
mannastraumnum til Stokkhólms
að undanförnu, vegna bólusótt-
arinnar.
— Hafnargerð
Framh. af bls. 6.
göngu fyrir það sem á eftir að
verða á meðan sumir af þeim út-
gerðarstöð- um, sem fyrir eru,
koma ekki fyrir sínum skipastól.
Ég vona svo að þessar línur
verði til þess að fleiri láti heyra
til sín um þetta mjög svo þýð-
ingarmikla mál okar Ak„-..es-
inga.
Og vona ég að þegar að því
kemur að haldið verður áfram
með hafnargarðinn hér, verði
það eitt framkvæmt, sem líkur
eru fyrir að verði þessum bæ til
áframhaldandi uppbyggingar.
Bjarni Guðmundsson,
hafnarvörður.