Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 2
18 MORCVISBI AÐ1B Fimmíudagur 23. maí 1963 Sigurður Benediktsson slær myndina á 49 þúsund krónur: JFyrsta, annað og . . Kjorvalsmynd slegin á 49 þúsund krónur A LISTMUNAUPPBOÐI Sigurð- ar Benediktssonar í gær voru tvær myndir seldar á hærra verði en áður hefur þekkzt á upp boðum hér, Úr Kárastaðanesi, eftir Kjarval, sem fór á 49 þús- und krónur, og Úr Þingvalla- hrauni, eftir Ásgrím Jónsson, sem seld var á 42 þúsund. Við Korpu, eftir Kjarval, var slegið á 38 þús- und og Súlur, eftir Jón Stefáns- son, á 33 þúsund. önnur málverk voru ódýrari, en margar góðar myndir seldar, þar á meðal 14 eftir Kjarval. Bjóða átti upp rauðvínskönnu Matthíasar Jochumssonar, en konan, sem hana á, ákvað að hætta við að selja hana, þar sem Matthias skáid birtist henni í draumi í fyrrinótt og harðbann- aði sölunaí Danir hóta að neita Pan Am um lendingarleyffi Kaupmannahöfn, 22. maí (NTB) YFIRVÖLD flugmála í Dan- mörku hafa ákveðið að grípa til aðgerða gegn bandariska flugfé- laginu Fan American, hækki það ekki fargjöld sín á flugleiðinni New York—Kaupmannahöfn sam kvæmt ákvæðum IATA. Samgöngumálaráðuneyti Dan- merkur skýrði frá því í dag, að aðgerðirnar myndu ekki ná til flugvéla Pan American, sem fara á frá Kaupmannahöfn í fyrramál ið. I>ær yrðu ekki kyrrsettar. Hins vegar fengju flugvélar fé- lagsins sem koma ættu til Kaup- mannahafnar eftir þann tíma, ekki lendingarleyfi. Eins og kunnugt er áttu flug- félögin, sem aðild eiga að IATA að hækka flugfargjöld sín á leið- inni yfir N-Atlantshaf. Banda- ríkjastjórn var mótfallin þessari hækkun og fór þess á leit við flugfélögin Pan American og Trans World Airlines að þau hlýddu ekki ákvæðum IATA um hækkunina. I>að var ekki fyrr en ýmis lönd í V-Evrópu hótuðu að neita flugvélum flugfélaganna um lendingarleyfi, að bandarísk yfirvöld veittu þeim heimild til að hækka fargjöldin. Flugfélögin hafa hins vegar ekki framkvæmt hækkunina enn. Kommúnískt fréttamat RITSTJÓRAR „Þjóðviljans“ hafa bersýnilega ekkert vitað, hvaðan á þá stóð veðrið, þeg- ar þeir fengu í hendur orð- sendingu brezka sendiherrans í fyrrakvöid, þar sem brezka stjórnin ítrekar viðurkenn- ingu sína á 12 mílna fiskveiði- lögsögunni við ísland og fyrri yfirlýsingar um, að hún muni ekki fara fram á framleng- ingu þriggja ára undanþágu- timabilsina, þegar það rennur út í marzmánuði nk. Lýsa þessi yfirþrymandi vandræði ritstjóranna sér í þeim kynlegu viðbrögðum, að þeir taka þann kostinn að hvorki minnast á orðsending- una né birta eitt einasta orð úr henni. Hafa Þjóðviljarit- stjórarnir þannig fremur vilj- að verða sér til skammar með þögninni en fara að dæmi fé- laga sinna á framsóknarmál- gagninu og verða sér til skammar með áframhaldandi ósannindum. Það kann að vera rétt mat hjá Þjóðviljaritstjórunum, að fyrir almenna blaðalesendur séu það litlar fréttir, að Bret- ar hafi viðurkennt 12 milna landhelgina og Iáti sér ekki til hugar koma að sækja um framlengingu undanþágutima- bilsins, því að þetta hafi flest- um læsum íslendingum átt að vera ljóst þegar í 2 ár. En ekki er umhyggja þeirra mikil fyrir þeim sanntrúaða hópi línudansara, sem ekki lesa l.nnað en „Þjóðviiljann“ og hafa staðið i þeirri trú undan- farin 2 ár, að Bretar hafi ekki viðurkennt 12 mílna landhelg ina og muni fá veiðiréttindi innan hennar eins og þá sjálfa lystir. — Kjarnorkuher Framhald af bls. 17. mikilvægi einingar innan banda- lagsins og vöruðu við hættunni, sem stafaði frá kommúnistum í heiminum. Pearson kvað mjög mikilvægt, að bandalagsríkin í Evrópu væru jafn rétthá Bandaríkjunum hvað viðkæmi stjórn bandalagsins. Hann lagði áherzlu á, að hvorki Bandaríkin né V estur-Evrópu- ríkin, þó sameinuð væru, gætu staðið ein andspænis kommún- istum. „Það væri mikil ógæfa, ef þjóðir V-Evrópu slitu tengslin við Bandaríkin á sviði varnar- mála“ sagði Pearson. „í sam- skiptunum við kommúnista verð ur NATO að halda áfram að vinna að lausn stjórnmálalegra vandamála og reyna að efla gagnkvæmt umburðarlyndi. Við verðum að hafa styrk til þess að verjast því, að lagt verði út í ævintýri, sem geta tortímt manii- kyninu," sagði forsætisráðherr- ann. Utanríkisráðherra Breta, Home lávarður, ræddi stofn- un sameiginlegs kjarnorkuhers NATO og lagði áherzlu á nauð- syn einingar innan bandalagsins. Ráðherrann ræddi einnig hug- sjónaágreining sovézkra og kin- verskra kommúnista og benti á að vestrænar þjóðir mættu ekki láta þessar deilur verða til þess, að þær dottuðu á verðinum gegn yfirgangi kommúnista. Dirk Stikker, yfirmaður NATO sagðist í ræðu sinni, vilja benda á þá miklu hættu, sem öllum heiminum stafaði af kommúnist- um þó að ekki væri um að ræða beina ógnun við friðinn í Evrópu eins og sakir stæðu. Stikker benti á, að ráðherrafundir NATO hefðu oft verið haldnir á miklum hættutímum miðað við það, sem nú væri, en hættulegt væri að ímynda sér að hættan væri liðin hjá. „Hún vofir enn yfir,“ sagði Stikker," og er jafnvel meiri vegna þess hve lítið ber á henni.“ Var í Noregi SIGURÐUR Hafstað hefur beðið Morgunblaðið að ítreka fyrri leið réttingu þess efnis, að hann hafi ekki tekið þátt í kröfugöngunni 1. maí s.l. Sigurður var þann dag í Noregi, en hann starfar í sendi- ráði íslands í Ólsó, eins og kunn- ugt er. Fundir SLS SAMBAND nngra Sjálfstæðismanna heldur samkomur fyrir ’ unga kjósendur á 12 stöðum á landinu um næstu helgi. Félög ungra Sjálfstæðismanna á viðkomandi stöðum hafa undirbúið samkomur þessar heima fyrir en þær verða sem hér segir: AKRANES: Fundur ungra kjósenda á Hótel Akranesi, sunnudaginn 26. mal kl. 4 e.h. STYKK SHÓLMUR: Fundur ungra kjósenda í samkomuhúsinu sunnudaginn 26. mal kl. 4 e.h. ÍSAFJÖRÐUR: Fundur ungra kjósenda að Uppsölum sunnudaginn 26. maí kL 4 e.h. SIGLUFJÖRÐUR: Fundur ungra kjósenda í 'Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 23. maí kl. 4. e.h. ÓLAFSFJÖRÐUR: Kvöldsamkoma x Félagsheimilinu Tjarnarborg laugardaginn 25. maí kl. 8.20 e.h. Asamt ungum Sjálfstæðismönnum er Félag Sjálf- stæðismarna á Óialsfirði aðili að kvöldsamkomunni. AKUREYRI: Fundur ungra kjósenda í Nýja Bíó sunnudaginn 28. maf kL 5. e.h. VESTMANNAEYJAR: Fundur ungra kjósenda í samkomuhúsinu sunnudaginn 28. mal kl. 4. e.h. SELFOSS: Þjóðmálastefna ungra kjðsenda 1 Iðnaðarmannahúslnu sunnu- daginn 26 mai og hefst kl. 1.30. Um kvöldið verður skemmtun 1 Selfossbíó. KEFLAVlK: Kvöldsamkoma í samkomuhúsinu f Njarðvíkum sunnudaginn 26. maí ki. 8.30. Avörp og skemmtiatriði. KÓPAVOGUR: Fundm ungra kjósenda í Sjálfstæðishúsinu, Borgarholtsbraut 6, sunnudaginn 26 mai. kl. 3. e.h. HAFNARFJÖRÐUR: Fundui ungra kjósenda í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarfirði, sunnu- daginn 26. maí kl. 4. e.h. GRINDAVÍK: Fundur ungra kjósenda sunnudaginn 26. maí kl. 5. e.h. Sumarstarf Farfugla hafið — Rússar FARFUGLAR hafa nú hafið sumarstarf sitt fyrir nokkru. Það hófst eins og venja er til með eins dags gönguferðum um ná- grennið, þar sem ekki hentar að fara í lengri ferðalög á þeim tíma. Fyrsta helgarferðin verður farin nú um hvítasunnuna, er það eins og hálfs dags ferð í Þórsmörk. Farfuglar hafa farið þangað á hvítasunnunni um langt skeið til að hlú að gróðri í Sleppugili, þar sem þeir hafa bækistöð sína. Einnig eru farnar gönguferðir um Mörkina. Undan farin ár hafa þátttakendur í þessari ferð verið um 60, enda hefir alltaf ríkt fjör og gleði í þessum ferðum. Frá hvítasunnu og fram í september verða farnar 17 helg- arferðir og 3 sumarleyfisferðir. Hafa sumarleyfisferðir félagsins notið sívaxandi vinsælda, enda hefir ætíð verið reynt að fara nýjar leiðir og lítt kunnar slóðir. Hafa færri en vildu komizt í sumar þessara ferða. Helgar- ferðir félagsins hafa einnig ver- ið fjölmennar, og síðastliðið sumar voru þátttakendur um Enn veiðist síldin AKRANESI, 22. maí. — Síld er það enn og silfruð er hún enn, jafnvel í öllum regnbogans litum er sól skín á hreisturhíalín henn- ar. 2480 tunnur bárust hingað á land í dag af 7 bátum. Aflahæst- ir voru þessir þrír: Haraldur með 870 tunnur, Höfrungur I 485 og Arnkell SH frá Rifi 405 tunnur. — Oddur. 570. Ánægjulegt er einnig, að aukin þátttaka æskufólks á aldr- inum 16—25 ára hefir verið áber andL Mjög mikil gróska var 1 starf- semi félaigsins síðastliðinn vetur, og voru fræðslu- og skemmti- fundir haldnir reglulega, auk fjölmennrar árshátíðar. Húsnæð- isvandræði hafa annars staðið starfsemi fklagsins fyrir þrifum, og er því mikill áhugi á, að fé- lagið festi sér húsnæði fyrir starfsemina. Nýlega var stofnuð farfugla- deild i Kópavogi með um 50 fé- lögum. (Frá Farfugladeild Rvíkur). Framhald af bls. 17. í framhaldi af ofangreindu sagði rússneski fulltrúinn í dag, að Rússar myndu framvegis senda eigin tæknifræðinga til vanþróaðra landa í stað þess að aðstoða SÞ við að senda tækni- fræðinga frá öðrum þjóðum til þessara landa. Rússneski fulltrúinn talaði á fundi nefndarinnar, sem vinnur að því að finna leiðir til lausnar fjárhagsvandamála SÞ. Er hann hafði lokið máli sínu tók Banda- ríski fulltrúinn til máls. Sakaði hann Sovétrikin um að gera sitt ítrasta til þess að gera SÞ gjald- þrota. '/' NA /5 hnútar / SVSÖhnútr H Sn/Htma • Oii ~ 17 Skirír K Þrumur wzz, KuMtM Hihtké H Hmi 1 LLLllU Z2mr /?C3 *í tz i Á HÁDEGI í gær var 1 stigs helgi. í öllum nálægari Ev- frost á Raufarhöfn, en þar rópulöndum er góðviðri og hefur hitinn ekki farið upp 10—20 stiga hiti. fyrir frostmark síðan fyrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.