Morgunblaðið - 23.05.1963, Page 8
24
MORCVNnr4nrs
Fimmtudagur 23. maí 1963
Landhelgisbrot brezka togarans Spurs:
Skipstjórinn dœmdur
í 260 þús. kr. sekt
Seyðisfirði, 22. maí.
Réttarhöld í máli skip-
stjórans Thorarins K. Olgeirs
son, á brezka togaranum
Spurs, hófust hér í dag kl.
9.30. Fyrst var lögð fram á-
kæra frá Landhelgisgæzl-
unni á hendur skipstjóranum
á Spurs, sem þýdd var af
Ólafi Björnssyni fulltrúa.
Fyrstur kom fyrir réttinn
skipstjórinn á togaranum. Spurði
fógeti hvort það væri nokkuð
sérstakt er hann vildi taka fram
í samibandi við ákæruna. S'kip-
stjóri tók fram, að það skipti
ekki máli og gæti verið villandi
að miða við 12 mílna mörkin, þar
sem hann hefði verið nær hlið-
arlínu hólfsins út af Stokksnesi,
hefði verið 1,2 sjómílur innan
hliðarlínunnar.
Næst spurði bæjarfógeti hvort
hann viðurkenndi að hafa verið
innan fiskveiðamarkanna. Skip-
stjóri sagði, að sér hefði verið
sýnt fram á að svo hafi verið,
enda þótt honum hafi ekki verið
það ljóst fyrr en eftir á.
Gísli ísleifsson, hrl., sem
mætti í réttinum af hálfu togara-
eigenda, spurði skipstjóra hver
ástæðan hefði verið til þess að
togarinn var kominn vestur fyrir
leyfð mörk. Skipstjórinn svaraði
f fyrsta lagi var 4 gráðu munur
á gíróáttavita skipsins og sjón-
skífunni í brúnni. Varð hann
þess var síðar. í öðru lagi var
sterkari straumur til vesturs en
hann hafði gert ráð fyrir.
Þá spurði Gísli hvort þeir
hefðu verið að taka vörpu togar-
ans iHn, og hvar taldi skipstjóri
togarann vera er hann var tek-
inn.
Kl. 2.55 var byrjað að draga
inn vörpuna og þá var Stokks-
neshorn í 9 mílna fjarlægð rétt-
vísandi 358 gráður, svaraði skip-
stjórinn.
Enn spurði Gísli: Telur skip-
stjóri að togarann hafi rekið inn
fyrir línu eftir þetta?
Því játaði skipstjórinn.
Gísli spyr: Var varðskipið sjá-
anlegt með berum augum á um-
ræddum tíma?
Skipstjóri svaraði: Þeir höfðu
séð Þór af og til ýmist í radar
eða með berum augum frá því
kl. 23.00 um kvöldið. Þeir luku
við að kasta kl. 3.30 og sáu þá
varðskipið framundan og töldu
sig þá örugglega utan við fisk-
veiðimörkin. Þá kom og fram að
skipstjóri hafði verið í koju er
togarinn var tekinn. Skipstjórinn
kvaðst hafa verið togaraskip-
stjóri frá 1939, að undanskildum
stríðsárunum.
Næstur kom fyrir réttinn Jón
Milwood-menn
í vinnu
FRÉTTAMAÐUR Mbl. brá sér í
gær í heimsókn um borð í skozka
togarann Milwood, sem liggur
rammlega bundinn innan við 2
varðskip við Battaríisgarð. 1. vél-
stjóri var í landi, en tal náðist
af ungum sjómanni, George Step
hen að nafni. Kvað hann þrjá
þeirra félaga hafa verið í vinnu
í landi öðru hverju til að hafa
eitthvað fyrir staf»i og ná sér
í aukaskilding.
Stephen sagði að skipsmenn-
irnir 5 væru orðnir mjög leiðir á
verunni hér og aðgerðarleysinu,
svo að ágætt væri að fá vinnu. í
gær og fyrradag unnu Skotarnir
við skurðgröft fyrir vatnsleiðslu
hjá veitingahúsinu Glaumbæ.
Greftinum er ekki lokið, svo að
þeir taka aftur til við vinnu á
föstudag.
Skipstjórinn á Spurs,
Thorarinn K. Olgeirsson.
Jónsson, skipherra á Þór, og
vann eið að skýrslu sinni um
töku togarans.
Gísli ísleifsson spurði hvernig
hegðun skipstjórans hefði verið.
Svaraði skipherra að hún hefði
í alla staði verið mjög prúð-
mannleg.
Síðan unnu þrír stýrimenn
varðskipsins eið af skýrslunni.
Þá var réttarhöldum frestað,
en komið var fram um hádegi.
Kl. 17.00 hófust réttarhöld a5
nýju og var þá lesin ákæra á
hendur skipstjóranum frá sak-
sóknara ríkisins. Þá var lagt
fram vottorð dómkvadds manns,
sem athugaði áttavita skipsins
og samkvæmt því var skekkja
hans 2% gráða.
Skipaður verjandi, Gísli fs-
leifsson hrl., flutti varnarræðu
fyrir réttinum og gerði þá aðal-
kröfu, að skipstjóri togarans
yrði algerlega sýknaður, eða
málssókn látin niður falla og til
vara að hann hlyti vægustu
refsingu er dómurinn sæi sér
fært. Taldi hann þetta gáleysis-
brot, sem stafaði af því að 214
gráðu skekkja var á áttavitan-
um og togarann hefði rekið inn
fyrir linu vegna sterks vestur-
falls. Einnig benti hann á hegð-
un skipstjórans, sem hefði verið
óaðfinnanleg og að hann myndi
hafa talið sig örugglega utan
fiskveiðimarka þar sem hann sá
varðskipið með berum augum
þegar togarinn kastaði vörpunnL
í gærkvöldi kvað bæjarfógeti
upp dóm í máli skipstjórans og
hlaut hann 260 þús. kr. sekt og
afli og veiðarfæri voru gerð upp-
tæk. Skipstjóri áfrýjaði
— Sveinn.
Snúrustaurar
Verð kr. 1100. — Sendum gegn póstkröfu.
Einnig rólur, sölt, rennibrautir og fleiri leiktæki
fyrir börn.
Hiálmiðjan
Barðavogi. — Upplýsingar í síma 20599.
Frá FulUrúaráði SjáU-
stæðisfélaganna í Reykjavík
OPNAÐAR hafa verið á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavik hverfaskrifstofur á eftirtöldum stóðum i
Reykjavík:
VESTURBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 1
Sími: 22048
NES- OG MELAHVERFI
K.R.-húsið við Kaplaskjólsveg
Sími: 22073
MIÐBÆJARHVERFI
Breiðfirðingabúð
Sími: 22313
AUSTURBÆJARHVERFI
Skátaheimilið við Snorrabraut
Sími: 22089
NORÐURMÝRARHVERFI
Skátaheimiiið við Snorrabraut
Sími. 22077
HUtÐA- OG HOLTAHVERFI
Skipholt 5
Sími: 22317
LAUGARNESHVERFI
Sunnuvegur 27
Sími: 38114
LANGHOLTS- VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegur 27
Sími: 35307
SMAÍBUÐA-, BÚSTAÐA- OG HÁALEITISHVERFI
Víkingsheimilið við Réttarholtsveg
Sími: 34534
Allar skrifstofurnar eru opnar daglega kl. 2—10 e- h., nema
laugardaga og sunnudaga kl. 2—6 e.h. og veita þær allar
venjulegar uppiýsingar um kosningarnar.
Togarinn Spurs í Seyðisfjarðarhöfn.
en 12 mílna mörkunum, hann
Dregið eftir tvær vikur —
VERÐMÆTI
ykkur miða í tíma
HAPPDRÆTTI
S JÁLFST ÆÐISFLOKKSINS