Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 16
115. tbl. — Fimmtudagur 23. maí 1963 Loftleiðir hætta flugi til Vestur-Þýzkatands Kaupið miða ■ dag NÚ eru affeins tvær vikur þar/ til dregiff verffur um bílanar fimm í Happdrætti Sjálfstæðis flokksins. Fjölmargir hafa gert skil til skrifstofu flokksins og hinir eru minntir á aff gera skil hið fyrsta og verffur skrifstofan opin frá kl. 10—12 og 13—18 í dag. Ennfremur verffa miffar seldir i bílunum í Austur- 1 stræti. Köldtíð ennægi- legt fóður Þúfum, 22. maí. HÉR er stöðug kuldavðrátta og mjög gróðurlítið. Sauðburður er byrjaður og allar ær á húsi. Snjó laust er hér vestan Djúps. Er þetta með köldustu vorum nú um tíma.. Góðar ástæður eru með fóðurbirgðir víðast hvar svo ástand ætti ekki að vera hættu- legt með skepnur ef þetta tíðar- far eða svipað, stendur ekki langt fram á sumar. Geldfé er ekki við hús lengur. — P.P. MORGUNBLAÐIÐ hefur frétt að Loftleiðir hyggist leggja niður flug til Vestur-Þýzkalands, en fé- lagið hefur á undanförnum árum flogið til Hamborgar. Þar í landi hafa verið hömlur á auglýsingum félagsins um ódýr fargjöld. Loftleiðir hafa í hyggju að beina farþegum, er vilja fljúga með vélum félagsins, ýmist til Kaupmannahafnar, þeim er fara frá norðanverðu Þýzkalandi, en hinum, er sunnan til búa, til Lux- emburg. Félagið hyggst leggja niður starfsemi sína á flugvellinum í Hamborg og segir starfsfólkinu þar upp frá 1. nóv. nk. að telja. Hinsvegar mun farmiðasala fara fram eftir sem áður á þeim stöð- um í Þýzkalandi, sem selt hafa farseðla félagsins. Farþegar frá Þýzkalandi leita nú æ meir til Luxemburgar til að njóta hina ódýru fargjalda Loftleiða þaðan, en far þaðan vestur um haf er mun ódýrara en frá Hamborg. Morgunblaðið bar frétt þessa undir Sigurð Magnússon fulltrúa hjá Loftleiðum seint í gærkvöldi. Kvað hann rétt að félagið hefði þetta í hyggju, en stjórn félags- ins hefði enn ekki tilkynnt end- anlegar ákvarðanir. Kæran um kyrr- setningu Mil- woods til Hæsta- réttar HÆSTRÉTTI bárust í gær mál- skjöl Milwoodmálsins frá yfir- sakadómara, en málflytjandi eig- anda togarans hefur kært þann úrskurð sakadóms, að togaranum skuli haldið í Reykjavík á meðan rannsókn standi yfir eða þar til annað verði ákveðið. Ekki er vitað, hvenær Hæsti- réttur tekur kæruna fyrir, en í tilfellum sem þessum er máls- meðferðinni yfirleitt flýtt. Sæmilegar heybirgðir i AKRANESI, 22. maí. — Hey- birgðir eru sæmilegar í Þverár- hlíð og fóðrun búpenings í góðu lagi, en í vetur hefur verið gef- inn óvenju mikill fóðurbætir. — Oddur. FURÐULJÓS þaff, sem greint var frá í blaffinu í gær, sást víð- ar að en hér úr Reykjavik. Mbl. bárust í gær upplýsingar um, að ljósiff hefffi sézt af Suffurnesjum, l og frá bát, er var að veiffum á Selvogsbanka. Tveir bílstjórar, er voru á leið til Keflavíkur í fyrrinótt, sáu grænt ijós á himni, þegar þeir voru á leið yfir Stapann. Var klukkan þá rúmlega 2 um nótt- ina. Þá segir sjómaður nokkur svo' Alfreð Axel • • • • ■•%JÍÍA%c E-j Matthías Oddur FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi halda fundi í Sandgerði og Grindavík annað kvöld og hefj- ast þeir kl. 8,30. Ræðumenn í SANDGERÐI verffa: Ólafur Thors, Axel Jónsson, NÚ stendur yfir rannsókn á því hvar er að leita upptaka tauga- veikibróðursýkils þess er orsak- aði veikindi fólks í Miðdal í Kjós, sem skýrt var frá í blaðinu í gær. Ólafur P. Jónsson, héraðslækn- ir í Mosfellssveit, sagði í samtali við blaðið í gær að málið væri til rannsóknar hjá borgarlækni, þar sem tveir sjúklingar liggja af frá, að á sama tíma hafi sézt til græns ljóss, með „hala“, frá bát þeim er hann var á. Var bát- urinn þá að veiðum á Selvogs- banka. Skýrði sjómaðurinn ennfrem- ur svo frá, að til svipaðs ljóss hefði sézt á vesturhimni aðfara- nótt 12. marz sl. Sást það ljós frá nokkrum bátum, er voru þá að veiðum fyrir sunnan Reykja- nes. Engin skýring hefur enn feng- izt á þessum fyrirbærum. Eiríkur Karvel Sverrir Oddur Andrésson, Karvel Ög- mundsson, Sverrir Júlíusson og Matthías Á. Mathiesen. Ræffumenn í GRINDAVlK: Matthias Á. Mathiesen, Sverr- ir Júlíusson, Eiríkur Alexanders- son, Alfreff Gíslason, Axel Jóns- son og Ólafur Thors. völdum veikinnar í Heilsuvernd- arstöðinni. Þá er rannsókn á grip um þeim, sem á bænum eru, í höndum yfirdýralæknis til að kanna hvort þeir eru valdir að sýkingunni. Hér er um að ræða mjög til- finnanlegt tjón fyrir bóndann I Miðdal, þar sem hann selur um 275 lítra mjólkur dag hvern frá búi sínu, en sala afurða þaðan hefur verið stöðvuð. Það mun taka nokkra daga að rækta sýkilinn og niðurstöðu málsins ekki að vænta fyrr. Sæmileg síld- veiði f GÆR voru skipi að fá síld um 24 sjómílur NV frá Akranesi á svonefndri For. Vitað var í gær- kvöldi um 6 skip sem höfðu feng ið síld. Þórsnes 4—500 tunnur, Pétur Sigurðsson 7—800, Ólafur Magn- ússon 400, Guðrún Jónsdóttir 250, Guðmundur Þórðarson 5—600 og Hannes Hafstein 700 tunnur. Síldin fer öll í bræðslu VIÐREISN AÐ VERKI Steínufesta og stjórnsemi ÞEGAR núverandi ríkisstjórn og stjórnarflokkar höfðu kyntit sér ástandið á stjórnmálasviðinu til hlítar, eftir viðskilnað vinstri stjórnarinnar, var ákveðið, að ríkisstjórn- , in skyldi beita sér fyrir gagngerr’i stefnubreytingu í efna- t hagsrrálum þjóðarinnar og hin nýja stefna mörkuð í frum- vörpum, sem lögð voru fyrir Alþingi skömmu eftir að nú- verandi rikisstjórn tók við. Hér var um að ræða algera kerf- isbreytingu samhliða víðtækum ráðstöfunum í félagsmál- um, skatta- og tollamálum og viðskiptamálum. • Jafnframt því aff gera nauffsynlegar breytingar til varanlegrar viffreisnar í atvinnulífi landsmanna voru gerffar víðtækar ráðstafanir í félagsmálum og skattimálum til þess að dreifa byrðunum sem rétt- látast á þjóffarheildina og vernda hagsmuni þeirra, sem umfram affra ber að forða frá kjaraskerðingu, en þaff eru bammargar fjölskyldur, aldrað fólk og öryrkjar. • Uppbótakerfið, sem útflutningsframleiðslan hafffi I búiff viff, var afnumið. Almannatryggingar voru tvö- \ faldaffar strax og enn voru bótagreiffslur þeirra % stórlega auknar á siðasta þingi. Almannatrygging- Fleiri sáu furðu- Ijósin í fyrrinóft Sandgerði og Grindavík Taugaveikibróðirinn í IViiðdal: Rannsókn á sjúklingum og gripum stendur yfir ar hafa aldrei veriff auknar jafnt og endurbættar sem á kjörtímabilinu, sem nú er aff ljúka. Tekju- skattur hefir veriff felldur niður á almennum launa- tekjum. Sett ný tollskrá á síffasta þingi og tollar lækkaðir um nærri 100 millj. kr., en áffur voru toll- ar stórlega lækkaðir 1961. Fjárlög afgreidd halla- laus og greiffsluafgangUr hjá ríkissjóði allt kjörtíma- biliff. Verzlunin er orffin frjáls, gjaldeyrisstaffan sí- batnandi út á við. Meff jafnvægi í peningamálum hefir fjármálatraust þjóðarinnar út á við verið end- urvakið. • Berum þessa stefnufestu og stjórnsemi saman við ráð- leysiff í tíð vinstri stjórnar. Stjórnarliðið vissi aldrei að hverju stefna skyldi. í fjárlagafrv. vinstri stjórnar sem lagt var fram í október 1957 var tekið fram í greinargerð, að stjórninni hefði ekki gefizt tóm til að ræða við stuðn- — með yfirlýsingu forsætisráðherrans, að „í ríkisstjóm- ingsflokka sína um fjárlagafrv. né viðhorfið í efnahags- málunum.** Loks komu svokölluð „bjargráð** vorið 1958. En bjargráðunum fylgdi uppgjöfin í desember sama ár, inni væri ekki samstaffa nm nein úrræffi." Neytendasamtökin rannsaka kartöflugæði: Sjö af tíu sýnishornum ekki hœf til manneldis S V O sem kunnugt er lögffu Neytendasamtökin fram kæru sl. haust fyrir Verzlunardómi vegna rangrar gæffa- og verff- flokkunar kartaflna. Tilgang- urinn var sá einn að knýja fram úrbætur og varpa ljósi á alvarlega misbresti á fram- fylgd gildandi reglugerðar. Ó- hætt mun að fullyrða, aff það hafi tekizt að verulegu leyti. Neytendasamtökin munu vissulega ekki láta þar við sitja, heldur fylgjast sem bezt með framkvæmdinni á hverjum tíma. Hafa þau haft vakandi auga með þessum málum í vetur, eftir því sem kostur hefur verið. Síðasta at- hugun þeirra fór fram 4. maí sl. og er nákvæmlega skýrt frá henni í Neytendablaðinu, sem kemur út eftir örfáa daga. Rétt þykir að skýra frá eftir farandi í dagblöðunum: Teknir voru til rannsóknar 10 5 kg. pokar, allir merktir „2. flokkur**. Samkvæmt reglugerðinni náði enginn pokanna þeim flokki. 2 þeirra féllu undir 3. flokk, einn var á mörkum, en 7 pokanna full- nægðu ekki þeim kröfum, sem reglugerffin felur í sér, að gerðar séu til gæða þessara garðávaxta til manneldis. Það skal skýrt tekið fram, að vafalaust eru skiljanlegar og afsakanlegar ástæður til þess, að kartöflurnar voru ekki betri að gæðum — ekki sízt á þessum árstíma. Annaff mál er það, að það á ekki að hafa áhrif á flokkunina sjálfa. (Frá Neytendasamtökunum)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.