Morgunblaðið - 25.06.1963, Síða 12
12
MORCVNBIAÐIÐ
■Þriðjudagur 25. júní 1963
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristmsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að\lstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakió.
SÍS NÝTUR
VIÐREISNARINNAR
C’amband íslenzkra sam-
^ vinnufélaga nýtur sann-
arlega ávaxta viðreisnarstefn
unnar, ekki síður en önnur
fyrirtæki og atvinnugreinar í
landinu. Það sannast greini-
Jega af fjölmargum upplýs-
ingum, sem forystumenn
samtakanna gáfu 61. aðal-
fundi þeirra, sem nýlega er
lokið. Þar var m.a. frá því
skýrt, að sala Sambandsins á
íslenzkum framleiðsluvörum
hafi nú farið yfir 1000 millj.
króna. Er hér um að ræða
söluv^ - ðmæti landbúnaðar-
vara, sjávarafurða og iðnað-
ararvara, sem seldar hafa ver
ið á vegum samtakanna.
Forstjóri SÍS gat þess í upp
hafi máls síns, að þjóðarfram-
leiðsla íslendinga hefði aldrei
orðið eins mikil og á árinu
1962. Er sú staðreynd greini-
legt dæmi um hin heillavæn-
legu á_.rif þeirrar efnahags-
málastefnu, sem Viðreisnar-
stjórnin markaði á sínum
tíma.
Síðar í ræðu sinni gat for-
stjóri SÍS þess, að þegar tek-
in væri til greina umsetning
smærri starfsgreina hefði
heildarumsetning Sambands
íslenzkra samvinnufélaga á
árinu 1962 orðið rúmlega
1600 millj. kr. og hefði auk-
izt um 372,1 millj. kr., eða
29,2% á árinu 1962. Tekju-
afgangur á rekstrarreikningi
SÍS á.:ð 1962 varð rúmlega
7,7 millj. kr., afskriftir 14,2
millj. kr., og afsláttur færður
á reikninga kaupfélaganna
tæpar 2'millj. kr., eða sam-
tals 23,9 millj. kr. á móti 21,5
millj. kr. næsta ár á undan.
★
Það er vissulega enginn
móðuharðindasvipur á þess-
um tölulegu upplýsingum um
afkomu SÍS á sl. ári. Þær
bera þvert á móti öruggt vitni
þess góðæris, sem viðreisnar-
stefnan hefur skapað. SÍS nýt
ur þannig ávaxta viðreisnar-
innar í ríkum mæli. Verzl-
unar og viðskiptafrelsið hef-
ur stórbætt aðstöðu fyrirtæk-
isins og viðskiptamanna sam-
vinnufélaganna.
Því fer þannig svo víðs
fjarri, að Viðreisnarstjórnin
hefði þröngvað kosti félags-
verzlunarinnar. Skýrslur
ráðamanna SÍS bera þess all-
ar vott að hin ábyrga efna-
hagsmálastefna hefur haft
í för eð sér nýja og aukna
möguleika margvíslegra fram
kvæmda á vegum samvinnu-
félaganna um land allt.
Fyrir þetta ættu leiðtogar
SÍS að vera Viðreisnarstjórn-
inni þakklátir. Þeir ættu enn
I fremur að gera sér það ljóst,
I að hin pólitíska misnotkun
Framsóknarflokksins á sam-
vinnufélagsskapnum er ó-
hæfa, sem allir sanngjarnir
menn, hvar í flokki sem þeir
standa hljóta að gagnrýna
harðlega. Það er staðreynd,
sem ekki verður sniðgengin
að peningafurstar SÍS hafa á
undanförnum árum ekki hik-
að við að taka höndum sam-
an við kommúnista í þeim til-
gangi að torvelda fram-
kvæmd heilbrigðrar efnahags
málastefnu og stuðla að upp-
lausn og erfiðleikum í þjóð-
félaginu. Sem betur fer hefur
niðurrifsstefna Framsóknar-
manna og kommúnista ekki
borið tilætlaðan árangur.
Þess vegna býr þjóðin nú við
almennari velmegun en
nokkru sinni fyrr, og þess
vegna blómstrar jafnvel SÍS
af ávöxtum viðreisnarinnar.
JÓNSMESSAN
Jónsmessan er liðin og hinn
norræni dagur tekur að
nýju að styttast. Sl. vor var
kalt og umhleypingasamt eft-
ir mildan og hagstæðan vet-
ur. En framundan eru fagrir
og sólríkir hásumardagar. —
Sprettan hefur gengið seint
víðast hvar á landinu, en von-
andi verður heyfengur þó
sæmilegur ef skaplega tekst
til um verkun heyjanna.
Sláttur mun hefjast í síðara
lagi en aukin tækni og véla-
notkun hefur stytt heyskap-
artímann að miklum mun.
Síðustu daga hefur sprottið
vel víðs vegar um land, þann-
ig að naumast er ástæða til
svartsýni.
Hið íslenzka sumar er stutt
og annasamt til lands og sjáv-
ar. Hinar björtu nætur norð-
ursins, blár himinn og tært
loft, veita íslenzku fólki tæki-
færi til þess að njóta margra
unaðsstunda úti í náttúrunni,
upp til fjalla og heiða og út
við firði og nes. Jónsmessan
er ein dýrðlegustu tímamót
ársins. í kjölfar hennar koma
að vísu styttri dagar en líka
gróandi, fjölbreytileg fegurð
og uppskera. Hún er þess
vegna fagnaðarhátíð bónd-
ans, sem sáir að vori og á allt
sitt undir sól og regni.
LISTASAFN
EINARS JÓNS -
SONAR 40 ÁRA
|7jörutíu ár voru í gær lið-
* in frá því að Listasafn
Bresjnev hœkkar í tign
fundur miðstjórnar sovézka
kommúnistaflokksins
FRA ÞVÍ var skýrt í Moskvu
á föstudag, að forseti Sovét-
ríkjanna, Leonid Bresjnev,
hefði verið skipaður ritari
miðstjórnar kommúnista-
flokksins. Telja stjórnmála-
fréttaritarar, að Bresnjev hafi
nú þokast nær því að verða
eftirmaður Krúsjeffs, forsætis
ráðherra.
Þá hefur Bresjnev verið
kjörinn í framkvæmdanefnd
flokksins, sem er ein öflug-
asta nefnd í Sovétríkjunum.
Leiðtogi flokksins í Ukrainu,
Nikolaj Podgornij, var einnig
kjörinn í þá nefnd.
Þá var Bresnjev einnig kjör
inn í forsætisnefnd flokksins.
Þessa dagana stendur yfir
fundur miðstjórnar kommún-
istaflokksins. Hefur fjöldi
mála verið rædd'ur, m.a. hef-
ur Krúsjeff haldið 4 klukku-
stunda ræðu, þar sem hann
vék að helztu vandamálum,
innan lands og utan.
Miðstjórnin samþykkti ein-
róma á föstudag, að hefja við-
ræður við Kínverja um deilu-
mál þau, sem verið hafa uppi
milli ráðamanna í Moskvu og
Peking. Eiga viðræður að hefj
nast 5. júlí. í sovézku nefnd-
inni munu eiga sæti Mikhail
Suslov, Boris Ponomarev og
Jurij Andropov, en þeir eru
allir ritarar kommúnistaflokks
ins. Allir tóku þeir til máls
á fundinum og ræddu um
grundvallaratriði skoðanamun
ar þess, sem á sér' stað.
Því var jafnframt lýst yfir
á fundinum, að sovézkir ráða
menn hefðu ekki getað tekið
Bresjnev
aðra stefnu í þessu máli, en
gert hefði verið. Stafaði það
af því, að kínverskir ráða-
menn hefðu birt bréf þau, er
halda hefði átt leyndum.
í
Tanner lætur af for-
mennsku finnskra
sósíaldemókrata
Sovétríkjanna. Þessum ásökun-
um hefur flestum verið beint
gegn Tanner.
• Ráðherrafundi
EBE frestað
Helsingfors, 14. júní (NTB)
LANDSFUNDUR Sósíal-
demókrataflokks Finnlands
hófst í dag. Áður en fundur-
inn hófst, hafði formaður
flokksins, Vaniö Tanner,
skýrt frá því, að hann gæfi
ekki kost á sér við formanns-
kjör nú.
Talið er að eftirmaður Tann-
ers verði Rafáel Paasio, ritstjóri
blaðs flokksins í Ábo, en hann
er einn af fáum meðlimum
stjórnar flokksins, sem ekki hafa
verið nafngreindir í árásum sem
Sovétríkin hafa beint gegn stjórn
Einars Jónssonar, mynd-
höggvara var opnað íslenzk-
um almenningi til sýnis.
Stofnun þess og opnun var
merkur viðbúrður í íslenzku
menningarlífi. Einar Jónsson
var brautryðjandi á sviði ís-
lenzkrar myndhöggvaralist-
ar. Hann var stórbrotinn
starfsmaður og mikill lista-
maður. íslenzka þjóðin hefur
í 40 ár átt kost á því að heim-
sækja safn þessa hugmynda-
ríka listamanns, sem brauzt
til fræw - ur og frama heiman
úr 'slenzkri sveit.
íslendinga greinir eins og
aðra á um listir og listastefn-
ur. List og listaverk Einars
Jónssonar hafa einnig verið
umdeild. En hann var braut-
ryðjandinn á sínu sviði.
Hann veitti nýjum og fersk-
um menningarstraumum
heim til þjóðar sinnar á
morgni fullveldis hennar.
Þjóð hans þakkar honum
verk hans og mun geyma
minningu hans langt fram um
aldirnar.
inni.
í árásum Sovétríkjanna á hend-
ur stjórnar flokksins hefur hún
fyrst og fremst'verið sökuð um
að láta hjá líða að vinna að
bættri sambúð Finnlands og
NÚ hefur verið frestað utan-,
ríkisráðherrafundi EBE, sem
halda átti í Briissel 1. og 2.
júlí. Gert var ráð fyrir, að á
fundi þessum yrði rætt sam-
band bandalagsríkjanna við
Danmörku og Noreg.
ísland er martröi
skipstjórans
EFTIRFARANDI frétt birtist
á forsíðu brezka vikublaðsins
Fishing News hinn 14. júní sl.:
„Togaraskipstjórinn D. List
er, sem er 34 ára að aldri og
býr að Laceby Road, Grimsby,
lifir í stöðugum ótta um, að
hann kúnni að þurfa að taka
land á íslandi.
Fyrir tuttugu mánuðum var.
hann dæmdur fjarverandi í
fimm mánaða fangelsi af ís-
lenzkum dómstóli. Hæstirétt-
ur (Appeal Court) í Reykja-
vík kvað upp dóminn vegna
ólöglegs umbúnaðar veiðar-
færa innan 12 mílna fiskveiði-
takmarka íslands.
Áður hafði Lister, sem var
þá skipstjóri á Grimsby Town,
siglt til hafnar af frjálsum
vilja til að koma fyrir rétt.
Hann hafði ekki látið sér segj-
ast, þrátt fyrir skothríð yfir
skip sitt.
Nú siglir hann óttafullur
vegna áhættu um slæmt veð-
ur, veikindi eða biiun á sjó.
Sérhvert sinn sem Grimsby
togarinn Everton siglir frá
heirnahöfn til íslandsmiða
verður hann „eftirlýstur mað-
ur“.
Ótti hans er, að hann neyð-
ist til að leita vars í óveðr-
um, fara til hafnar með slas-
aðan eða verra dreginn til ís-
lenzkrar hafnar vegna sélar-
bilunar.
Hann sagði sl. sunnu£ag:
„Alltaf þegar ég fer tfí ís-
lands er ég hræddur. Veiðar
þar við strendur eru stór hluti
af brauðstriti okkar og ég hef
sífellt í huga, að eitthvað geti
komið fyrir svo ég þurfi að
leita til íslands vegna aðstoð-
ar og verða handtekinn.
Það kæmi þungt niður á f jöl
skyldu minni ef ég þyrfti að
sitja 5 mánúði í fangelsi. Til
allrar hamingju stendur öll
áhöfnin að baki mér og áskilja
mér að taka ákvörðun um
hvort við leitum til hafnar eða
ekki.“
Ekið á lamb
Þann 18. þ.m. var ekið á lamb
í Hvalfirði og það drepið. Skildi
ökumaðurinn það eftir á vegin-
um án þess að gerá aðvart, og ók
bílstjóri frá Akranesi fram á
iambið. Grunur féli á leigubíl,
sem ekið hafði verið þarna um
skömmu áður, en leigubílstjórinn
heldur því ákveðið fram, að hann
hafi komið að lambinu dauðu.
Þeir, sem kynnu að geta gefið
einhverjar upplýsingar um þetta
mál, eru vinsamlegast beðnir að
gera umferðardeild rannsóknar-
lögreglunnar í Reykjavík þegar
aðvart.