Morgunblaðið - 25.06.1963, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 25. júní 1963
Heimsmet:
100
9,1
I
y a
sek.
St. Louis, 22. júní — NTB.
BANDARÍSKI blökkustú-
dentinn Bob Hayes bætti í
gær gildandi heimsmet í 100
yarda hlaupi. Hljóp hann vega
lengdina á 9.1 sek., sem er 1/10
úr sek. beira en gildandi met.
Svarar það til tímans 9.9 sek.
á 100 m.
Hayes er nemendi í háskól-
anum í Florida. Hann hljóp
fyrst á 9.1 sek. i milliriðlum.
Sýndu þrjár klukkur þann
tíma, en ein 9.2 sek. Meðvind-
ur var þá aðeins lm/sek., og
ætti því ekkert að verða því(
til fyrirstöðu, að metið verði
viðurkennt.
Hayes náði sama tíma i úr-
slitum, en þá var aðeins of
mikill meðvindur.
skoraði. —
Ljósm. Sv. Þorm.
Kári setti allt á annan end-
an hjá Val og tryggði 4:4
Góður sóknarleikur Akureyringa
HÚN var skemmtileg og oft æsi-
spennandi barátta Vals og Akur-
eyringa í 1. deild í Laugardal á
sunnudag. Átta mörk — 4 hjá
hvoru liði — tala sínu máli þar
um og við bættust ótalmörg tæki
færi sem mistókst að nýta á síð-
Valbjörn 6373 stig
VALBJÖRN Þorláksson varð fs-
landsmeistari í tugþraut 1963.
Þrautinni lauk á laugardaginn en
keppendur voru aðeins 2. Val-
björn hlaut 6373 stig, sem er all-
langt frá hans bezta árangri enda
gekk hann ekki heill til skógar.
Páll Eiríksson FH hlaut 4967 stig.
Valbjörn var langt frá sínu
bezta í ýmsum greinum, einkum
seinni daginn. Hins vegar virðist
hann í góðri þjálfun og líklegur
til mun meira afreks í þrautinni.
Jafnvel ættu 7000 stig ekki að
vera honum erfið.
MHWNnMMMMHI
Afrek Valbjarnar voru 100 m
hlaup 10.9, langst. 6.48, kúluvarp
12,63, hást. 1,75 og 53,0 í 400
m hl. — 15,4 í 110 gr.hl., 34.77
í kringluk. 4.30 í stangarstökki
sem er bezti árangur hans í sum-
ar, 47.26 í spjótk. og hann hætti
í 1500 m hlaupi.
Afrek Páls í sömu röð 11,8,
6,30, 10.75, 1.60, 54.5, 19.6, 28.25,
'3.60, 51.98 og 4.26.0.
Einnig var keppt í 10 km
hlaupi. ísl.meist. varð Agnar
Levý KR á 33.40.0. Aðrir luku
ekki keppni.
ustu stundu. Á öðrum köflum
leiksins var leikurinn ekki upp
á marga fiska, sama þófið og
eyðileggur svo marga leiki ísl.
liða. En þessum leiðindablæ er
er fólk fljótt að gleyma þegar
aðrir kaflar koma góðir og
skemmtilegir og svo var í þess-
um leik.
Á Forysta Vals
Akureyrarliðið er hálfgerð
brotalöm eins og er. Tveir menn
úr hópi hinna beztu eru meiddir
og í staðinn komu algerir nýlið-
ar í keppni.
Valur tók líka forystu eftir 10
mín. eftir misheppnað úthlaup
Einars markvarðar og algert fum
í vörninni. Hans Guðmundsson
skoraði með öruggu skoti þótt
margir Akureyringar stæðu til
varnar.
Og svo tóku Akureyringar að
missa af tækifærum. Steingrím-
ur miðherji, Skúli Ágústsson og
Guðni framvörður byggðu oft
skemmtilega upp og komust
langt, en útherjarnir voru svo
gersamlega heillum horfnir að
allt það jákvæða eyðilagðist.
En þeir Steingrímur, Skúli og
Guðni héldu áfram að velgja
Valsmönnum og oft var Haukur
Jakobsson nú innherji með í lag-
legu spili. Hættan varð æ meiri
við Valsmarkið og á 27. mín. skor
ar Steingrímur eftir góða fyrir-
gjöf frá Sveini Kristþórssyni á
h. kanti, sem þarna tókst í fyrsta
skipti vel upp, þrátt fyrir ærin
tækifæri.
Framlhald á bls. 23
20 mörk í
3 leikjum
UM helgina fóru fram þrir
leikir í 1. deild og alls voru
skoruð í þeim 20 mörk.
Eftir leikina 3 um helgina er
staðan þessi:
L U
5 3
Akranes
Fram
Valur
KR
Akureyri
Keflavík
J T M St.
0 2 12—8 6
5— 7 5
9—6 5
6— 7 4
9—10 3
6—9 2
Akranes tók forystu
FRAMARAR sóttu ekki gull í
greipar Skagamanna er þeir heim
sóttu þá í 1. deildarleik á sunnu-
dag. Skagamenn sem tefldu nú
fram nokkrum af sínum gömlu
dáffu hetjum eins Sveini Teits-
syni, Halldóri Sigurbjömssyni
(Donna) og Kristni Gunnlaugs-
syni til viffbótar þeim sem enn
leika., unnu leikinn verffskuldað
skoruðu 5 mörk gegn 2.
Baldur Scheving náði forystu
fyrir Fram eftir 6 mín. eftif
Danir miklu betri en talið var
Landskeppni i Laugardal á mánudag
Á MÁNUDAGS og þriðjudags-
kvöld í næstu viku ganga ís-
land og Danmörk til lands-
keppni í frjálsum íþróttum og
fer hún fram á Laugardals-
vellinum. Þetta er í 7. sinn sem
þjóðirnar heyja landskeppni
sín á milli og hefur ísland
alltaf borið sigur úr býtum.
Nú horfir hins vegar svo að
Danir muni sigra með allmikl
um yfirburðum, kannski 20
—25 stigum.
Danska landsliðið kemur
hingað á sunnudag. Verða í
keppendahópnum 35 — 40
manns en auk þess koma
a.m.k. 10 blaða- og sjónvarps-
menn enda mun keppnin
verða filmuð til sýninga í
danska sjónvarpinu. Danska
liðið býr í Sjómannaskólanum
(heimavist) og fer utan á mið-
vikudagsmorgun.
ísl. liðið hefur verið valið
og skipa það 25 menn. Þar af
eru 14 nýliðar í landsliði og
sagði stjórn FRÍ í dag að vænt
anlega myndu þeir mynda
kjarna þess liðs sem mætir
Dönum í Danmörku 1965 en
þá er ákveðið endurgjald af
Dana hálfu fyrir framkvæmd
þessarar keppni hér.
ísl. liðið fer á laugardag
austur í skíðaskála og dvelur
þar til hádegis á mánudag.
Liðsmenn halda fund í kvöld
(þriðjudag) í kaffi Höll kl.
8.30.
Sigurvonir fslendinga í
keppninni nú eru engar ef
miðað er við beztu árangra
landsliðanna beggja í ár. Að-
eins í hástökki, langstökki og
stangarstökki hafa ísl. frjáls-
íþróttamenn af betri árangri
að státa í ár en Danir — en
í öllum þessum þrem greinum
lítur statistikin þannig út að
við ættum 1. og 4. mann, Dan-
ir 2. og 3. sem gæfi í stigum
aðeins 6 móti 5 fyrir fsland.
f hinum greinunum 17 eiga
Danir betri afrek I ár og víða,
einkum í hlaupunum upp að
5000 m., er útlit fyrir tvö-
faldan sigur þeirra. Munar þó
víða mjóu og kann svo að reyn
ast að heimavöllur verði okk-
ur hliðhollur og ísl. veðurlag
eigi illa við Dani. Skal því
ekki örvænt um jafnari keppni
en útlit er fyrir á pappírun-
um.
Næstu daga birtum við
landsliðin bæði ásamt bezta
árangri hves manns náðum 1
ár og byrjum í dag á stökk-
unum, þar sem von okkar er
mest.
Hástökk
Jón Þ. Ólafsson 2.02
Sig. Ingólfsson 1.75
Sv. Breum 2.00
Ole Papsöe 1.90
Langstökk
Úlfar Tteitsson 7.09
Einar Frímannsson 6.83
Jens Pedersen 7.03
Ulrich Friborg 6.91
Stangarstökk
Valbjörn Þorláksson 4.30
Páll Eiríksson 3.81
Jörgen Jensen 3.90
Rich. Larsen 3.91
Þrístökk
Bjarni Einarsson 13.98
Jón Þ. Ólafsson 13.92
Hans Bötker 14.97
Jens Petersen 13.91
snöggt upphlaup. Það tók Skaga-
menn 24 mín. að jafna en það
gerði Ríkharður upp úr horn-
spyrnu og baráttu í vítateig
Fram. Skot hans var gott. Fyrir
hlé náðu Akurnesingar forystu
eftir mark Skúla Hákonarsonar,
sem nýtti vel góða sendingu frá
Donna.
Er stundarfjórðungur var lið-
inn af síðari hálfleik skoraði Rík*
harður 3. mark Akaness eftir
leiftursnöggan einleik upp vall-
armiðju. Stundarfjórðungi siðar
bætti Tómas Runólfsson útherji
4. markinu við með fallegu skoti
sem Geir réð ekki við.
Eftir skemmtilegan samleik
Baldurs Scheving og Björns
Helgasonar fengu Framarar
minnkað forskot Akraness. Björn
i skoraði með skalla.
Síðasta orðið höfðu Akurnes
ingar og skoraði Skúli með glæsi
legu óverjandi skoti.
Sveinn Teitsson kom mjög á
óvart í leiknum með góðum leik
og sagður æfa af miklu kappi.
Beðið um ísl.
dómuru til
Svíþjóðuir
KNATTSPYRNUSAMBAND-
INU hefur borizt beiffnir frá
sænska knattsp.samb. um aff
tilnefna ísl. dómara á A-lands
leik Svíþjóðar og Finnlands,
sem fram fer í Stokkhólmi 14.
ágúst n.k.
Þrír ísl. dómarar eru nú viff
urkenndir sem alþjóðadómar-
ar Haukur Óskarsson sem
dæmdi leik Noregs og Skot-
lands í Bergen á dögunum,
Hannes Þ. Sigurðsson og Guð-
björn Jónsson.