Morgunblaðið - 09.07.1963, Blaðsíða 2
2
MORGUJSBLAÐ1D
r ÞriSjudagur 9. júlí 1963
Kynntu sér síldarnæt-
ur á íslandsmiðum
A SUNNUDAGINN héldu héðan
af landi bortt tveir ítalir, þeir
Renato Badinotti, sem er eigandi
Badinotti fiskinetaverksmiðj anna
á Ítalíu og í Períu, og sölustjóri
hans, J. H, Gamet, en hér dvöld-
ust þeir félagar á vegum Krist-
jáns Gíslasonar, stórkaupmanns,
sem hefur umboð fyrir fram-
leiðslu Badinottis.
Tilgangur íslandsferðar ítal-
anna var að sjá hvernig síldar-
næturnar, sem þeir hafa selt
hingað, eru notaðar af íslenzkum
sjómönnum á vertíðinni. Fóru
þeir í veiðiferð á Dofra frá Siglu
firði ásamt Þorsteini Baldurs-
syni, fulltrúa hjá Kristjáni Gísla-
syni. Luku þeir upp lofsorði um
móttökurnar er þeir fengu hjá
íslenzku sjómönnunum og jafn-
framt létu þeir í ljósi hrifningu
sína yfir þeim góða aðbúnaði,
fullkomnum tækjaútbúnaði og
traustu skipum, sem íslenzkir
sjómenn eiga að fagna saman-
borið við starfsbræður þeirra í
mörgum öðrum löndum, sem þeir
félagar hafa heimsótt.
Verksmiðjur Badinottis fram-
leiða net af mörgum gerðum, en
hér á landi eru nú notkun á síld-
arflotanum um 20 síldarnætur,
svokallaðar „Super-Knotless“,
sem eru hnútalausar og þar af
leiðandi miklu auðveldri í not-
kun en nætur af eldri gerðum,
þar sem þær ganga miklu fljótar
í sjó niður og renna auðveldar
um kraftblakkirnar, sem nú eru
í notkun á síldarflotanum. Þá era
möskvarnir í síldarnótum Badin-
ottis þannig úr garði gerðir, að
þeir þola jafnmikið lóðrétt og
lárétt álag og slitna miklu síður
en hnútanetin.
Á fiskveiðaráðstefnunni, sem
fram fór í London í maí sl- var
meðal annars rætt um margs
konar vandamál, sem sjómenn
ættu við að etja með tilliti til
veiðarfæranna. Var þar sérstak-
lega rætt um gildi hinna hnúta-
lausu neta Badinottis og hefur
hann í hyggju að kynnast af
eigin raun hverjar kröfur eru
gerðar til netanna við hin mis-
munandi skilyrði.
Eins og áður segir eru verk-
smiðjur Badinottis staðsettar
bæði á ftalíu Og í Perú. í Perú
er framleiðslan einkum fólgin í
sardínunetum, með 6 millimetra
möskvastærð, en á Ítalíu er fram
leidd net, sem fara á markað í
Suður-Afríku, Noregi og hér á
íslandi. Sögðust þeir Badinotti
og Gamet hafa sannfærzt um það
í þessari ferð, að hnútalausu net-
in væru framtíðin og hnútalaus-
ar síldarnætur bezt fallnar til
notkunar með kraftblökkinni.
Þrjú skip sneð kralt-
blökk ú íslandsmið
TÓRSHAVN, 8. júní. — Færey-
ingar gera nú út þrjú skip til
síldveiða með hringnót og kraft-
blökk. Tvö þeirra eru farin á ís-
landsmið, eitt er enn við veiðar
í Norðursjó, en fer bráðlega til
íslands.
Eitthvað af aflanum verður
saltað um borð, en síðar sigla
skipin með síld til frystingar í
Færeyjum — og í ráði er að
selja einnig ísaða síld til Dan-
merkur-----og munu skipin þá
sigla með farminn beint af mið-
unum.
Færeyingar hafa selt fyrirfram
100 þúsund tunnur af saltsíld.
Svíar kaupa 50 þúsund, Rússar
25 þúsund og Danir 25 þúsund.
Búizt er við, að 20—30 þúsund
tunnur verði einnig seldar til
A-Þýzkalands.
Megnið af þessum síldarafla
verður veitt við Færeyjar. í sum
ar verða 60—70 gamlir kútterar
gerðir út héðan með reknet til
Sumarferð Sjálf-
stæðisfélaganna í
Hafnarfirði
SÚ nýbreytni verður nú tekin
upp hjá fulltrúaráði Sjálfstæðis-
félaganna í Hafnarfirði, að efna
til sumarferða.
Fyrsta förin verður farin laug-
ardaginn 13. júlí kl. 3 frá Sjálf-
stæðishúsinu.
Ekið verður til Krýsuvíkur og
þaðan til Grindavíkur. Frá
Grindavík í Hafnir um Oddsveg
og stanzað við Reykjanesvita.
Frá Höfnum um Njarðvíkur,
Keflavík, Sandgerði og Garð til
Hafnarfjarðar.
Leiðsögumaður verður með í
förinni.
Verð farseðla verður kr. 110.00.
Kvöldmatur innifalinn í verðinu.
Þátttaka tilkynnist á miðviku-
dag og fimmtudag í Sjálfstæðis-
húsinu, sími 50228 milli kl. 5—7
eða hjá Sigurði Kristinssyni, sími
50786.
veiða kring um eyjarnar.
Togaflinn við Grænland í vor
var meiri en hann hefur verið
Framh. á bls. 23
Sól og sumar í Reykjavík
í GÆR var mesti góðviðris-
dagur, sem komið hefur hér í
Reykjavík á yfirstandandi
sumri. Veðrið var svipað um
land alit, norðan gola eða
kaldi og léttskýjað fyrir sunn
an og vestan og víðast hvar á
Norðurlandi. Hitinn var mest-
ur á Hellu á Rangárvöllum,
komst upp í 22 stig um miðjan
dag og um sama leyti mældist
18 stiga hiti hér í Reykjavík.
Á hiýjum sólskinsdegi gengu
borgarbúar létíkiæddir um
strætin að venju og hver, sem
frekast gat brá sér í sólbað því
að flestum er það mikið kapps
mál að safna brúnku á andlitið
enda veitir ekki af að notfæra
sér út í yztu æsar þann stutta
tíma, sem til þcss gefst. Marg
ir eiga því miður ekki því
láni að fagna að geta spókað
sig í sólskininu um miðjan dag
inn, þegar hitinn er mestur,
og hér á ritstjórn Mbl. eru það
ljósmyndararnir, sem njóta
þeirra forréttinda en aðrir
verða að láta sér nægja að líta
annað slagið út um gluggann
og reyna að leyna öfund sinni
í garð þeirra, sem hlaupa um
léttir á brún og hýrir á brá,
liggja í sólbaði i kaffitíma><\m
eins og stúlkur tvær gerðu á
Laugardalsvellinum í gær, eða
busla í flæðarmálinu í Naut-
hólsvíkinni. Við óskum Reyk-
víkingum til hamingju með
sólskinið og veðurfræðingarn-
ir lofa okkur björtu veðri í
dag með norðan kalda.
Skátamót í Botnsdal
Sá varla vin
manni við
MÓTIÐ að Þjórsártúni um
helgina fór rnjög vel fram.
Framkvæmd íþróttamótsins
gekk vel og skemmtunin um
kvöldið var tii fyrirmyndar.
hvasst var. Mótinu var slitið á
sunnudagskvöld. Mótstjóri var
Akranesi. Undirbúningur hvíldi
Birgir Þórðarson skátaforingi af
allur á herðum Akranesskáta.
Heitt er í íslands djúpu dölum.
Mótstjórinn fór á föstudagskvöld
ið í 15 mín. sólbað en sólbrann
með þeim fádæmum að hann
varð að leita læknis. Síðan fór
hann á sinn stað í Botnsdal og
stjórnaði mótinu til enda.
— Oddur
Akranesi 8. júlí
SKÁTAMÓTH) í Botnsdal stóð
í fjóra daga. Varðeldar loguðu
á hverju kvöldi og þá var sung-
ið og dansað. Fjölmennast var
á laugardaginn. Þá komu ljós-
álfar og ylfingar og foreldrar
margra skátanna. Fyrir hádeg-
ið á sunnudaginn messaði séra
Guðmundur Þorsteinsson frá
Hvanneyri. Útimessa var í jaðri
vallarins í skjóli fjallsins því
Akranesi. 8. júlí: —
Danska skipið Ludvik P. W. kom
hér í dag með rúmlega 100 stdr.
timbur til Trésmiðju Guðmundar
Magnússonar. — Oddur,
á nokkrum
Þjórsárbrú
Löggæzlumaður úr Reykjavik,
sem var eystra við eftirlits-
störf, hringdi í gær til Mbl.
og sagði þessi tíðindi. Hann
sagði að varia hefði sézt vín
á nokkrum manni um kvöld-
ið, utan starfsmannahópS
nokkurs úr Reykjavík, sem
hefði verið nokkuð við skál.
Lítið hafði verið af ungling-
um úr Reykjavík, en meiri-
hluti mótsgesta hefði veriS
unglingar og ungt fólk úr Ár-
nes- og Rangárvallasýslum,
Ekki hafi löggæzlumennirnir
séð leigubíla úr Reykjavík og
þótt það góðs viti, eins og síð-
ar kom í ljós.
Þjórsártúnsmótin þóttn
nokkuð söguleg og sukksöm
hér áður. Nú virðisl þetta vera
að breytast. Unglingarnir hafi
skemmt sér við iþróttir um
daginn og dans um kvöldið og
hafi mótið og dansinn verið
með slíkum menningarbrag að
orð sé á gerandi.