Morgunblaðið - 09.07.1963, Blaðsíða 8
toORCVISBLAÐIÐ
í> iðjudagnr 9. júlí 1963
Þorvaróur Þorvarð
arson, verkstjóri
ÞORVARÐUR lézt að heim-'
ili sínu í Hafnarfirði þ. 1. þ.m.
eftir langa og mjög erfiða sjúk-
dómslegu.
Hann var fæddur þ. 31. októ-
ber 1893 að Jófríðarstöðum í
Hafnarfirði. Foreldrar hans voru
Þorvarður Ólafsson bóndi þar
og Elín Jónsdóttir frá Setbergi
við Hafnarfjörð. Systkinin voru
10, þar af komust 8 til fullorð-
insára og má geta sér þess nærri
að þröngt hefur verið í búi og
erfið lífsafkoma þar sem heim-
ilisfaðirinn var líka löngum
heilsubilaður; en konan var táp-
mikil og mikill dungnaðarforkur.
Af systkinunum eru nú einungis
tvö þau yngstu á lífi.
Þorvarður hafði snemma mik-
inn hug á búskap of eftir lát
föður síns 1915, réðust þau Hall-
björg systir hans í það að leigja
heimajörðina í Krísuvík og hófu
þar búskap. Þau voru mjög sam-
rýmd systkinin, Þorvarður frek-
ar alvörugefinn, en Hallbjörg kát
og glaðleg á hverju sem gekk og
kom henni það vel í lífsbarátt-
unni. Athafnaþráin og vinnugleð
in var þeim báðum í blóð borin.
í Krísuvík bjuggu þau í rúm-
2 ár, 1916-1918. Vorið 1919 hófu
þau búskap að Hvassahrauni, en
þá um haustið giftist móðir þeirra
síðari manni sínum og flutti til
Reykjavíkur. Keyptu systkinin
þá jörðina af dánarbúinu og
bjuggu þau þar eitt ár. Þetta
voru harðindaár og erfið til bú-
skapar, seldu þau því jörðina
enda kvæntist Þorvarður um það
leyti.
Sumarið 1917 er ég var nýsezt-
ur að hér í Hafnarfirði, slasaðist
maður, er var á vegum þeirra
systkinanna, við fugla og eggja-
töku í Krísuvíkurbjargi. Var
ég sóttur til hans og varð það
upphafið að vináttu minni við
þau systkinin, sem hélzt óslitið
til dánardægurs þeirra og sem
ég er mjög þakklátur fyrir.
Árið 1921 réðist Þorvarður
sem verkstjóri við fiskverkun
hjá Böðvarsbræðrum í Hafnar-
firði. Vann hann á sömu stöð-
inni í 30 ár, þótt hún skipti um
leigjendur eða eigendur. Fyrst
hjá Böðvarsbræðrum, síðan hjá
Þórarni heitnum Böðvarssyni og
síðast Beinteini Bjarnasyni út-
gerðarmanni. Síðustu 10 árin var
hann verkstjóri hjá Jupiter h.f.
á Kirkjusandi í Reykjavík. Hjá
öllum þessum atvinnurekendum
ávann Þorvarður sér mikið álit
sem verkstjóri. Hann var með
afbrigðum samvizkusamur í
starfi, húsbóndahollur, verklag-
inn og vinsæll meðal verka-
manna, svo afköst þeirra nýttust
betur en hjá mörgum öðrum.
Sérstaklega er mér kunnugt um
að Tryggvi Ófeigsson hafði mikið
dálæti á honum og kvað fágætt
að hafa slíkan mann í þjónustu
sinni sem Þorvarður var. „Hann
var alltaf á sínum stað, var
aldrei týndur á vinnustað“, sagði
hann við mig er við áttum tal
saman fyrir nokkrum dögum.
Heilsu Þorvarðar hrakaði mjög
síðari árin, en ekki vildi hann
gefast upp fyrr en í fulla hnef-
ana. Síðasta árið var hann þó
að mestu rúmliggjandi.
Þorvarður var mjög áhuga-
samur um bæjarmál og lands-
máí. Það var Sjálfstæðisflokkn-
um í Hafnarfirði mikill styrkur
að hafa innan sinna vébanda
jafn mikinn mannkostmann og
hann var, mann sem var í nán-
um tengslum við verkamenn og
með afbrigðum vinsæll þeirra á
meðal. Hann var ein aðaldrif-
fjöðrin í málfundafélaginu Þór,
sem er félag verkamanna innan
Sjálfstæðisflokksins i Hafnar-
firði, frá því fyrsta og þar til
heilsunni fór að hraka. Það var
gaman að vinna með honum í
koitúngum og þó árangurinn af
baráttunni væri oft ekki eins og
vonir stóðu til, sérstaklega þegar
um bæjarstjórnarkosningar var
að ræða, þá var síður en svo að
Þorvarður léti hugfallast; það
stælti hann bara í því að duga
betur næst. Fyrir þetta þökkum
við flokksbræður hans innilega.
Allt hans starf var unnið af
einskærum áhuga og óeigingirni,
byggt á þeirri sannfæringu
hans, að stefna Sjálfstæðisflokks-
ins væri sú, sem þjóðhollust væri
og líklegust til að bæta hag al-
mennings og varðveita sjálfstæði
þjóðarinnar.
Þorvarður kvæntist 13. nóv.
1920 ágætri konu, Geirþrúði
Þórðardóttur enda var hjóna-
bandið hið farsælasta. Þau eign-
uðust 6 góð og mannvænleg börn
Elín gift Jóni Elíassyni rafvirkja
Þóra gift Gunnari Jósteinssyni
verkamanni; Kristín gift Hösk-
uldi Ólafssyni bankastjóra, Þor-
varður eftirlitsmaður Stjörnu-
bíós, kvæntur Erlu Hjaltadóttur
og Þórður verzlunarm., kvæntur
Sjöfn Bessadóttur. Auk þessa
ólu þau upp dótturson sinn frá
fyrsta ári hans. Hann er nú ný-
fermdur. Heimilið var Þorvarði
mikils virði og í hinni erfiðu
sjúkdómslegu hans, var það hon-
um fróun og eina ánægjan að
hafa konu sína og börn sem
næst sér. Stóð ekki á þeim að
láta í té fórnfúst og kærleiks-
ríkt starf til þess að
honum mætti líða sem bezt.
Þótt við vinir Þorvarðar heit-
ins séum þakklátir fyrir að löngu
sjúkdómsstríði er lokið, þá sökn-
um við góðs drengs og falslauss
vinar, sem ætíð vann verk sín
af stakri samvizkusemi og skyldu
rækni og sem var það fyrir mestu
að starf hans og erfiði bæri sem
mestan árangur öðrum til heilla.
Bjarni Snæbjörnsson
Kaupmenn — Kaupfélög
Höfum nú aftur til afgreiðslu okkar góðkunn
svefnpoka og ullarkembuteppi. — Hafið samban
við okkur, sem fyrst. — Birðir takmarkaðar.
Bláfeldur hf.
Síðumúla 21. — Sími 100-73.
Síldarsalfendur
Til leigu söltunaraðstaða á Austfjörðum. Hagkvæmt
fyrir þá sem eiga færanleg söltunaráhöld. Upplýs-
ingar í síma 16451 næstu daga.
FRAMTIÐARSTARF
Viljum ráða röska stúlku til starfa í raf-
tækjaverzlun frá 1. ágúst n.k. að telja. —
Nánari upplýsingar gefur Starfsmanna-
hald S.Í.S., Sambandshúsinu.
STAR F S MAN NAHALD
Tíminn flýgur-Því ekki Þú?
Ftúgvélor okkor geta tent 6
ijllum. flugvöllum — flutt yður
ilta leið — fljúgandi
FLUOSÝN
I
i
Fntabreytingar
Breytum tvíhnepptum jökkum í einhneppta. —
Þrengjum buxur.
Klæðaverzlun BRAGA BRYNJÓLFSSONAR
Laugavegi 46. — Sími 16929.
Ungur piltur
óskast strax til afgreiðslu og lagerstarfa í brenn-
arabúð vorri í Tryggvagötu.
Ólíuverzlun íslands hf.
Hafnarstræti 5.
Sendiferðabifreið
Chevrolet sendiferðabifreið okkar, árg. 1955 er til
sölu nú þegar. Til sýnis í dag.
OOAL H'F.
Skipholti 29.
Hafnarfjörður
STRÁPILS, algjör nýjung. Fjölbreytt Iitaval.
Verzlunin S I G R IJ N
Strandgötu 31.
Húsnœði óskast
fyrir tannlæknastofur. Tilboð sendist afgr. Mbl. —
merkt: „Tannlæknastofa — 5015“.
Útlent fyrirtceki
óskar eftir 3ja—4ra herb. íbúð til leigu sem næst
Miðbænum fyrir sölumann sinn, sem er einhleypur.
Allt að ársfyrirframgreiðlu, ef óskað er.
Upplýsingar gefur Málflutningsskrifstofa L. Fjeld-
sted, Á Fjeldsted & Ben. Sigurjónsson, Nýja-Bíó,
sími 22144.
Húseign á IHelunum
til sölu. Húsið er tvær hæðir og kjallari. Á efri hæð
eru 5 herb. og bað. Á neðri hæð eru þrjár stofur,
snyrting, eldhús og stórt hol. í kjallara 3 íbúðar-
herbergi, snyrtiherbergi, þvottahús, strauherb. og
tvær geymslur. Bílskúr, hitaveita, ræktuð og girt
lóð. Nánari upplýsingar gefnar í síma 20929 eftir
kl. 5 e.h.
H afnarfjörður
Fyrir dömur í sumarleyfið, alls konar sportfatnað-
ur. _ Snyrtivörur í fjölbreyttu úrvali. —
Leitið ekki langt yfir skammt.
Verzlunin S I G R I) IM
Strandgötu 31.